Dagur - 05.08.1995, Side 13

Dagur - 05.08.1995, Side 13
POPP Laugardagur 5. ágúst 1995 - DAGUR - 13 MACNÚS CEIR CUÐMUNDSSON Ekki bara heppni Margir hafa velt því upp og reynt að finna skýringu á hvers vegna a.m.k. þrjú síðastliðin sumur, að mestu óvænt og óþekkt nöfn í „poppbransan- um“ hafi náð að stela senunni, flestum ef ekki öllum að óvörum. Sumar- ið 1993 var það Bogomil (Sigtryggur Baldursson) ásamt Milljónamær- ingunum sem skutu öðrum ref fyrir rass og í fyrra endurtóku „Millarnir" leikinn, en þá með Páli Óskari Hjálmtýssyni. í sumar eru það síðan sveinarnir í Bítlahljómsveitinni Sixties sem slegið hafa óvænt í gegn og eiga líklega best seldu plötuna, Bítlaæði. Svarið við þessu er ekki einfalt, en sumir hallast að því að þetta sé annaðhvort heppni eða heppni, ef þá ekki hvort tveggja. Vissulega er það til í dæminu að þetta eigi sér stað, en einhvern veginn finnst manni þó að í flestum tilvikum hafi meira komið til. Það er allavega alveg á hreinu að bæði Milljónamæringarnir ásamt Bogomil og síðan Páli Óskari og Sixties, hafa haft fleira sér til fullþingis en heppni og tilviljunarkennda atburðarrás. í báðum tilfellum er um að ræða góða tónlistarmenn, vel yfir meðallagi og það sem meira er um vert, báðar hafa fallið vel og snyrtilega inn í þá „fortíðarhyggju- flóru“, sem aldeilis hefur verið ríkjandi í tónlistarheiminum undanfarin ár. Þar hefur heppnin auðvitað að nokkru komið við sögu, en samt er hún ekki ein og sér, það sem gerir gæfumuninn. Það sem e.t.v. er merki- legra og skemmtilegra líka hvað Sixties varðar, er að á svipuðum tíma á síðasta áratug kom önnur hljómsveit fram á svipðuðum forsendum, Bítlavinafélagið, sem naut síðan töluverðra vinsælda í nokkur ár og sendi frá sér allavega þrjár stórar plötur, m.a. 12 íslensk bítlalög, plötu sem einmitt svipar mjög til Bítlaæðis. Bítlavinafélagið skipuðu kappar eins og Eyjólfur Kristjánsson söngvari, Jón Ólafsson hljómborðsleikari (Ný danskur og nú síðast frægur fyrir tónlistarstjórn sína í Leikritinu Taktu lagið Lóa og söngleiknum Superstar) og Rafn Jónsson trommari, en hann á stóran þátt í að Sixtiesdrengirnir drifu í að gera plötuna. Vissi Rafn greinilega hvað klukkan sló með þeim verknaði sínum og segja vinsældir Sixties okkur allt um það. Rúnar Frlðrlksson söngvari Slxtles Úr austri, frá norðri Austurhéruð okkar ágæta lands hafa í gegnum tíðina fætt af sér þó nokkrar hljómsveitir og einstaka hljómlistarmenn sem náð hafa að vekja á sér athygli. Eru Dúkkulís- urnar og Sú Ellen, frá Egilsstöð- um og Neskaupsstað (ef mér skjátlast ekki) t.d. tvær hljóm- sveitir m.a. sem á sínum tíma náðu að koma ár sinni ágætlega fyrir borð í íslensku popplífi. Frá Norðfírði, eins og Neskaupsstaður Niturbaear er einnig oft nefndur, hefur nú komið fram á sjónarsviðið svo lít- Klappað □g klárt Nú er það endanlega orðið ljóst hvernig hljómsveitalistinn lítur út sem koma mun fram á hinni „líf- seigu“ rokkhátíð við Donington. Hefur áður verið skýrt frá því hér á síðunni að Metallica verður þar í aðalhlutverki auk þess sem nöfn Machine Head og White Zombie komi þar fram. Heilar sex sveitir hafa síðan bæst í hópinn og er óhætt að segja að þeir rokkunn- endur sem mæta munu á hátíðina 26. ágúst nk. munu fá ýmislegt gott fyrir snúð sinn. Þetta eru Therapy?,N-írska tríóið frábæra sem var reyndar líka á Donington í fyrra, Skid Row, Slash’s Snakep- it, Slayer, Varrior soul og Corrisi- Therapy on Of Conformity. Margir