Dagur - 01.12.1995, Síða 2

Dagur - 01.12.1995, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 1. desember 1995 FRÉTTIR Fyrrverandi framkvæmdastjóri Hafspils hf. dæmdur í Hæstarétti Hæstiréttur dæmdi í gær Hrein Ómar Elliðason, fyrrverandi framkvæmdastjóra Hafspils hf. á Svalbarðseyri og síðar Haf- spils-vélaverkstæðis hf. á Þórs- höfn, í sjö mánaða fangelsi skil- orðsbundið í þrjú ár vegna brots á lögum um virðisaukaskatt og almennum hegningarlögum. Jafnframt var Hreinn dæmdur til að greiða 1 milljón króna til ríkissjóðs og vararefsing 3ja mánaða fangelsi. fullu skilorðsbundin í 3 ár frá upp- kvaðningu dóms þessa.“ Þá kemur fram í dómi Hæsta- réttar að við skýrslugjöf fyrir hér- aðsdómi 7. apríl sl. hafi Hreini, sem flutti mál sitt sjálfur, verið heimilað að spyrja vitni beint. Ekki sé hins vegar gert ráð fyrir slíku í lögum, hefði Hreinn átt að beina spumingum sínum til dóm- ara, sem hefði lagað þær og beint þeim til vitna. óþh Þjónusta Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands við Norðlendinga: Heimsóknir þyrftu að vera tíðari - segir Magnús Ólafsson, yfirlæknir Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri Ríkissaksóknari skaut máli Hreins Ómars Elliðasonar til Hæstaréttar með stefnu 30. júní sl„ en Hreinn hafði óskað end- urskoðunar héraðsdóms með til- vísan til laga um meðferð opin- berra mála. Akæruvaldið á móti krafðist þyngingar refsingar. í dómi Hæstaréttar segir að ekki séu efni til að verða við kröfu Hreins um ómerkingu eða frávís- un málsins, „enda eru þær engum haldbærum rökum studdar." Síðan segir orðrétt í dómi Hæstaréttar: „Með vísan til for- sendna héraðsdóms verður fallist á sakfellingu ákærða og heimvís- an til refsiákvæða um hana. Einnig ber að fallast á ákvörðun héraðsdóms um refsivist ákærða. Varðandi refsivistina verður hins vegar að líta til þess, að ríkissak- sóknari beindi málinu til rann- sóknarlögreglu ríkisins með bréfí 7. júlí 1992. Þar var skýrsla ekki tekin af ákærða fyrr en 27. októ- ber 1994 en í kjölfarið var tekin skýrsla af einu vitni 1. nóvember sama ár og ákæra var síðan gefin út 28. sama mánaðar. A þessum verulega drætti á rannsókn hefur engin skýring verið gefin. í þessu ljósi verður refsivist ákærða að Ekki mun fólk vera ánægt með þá þjónustu, sem hægt er að bjóða upp á á Akureyri, til handa þeim sem þurfa á aðstoð að halda vegna skertrar heyrn- ar. Virðist mega rekja þetta til þess að fólki fínnst heimsóknir sérfræðinga frá Heyrnar- og tal- meinastöð íslands, sem annast þessa þjónustu, vera of fáar á hverju ári og undir það tekur Magnús Ólafsson, yfirlæknir Heilsugæslustöðvarinnar á Ak- ureyri. A Heilsugæslustöðinni á Akur- eyri eru fullkomin og góð tæki til heymarmælinga, sem Magnús segir vera mikið notuð. Frekari úr- vinnsla mælinganna fer hins vegar fram á vegum Heymar- og tal- meinastöðvar íslands og annast hana sérþjálfað starfsfólk, sem Siglufjörður: Sunna SI-67 með 150 tonn af rækju eftir 17 daga Rækjutogarinn Sunna SI-67, eign Þormóðs ramma hf. á Siglufirði, landaði 150 tonnum af rækju á Siglufirði í gær eftir 17 daga veiðiferð en aflann fékk skipið á miðunum fyrir Norðurlandi. Aflaverðmætið er nálægt 25 ntilljónir króna og