Dagur - 13.05.1995, Blaðsíða 7

Dagur - 13.05.1995, Blaðsíða 7
Laugardagur 13. maí 1995- DAGUR-7 Friðrík Örn Haraldsson - Grafísk hönnun Fæðingardagur: 27.07.1973. Foreldrar: Rósamunda Oskars- dóttir og Haraldur Friðriksson. Uppruni: Sauökrækingur. Maki: Rannveig Helgadóttir. Námsferill: Nám í tæknitciknun í Fjölbrautaskóla Noröurlands vestra á Sauðárkróki. Framtíðaráform: Aö starfa viö grafíska hönnun á Akureyri. „Lokaverkefniö mitt er „ég og mín framtíð." Eg bjó til bækling til kynningar á sjálfum mér, þar sern ég ætla að starfa sjálfstætt hér á Akurcyri við auglýsinga- gerö eða grafíska hönnun. Bækl- inginn, sent í raun er dagatal, prýða vcrkefni sem ég hcf unnið á námsárum mínum í Myndlista- skólanum. Þannig tengir bækl- ingurinn saman fortíð og framtíð. Verkefnin eru fjölþætt, ársskýrsl- ur, bókakápur, forsíður á blöð og tímarit, nafnspjöld, bréfsefni, umslög og það nýjasta, hcimasíð- ur fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja kynna eða selja vöru sína og þjónustu á Intcrnctinu.“ Skafti Skímisson - Grafísk hönnun Fæðingardagur: 03.11.1965. Foreldrar: Hjördís Sigurbjörns- dóttir og Skírnir Jónsson. Uppruni: Þingcyingur. Maki: Kristbjörg Lilja Jóhannes- dóttir. Börn: Rúnar Steinn, 5 ára. Námsferill: Stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri árið 1987. Eins árs nám í málunardcild Myndlistaskólans á Akureyri. Framtíðaráform: Að starfa við grafiska hönnun og mála þegar tími gefst. „Allt frá bernsku hefur löngunin til að fara í listnám verið til staðar. A Menntaskólaárunum sótti ég námskeið í Myndlistaskólann og fór síðar á málunarbraut og hcf niálað ætíð síðan. Hins vegar cru meiri starfsmögulcikar í grafískri hönnun. Grafiskur hönnuður fær í starfi sínu tækifæri til að lifa og hrærast í heimi listarinnar og að mínu mati eru mikil tengsl rnilli málaralistar og grafískrar hönnun- ar enda er grafísk hönnun miklu meira en nokkrar mismunandi let- urgerðir. Lokaverkefnið mitt cr ímyndað verkefni unniö fyrir Amnesty Intemational og mark- hópurinn cr 16 ára unglingar, krakkar sem cru að velja sér fram- haldsnám og lífsstíl í víðum skiln- ingi. Einmitt á þessum aldri tel ég nauðsynlegt að vekja fólk til með- vitundar um sinn þátt í samfélag- inu og mannréttindi almcnnt. Megin áherslan cr lögð á póstkort sem vekja athygli á því að mann- réttindi eru ekki sjálfgefin.“ Arnar Tryggvason - Grafísk hönnun Fæðingardagur: 09.01.1971. Foreldrar: Tryggvi og Aðal- björg. Uppruni: Akureyringur. Maki: Elísabet Stefánsdóttir. Framtíðaráform: Starfa við grafiska hönnun og fara síðar í frekara nám í greininni. „Lokaverkefnið mitt er ímyndaö verkefni fyrir prjónastofuna Glófa hér á Akureyri. Ég hannaði markaósetningu á einni vörulínu fyrir fyrirtækið sern er unnin úr íslenskri ull en um er að ræða sokka, vcttlinga og húfur. Ég út- bjó vörumerki, umbúðir, auglýs- ingar, bæklinga og fleira vegna þessarar vörulínu sem nefnist Garri. Untbúðimar eru unnar úr pappa sem er náttúrulegt efni scm hcntar ullinni vel.“ Þórhallur Krístjánsson - Grafísk hönnun Fæðingardagur: 30.03.1966. Foreldrar: Kristján Þórhallsson og Vema Sigurðardóttir. Uppruni: Dalvíkingur. Maki: Sigrún Heimisdóttir. Námsferill: Stúdent af uppeldis- braut Verkmenntaskólans á Ak- urcyri árið 1991. Framtíðaráform: Stefni að því að fá vinnu við grafiska hönnun á höfuðborgarsvæðinu. „Lokaverkefnið mitt er altæk kynning á fyrirtækinu Sæplasti á Dalvík og vörunt þess. Megin áherslan er lögð á kynningar- bækling fyrir fyrirtækið en cinnig tilhcyra þessu verkcfni rnöppur, bréfsefni og hugmyndir að auglýsingum fyrir Sæplast. Þegar lokaverkefttinu lýkur er næsta skref að fá vinnu á auglýs- ingastofu og ég ætla mér suður yfir hciðar því ég tcl að það sé nauðsynlegt að víkka sjóndeild- arhringinn og kynnast straumum og stefnum í samkeppninni á stærsta markaðssvæði landsins." Haraldur Sigurðarson - Grafísk hönnun Fæðingardagur: 09.02.1968. Foreldrar: Erla Bjömsdóttir og Sigurður Haraldsson. Uppruni: Dalvíkingur. Maki: Marsilía Sigurðardóttir. Námsferill: Lagði stund á raf- virkjun en söólaði uni og fór í Myndlistaskólann. Framtíðaráform: Búa á Akureyri og starfa við grafíska hönnun. „Lokaverkefnið mitt var aó grafa íslensku þjóðsögurnar upp úr skápnum. Ég tók íslenska þjóð- sögu, söguna af Suðra og setti hana upp sem teiknimyndasögu. Myndasögubókin er því aðal at- riðið í lokaverkefninu niínu. Bók- in cr gefin út af íntynduðu fyrir- tæki sem heitir, Segir sagan, en fyrir fyrirtækið útbjó ég ýmsar vörur og auglýsingar. Því mióur er ekki hægt að framkvæma þessa hugmynd í raunveruleikanum til þess er íslenski markaðurinn of lítill. Þó má segja að möguleikam- ir séu sífellt að aukast með auk- inni tækni. Söguna af Suðra teikn- aði ég á hefðbundinn hátt en litaði hana og textasetti í tölvu.“ Anna María Guðmann - Málunardeild Fæðingardajgur: 06.10.1966. Foreldrar: Isak Guðmann og Auður Þórhallsdóttir. Uppruni: Akurcyringur. Maki: Þórir Jón Guólaugsson. Börn: Eitt á leiðinni. Námsferill: Stúdent frá Menntaskól- anum á Akureyri og íþróttakennari. Framtíðaráform: ? Úr handriti lokavcrketnis: „Stólar: hlutur scm scst er á, citthvaö afrnark- andi, ckki ósvipaó ramma. Manncskj- ur eru ávallt innan ákveóins hegðunar- ramma. Aö setjast á stól er að stilla sig af, brjöta eitthvaó ákveðið ferli. En það getur verið erfitt að standa upp, sú athöfn felur í sér óöryggi því þú þarft alltaf að Icita að nýjum stól en ef þú situr alltaf í saman stólnum þá er hætta á að þú flækist í neti takmarkana þinna. Reyndu því alltaf að finna leið frá takmörkunum þínum.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.