Dagur - 21.10.1995, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 21. október 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SlMI: 462 4222 • SÍMFAX: 462 7639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • UUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON, (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285),
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Fjölgun starfa hjá Kjötiðju
Kaupfélags Þingeyinga
Það er ánægjulegt þegar góðar fréttir berast úr atvinnulíf-
inu. Þannig voru það einkar ánægjulegar fréttir sem Dagur
flutti í gær af Kjötiðju Kaupfélags Þingeyinga þess efnis að
forráðamenn hennar hefðu ákveðið að bæta við tíu starfs-
mönnum vegna mikilla verkefna framundan. Fram kom í
máli Páls Arnar, sláturhússtjóra KÞ, að annars vegar væri
um að ræða mikla vinnu við framleiðslu á nöggunum svo-
kölluðu, sem Kaupfélag Þingeyinga setti á markað fyrir
nokkrum vikum, og hins vegar útflutning á lambakjöti til
Ameríku.
Eftir stöðugar urðunarfréttir í fjölmiðlum að undanförnu
eru þetta ánægjuleg tíðindi og það er sérstaklega fagnað-
arefni að sú tilraun Kaupfélags Þingeyinga að setja á
markað fullunna afurð sem unnin er úr lambakjöti, skuli
hafa tekist svo vel sem raun ber vitni. Þetta er vísbending
um að það hljóti að vera að hægt að halda áfram á sömu
braut, færa lambakjötið nær neytendum og auka þar með
sölu þess.
Betrí afkoma
Mörg iðnfyrirtæki sjá nú í sínum milliuppgjörum betri af-
komu en þau hafa lengi séð. Iðnaðurinn í landinu hefur
náð sér á strik eftir langvarandi erfiðleika sem ekki síst
sköpuðust vegna þess að gengisskráningin miðaðist al-
gjörlega við sjávarútveginn. Á þessu hefur orðið breyting,
sem betur fer, auk þess sem stöðugleiki í efnahagsmálun-
um gerir iðnfyrirtækjum kleift að gera raunhæfar áætlanir
frá degi til dags. Þetta hefur allt að segja hjá fyrirtækjum
sem flytja bróðurpart sinnar framleiðslu á erlendan mark-
að. Því aðeins að stöðugleiki ríki hér innanlands eru iðnfyr-
irtækin í stakk búin til þess að keppa á erlendum sam-
keppnismörkuðum.
Gott dæmi um viðsnúning í rekstri iðnfyrirtækis er bætt
afkoma sútunarverkmiðju Loðskinns hf. á Sauðárkróki. Eft-
ir mörg léleg ár skilaði fyrirtækið 41 milljóna króna hagnaði
á síðasta ári og það sem af er þessu ári hefur reksturinn
gengið vel. Hagnaður er forsenda þess að hægt sé að
byggja fyrirtæki upp og það gildir um Loðskinn ekki síður
en önnur fyrirtæki. Loðskinn var nánast komið í þrot, en
innflutningur á gærum frá Ástralíu virðist hafa skotið
stoðum undir reksturinn. Það er vel.
í UPPÁHALDI
Langar að fara að skjóta rjúpur
Guðmundur Stefánsson.
framhœmdastjóri Fóð- ;
un’erksmiðjunnar Laxár
áAkureyri, erí uppá-
liuhli í lap (iuðmundnr
er Reykvíkingur að upp-
runa, en að honum standa að eigin
sögn húnvetnskir og breiðfirskir stofn-
ar. Hann nam landbúnaðarhagfrœði í
Noregi og starfaði m.a. áður sem Itag-
fraiðingur Stéttarsambands bœnda.
Guðmimdur hefttr ttm árabil verið
virkur í starfi Framsóknarflokksins á
Akureyri og verið þar íframboði bœði
til Alþingis og bœjarstjórnar Akureyr-
ar. Hann er bæjaifulltrúi á Akureyri.
situr í bœjarráði og crformaður at-
vinnumálanefndar. Þá Itefur hann
einnig látið til sín taka áfleiri sviðum,
t.d. með íþróttafélaginu Þór. Eigin-
kotta Gttðmundar er Hafdís Jónsdóttir,
nemandi í Myndlistaskólammi á Akur-
eyri. Synirnir ertt tveir, Þórarinn Ægir
21 árs og Stefán Hrannar 15 ára.
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Mér finnsl reyndar margur matur góður.
Þetta er auðvitað árstíðabundið, jxirramatur
er góðurá þorranum, skata á Þorláksmessu
o.s.frv. Á heildina litið finnst mér lamba-
kjöt afskaplega gott, sem og önnur villi-
bráð.“
Uppáhaldsdrykkur?