fer togarinn einn túr í viðbót fyrir jól. Ekki er ákveðið enn hvert skipið verður sent eftir áramót, hvort það verður áfram á veiðurn á heima- slóð eða t.d. sent til veiða vestur í Flæmska hattinn. Þar er togar- inn Amames SI-70, en hann kemur heim til Siglufjarðar fyrir jól. Rækjuskipin Stálvík SI- 1 og Sigluvík SI-2 hafa aflað vel að undanfömu en aliur þeirra atli fer til vinnslu hjá rækjuverk- smiðju Þormóðs ramnta hf. Þar hefur verið mikil vinna að und- anfömu og verður það allt til jóla. _______________________GG Messinn Móasíðu l Taktu með heim HELGARTILBOÐ MESSANS: Hamborgari m/osti, sósu og káli, A lítra dós Pepsi og Lúxus pinni frá Kjörís á aðeins 385 kr Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9-22 Föstudaga og laugardaga frá kl. 10-23 Sunnudaga frá kl. 10-22 Nýbygging Dögunar hf. fokheld Nýbygging rækjuverksmiðjunn- ar Dögunar hf. á Sauðárkróki er orðin fokheld en stefnt er að því að taka hana í notkun í janúar- mánuði. Verklok verða væntan- lega ekki fyrr en næsta sumar því ýmsum verkþáttum er ekki hægt að ljúka í vetur og bíða því vorsins. í nýja húsinu verður frysti- geymsla og móttaka fyrir rækju en núverandi móttaka er allt of lítil fyrir verksmiðjuna og því löngu þörf á stærra húsnæði. Áætlað er að fyrsti verkþátturinn, þ.e. að gera húsið fokhelt, kosti 25 millj- ónir króna, en síðan verður farið í að setja upp einangrun í frysti, vélbúnað og fleira en kostnaðar- áætlun þar að lútandi liggur ekki fyrir. Vélar og tæki eru á leið til landsins. Ágæt aflabrögð hafa verið á innfjarðarrækju á Skagafirði en rækjan hefur verið fremur smá, farið niður í 350 stk/kg en hún er hins vegar nokkuð blönduð, innan um er ágætis rækja. Við óveðrið sem gekk yfir landið í lok októ- bemiánaðar og brimið sem eðli- lega fylgdi í kjölfarið, blandaðist rækjan í Skagafirðinum mjög mikið þótt einhver átuskilyrði og önnur líffræðileg skilyrði í hafinu kunni að hafa haft þar einnig áhrif. GG kemur frá Reykjavík nokkmm sinnum á ári, „en allt of sjaldan að okkar mati,“ segir Magnús. Hann sagðist gera ráð fyrir að fjárhags- ramminn ráði einhverju um það að ekki er komið oftar, en sagðist að öðru leyti ekki hafa fengið við- hlítnandi svör þegar hann hafi óskað skýringa. Heymar- og talmeinastöðin rekur útibú á Akureyri, sem stað- sett er í Heilsugæslustöðinni, og þar er starfsmaður í hlutastarfi sem sinnir þjónustu við þá sem eru með heyrnartæki, sér um eftir- lit og viðhald á þeim. Hann sinnir einnig heyrnarmælingum sam- kvæmt beiðnum lækna þannig að heyrnarmælingamar er alltaf hægt að framkvæma, en frekari úr- vinnsla er sem fyrr segir í höndum aðila sem koma frá Reykjavík. Magnús segir þjónustuna sem slíka vera prýðisgóða en heim- sóknimar frá Reykjavík þyrftu að vera tíðari. Það sé engin spuming. Birgir Ás Guðmundsson, for- stöðumaður Heymar- og talmeina- stöðvar íslands, segist vissulega kannast við þessar óánægjuraddir, en þær séu ekkert einsdæmi fyrir Akureyri eða Norðurland. Málið snúist um takmarkaða fjármuni stofnunarinnar og viðurkennir að heimsóknir til Akureyrar hafi aldrei verið færri en einmitt í ár. „Við ætluðum að koma núna í haust, en úr þessu verður það ekki fyrr en eins fljótt og hægt er eftir