Dagur - 05.08.1995, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 5. ágúst 1995
HÓTEL
^LHARPA
Kaffiveitingar
í fögru umhverfi
í Kjarnaskógi
miðvikudaga til sunnudaga frá kl. 14-17.
HÓTEL HARPA
KJARNALUNDI
1 FRETTIR
Iðjufélagar
Akureyri og nágrenni
Farin verður eins dags skemmtiferð með eldri
Iðjufélaga sunnudaginn 27. ágúst.
Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14
kl. 9 árdegis.
Ekið verður um Húnavatnssýslu.
Tiikynning um þátttöku þarf að hafa borist til
skrifstofu Iðju, sími 462 3621, fyrir 18. ágúst.
Ferðanefnd.
Til landbúnabar
Eigum til
afgreibslu:
Sláttuvélar.
Heyþyrlur.
Stjörnumúgavélar.
Rúllubindivélar.
Pökkunarvélar.
Baggagreipar.
Baggaplast og bindigarn.
Tökum seljanleg tæki
upp í ný.
Hafib samband vib sölumann okkar
sem gefur nánari upplýsingar.
BIF5EIÐAVERKSTÆÐIÐ
ÞORSHAMAR HF.
| Akureyri, sími 462 2700.
Riftun samninga hafnarstjórnar við Teiknistofuna Form hf.:
Bjarni Reykjalín segist
ekki hafa brugðist trúnaði
I vikunni var fjallað um uppsögn
samninga hafnarstjórnar við
Teiknistofuna Form hf., um
hönnun á deiliskipulagi vöru-
hafnar á Oddeyrartanga. Ástæða
uppsagnarinnar er að hafnar-
stjórn telur að hönnuðurinn hafí
brugðist trúnaði stjórnarinnar
með því að taka að sér verk fyrir
annan þeirra aðila sem sótt hafa
um lóðir á svæðinu, en bæði
Eimskipafélag íslands og Flutn-
ingamiðstöð Norðurlands hafa
sóst eftir aðstöðu á Oddeyrar-
tanga.
í greinargerð sem Degi hefur
borist frá eigendum Teiknistof-
unnar Forms hf., Árna Árnasyni,
húsgagna- og innanhússarkitekt og
Bjama Reykjalín, arkitekt og
byggingatæknifræðingi, vegna
þessa máls, kemur m.a. fram að
fulltrúa hafnarstjórnar hafi verið
greint frá því að FMN hafi æskt
þess að Form hf., tæki að sér
hönnun á vörugeymslu fyrir fyrir-
tækið, og hann hafi ekki gert nein-
ar athugasemdir þar að lútandi.
í greinargerðinni segir: „Bjarni
Reykjaiín, arkitekt hefur unnið að
skipulagi Akureyrarhafnar allt frá
árinu 1980, fyrst sem starfsmaður
Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen hf., hér á Akureyri, síðan sem
starfsmaður á Arkitektastofu
Svans Eiríkssonar og nú síðast
sem starfsmaður arkitektastofunn-
ar Forms. hf.“
Vinnan við hafnarskipulagið,
sem Bjarni hefur tekið þátt í, nær
yfir um 14 ára tímabil, þó ekki
samfleytt heldur aðallega í þremur
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nudd.pottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080
EKKJi
Draupnisgölu 5, 603 Akureyri
Sími 462 3002, fax 462 4581
Bænduri
Verktakar!
Við eigum til ó lager
úrval búvéla- og vinnuvéiia-
dekkja á hagstæðu verði,
beint frá framleiðanda.
(ISO 9002 gæðastaðall)
&/1LLIANŒ
mWm OaUMJaU &JJ/J1 Mcurayri
áföngum, en skýrslum var skilað í
október 1981, mars 1984 og
skýrslu um málið sem styrinn
stendur um; deiliskipulag vöru-
hafnarinnar, var skilað í mars
1993.
„Á þessu tímabili hafa komið
upp ýmsar hugmyndir um nýtingu
hafnarsvæðisins en segja má að
endanlegar tillögur hafi legið fyrir
í mars 1993 og voru þær þá efnis-
lega samþykktar í hafnarstjórn og
hluta af þessari skipulagsvinnu,
Fiskihöfnina, var þá þegar búið að
samþykkja í bæjarstjórn Akureyr-
ar, 24 mars 1992. Deiliskipulags-
tiilögurnar hafa verið í umfjöllun
hjá embættismönnum bæjarins,
nefndum og ráðum síðan 1993 og
ekki hlotið endanlega afgreiðslu
ennþá.
Varðandi ráðstöfun og úthlutun
á lóðum á vöruhafnarsvæðinu vilj-
um við taka fram eftirfarandi:
Teiknistofan lagði fram eftirfar-
andi 3 tillögur að lóðaskiptingum
á vöruhafnarsvæðinu en í tillögum
okkar hefur alltaf verið lögð
áhersla á það að endanleg lóðarút-
hlutun sé í höndum hafnarstjórnar.
