Dagur - 13.05.1995, Side 13
Laugardagur 13. maí 1995 - DAGUR - 13
POPP
MAÚNUS CEIR ÚUÐMUNDSSON
gítargoðsins Steve Vai
Ásamt mönnum á borð við Yng-
wie Malmsteen og einn af læri-
feðrum sínum, Joe Satriani, telst
hinn 24 ára New Yorkbomi Steve
Vai, vera eitt helsta rokkgítargoð
samtímans af harðari skólanum.
Vann Vai þaö sér fyrst til frægðar
að verða meðlimur í hljómsveit
sjálfs Frank Zappa, þá tæplega
tvítugur, en goðió sjálft bauð hon-
um sæti í henni eftir að Vai hafði
gerst svo djarfur aö senda Zappa
lagasmíðar sínar til umsagnar. Var
Vai þá nýfluttur til Los Angeles,
eftir m.a. að hafa stundað djass og
klassískt gítamám í hinni virtu
tónlistarstofnun í Boston, Berklee.
Með Zappa var hann síðan í ein
þrjú ár og ferðaðist víða auk þess
að spila inn á nokkrar plötur með
honum. Sína fyrstu plötu undir
eigin nafni, Flex-able, gerði Vai
fljótlega eftir að hann hætti með
Zappa og var þar um nokkuð
merka djass/framúrstefnu-
rokkplötu að ræða. Sama ár, 1984,
kom endurbætt útgáfa af plötunni
sem kallaðist Flex- able leftovers.
Hlé
Sex ára hlé verður nú hins vegar á
einherjaverkum hjá Vai, en á þeim
tíma er hann í slagtogi með mörg-
um af þekktari þungrokkurum
samtímans. Fyrst leysti hann Yng-
wie Malmsteen af hólmi í sveit-
inni Alcatrazz, þar sem gamli Ra-
Steve Vai. Kann tvímælalaust sitt fag, en höfðar ekki til allra.
inbowsöngvarinn Graham Bonnet
réð ríkjum, og gerði með henni
mjög fína plötu, Disturbing the
peace. Skömmu síðar lá leiðin yfir
til David Lee Roth, sem Vai gerði
tvær góðar plötur með, Eat’em
and smile og Skyscraper og síðan
gekk hann svo í raðir Whitsnake í
stað Vivian Campell og lék á
plötunni Slip of the tongue árið
1989. Kom Vai einmitt með Whit-
esnake hingað til lands þegar
sveitin hélt eftirminnilega tvenna
tónleika í Reiðhöllinni. (Á þeim
seinni hljóp sjálfur Pétur Kristjáns
í skarðið fyrir David Coverdale
söngvara, sem fékk heiftarlega í
hálsinn.) Náði Vai á þessum sex
árum að skapa sér slíkan orðstír,
að þegar hann loks lét verða af að
gera plötu aó nýju undir eigin
nafni, Passion and warfare, uróu
viðtökumar glæsilegar. Platan
náði inn á topp 20 í Bandaríkjun-
um og er hún nú ein sú best selda
ósungna frá upphafi þar í landi.
Þessari velgengni hefur honum
hins vegar ekki tekist að fylgja
eftir í sérstökum mæli. Voru
nokkrar vonir bundnar við hljóm-
sveit sem Vai setti saman og sendi
frá sér plötuna Sex and religion
árið 1993, en þaö dæmi gekk ekki
vel upp. Nú fyrir skömmu brá því
gítarhetjan á það ráð að senda á ný
frá sér rétta og slétta ein-
herjaplötu, sjö laga grip, sem kall-
ast Aliens love secret. Vantar þar
ekki kraftinn og tilþrifin, sem á
skorti á hljómsveitarplötunni, en
um Ieið er lagasköpunin helst til
köld, eins og svo oft vill verða hjá
gítarhetjum. Það verður aftur á
móti ekki af Steve Vai skafið að
hann ber heitið gítarhetja með
rentu og hefur ennþá upp á ýmis-
legt að bjóða með Aliens love
secrets.
Það eru líkast til ekki nein stórtíð-
indi þegar þessi fugl á í hlut, en
samt allt í lagi að segja frá því að
Slash, gítarleikari Guns n’ roses
hefur gert nær öll sín orö um nýtt
og friðsamlegt skeið í hljómsveit-
inni með þá báða Axl Rose innan-
borðs að engu með því að, stutt og
laggott, AÐ HÆTTA!!! En bíðum
við, með fenginni reynslu, gæti
þetta ekki bara líka reynst rangt?
Jú, vissulega, en eftir „mjög sterk-
um heimildum“ heldur tónlistar-
pressan því fram að Rose hafi
endanlega gefist upp á „vini sín-
um“ og að Zakk Wylde, sem
sterklega hefur verið sagður á leið
í Guns n’ roses sem gítarleikari
ásamt Slash, verði einfaldlega eft-
irmaður hans. Við sjáum nú hvað
setur með þær heimildir og setjum
spumingarmerki við sannleikann í
málinu þangað til annaó kemur í
ljós.
