Dagur - 15.07.1995, Page 20
"sSísjíö®
Akureyri, laugardagur 15. júlí 1995
Mikið um að vera í dag á
50 ára kaupstaðarafmæli Ólafsfjarðar:
Brottfluttir Ólafs-
firðingar setja
svip á bæinn
Annar af tveim hápunktum
hátíðardagskrár f tilefni af
50 ára kaupstaðarafmæli Ólafs-
ijarðar verður í dag, en eins og
fram hefúr komið hefur verið
mikið um að vera í bænum alla
þessa viku.
Dagskrá afmælishátíóarinnar í
Ólafsfirói í dag er sem hér segir:
Kl. 09 Fánar dregnir að húni í
hœnum.
Kl. 13-18 Ljósmyndasýningar,
listsýningar, sýningar safnara og
Náttúrugripasafn opið bœjarbúum
og gestum.
Kl. 13-18 Dagur dýranna við
hesthúsahverfi. Búnaðarfélag Ol-
afsfjarðar annast sýningu á hús-
dýrum. Hestamenn bjóða fólki í
stutta reiðtúra.
Kl. 12 Tröllaskagatvíþraut.
Hlaupið frá ráðhúsinu á Dalvík
um gamla fjallvegi að Reykjum og
þaðan hjólað til Olafsfjarðar.
Kl. 13-18 Útimarkaður við
Tjarnarborg. Stutt ávörp, kór-
söngur - Kirkjukór Olafsfjarðar,
létt tónlist - lög úr Söguannál Ol-
afsfjarðar leikin og sungin, útitafl
- Halldór Blöndal, samgönguráð-
herra, teflir við Þorstein Asgeirs-
son, forseta bœjarstjórnar Olafs-
fjarðar, gamanmál.
Kl. 18-20 Útigrill á vœgu verði
fyrir alla á vegum brottfluttra 01-
afsfirðinga.
Kl. 20.30-21.45 „Horfðu glað-
ur um öxl“ - söguannáll Olafs-
fjarðar efiir Guðmund Ólafsson,
fluttur í Tjarnarborg.
23-03 Stórdansleikur í Tjarn-
arborg - hljómsveit I. Eydal.
Sigurður Bjömsson, formaóur
afmælishátíóamefndar, sagöi í
samtali við Dag að þessi afmælis-
vika hafi í alla staði gcngið mjög
vel. Til marks um það sagði hann
að fjöldi barna og fullorðinna hafi
skemmt sér konunglega í gömlu
góðu leikjunum, um 100 nianns
hafi þegið boð bæjarstjómar Ól-
afsfjarðar sl. fimmtudag og bæjar-
búar hafi fjölmennt til kvöldveró-
ar á vegum SH og SÍF sl. fimmtu-
dagskvöld. Þá sagði Sigurður að
söguannáll Guðmundar Ólafsson-
ar hafi fengið alveg glimrandi við-
tökur og vegna mikillar aðsóknar
væri nú búið að ákveða tvær auka-
sýningar, á morgun, sunnudag og
mánudagskvöld.
Sigurður sagði að brottfluttir
Ólafsfirðingar væru nú þegar fjöl-
margir í bænum og þeim ætti eftir
að fjölga enn frekar í dag. Hann
vildi hvetja fólk úr nágranna-
byggðum til aó sækja Ólafsfirð-
inga heim nú um helgina og taka
þátt í gleðskapnum með þeim.
A morgun lýkur þessum þætti
50 ára hátíóarhalda Ólafsfjarðar-
bæjar. Þá verður guðsþjónusta kl.
14. Ef veður Ieyfir verður hún við
Tjarnarborg, en annars í kirkjunni.
Þaó skal tekið fram að áðumefnd-
ar sýningar í Gagnfræðaskólanum,
Bamaskólanum og Náttúrugripa-
safninu verða opnar á morgun,
sunnudag.
Afmælishátíðarhöldin halda
síðan áfram í haust þegar efnt
verður til mikillar afmælisveislu
fyrir alla bæjarbúa og þá verður
ráðstefna í Ólafsfirói um málefni
jaðarbyggóa á Islandi. óþh
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
3KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565
Gamli tíminn
Fjölmargir eiga sér það áhugamál að gera upp gamla glæsilega eðalvagna. Flestir eru þessir
bílar sem „stofustáss“, geymdir inni í bílskúrum, en einnig eru þess dæmi að bílunum er ekið
um þjóðvegi landsins. Þessi glæsilega bifreið af gerðinni Hudson, varö á vegi Bjöms Gísla-
sonar, ljósmyndara blaðsins, á dögunum við Leirunesti á Akureyri. Eins og sjá má er hér um
að ræöa leigubíl sem hefur sérstakan stíl og á sér ekki hliðstæðu í flóru blikkbelja nútímans.
óþh
Nýjung í húshyggingum
Höfum tii söiu
fokhelt einbýlishús
úr timbri, hæð og
ris samtals 100 fm.
Verð kr. 3.500.000
Grunnmynd 1. hæðar
Við byggjum húsið við
verkstæði okkar og þú færð
það flutt til þín á vagni.
Hentar sérlega vel í
dreifbýli eða þar sem
afkoma getur brugðist. Þú
getur flutt húsið með þér
eða selt það þangað sem
verðið er hagstæðara.
Grunnmynd rishæðar
Hafið samband eða
komið og skoðið
Við verðum við um
helgina
„TRÉSMIÐJAN
MOGILSF.
Sími 462 1570
MEYRARA
*
hvass. ..snark... nammmmm
ÓTRÍILEGA
\ljúfFenzt t
Ijúffengt á grillið