Dagur - 05.08.1995, Blaðsíða 6

Dagur - 05.08.1995, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 5. ágúst 1995 Jim Carrey - leikarinn frægi - stiklar á stóru um líf sitt og starf: Líf mitt snýst ekki um Gamanleikarinn Jim Carrey, sem varð frægur fyrir ruglaðan húmor í myndunum „Ace Ventura: Pet Detective“, „The Mask“, „Dumb and Dumber“ og nú síðast „Batman Forever“, sem þessa dagana er sýnd í Borgarbíói á Akureyri við miklar vinsældir, hefur unnið hörðum höndum að því að láta draum sinn rætast, að verða atvinnuleikari. f dag er hann einn áhugaverðasti gamanleikari í Banda- ríkjunum, en iíf Carrey hefur ekki alltaf verið dans á rósum, hann hefur kynnst því hvernig það er að búa við fátækt og eymd. Carrey var í Los Angeles í myndatökum þegar greinarhöfund- ur náði tali af honum. Miðað við þá ímynd sem biaðamaður hafði af þessum 32ja ára gamla gamanleik- ara var beðið í eftirvæntingu eftir að Carrey myndi draga varirnar upp fyrir haus eða augu hans myndu hanga á gormum. Síðustu tvö ár hefur Carrey leikið í hverri stórmyndinni á fæt- ur annarri og velgengni hans er ekki til komin fyrir slysni. Margir telja Carrey mjög hæfileikaríkan gamanleikara og Jerry Lewis, sem Carrey hefur helst verið líkt við, hefur kallað hann „færasta ærsla- gamanleikara sem komið hefur fram í áratugi." Aldrei að gefast upp „Faðir minn kenndi mér að gefast aldrei upp,“ sagði Jim Carrey. „Hann kenndi mér að það væri betra að stefna að einhverju sér- stöku og hætta á það að eiga ekki fyrir mat, heldur en að gefast upp. Ef þú gefur upp drauma þína, hvað er þá eftir? Þegar fólk hittir mig í fyrsta skipti, segir það venjulega: „Þú er allt öðruvísi en ég bjóst við“, og ég svara því til að ég sé bara ekki í kolrugluðu skapi þann daginn. Ég get skipt yfir í ærslin á svipstundu og skemmt mér konunglega, en það stafar af þörfmni fyrir að kasta frá mér alvarlegu hliðinni um stund.“ Frá uppvaxtarárunum í New- market í Ontariofylki í Kanada, 30 mflur fyrir norðan Toronto, minn- ist Carrey þess að hafa verið öðru- vísi en aðrir. „Þegar ég var 10 ára skrifaði ég ljóð. Ég málaði og teiknaði. Eg gat setið í herberginu mínu og starað á sjálfan mig í speglinum, geiflað mig og túlkað hinar ýmsu tilfinningasveiflur, allt frá gráti yfir í skellihlátur. Móðir mín sagði mér að ég myndi ein- hvern daginn hitta kölska sjálfan. Foreldrar mínir höfðu miklar áhyggjur af mér og það með réttu.“ Vildi verða eins og Jerry Lewis A skólaárunum átti Carrey marga vini, var með góðar einkunnir og sá um 15 mínútna grínþátt fyrir bekkj- arfélagana í lok hvers skóladags. Hann var alltaf öðruvísi en aðrir. „Ég var heppinn að því leyti að ég vissi alltaf hvað ég vildi,“ sagði Carrey. „Barn að aldri var Jerry Le- wis, gamanleikari, mitt goð. Hann var eins og faðir minn, góður mað- ur sem reynir að skilja rétt frá röngu og kemur, rétt eins og kett- irnir, alltaf niður á löppunum. Afi minn og amma voru áfeng- issjúklingar og á hverjum jólum gerðu þau lítið úr atvinnulausum föður mínum. Faðir minn sat bara þarna og hlustaði á svívirðingarn- ar án þess að segja orð, hann var alltof góður í sér til að standa uppi í hárinu á þeim. Það var hryllilegt að horfa upp á þetta. Um leið og amma og afi voru farin tók ég mig til og hermdi eftir þeim og gerði grín af þeim. Þetta hressti upp á sálartetur föður míns.“ Endalaus vandræði Móðir Carreys átti ekki sjö dagana sæla. „Hún var atvinnumaður í að uppgötva sjúkdóma og veikjast, hún var töfluffkill," segir Carrey. „Ég reyndi að hafa það hugfast að hún var dóttir áfengissjúklinga sem yfirgáfu hana á jólunum.