Dagur - 05.08.1995, Síða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 5. ágúst 1995
Lindin sími 461 3008
Þetta er eitthuoð \
fyrirþig
Úrval sælkerarétta á kvöldverðarhlaðborði öll
laugardagskvöld og sunnudagskvöld frá kl. 19.
Miðdegishlaðborð með fjölbreyttur úrvali.
Smárétta salöt, grænmetisréttir, heimabakað
brauð, hnallþórur og tertur frá kl. 13 á sunnudag.
V
hotel
edda
Láttu það eftir
þér að líta mn.
Hótel EDDA
Þelamörk
/
BAP BPYS
SKVÍSUR!
í BORGARBÍð UM HEIGINA GETHRÐU
FENGIÐ ÞÉR KÖK f BAD BOYS SKVÍSU
0G STðRAN POPP A ÖTRÚLEGU VEROI!
WHATCHA GONNA DO ?
SKELLTU ÞÉR Á SKVÍSU UM HELGINA
BAD boyS Forsýningar
Mánudagskvöldið lágúst
kl.21:00 & 23:00
MYNDIN ER SÝND SAMTÍMIS í BORGARBÍÓ
OG SAMBÍÓUNUM REYKJAVÍK
Ljósmyndir fréttaritara
77/ sjós og lands er yfirskrift sýn-
ingar á Ijósmyndum fréttaritara
Morgunblaðsins sem haldin verð-
ur í Café Karolínu á Akureyri
dagana 5. til 19. ágúst nk. Sýning-
in er liður í Listasumri á Akureyri.
Okkar menn, félag fréttaritara
Morgunblaðsins, efndi til sam-
keppni um bestu ljósmyndir
fréttaritara blaðsins frá árunum
1993 og 1994. Samkeppnin var
haldin í samvinnu við Morgun-
blaðið. Blaðið er með tæplega 100
fréttaritara á sínum snærum um
allt land og fékk dómnefnd fjölda
mynda til skoðunar.
Veitt voru verðlaun í tíu efnis-
flokkum sem eru: Fréttir, andlit,
daglegt líf, atvinnulíf, fólk, íþrótt-
ir, spaug , Iaus taumur ímyndunar-
aflsins, opinn flokkur og mynd-
raðir. Besta mynd keppninnar var
talin fréttamynd sem tengist sjó-
slysinu í Vöðiavík og nefnist
„Frækilegt björgunarafrek". Ljós-
myndarinn er Ágúst Blöndal,
fréttaritari í Neskaupsstað.
Þær ljósmyndir sem fengu
verðlaun og sérstakar viðurkenn-
ingar, alls 30 myndir, voru settar
upp á sýningu með yfirskriftinni
„Til sjós og lands“. Sýningin var
haldin í anddyri Morgunblaðs-
hússins í Reykjavík um miðjan
maí og hafa myndirnar síðan verið
á hringferð um landið.
Sýningin er opin á opnunartíma
Café Karolínu að Kaupvangsstræti
23 á Akureyri.
Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn:
Stærðarbreytmg mý-
flugna rannsökuð
hvernig stendur á því. Eitt af því
sem gefið getur vísbendingar um
hvað er á seyði eru breytingar sem
verða á líkamsstærð mýflugna
milli ára. Spurningin er hvort
flugurnar eru stærri eða minni
þegar lítið er af mýi. Það er þekkt
hjá nánast öllum skordýrum að
þau eru stærri eða minni eftir því
hvernig skilyrðin eru í uppvextin-
um,“ sagði Árni.
Rannsóknirnar eru að hans
sögn ekki komnar nógu langt til
að segja fyrir um hvort flugurnar
séu t.d. að jafnaði stærri þegar
minna er af þeim, en slíkt virðist
vera mismunandi eftir tegundum.
Þess má geta að um 40 tegundir
mýflugna lifa við Mývatn.
í vor töluðu sumir Mývetningar
um að bitmýsflugur hafi verið
óvenju stórar, en Árni sagði ekki
vera búið að mæla það. „Almenna
reglan er að flugurnar eru stórar á
vorin en minni eftir því sem líður
á sumarið. Hér er yfirleitt svokall-
aður fyrrivargur og seinnivargur
og flugurnar úr seinni göngunni
eru miklu minni en þær sem
kvikna á vorin. Svo geta líka verið
áraskipti af þessu, en heimafólk
tekur vissulega eftir þessu að flug-
urnar eru misstórar.“
Auk þessarar rannsóknar sagði
Árni að líkt og venjulega væru í
gangi rannsóknir til að fylgjast
með lífríki vatnsins. Fylgst er með
fugli, fiski og öllum þeim átuteg-
undum sem þessar tejundir lifa á.
Almennt séð sagði Arni óhætt að
segja að helstu stofnar hafi verið á
uppleið, t.d. stærstu fuglastofnar.
Talsvert hefur verið af mýi í sum-
ar, nú er reyndar hlé eins og vana-
Iega á miðju sumri og síðan koma
seinni göngurnar í ágúst. Mikið
æti hefur verið í vatninu þannig að
bæði silungur og andarungar hafa
haft nóg að éta, en átuskilyrðin
eru að sögn Árna mest ráðandi um
það hversu mikið af ungum kemst
á legg. HA
Dr. Árni Einarsson, líffræðingur
við Náttúrurannsóknastöðina við
Mývatn, fékk á dögunum úthlutað
400 þús. kr. styrk úr Vísindasjóði
til framhaldsrannsókna á mýflug-
um. Nánar tiltekið er um að ræða
rannsókn á stærðarbreytingu mý-
flugna, en verkefnið var einnig
styrkt 1988. Að sögn Árna er um
að ræða einn anga af mjög stóru
rannsóknarverkefni, en Líffræði-
stofnun Háskólans og Náttúru-
rannsóknastöðin við Mývatn hafa
allt frá árinu 1977 fylgst náið með
mýflugunum við Mývatn.
„Það verða miklar breytingar á
fjölda mýflugna milli ára og við
erum að reyna að átta okkur á
Fest áfilmu.
Mynd: BG