Meistari Dylan loksins „ótengdur“
hjá MTV.
Kominn
Slash. Hættur eða ekki hættur?
Breska sveitin The Cult, sem náði
feiknavinsældum með plötum á
borð við Love, Electric og Sonic
temple, virðist nú eftir fregnum að
dæma vera að liðast í sundur eftir
rúmlega áratugs feril. Að vísu hef-
ur umboósmaóur hennar ekki vilj-
| Sagan að líkindum öll hjá Ian
| Astbury og Billy Duffy.
að staðfesta „andlátið", en það er
ljóst að aðalmennimir frá upphafi,
Ian Astbury og Billy Duffy, hafa
slitið samstarfi. Án annars hvors
þeirra ber Cult ekki sitt barr,
þannig að menn vilja fullyrða að
Cult sé öll. Skýringuna á því má
fyrst og fremst rekja til þess að
síðasta samnefnda plata Cult, sem
kom út í fyrra, gekk ekki sem
skyldi.
Eftir aó allt æðið kringum Un-
plugged/ótengdu þættina á MTV
sjónvarpsstöðinni sem hefur í það
minnsta staðið í fjögur ár, frá því
platan hans Eric Claptons sló svo
rækilega í gegn, er það fyrst núna
að trúbador allra hvítra trúbadora,
Bob Dylan, fær slíka plötu út-
gefna með sér. Hefði maóur hald-
ið aó stórmennið ætti skilið að
vera framar í röðinni hvað þetta
varóar en raun ber vitni, en svo
hefur ekki reynst einhverra hluta
vegna og e.t.v. á hann sjálfur þátt í
því. Loksins þegar platan kom út,
sem varö nú fyrir einum hálfum
rnánuði, þremur vikum, stóð svo
sannarlega ekki á viðbrögðunum.
Stökk platan beint í tíunda sætið í
Bretlandi og á án efa eftir að fara
svipaða leið í Bandaríkjunum.
Þeir sem keyptu plötur Claptons,
Rod Stewart o.fl. af sama tagi i
milljónavís, geta ekki verið þekkt-
ir fyrir annað en að kaupa Dylan
líka. Annað væri hreint út sagt
bara hneyksli.
Nafn-
breyting
m | ins og skýrt hcfúr
M-f t verið frá hér á Popp-
■miJf síðunni er von á nýju
plötunni þeirra Bubba og
Rúnars I lok þessa mánaðar.
En eins og þeir voru nú sælir
og ánægöir með það og búnir
að gefa þessari þriðju plötu
sinni hið ágæta nafn, Á
grænni grein, þá tóku þeir allt
í einu upp á því að breyta
nafninu með litlum fyrirvara.
Heitir hún nú því stutta nafni
„Teika“, sem líklega flestir
vita að er gömul sletta yfir
þann vafasama leik bama og
unglinga aó hanga aftan í bíl-
um. Ekki er gott að segja
hvað vakir fyrir herrantönn-
unum tveimur með þessum
nafnaskiptum, en manni
finnst einhvem veginn að þau
hafí verið óþörf. E.t.v. hefur
lag eða plata með þessu heiti
komið út áóur, en umsjónar-
mann Popps rekur ekki minni
til þess.
Til gamans og án
minnstu ábyrgðar
verður hér látin
fylgja með spá um gengi
Björgvins Halldórssonar með
lagið Núna í Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva, sem eins og
allir vita fer fram í kvöld.
Aðrar spár sem fram hafa
komið em á ýrnsa lund, frá
því að búast við sigri til „falls
í aðra deild", eins og óncfndir
innanbúóamtenn hér á bæ
hafa nefnt, en trú Poppsíðu-
aðstandenda er sú að Bjöggi
komist vel frá öllu saman og
lendi í 9. sæti.
Fyrr á þessu ári vom
sögusagnir á kreiki
um að Spin doctors,
rokksveitin vinsæla frá New
York, væri öll. Það hefur ekki
reynst rétt og líður henni víst
bara bærilcga. Að undan-
fömu hafa t.d. félagamir í
sveitinni gert sér það að leik í
klúbbi einum í heimaborginni
að koma fram undir nafninu
The Trips og kynnt þannig
nýtt efni. Nýstárleg aðferð
sern vakið hefur athygl i.
Tl ed hot chili peppers,
fönkrokkhljóm-
sveitin margvin-
sæla, hefur nú enn og aftur
þurft að fresta útgáfu á nýtri
plötu sinni, Stóó upphaflega
til að hún kæmi út í septem-
ber sl. en nú síðast var búist
við henni í sumarbyrjun. Af
því verður hins vegar ekki
þar sem aðalsprautan, Ant-
hony Kiedis, hefur enn ekki
náð sér af dularfullum maga-
sjúkdómi sem greindist í hon-
urn fyrir nokkm. Er nú gert
ráð fyrir plötunni í ágúst.