Dagur - 05.08.1995, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 5. ágúst 1995
Texti: Auður Ingólfsdóttir
Mynd: Björn Gíslason
Bítlaæðið
endurvakið
Hljómsveitinni Sixties hefur skotið
upp á stjörnuhimininn með ógnar-
hraða í sumar og spilar á fjórum
útihátíðum nú um verslunarmanna-
helgina. Eins og nafnið gefur til
kynna syngur hljómsveitin aðal-
lega lög frá sjöunda áratugnum,
þegar hið svokallaða „Bítlatíma-
bil“ stóð yfir, og hefur fært mörg
gömlu góðu lögin í nýjan og fersk-
an búning. Aðalforsprakkinn og
söngvari hljómsveitarinnar er Ak-
ureyringurinn Rúnar Friðriksson,
sonur þeirra Friðriks Bjarnasonar
og Guðlaugar Sigurðardóttur.
Rúnar bjó á Akureyri þar til fyr-
ir fimm árum að hann ákvað að
flytja til Reykjavíkur. Sixties er
ekki fyrsta hljómsveitin sem hann
hefur verið í því fyrir norðan var
hann í hljómsveitinni Drykkir inn-
byrðis og síðan spilaði hann rokk í
þyngri kantinum í nokkurn tíma
með hljómsveitinni Jötunuxar. Það
var þó ekki fyrr en með Sixties að
hann sló í gegn og lög sem hann
syngur fóru að hljóma á Ijósvaka-
miðlunum, auk þess sem hljóm-
sveitin hefur náð miklum vinsæld-
um sem danshljómsveit enda hefur
hún þeyst vítt og breitt um landið í
sumar að spila.
Að Rúnari meðtöldum eru með-
limir Sixties fjórir: Rúnar syngur,
Þórarinn Freysson spilar á bassa,
Andrés Gunnlaugsson á gítar og
Guðmundur Gunnlaugsson á
trommur. „Og þeir eru ekki bræð-
ur,“ tekur Rúnar fram um tvo þá
síðasttöldu. Rúnar segir hugmynd-
ina að Sixties hafa kviknað þegar
hann fór í bíó á myndina Backbeat
en þar segir frá fimmta bítilnum
sem hætti í hljómsveitinni áður en
hún varð fræg, vegna stúlku sem
hann varð ástfanginn af. „Það var
síðan í september síðastliðnum að
ég og Guðmundur trommuleikari
vorum að mála hús á Ránargötunni
sem við fórum að kasta þessari
hugmynd á milli okkar og hljóm-
sveitin Sixties var stofnuð í nóv-
ember."
Leist betur á bítlalög
en Duran Duran
-Hvers vegna fóruð þið þessa leið,
að setja gömul lög í nýjan búning?
„Þetta er frekar vænt upp á veit-
ingahúsabransann. Lögin þekkja
allir og til að fá eitthvað að gera í
spilamennsku er þetta mjög vænleg
tónlist til að komast að. Það er
mjög vinsælt núna að vera með
eina línu þannig að í rauninni var
það þetta eða Duran Duran og mér
leist betur á þetta,“ segir Rúnar og
má finna að Duran Duran hljóm-
sveitin er ekki í neinu sérstöku
uppáhaldi.
Hljómsveitinni hefur vegnað vel
í sumar og má segja að velgengnin
hafi komið þeim félögum nokkuð á
óvart. „Við ætluðum aðallega að
stíla inn á árshátíðir og þorrablót
og eitt og eitt ball á veitingastöðum
en svo er bara búið að vera fullt
alls staðar þar sem við höfum verið
og mjög gaman og mikil stemmn-
ing. Við kvörtum því ekki yfir
þessu sumri.“
Þann 20. maí gaf Sixties út
plötu sem heitir Bítilæði. „Ekki
Bítlaæði,“ segir Rúnar örlítið argur
því nokkuð hefur borið á að rangt
hafi verið farið með nafn plötunn-
ar. Bítilæði hefur selst vel og á
dögunum var hljómsveitinni afhent
gullplata. Það var vel við hæfi að
evrópskur auðkýfíngur afhenti fé-
lögunum gullið. „Já, það var millj-
ónamæringuinn sjálfur, Hassó, sem
afhenti okkur gullplötuna. Við
fréttum að hann yrði á Ömmu Lú á
sama tíma og þá var bara hringt í
hann og spurt hvort hann væri til í
að afhenda gullplötuna. Fyrir
svona kalla var gullplata náttúru-
lega eitt af því sem hann hefði get-
að keypt sér. En þetta var mjög
gaman, bæði fyrir hann og okkur.“
Aðdáendur frá
sex ára til sjötugs
-Þeir sem ná langt í tónlistinni
verða oft að þola augngotur og
aðra athygli sem fylgir því að vera
þekkt andlit. Er fólk farið að snúa
sér við á götu?