„Ég held að þar verði ég að segja diet-
coke.“
Hvaða heimilsstörf fumst þér
skemmtilegust/leiðinlegust?
„Mér finnst lang skemmtilegast að elda,
enda geri ég það yfirleitt. Leiðinlegast
finnst mér að skúra og taka til, þó konan
spyrji kannski hvemig ég viti það.“
Stundarþú einhverja markvissa
hreyfmgu eða líkamsrœkt?
„Það get ég varla sagt. Ég hleyp einstöku
Guðmundur Stef'ánsson.
sinnum og labba úti mcð hundinn, en ég
hef mikil áform uppi í þessum efnum og
hef haft talsvert Iengi.“
Ert þú í einhverjum klúbb eðafélaga-
samtökum?
„Ég er í Þór og líka í Víkingi í Reykjavík.
Svo er ég auðvitað í Framsóknarflokkn-
um.“
Hvaða blöð og tímarit kaupirþú?
„Moggan og Dag og einhver blöð sem
tengjast mínu starfi.“
Hvaða bók er á nátfborðinu hjá þér?
„Það eru einar fimm bækur eftir Laxnes,
auk þess Davíð Stefánsson og tvær erlend-
ar bækur sem ég er ekki byrjaður á.“
/ Itvaða stjörnumerki ert þú?
,Ætli ég sé ekki Hrútur. Ég er reyndar ekki
mikill áhugamaður um þessi mál.
Hvaða tónlistarmaður er í mestu
uppáhaldi hjá þér?
„Ég á mér fleiri en einn. Ég held mikið upp
á þau stallsystkin Ellý Vilhjálms og Hauk
Mortens. Svo get ég nel’nt Lloyd Price og
auk þess hef ég ganian af Fats Domino,
sem kom hér um árið.“
Uppáhaldsíþróttamaður?
„Ég held mikið upp á kvennalið Víkings í
handbolta. Þá finnst mér óskaplega gantan
að það skuli vera kominn meistaraflokkur
kvenna í handbolta hér á Akureyri. Ég er
mikill áhugamaður um handbolta og þá
ekki síður kvennahandbolta.“
Hvað horftr þú mest á í sjónvarpi?
„Langmest horfi ég á fréttir og veðurfréttir.
Auk þcss finnst mér ágætt að horfa á góða
bíómynd um helgar.“
k hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mest álit?
„Ég hef mikið álit á nafna mínum Bjama-
syni og þeim formönnum Framsóknar-
flokksins."
Hver er að þínu mati fegursti staður á
íslandi?
„Það er víða mjög fallegt en ég mundi
segja að mér finnist Breiðafjörðurinn og
húnvetnskar heiðar góðir staðir að vera á.“
Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir
að flytja búferlum nú?
„Það er laust við hliðina á mér í raðhús-
inu.“
Ef þú ynnir stóra vinninginn i lóttó-
inu hvernig myndir þú eyða pening-
unum?
„Ég hef lítið hugsað út í það.“
Hvernig vilt þú helst verjafrístundum
þínum?
„Auðvitað fer mikið af mínum frístundum í
bæjarstússið, en ef þær eru ekki taldar með
þá finnst mér í fyrsta lagi ágætt að vera
bara heima hjá mér og í öðru lagi er gaman
að fcrðast og þá gjaman á þessa tvo staði
sem ég nefndi fyrr.“
Hvað œtlarðu að gera um helgina?
„Mig langar til að fara og skjóta rjúpur en á
alveg eins von á að þurfa að vinna.“ HA
EITT MEDAL ANNARS
/OHANN ARELIUZ
í leit að fegurð
Ungur maður í Reykjavík, Valdi-
mar nokkur Tómasson, og meðal
annars áhugamaður um ljóðabæk-
ur, útgáfu fagurbókmennta, ýmsa
andans menn og konur, svo og al-
mennan smekk, tók nýverið upp
hjá sjálfum sér að gefa út hand-
hægt úrval ljóða Jóns Óskars á
þekkilegan hátt og látlausan.
Á Valdimar heiður skilið fyrir
framtak sitt, ekki síst þegar haft er
í huga að útgáfa ljóðabóka hefur
sjaldan staðið tæpar hjá „stóru“
forlögunum, en því meira um lit-
prentaðar glósur, klám og saurlífi
sápuóperunnar.
Er kverið alveg laust við prjál,
þótt sumum skárri kunningjum
skáldsins kunni kannski að þykja
portrett Gylfa Gíslasonar að fram-
an minna frekar á Stefán Hörð
Grímsson en Jón sjálfan. Skítt
með það.