Islend- ingar hafa í gegnum tíðina sótt há- tíðina vel og ekki er annað vitað nema sá áhugi sé enn að einhverju leyti. Með það í huga má það fyl&ja hér með að miðaverðið á hátíðina er 26 pund og geta þeir sem til dæmis vilja (og treysta sér til) tryggja sér miða í tíma, pantað og greitt með greiðslukorti gegn- um síma. Númerið er (0115) 934 2044, með 00 að sjálfsögðu fyrir fram- an. Síðan er einnig hægt að hafa samband við ferðaskrifstofur, sem eiga að geta veitt þjónustu varð- andi Donington og aðrar tónlistar- hátíðir. ið ber á, hljómsveit sem kallar sig því skrýtna nafni Niturbasarnir og er komin frá þeim 10 laga plata sem kallast Ugludjöfullinn. Skipa sveitina þeir Ástþór Jónsson söngvari, Unnsteinn Guðjónsson gítarleikari, Ingþór Sigurðsson trommuleikari og Óskar Karlsson bassaleikari og tóku þeir plötuna upp sjálfir með hjálp góðra manna í heimahljóðveri fyrir austan. Hefðbundið rokk og ról með „skettum" frá nýbylgju og pönki í nokkuð svo kröftugum búningi er það sem fjórmenningarnir bjóða upp á og eru öll lögin á plötunni, tíu að tölu, eftir þá, nema eitt sem á víst að vera ófeðrað. (Niturbasa- lagið. Dettur manni helst í hug að þetta sé færeyska en maður veit nú svo sem ekki). Nokkuð dæmi- gerður íslenskur upptökuhljómur er á plötunni en það kemur samt ekki svo mikið að sök. Eru ágæt- islög á plötunni á borð við Heila- brot, Stjómleysi, Ein volk, Ein re- ich, Ein fuhrer (Ein þjóð, eitt ríki, einn leiðtogi, slagorð Hitlers hins illa um þriðja ríkið) og Ræflar, ekki hvað síst hin tvö síðamefndu, sem sýna að ýmislegt býr í Nitur- bösunum. ,að gerist nú al- (gengara að popp- arar noti nýjasta fjölmiðilinn, Internetið, til að koma verkum sínum á fram- færi. Danspoppsveitin breska Shamen hefur nú t.d. sett á hljóðrás á Veraldarvefnum, sitt nýjasta smáskífulag, Destinati- on Eschaton, sem þeir sem hafa mótald geta numið. ís- lenskir tónlistarmenn hafa eins og margir vita verið fljótir að tileinka sér vefinn og hafa t.d. Olympia, Unun og Björk öll sett sína tónlist út á hann. Björk er reyndar með ein- hverskonar aðdáendaklúbb á netinu, gott ef ekki margþætta heimasíðu, sem Sigurjón Sig- urðsson, Sjón skáld með meiru, hefur annast. Tr V r /Y ■ s ■rommuleikari Sheffieldrokk- sveitarinnar vin- sælu Def Leppard, Rick Allen, sem frægur hefur orðið fyrir að láta ekki deigan síga þrátt fyrir handleggsmissi fyrir all- nokkrum árum síðan, kann nú að vera í vondum málum eftir að hafa beitt eiginkonu sína, Stacey, ofbeldi í flugstöð í Los Angeles. Mun hann jafnvel hafa reynt að kyrkja hana inni á kvennasalerninu, en þangað hafði hann elt hana eftir mikið rifrildi. Var Allen handtekinn og sfðan leystur út gegn hárri tryggingu, en á yfir höfði sér allt að tveggja ára vist í tukt- húsi ef málið fer fyrir dóm. □ave Abbruzzeee ÝT >en Hands er nafnið á nýrri hljómsveit sem fyrrum trommuleikari Pearl Jam, Da- ve Abbruzzese hefur sett á laggirnar. Starfar hún í Dallas í Texas og er þar að taka upp plötu. Abbruzzese hefur líka tekið þátt í að gera nýja plötu til heiðurs Jimi Hendrix, sem upptökumaður Jimis, Eddie Kramer, stendur fyrir. Er sú plata væntanleg síðar á árinu. v> c; aT wf mashing Pumpk- iins, rokksveitin ^gríðarvinsæla, sem er tvímælalaust ein af frumherjum Grunge/rymrokks- ins þótt ekki sé hún frá Seattle, er nú að vinna að nýrri plötu. Hefur gripurinn ekki ennþá fengið nafn, en hans mun vera að vænta í október.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.