áramótin. Það er nú svo að við er- um löngu búin með fjármagnið fyrir heynartæki og komin langt framyfir. Fjármunir sem við fáum í þetta hafa staðið í stað 6 ár í röð meðan heymartæki hafa hækkað að raungildi um 25%. Þegar svo er þá er ekki von á góðu. Eins má segja að það sé til lítils að koma norður og fara að taka niður pant- anir í heymartæki sem ekki eru til,“ sagði Birgir. HA Hafralækjarskóli: Tveir söngleikir frumfluttir -100 börn á sviðið í kvöld Árshátíð Hafralækjarskóla í Að- aldal er í kvöld, 1. desember. Allir nemendur skólans, 100 talsins, koma á svið á árshátíð- inni í tveimur söngleikjum sem settir eru upp af þessu tilefni og frumfluttir á fslandi. Söngleikimir eru eftir Michael Hurd, og er annar þeirra, Sköpun- arsagan þýdd af Hauki Ágústs- syni, en hinn, Jólasöngleikur þýddur af sr. Sigurði Ægissyni. Sigurður Hallmarsson stjómar uppsetningu verksins en Robert Faulkner annast tónlistarstjórnun. Juliet Faulkner og börn úr skólan- um sjá um tónlistarflutninginn. IM Akureyri: Bæjarráðs- punktar Búseti sækir um Húsnæðissamvinnufélagið Bú- seti hefur sótt um óafturkræft framlag úr bæjarsjóði til bygg- ingar 6 fbúða að Hafnarstræti 24. Framlagið reiknast 3,5% af kostnaðarverði íbúðanna, sem er áætlað kr. 40,3 milljónir. Bæjarráð samþykkti að leggja til að orðið yrði við erindi Bú- seta. Flateyrarhreppur styrktur Að tilmælum Sambands fs- lenskra sveitarfélaga sam- þykkti bæjarráð í gær að styrkja Flateyrarhrepp með kr. 1,1 milljón vegna tekjumissis og tjóns á eignum hreppsins af völdum snjóflóða 26. októ- ber sl. Sameining almannavarnanefnda Bæjarráð fjallaði í gær um er- indi héraðsnefndar Eyjafjarðar þar sem óskað er eftir afstöðu bæjarstjómar til tillögu um sameiningu almannavama- nefnda Akureyrar og Dalvíkur. Bæjarráð samþykkti að mæla með sameiningu almanna- vamanefndanna. Bréf Ingibjargar Bæjarráð fjallaði í gær um bréf Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt- ur, borgarstjóra í Reykjavík, þar sem minnt er á umræður sem undanfarið hafa farið fram á vettvangi borgarmála um stöðu og framtíð Landsvirkj- unar, m.a. hugsanlega sölu borgarinnar á eignarhluta sín- um. í bréfinu óskar borgar- stjóri eftir fundi með iðnaðar- ráðherra og bæjarstjóranum á Akureyri til þess að ræða ýmis mál er varða fyrirtækið. Sala á Krossanesi Á bæjarráðsfundinum í gær kynnti Baldur Dýrfjörð, bæjar- lögmaður, drög að samningi um sölu Framkvæmdasjóðs Akureyrar á hlutabréfum í Krossanesi hf. að nafnverði kr. 110 milljónir króna. Kaupend- ur em Lán hf. og Fimman hf. Söluverð bréfanna er kr. 150 milljónir. Bæjarráð fól bæjar- lögmanni að halda áfram samningaviðræðum við kaup- endur. Skattaprósentur Meirihluti bæjarráðs sam- þykkti í gær að leggja til að út- svarsprósenta í staðgreiðslu opinberra gjalda á árinu 1996 verði 9,2% af útsvarsstofni. Þá verði fasteignaskattur 0,36% og 1,40% af álagningarstofni, vatnsgjald 0,16% af álagning- arstofni, fráveitugjald 0,18% af álagningarstofni, sérstakur fasteignaskattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði 1,25% af álagningarstofni og sorp- hreinsigjald á íbúðarhúsnæði kr. 2 þúsund á hverja íbúð.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.