Dagur - 15.07.1995, Page 13

Dagur - 15.07.1995, Page 13
Laugardagur 15. júlí 1995 - DAGUR - 13 POPP MACNÚS OEIR CUPMUNDSSON Safnplötusandur Þótt fjöldi íslenskra útgáfutitla á þessu sumri sé án efa minni en undanfarin sumur, þá er það á hinn bóginn næsta víst að safnplöturnar eru engu færri. Var hér á síðunni í síðustu viku minnst á nýjustu Reifplötuna, Reif í runn- ann, en henni til viðbótar eru nú einar fimm safnplötur ýmist komnar eða eru að koma á mark- aðinn. Heyrðu 7 Skífan gefur út sjöundu Heyrðu- plötuna, sem nú eins og oftast fyrr, er með blöndu íslenskra og erlendra laga. Eru íslensku lögin nánar tiltekið fjögur, með Cigar- ette, Bubbleflies, Agga Slæ & Tamlasveitinni og Salza picante ásamt Berglindi Björk. Vekur þar ekki síst athygli lag Cigarette, I don’t believe you, sem er gott rokklag sungið af Heiðrúnu Önnu Björnsdóttur. Það má reyndar segja að söng- konur séu í aðalhlutverkum á Heyrðu 7, því önnur lög af erlend- um brunni, sem standa upp úr, eru lfka sungin af konum. Er þar átt við tvær túlkanir góðkunnra söng- kvenna á margfrægum lögum, Streets Of London (eftir þjóðlaga- söngvarann Ralf McTell) í flutn- ingi Sinead O’ Connor og Procul Harum ballöðunni A Whiter Sha- de OfPale. ís með dýfu ís með dýfu hefur eins og Heyrðu 7 litið dagsins Ijós fyrir skömmu, en hún kemur út á vegum Japis o.fl. A henni eru hins vegar eingöngu íslenskir flytjendur, gamalkunnir sem minna eru þekktir. Þeir hinir fyrrnefndu eru t.d. Unun, KK band, Páll Óskar og Milljónamæringarnir (með tvö lög) og Spoon, sem nú mun eins og fram hefur komið, senn vera að syngja sitt síðasta. Yngri sveitir á borð við Urmul, Kirsuber og Lemon, eiga síðan m.a. sín hver lögin. Bylting héðan frá Akureyri, sem í hlut á, en hún er þarna með fínt rokklag og hins vegar Eik, Lárus Páll Óskar er meö lög á „ís með dýfu“ og K „í sól og sumri“. r Sandkurl 2 „stórtón- Sandkurl 2 er á sama hátt og skáld“ H. „ísinn“, eingöngu með lögum ís- Grímsson lenskra flytjenda. Munu flestir og félagar, þeirra teljast lítt þekktir, en tveir sem þarna vekja þó sérstaka athygli svona í virðist fljótu bragði. Annars vegar er það snúin aftur ^ Heyröu 7 Stjórnarlögin 1989 - 1995 ^ a.m.k. um stundarsakir svo lítið ber á, með eitt lag. í sól og sumaryl Nýjasta safnplatan ásamt líklega Heyrðu 7, er I sól og sumaryl, sem Spor gefur út. Er þar á ferðinni hópur áður útgefinna iaga, sem eiga það sameiginlegt að tengjast sumrinu á einn eða annan hátt. Alls eru lögin 20 á plötunni og svipar henni til annarrar sem kom út fyrir nokkrum árum, I sumar- sveiflu. Meðal laganna eru, Ég veit þú kemur með Þú og ég, Ég vil elska, Negro Jose með Páli Óskari og Milljónamæringunum, Heim í Búðardal með ðe lónlí blú bojs, Tryllt með Todmobile og Dagný með Ragnari Bjarnasyni og Ellý Vilhjálmsdóttur. Sérstaklega má svo benda á að platan er á „Hag- kaupsverði”, kostar aðeins 999 kr. Stjórnin Fimmta platan sem um ræðir er síðan aðeins af öðrum toga, eða safn „bestu“ laga Stjórnarinnar, sem leit dagsins ljós fyrir nokkru. Á þessari ágætu plötu, Stjórnar- lögin 1989-1995, er að finna ní- tján af bestu og vinsælustu lögum hljómsveitarinnar frá, eins og nafnið gefur til kynna, upphafi til vorra daga. Það er allt gott um þetta safn að segja nema hvað það eitt varðar, að eina bestu ballöðuna vantar, einhverra hluta vegna. Þar er átt við Tíminn líður af samnefndu Stjórnarplötunni, sem gert hefði valið fullkomið. En svona er nú það og smekkurinn misjafn. Næsti nýpönkrisinn? Hið nýja pönkæði, sem brotist hefur út í Bandaríkjunum og síðan dreifst þaðan um heims- byggðina, virðist síður en svo í rénum og koma æ fleiri sveitir upp á yfirborðið og slá í gegn. Til rriarks um hversu vinsældir ný- pönksins eru