Dagur - 05.08.1995, Blaðsíða 20

Dagur - 05.08.1995, Blaðsíða 20
Hátíðir og skemmtanir á Norðurlandi um helgina: Búist við miklum fjölda Akureyri: Einn tekinn fyrir ölvunarakstur Mikill íjöldi fólks hefur Iagt leið sína til bæjarins síðustu daga og sl. fímmtudagskvöld má segja að fólk hafí tekið forskot á sæluna því margt var um mann- inn í miðbæ Akureyrar. Helstu vínveitingahús bæjarins höfðu opið til klukkan 2 en sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu fór allt vel fram og lítil sem engin afskipti þurfti að hafa af fólki. Einn ökumaður var þó tekinn fyrir ölvun við akstur snemina í gær- morgun. GH Siglufjörður: Áfengi hellt niður Gestir tóku að streyma til Sigluijarðar á fimmtudag og allt útlit er fyrir að mikill Qöldi fólks komi til með að taka þátt í Síldarævintýrinu í ár eins og undanfarin íjögur ár. Að sögn Sigmundar Sigmunds- sonar, lögregluþjóns, virðast rnenn byrja hátíðina sólahring fyrr en vanalega en þó hafa engin vand- ræði komið upp. Lögreglan á Siglufirði hyggst fylgjast vel með unglingadrykkju og til marks um það var rúta sem var á leið í bæinn stöðvuð. tölu- vert áfengi gert upptækt og því hellt niður. GH Fólksflutningar: Straumurinn norður Samkvæmt upplýsingum helstu fólksflutningafyrir- tækja landsins liggur straumur- inn norður, en ekki að norðan, um helgina. Hjá Flugleiðum fengust þær upplýsingar í gær, að af sex vélum lil Akureyrar frá Reykjavík hefðu fjórar verið fullar og vél Flugfé- lags Norðurlands frá Keflavík var einnig fullbókuð, en laust var í all- ar vélar hjá báðum félögum suður. Næg sæti eru laus hjá Flugleiðum í dag, til og frá Reykjavík, vél FN til Akureyrar er uppbókuð en sæti laus í vélinni til Keflavíkur. Á Umferðarmiðstöðinni á Ak- ureyri höfðu starfsmenn engar beinharðar staðreyndir, en sögðu að margir hefðu hringt og spurst fyrir um gistingu. Á skrifstofu Norðurleiðar í Reykjavík sagði starfsmaður að sér viilist sem heldur fleiri ætluðu norður en síð- asta ár. Samkvæmt þessum upp- lýsingum er allt útlit fyrir margt fólk og mikla gleði á Norðurlandi uin helgina. shv í dag verður fremur hæg vestlæg átt og yfirleitt létt- skýjað á Norðurlandi en þó má búast við einhverri úr- komu við norðausturströnd- ina. Hitinn verður á bilinu 14- 18 stig. Á sunnudag og mánudag verður fremur hæg vestlæg átt en strekkings- vindur verður á þriðjudag. Yfirleitt verður léttskýjað og hiti á bilinu 14-18 stig. Ymislegt verður um að vera á Norðurlandi um helgina, en hæst ber fjórar skipulagðar há- tíðir; Ættarmót Helga magra á Hrafnagili, Síldarævintýri á Siglufirði, Halló Akureyri og Kántrýhátíð á Skagaströnd. Hljóðið í Magnúsi Má lijá Halló Akureyri var gott í gær, enda fullur bær á fimmtudags- kvöld. Skemmtistaðir voru þá opnir til klukkan tvö eftir mið- nætti og í raun verið að gcra til- raun til að lengja skemmtunina um einn dag. Magnús sagði að hann ætti von á fleira fólki en í fyrra og enn betri hátíð, en sömu aðilar slanda að framkvæmdunum nú og í fyrra og sagði hann þá hafa öðlast reynslu sem nýttist þeim nú. Á Síldarævintýri á Siglufirði var sama tjörið og á Akureyri, en þar voru hátt í þrjú þúsund manns kornin í bæinn á fimmtudagsnótt. Að sögn Theódórs Júlíussonar byrjaði straumurinn strax á mið- vikudaginn og í gær voru öll tjald- stæði í miðbænum orðin full, en nóg pláss er fyrir tjöld í jaðri bæj- arins. Ef tekið er mið af fyrstu gest- unum á Ættarmóti Helga magra má búast við fólki frá öllum landshornum, því fyrstir á svæðið Togarinn Skagfírðingur SK-4 er á leið úr Smugunni með 250 tonn af ísuðum afla, aðal- lega þorski og verður landað úr honum á Sauðárkróki nk. þriðjudag. Aflabrögð hafa verið sæmileg, en þorskurinn fremur smár. Aflinn verður mestmegnis unn- inn á Sauðárkróki og á Hofsósi en frystihúsið þar tekur þá aftur til starfa eftir sumarleyfi. Einnig voru Flateyringar. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, einn forsvarsmanna ættarmótsins, sagðist í gær vonast til að sjá heimafólk á hátíðinni, auk gesta á tjaldstæðinu, en tölu- vert var í gærmorgun komið af tjaldgestum á Hrafnagil. Guðmundur Olafsson er einn þeirra sem standa að Kántrýhátíð á Skagaströnd, og bjóst hann við góðri skemmtun um helgina. Að Aðalfundur Eyþings, samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, samþykkti á síðasta aðal- fundi að fram færi endurskoðun á lögum félagsins og voru til þess kosin formaður Eyþings, Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, Reinhard Reynisson sveitarstjóri Þórshafnarhrepps og Sigríður Stefánsdóttir bæjar- fulltrúi á Akureyri. Nefndin kom saman á Húsavík kann einhver hluti aflans að verða sendur til Hraðfrystihúss Grundar- tjarðar hf. til vinnslu en Fiskiðjan Skagfirðingur hf. er þar meiri- hlutaeigandi sem kunnugt er. Annar togari útgerðarinnar, Hegranes SK-2, fer að ljúka sín- um veiðilúr í Smuguna en hann er kominn með um 245 tonn upp úr sjó, en aflinn er saltaður og er bú- ið að salta í 280 kör. Þriðji skag- firski togarinn sem er í Smugunni, hans sögn voru talsverl margir burtfluttir Skagstrendingar komnir á staðinn og eins vinir og vensla- fólk sem gista í heimahúsum, en hann bjóst við góðri skemmtun um helgina. Guðmundur vildi koma því á framfæri að enginn aðgangseyrir væri að Kántrýhátíð- inni, en hann sagðist hafa orðið var við að fólk héldi hið gagn- stæða. shv í gær og verða tillögurnar lagðar fyrir aðalfund Eyþings sem hald- inn verður í Mývalnssveit dagana 31. ágúst og 1. september nk. Til- lögur nefndarinnar bera ekki með sér stórvægilegar breytingar á lög- um Eyþings, aðallega breytingu á þeirri viðmiðun hversu marga íbúa þyrfti að baki hverjum full- trúa á aðalfundi Eyþings. Það þýðir fjölgun á fulltrúum um einn. Þessa dagana er verið að ganga Málmey SK-1, frystir afíann um borð. Togarinn Svalbakur EA-302 kemur til Akureyrar í dag úr Smugunni en þangað hélt hann til veiða 29. júní sl. Aflinn er 301 kar af saltfiski, eða um 100 tonn af verkuðum salfiski. Skipið fer aftur til veiða í Smugunni í lok næstu viku. Skip- stjóri er Júlíus Kristjánsson. GG Herðubreiðarlindir: Talsverð umferð - segir Kári Kristjánsson, landvörður að er allt gott að frétta og aldreí nein vandræði hér. Ferðamannastraumur kom síðar en venjulega en það kólnaði um miðjan júlí og þá fóru ferðamenn að koma. Viku áður var búið að spá vondu veðri, þó veðrið batn- aði alltaf og hitnaði. Ferðamenn fara mikið eftir veðurspánni,“ sagði Kári Kristjánsson, land- vörður í Herðubreiðarlindum. Talsvert mikil umferð hefur verið síðustu vikumar, en kannski aðeins minni en í fyrra, að sögn Kára. Hann sagði ástand gróðurs gott, það væri eins og í venjulegu ári og haustlitir aðeins að byrja að sjást. Hann sagði að í ágústbyrjun væri mjög fallegt í Herðubreiðar- lindum, rökkrið aðeins komið yfir og haustlitimir famir að birtast. Enginn snjór er á þessum slóð- um og þar var minni snjór sl. vet- ur en í venjulegu ári, mun minni snjór er einnig í Öskjuopi. Kári sagði að Dyngjufjallaleið norðan Trölladyngju væri opin en Gæsa- vatnaleið við Vatnajökul er ekki fær vegna snjóa. Kári sagði að 85-90% gesta í Herðubreiðarlindum væru erlendir ferðamenn. Útbúnar hafa verið merktar gönguleiðir um nágrennið og sagði Kári að frekar væri að aukast að fólk gengi þarna um og það kynni að meta þetta framtak. Einnig eru meira um að fólk fari í lengri göngur og allmargir koma með rútum í Herðubreiðarlindir en ganga síðan frá Bræðrafelli í Mý- vatnssveit, sem er 3-4 daga ganga. IM frá tillögum til aðalfundarins um það hvernig sveitarfélögin hagi þeirri ráðgjafaþjónustu sem þau þurfa að yfirtaka þegar ríkisvaldið leggur niður fræðsluskrifstofumar. Það verður aðalmál þingsins í Mý- vatnssveit sem tengist yfirfærslu sveitarfélaganna á grunnskólanum sem kemur til framkvæmda 1. ágúst 1996. GG Allt fyrir garðinn í Perlunni við \4 KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg. simi 23565 Skagfirðingur SK með 250 tonna afla úr Smugunni - Svalbakur EA-302 með 100 tonn af verkuðum saltfiski Mývatnssveft: Aðalfundur Eyþings um næstu mánaðamót

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.