Tillaga 1 Komið verði til móts
við óskir Eimskips og þeim úthlut-
að þeirri lóðarstærð sem þeir óska
eftir, en það hefur aftur á móti f
för með sér að fleiri aðilar rúmast
ekki á svæðinu.
Tillaga 2 Svæðinu verði skipt á
milli Eimskips og Flutningamið-
stöðvar Norðurlands, nokkurn
veginn til helminga, en afgangs-
svæðið verði þenslusvæði og verði
úthlutað til viðkomandi fyrirtækja
eftir þróun þeirra og vexti.
Tillaga 3 Svæðinu verði skipt
milli Eimskips og FMN þannig að
heildarstærð Ióðar Eimskips verði
rúm 60% af vöruhafnarsvæðinu en
stærð lóðar FMN verði tæp 40%.
Þess má einnig geta að heiidar-
flutningur fyrirtækjanna til sjós og
lands var svipaður árið 1994. „í
framhaldi af þessu segir í greinar-
gerðinni að af þessu megi ljóst
vera að ekki sé verið að hygla öðr-
um aðilanum, FMN, eins og gefið
hafi verið í skyn.
í niðurlaginu segir: „Það er [...]
ekki rétt að Teiknistofan Form sé
byrjuð á hönnunarvinnu á um-
ræddri skemmu eins og haft er eft-
ir Bimi í greininni [á miðvikudag]
og hafa engir hönnunarsamningar
verið gerðir. Við viljum einnig
taka það skýrt fram að við lögðum
mikla áherslu á að leysa þetta
ágreiningsmál sem virtist vera í
uppsiglingu og voru í því sam-
bandi viðraðar ýmsar hugmyndir
við formann hafnarstjórnar sem
virtist umhugað um að þessi mál
yrðu leyst á farsælan hátt fyrir alla
aðila. Birni Jósef var síðan greint
frá þessum hugmyndum okkar en
hann var ekki tilbúinn til að draga
tillögu sína til baka. Þegar það lá
ljóst fyrir óskuðum við eftir að fá
að koma á fund í hafnarstjórn og
skýra okkar sjónarmið en þeirri
beiðni var einnig synjað. Þessi
málsmeðferð kom okkur mjög á
óvart þar sem ekki virtist vera
áhugi hjá flutningsmanni tillög-
unnar að ná farsælli lendingu í
þessu máli.“ shv
Þórshöfn:
Logn, blíða og ferða
mannastraumur
að glæðast
- segir Guðbjörg Guðmundsdóttir, hótelstjóri
mikið af ferðafólki þó alltaf sé
eitthvað að gera á hótelinu þar
sem menn dvelja m.a. vegna við-
Það hefur verið frekar dauft
með ferðamannastrauminn en
hann er að glæðast í góða veðr-
inu. Núna er loftslagið hérna
eins og langt suður í löndum,
alltaf logn og blíðan mikil,“
sagði Guðbjörg Guðmannsdótt-
ir, hótelstjóri á Hótel Jórvík á
Þórshöfn, aðspurð um ferða-
mannastrauminn í sumar.
Guðbjörg sagði að kalt hefði
verið framan af sumrinu og fáir á
ferðinni, þannig að ekki hafi verið
gerðarvinnu á staðnum.
Guðbjörg sagði að allt gott
væri að frétta frá Þórshöfn, þar
væri svo fallegt í óvenjumiklu
blíðviðri og logni að með ólíkind-
um væri hvað skaparinn hefði gert
hlutina skemmtilega. Guðbjörg
sagði að þessi veðurblíða mætti
alveg vara fram undir jól og fólkið
ætti það alveg skilið. IM
Siglufjöröur:
Framkvæmdir við nýja
löndunarbryggju
Framkvæmdir við nýja löndun-
arbryggju á Sigluflrði eru nú í
fullum gangi. Nú þegar er lokið
við að keyra fyllingu í hafnar-
svæðið en um 7.900 rúmmetrar
af efni fóru í það verk. Áætlað er
að verkinu verði lokið eigi síðar
en 15. desember nk. Bryggjan
sem um ræðir verður staðsett
framan við athafnarsvæði SR-
mjöls hf. og verður framtíðar-
löndunarbryggja SR-mjöls.
Sigurður Hlöðversson, bæjar-
verkfræðingur, telur ennfremur
líklegt að bryggjan komi til með
að verða löndunarbryggja fyrir
þær tvær rækjuverksmiðjur sem í
bænum eru, Pólar og Þormóður
Rammi. Hingað til hafa þessar
verksmiðjur þurft að landa sínum
afla á togarabryggjunni og aka
honum á bílum gegnum miðjan
bæinn. Með tilkomu hinnar nýju
bryggju verða þeir flutningar úr
sögunni og ætla má að flestir bæj-
arbúar fagni því. GH