Kannski sat skáldið of oft fyrir!
Og meður því að mér er málið
svoltið skylt langar mig að vitna í
sjálfan mig án gæsalappa. Vona
ég að lesendur Dags kunni vel að
meta slíkt á tímum sýndarveru-
leika, boðsíma og veraldarvefs.
Það hefur svosum ekki verið ves-
enið í kringum hann Jón Óskar, en
listamaðurinn vakinn sem sofinn
sinnt sínu, til að mynda á Akur-
eyri sumrunum saman.
Ljóðið segir allt sem þarf:
Ljóðiðfer ekki, Ijóðið er,
það þrúgast og pínist
undir vélgengum ofsa.
Enginn bíður,
og þó bíður Ijóðið
og leitar að manni
sem kemur inn í bílinn
úr kulda norðttrhjarans
meðflöskuaf sumri
þegar farþegarnir dotta.
Jón er maður söngs og seiðs,
bjartrar vonar en sjaldan Ieiðrar og
lífsþreyttrar. Fals verður ekki
fundið í ljóðum hans og hann fell-
ur heldur ekki í þá freistingu að
„skreyta" ljóð sín einhverri hæfi-
legri blöndu auðkeyptrar heim-
speki hópsálarinnar. Hér er aldrei
um kaldhugsaðar krossgátur að
ræða. Nei! Ljóð Jóns Óskars
koma til dyranna eins og þau eru
klædd: áfeng og einungis ágeng af
því þau eru - þegar best lætur -
svo listfeng, umbúðalaus, hrein og
bein. Eins og skrifað stendur: stfll-
inn er maðurinn.
Hví stráir þú blómum yftr nóttina,
daginn, borgina, húsin,
marglitum blómttm yftr einmana hjarta?
Þú veist ekki sjálf Itvað þú gerir.
Efþú vissir það
mundirðu þá ekki hiaupa burt
frá góðverki þínu?
Þú stóðst áveginum
oghorfðirumöxl,
en hvernig átturðu að vita
að þúsundir blóma
féllu af hári þínu
og ég tíndi þau upp afveginum.
Frumsamdar ljóðabækur Jóns
Óskars eru Skrifað í vindinn, sem
kom út árið 1953, Nóttin á herðum
okkar (1958), Söngur í næsta húsi
(1966), Þú sem hlustar (1973) og
Næturferð (1982). Þrjár bækur
hafa litið dagsins ljós með þýðing-
um Jóns á frönskum ljóðum:
Ljóðaþýðingar úr frönsku (1963),
Ljóðastund á Signubökkum (1988)
og Undir Parísarhimni, þýðingar
og saga franskra ljóða (1991).
Það er ekki síst birtan sem set-
ur svip og lit á ljóð Jóns Óskars
og til marks um styrk hans og fjöl-
breytni sem skálds má hafa það að
næsta auðvelt væri að setja saman
eitt eða jafnvel tvö úrvöl í viðbót
við það sem hér er á ferðinni.
Plássið leyfir ekki langar útlegg-
ingar á listbrögðum Jóns, frönsk-
um háttum og áhrifum öllum vítt
of vega. Nægir að nefna fegurð ís-
lands og uppruna, hráslaga
Reykjavíkur, tros tilverunnar,
tónaflóð hugsjóna og drauma. Allt
í þeim látlausa og einfalda stíl
sem enginn hermir eftir Jóni.
Hvað stílbrögð varðar og stfl-
brigði má fyrir utan erlendar
heimsbókmenntir jafnt vitna í
klassíska tónlist og klassískan jass
sem og þjóðvísur. Og minni ég
um leið á afburðaþýðingar skálds-
ins, sem frjógvað hafa verk þess
löngum: Jón færir okkur á tærri og
skáldlegri íslensku brautryðjendur
og byltingarmenn módernismans:
snillinga eins og Rimbaud og
Baudelaire, svo ég nefni aðeins
tvö skáld af meðvituðu handahófi.
Ekkert okkar helstu skálda hefur
til jafns við Jón Óskar ort fögur og
innileg ljóð um frelsi þjóðarinnar
og áþján eftir stríðið seinna. En
þar sem ég veit að Jón er enn að,
læt ég hér staðar numið og býð
ykkur lieldur að líta upp og frá
búksorgum ykkar um stund, út op-
inn gluggann og nema blæbrigði
birtunnar. í leit að fegurð um ein-
stigi jarðarinnar.
Góðar stundir!