“ Carrey brynjaði sig fyrir vandamálunum með því að gera grín af ólíklegustu hlutum. „Ég setti bara upp andlit rugludalls- ins,“ segir hann. Fjölskylda Carreys missti heim- ili sitt og um skeið mátti hún gera sér að góðu að búa í fellihýsi og tjöldum. „Við vorum afar óham- ingjusöm, við breyttumst í villidýr og kynþáttahatara sem við vorum alls ekki. Þetta var lærdómsríkt. Ég komst að raun um að fólk sem lendir á rangri hillu í lífinu missir lífslöngunina. Ég átti enga vini - ég sóttist ekki eftir þeim. Ég hætti í skóla 16 ára gamall, jafnskjótt og ég lauk skyldunámi. Ég vann átta stundir á dag og átti erfitt með að einbeita mér að því sem kennar- arnir voru að segja. Eftir að við höfðum búið við þetta ástand í næstum tvö ár, var fjölskyldan búin að fá nóg, hún festi kaup á hjólhýsi með salerni og fór í átta mánaða útilegu. Að þessum tíma loknum glaðnaði aft- ur til, okkur bauðst betri vinna og fjölskyldan kom undir sig fótun- um á nýjan leik. Ég þakka guði fyrir allt það erfiði og furðulegu uppákomur sem ég lenti í á mínum yngri ár- um. Án þeirra væri ég ekki sá sem ég er í dag.“ Fimmtán ára í grínklúbbi Faðir Carreys vildi þrátt fyrir alla þessa erfiðleika mikið á sig leggja til þess að draumur sonarins yrð> að veruleika. Hann útvegaði syn- inum vinnu við að koma fram í grínklúbbnum Yak Yak’s, sem er í Toronto. Fyrsta kvöldið var hræði- legt. Klæðnaðurinn, gul polyester jakkaföt, var hryllilegur og kynnir í klúbbnum gerði stanslaust grín að honum. Þetta fór með Carrey og hann steig ekki á svið næstu tvö árin, Jw til hann var 17 ára gamall. „Ég hef enga hugmynd um hvað það var sem hvatti mig til að reyna aftur. Mér bara fannst að ég yrði að prófa á nýjan leik.“ Nítján ára gamall flutti Carrey til Los Angeles. Næstu sjö ár starfaði hann sem skemmtikraftur í grínklúbbum í Los Angeles, New York og næturklúbbum í Las Veg- as. Hann „hitaði upp“ fyrir Rodn- ey Dangerfield, The Pointer Sist- ers, Sheena Easton og Pat Bonne. Árslaun Carreys þegar hann var 22 ára gamall voru 12,6 millj- ónir króna, en samt var hann ekki ánægður. „Ég vildi skapa hlutina sjálfur, eftirherma er aldrei hann sjálfur. Árum saman hafði ég ver- ið að herma eftir einhverjum fræg- um persónum fyrir foreldra mína.“ Leiklistarbakterían Niðurstaðan var leiklistin. Carrey tók leiklistaráfanga í skóla, en var atvinnulaus í tvö ár. Loks fékk hann einnar viku vinnu til reynslu, en eigandi skemmtistaðarins sagð- ist frekar vilja að hann hermdi eft- ir. Carrey þverneitaði og leiklistin varð ofan á. í kjölfarið fylgdu smáhlutverk í nokkrum kvik- myndum; „Peggy Sue Got Marri- ed“, „The Dead Pool“ og „Earth Girls are Easy“. Árið 1990 fékk Carrey svo loks fasta vinnu í sjónvarpsþáttunum „In Living Color“. í kjölfarið fyígdu stór hlutverk í „Ace Vent- ura: Pet Detective“, „The Mask“ og „Dumb and Dumber'*. Fyrir Ace Ventura og The Mask fékk Carrey samtals 50 milljónir króna, sem eru smápeningar miðað við þær tekjur sem myndirnar færðu framleiðendunum, 12,6 milljarðar króna. Velgengni þessara tveggja mynda gerði það að verkum að Carrey gat hækkað launakröfur sínar og fyrir Dumb and Dumber fékk hann um 440 milljónir króna. „Mér leist vel á Dumb and Dumb- er, fyrst og fremst vegna titils hennar. Ég las handritið og leist strax vel á að leika á móti þekkt- um leikara. Jeff Daniels er mjög góður leikari.“ Næsta stórmynd Jim Carreys er „Batman Forever“, sem þessa dag- ana er sýnd við miklar vinsældir í Borgarbíói á Akureyri. Næst á dagskránni eru síðan númer tvö af Ace Ventura og The Mask. Frægðin Það er ekki alltaf dans á rósum að vera frægur; sjö ára hjónabandi Carreys Iauk síðastliðið ár. „Það er mjög erfitt að vera giftur,“ segir Carrey. „Ég er ástfanginn af vinn- unni minni og það er erfitt fyrir hvaða konu sem er. Þessi athygli reynir á sambönd. Eins og staðan er í dag á ég erfitt með að sjá að líf mitt breytist það mikið að ég verði tilbúinn að taka mikinn tíma í að rækta sambönd. Núna hef ég ekki tíma fyrir neitt annað en sjö ára dóttur mína og vinnuna. Líf mitt í dag snýst ekki um peninga, heldur það að vinna með hæfi- leikaríkasta og besta fólkinu í kvikmyndaiðnaðinum. Það hefur alltaf verið minn draumur. Faðir Carreys lést á síðasta ári, en hann lifði það að sjá draum sonarins rætast. „Foreldrar mínir kenndu mér að trúa á kraftaverk," segir Jim Carrey að lokum. „Líf mitt er sönnun þess að þau eru til.“ Þýðing: Kristín Ólafsdóttir. (Heimild: Costa Stathopoulos)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.