Dagur - 21.10.1995, Blaðsíða 11

Dagur - 21.10.1995, Blaðsíða 11
Laugardagur 21. október 1995 - DAGUR - 11 IJAKI* tRJAH er til vinstri og Gunnar Jóhannesson við hlið hans. & m % PA HRíSfc'T fR« *«sl<O(lSSAN0i Kt. Sm tu 9.30 - 11.00 - .130 ~ 13.00 13 30 - lí>»» 13 30 - 1100 17.30 ’S 00 ts .H, - 2100 3(30 Stýrimaður og stjóri. Hörður Snorrason skipstjóri „Fyrst og síðast eyja- skeggjar sem við flytjum“ - segir Hörður Snorrason, skipstjóri á Sævari „Ferðirnar eru lítið frábrugðnar hver annarri, en auðvitað eru and- litin ekki alltaf hin sömu. En allt rennur þetta saman í eitt og stund- um veit maður varla hvaða tími dags er, svo oft fer maður þessa leið,“ sagði Hörður Snorrason, skipstjóri á Hríseyjarferjunni Sæv- ari, í samtali við blaðamann Dags. Þegar blaðamaður fór út í eyju til fréttaöflunar nú fyrir skemmstu lá beinast við að ræða við skip- stjórann á útstíminu, frá Árskógs- sandi á leiðinni út í eyju. Þetta var fyrsta ferð morgunsins, lagt var af stað kl. 9:30. Með þeim hætti er ferðaáætlunin, að ferðir eru út í eyju á hálfa tíma hverrar odda- tölustundar. Fyrsta ferðin frá Ár- skógssandi er kl. 9:30 og þannig rekur þetta sig með sama hætti all- an daginn, fram til kl. 21:30 á kvöldin. Úr eyjunni er fyrsta ferð kl. 9 að morgni, sú næsta kl. 11 og þannig áfram, koll af kolli, fram til 21 á kvöldin. Síðan hefur verið komið til móts við þarfir fólks með þeim hætti að hægt er, ef pantað er fyr- irfram, að fá ferjuna til ferðar úr Hrísey kl. 7 að morgni og frá Ár- skógssandi þá kl. 7:30 og svo að kvöldi kl. 22:30 úr eynni og til baka kl. 23:00. Hefur þessi auka- ferð að morgni mætt þörfum til dæmis skólafólks í eyjunni sem stundar nám á fastalandinu og fólks ofan af landi sem sækir vinnu í Hrísey. „Það eru fyrst og fremst eyja- skeggjar sem við erum að flytja hér á milli. Þá er ég að tala um skólafólk og eins fólk sem sækir vinnu uppi á landi og eins eru nokkrir sem sækja vinnu út í eyju,“ sagði Hörður skipstjóri. Hann hefur verið skipstjóri á Sæv- ari allt frá árinu 1987, eða í átta ár. Starfinu gegnir hann aðra hvora viku, hina vikuna er á móti honum Smári Thorarensen. Vél- stjóri á Sævari í áhöfn Hauks, er Gunnar Jóhannesson. Hörður segir að stór hluti þess varnings sem fluttur er með Sæv- ari sé fiskur til verkunar í vinnslu- húsi KEA í Hrísey. Þá sé einnig alltaf talsvert flutt til verslana í eynni, svo sent helstu nýlenduvör- ur. Einnig séu vinsældir eyjunnar sem ferðamannastaður vaxandi og yfir sumarmánuðina hafi farþega- fjöldi farið yfir 13.000 og sá hóp- ur hafi að miklu leyti verið ferða- menn. -sbs. Ferjan Sævar, bundinn við kajann í Hrísey. Myndir: Sigurður Bogi Akureyringar - Eyfirðingar Frá og með 23. okt. nk. verða sorphaugarnir á Glerárdal opnir sem hér segir: Mánudaga-föstudaga frá kl. 8-18 og laugardaga frá kl. 10-16. Utan ofangreinds tíma er öll sorplosun þar stranglega bönnuð. Sorpeyðing Eyjafjarðar bs. Kjördæmisþing Framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldið að Hótel Húsavík 3. og 4. nóvember og hefst kl. 20 á föstudagskvöldið með hefðbund- inni dagskrá og erindi félagsmálaráðherra Páls Péturssonar, sá dagskrárliður verður opinn öllum þeim sem áhuga hafa. Á laugardag verða ávörp gesta þingsins og þing- manna flokksins í Norðurlandi eystra, afgreiðsla mála og kosningar. Um kvöldið verður hátíð í umsjón Framsóknarfé- lags Húsavíkur. Stjórn K.F.N.E. Söfnunardagar föstudag laugardag sunnudag AUGLYSINGAR ■ RITSTJORN ■ DSÍIFING Á AKUREYRI462 4222 Á HÚSAVÍK 464 1585

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.