„Eg vil nú ekki segja að það sé
farið að snúa sér við. En það er
náttúrulega mikið af fólki sem
maður er farinn að kannast við.
Annars er ég að verða dálítíð
þreyttur á þessari spurningu:
„Hvernig er að vera frægur?" og
hef yfirleitt svarað að ég bara viti
það ekki, það verði að spyrja ein-
hvern annan en mig. En það er
kannski aðallega fólk að norðan,
finnst mér, sem er ánægt með þetta
og mér þykir bara gaman af því.“
Rúnar segir að erfitt sé að segja
til um hvaða fólk hlusti aðallega á
tónlistina sem þeir spila. „Það er
ofboðslega blandaður hópur á böll-
um hjá okkur. Ég talaði við góðan
félaga minn sem vinnur í plötubúð
og var að spyrja hann hvaða hópur
kaupi plötuna. Hann sagði að í
þeim hópi sé fólk frá sex ára upp í
sjötugt. Við eigum því ferlega erf-
itt með að ákveða hver er okkar
markhópur. En þetta er náttúrulega
bítlakynslóðin, fólk sem er í kring-
um um fimmtugt f dag og niður í
25 ára. Við sjáum líka miklu yngra
fólk á böllunum hjá okkur.“
Fáir verða milljónerar sem tón-
listarmenn á Islandi eins og gerist
með þá vinsælu úti í heimi en
strákarnir í Sixties eru samt
ánægðir með afraksturinn í sumar.
„Ég kvarta ekki. Við erum búnir að
gera það mjög gott í sumar en við
erum líka mjög vel skipulagðir.
Við eigum bílinn sem við erum á
og erum ekkert að eyða í óþarfa.
Ætlum að byrja þannig og sjá svo
ti!.“
Sömu lög og pabbi söng
Rúnar er, eins og áður kom fram,
sonur Friðriks Bjarnasonar en Frið-
rik var á sínum tíma í hljómsveit
Ingimars Eydal og spilaði þá mörg
þeirra laga sem Rúnar er að syngja
núna. Hvað finnst föðurnum um að
sonurinn sé að feta í fótspor hans?
„Þetta vekur óhemju lukku á heim-
ilinu. Það hefur aldrei vantað að öll
fjölskyldan, amma, afi og allur
pakkinn, hefur alltaf stutt mig vel.
Sérstaklega þegar maður var að
byrja og gekk kannski ekkert allt
of vel. Þá var maður ekkert press-
aður út í horn með að fara að gera
eitthvað annað.“
En Rúnar hefur tónlistargáfuna
ekki bara frá föður sínum. „Móður-
afi minn söng í karlakór og hinn
afi minn úr fóðurættinni spilar á
harmoniku, þannig að maður hefur
þetta úr báðum áttum. Ég á tvö
systkini og þau voru bæði í músík.
Systir mín spilaði á píanó, er búin
með 4. stig held ég, og bróðir minn
er með annað eins í þverflautuleik.
Það var því alltaf mikil tónlist á
mínu heimili og má segja að maður
hafi fengið þetta með móðurmjólk-
inni.“
-Þú býrð í Reykjavík núna.
Saknar þú Akureyrar?
„Ég sakna þess rosalega að hafa
ekki þessar hitabylgjur sem koma
stundum fyrir norðan þegar hitinn
fer upp í 25-26 stig. Það gerist bara
ekki í Reykjavík! Ég átti Iíka rosa-
lega erfitt með að venjast saltinu á
götunum og þessu ótrúlega slabbi.
En þetta er nú búið að ganga ágæt-
lega samt,“ segir Rúnar og hlær
við.
Önnur plata?
-Hvað er svo framundan hjá Sixti-
es?
„Við ætlum að taka heljarinnar
rúnt um landið nú um verslunar-
mannahelgina. Á fimmtudagskvöld
spiluðum við í Sjallanum á Akur-
eyri og fórum á Vopnafjörð á
föstudaginn. Við verðum á Neista-
flugi í Neskaupstað í dag og Galta-
læk á morgun þannig að við tökum
hálft Iandið en þetta leggst bara vel
í okkur. Framundan er síðan í
rauninni bara að klára þennan túr,
reyna kannski aðeins að færa sig
austar og við verðum fyrir norðan
heilmikið því okkur hefur gengið
mjög vel þar, fengið alveg frábærar
mótttökur og erum mjög ánægðir.
Við komum sennilega til með að
spila stíft framundir áramót og svo
er ég að gæla við upptöku á nýrri
plötu í byrjun nýs árs. En þetta eru
allt frumhugmyndir ennþá.“ AI