gríðarlegar, má nú nefna að plötur risanna tveggja, Offspring og Green Day, Smash og Doodie, hafa nú selst saman- lagt í um 13 milljónum eintaka í Bandaríkjunum einum, sú fyrr- nefnda í rúmum 5, sú síðarnefnda í rúmum 7. Síðan hafa svo sveitir á borð við Bad Religion og NOFX einnig verið að gera það mjög gott. Nýjasta nafnið sem búist er jafnvel við að geti náð viðlíka hylli og Offspring og Green Day, er Pennywise, fjögurra manna sveit frá Kaliforníu, sem nú er ný- búin að senda frá sér sína þriðju plötu, About Time. Epitaph, fyrir- tækið sem líka hefur fóstrað allar áðurnefndu hljómsveitirnar, hefur kailað Pennywise „Best varðveitta leyndármálið sitt“ og víst er að gæðin og krafturinn eru fyrir hendi. Fletcher Dragee gítarleikari og félagar eru þó ekkert yfir sig spenntir að verða frægir. Segjast vilja halda pönkinu áfram sem „neðanjarðarfyrirbæri", hvössu og róttæku, en ekki sem „smartfyrir- bæri“, eins og þróunin hefur orð- ið. Þrátt fyrir þetta er viðbúið að þeir fái engu um það ráðið hver framvindan verður. í ljósi þess að fyrri tvær plöturnar seldust í 200.000 eintökum samanlagt og það áður en æðið skall á fyrir al- vöru, má vart búast við öðru en að hún verði á einn veg, áfram og meiri. Gunnar Jökull s Atímabili í íslensku poppsög- unni tala menn stundum um að aðeins einn almennilegur trommuleikari haft verið til stað- ar. Allavega var nafn hans nán- ast alltaf til staðar þegar um upp- tökur var að ræða. Þetta eru auð- vitað svolitlar ýkjur, en á tíma- bili var þessi ákveðni trommari vissulega mjög áberandi og er tvímælalaust einn sá fremsti sem ísland hefur alið. Maðurinn er auðvitað Gunnar Jökull Hákonarson, sem nú er aftur farinn að láta að sér kveða hérlendis eftir áralanga fjarveru erlendis. Hljómar, Trúbrot og Flowers, eru dæmi um sveitir sem Gunnar kom nálægt um og eftir 1970, en nú hefur hann hljóðritað plötu á eigin spýtur, Hamfarir, þar sem hann boðar að nýir og ferskir vindar blási. „Pop Beat“ kýs Gunnar að nefna sköpun sína í hnotskurn, en inn- an hennar leynist m.a. „Doubie“, sem hann segir nýja taktvídd uppgötvaða af sér. Gunnar sér sjálfur um allan hljóðfæraleik á plötunni, sem honurn tekst væntanlega að koma út innan tíðar. Nýmeti Auk safnplatanna sem fjallað er um hér annars staðar á síðunni, er ýmislegt annað „góð- gæti“ að birtast þessa dagana, tónlistaráhugafólki til mikillar gleði og yndisauka. Skrýtnasta, skemmtilegasta, borubrattasta, baldnasta, frískasta og fram- sæknasta hljómsveit landsins, (löng upptalning en segir samt ekki allt) Sniglabandið, er um þessar mundir að senda frá sér nýja plötu undir nafninu, Gull á móti sól. Plata sem eflaust marg- ir hafa beðið eftir. Þeir eru líka eflaust margir sem beðið hafa eftir annarri plötu frá þjóðlagafjóreykinu ís- landica. Gísli Helga og co. hafa nú loksins sent frá sér arftaka fyrstu plötunnar frábæru og nefnist nýja platan Römm er sú taug. Sigurjón Kjartansson, sem Olympia, hefur nú um hálfu ári eftir að fyrsta platan kom út, sent frá sér nýja. Nefnist hún Universal. Ef allt hefur farið samkvæmt áætlun, var söngleikurinn Super- star frumsýndur á fimmtudaginn í Reykjavík og það í fyrsta skipti í íslenskri uppfærslu. Plata með 12 lögum úr þessum sígilda söngleik Andrew Lloyd Webber og Tim Rice, kom út fyrir skömmu sem undanfari að sýn- ingunni. Þar syneja í aðalhlut- verkum m.a. Páll Oskar og Pétur Guðmundsson. Er Pétur sonur Guðmundar Benediktssonar út- varpsþuls, söngvara og meðlims einmitt í íslandica. Söng Guð- mundur líka í Jesus Christ Sup- erstar þegar verkið var sett fyrst upp fyrir rúmum tuttugu árum og það sem meira er, sama hlut- verk og sonur hans syngur nú, hlutverk Jesús sjálfs.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.