Dagur - 08.12.1995, Side 1

Dagur - 08.12.1995, Side 1
Verið viðbúin vinningi! Bóksölulisti Dags: Guðrún á toppnum Bóksala fyrir jólin er sem óðast að fara í gang þessa dagana og komið er að fyrsta bóksölulista Dags, en listarnir munu birtast á föstudögum fram til jóla. Listinn er byggð- ur á upplýsingum frá bóka- verslum á Norðurlandi, nánar tiltekið frá Bókabúð Brynjars á Sauðárkróki og bókaversl- ununum Möppudýrið, Tölvu- tæki-Bókval, Bókaverslunin Edda og Bókaverslun Jónasar á Akureyri. Bóksalar tóku fram að hreyl'- ing á bókum hefur ekki verið mjög mikil það sem af er. Svo virðist sem engin ein bók skeri sig úr varðandi sölu. Bók Guð- rúnar Helgadóttur, Ekkert að þakka, hefur greinilega freistað margra og svo er einnig um aðra bók fyrir yngri lesendur, Afrek Berts. Bókin um Maríu Guðmundsdóttur hefur sömuleiðis vakið áhuga. En þá er það listinn fyrir fyrstu vikuna í desember. 1. Ekkert að þakka - Guðrún Helgadóttir. 2. María ■ konan bak við goðsögnina - Ingólfur Margeirsson. 3. Afrek Berts ■ Jacobsson og Olsson. 4. Hjartastaður - Steinunn Sigurðardóttir. 5. Þeim varð á í messunni - Guðjón Ingi Bríksson og Jón Hjaltason. 6. Lífsgleði • Þórir S. Guðbergsson. 7. Vetrareldur • Fríðrík Erlingsson. 8. Áfram latibær • Magnús Scheving. 9. Hin hljóðu tár • Sigurbjörg Árnadóttir skráði. 10. Paula - Isabel Allende. Af öðrum bókum sem seljast vel má nefna, barnabókina Kon- ungur ljónanna, Myrkranna á milli eftir Sidney Sheldon, Betri helmingurinn, Falsarinn og dómari hans eftir Jón Hjaltason, Leik- soppur örlaganna eftir Victoriu Holt, Milli vonar og ótta eftir Þór Whitehead og fleiri. Næsti listi birtist síðan að viku liðinni. HA Plötusölulisti Dags: Páll Óskar efstur Eins og fyrir undanfarin jól birtir Dagur lista yfxr sölu- hæstu íslensku geisladiskana og hefur við gerð hans verið stuðst við söluupplýsingar úr sex verslunum á Norðurlandi; Hljómveri, Radiovinnustof- unni Kaupangi, Radionausti, Hljómdeild KEA og Tónabúð- inni á Akureyri og Skagfirð- ingabúð á Sauðárkróki. Það sama virðist vera uppi á teningnum í sölu á tónlistarefni nú og á sama tíma í fyrra, að ekki er enn sem komið er kom- inn í hana þessi venjulegi „jóla- kippur", eins og einn verslunar- maðurinn orðaði það. Nokkrir titlar seljast þó áberandi betur en aðrir eins og eftirfarandi sölulisti gefur til kynna. Dagur birtir aftur sölulista föstudaginn 15. desenxber og síðan föstudaginn 22. desember. 1. Palli - Páll Óskar Hjálmtýsson. 2. Dísir vorsins • Karlakórínn Heimir. 3. Pottþétt 2 - safnplata. 4. Reif í skóinn - safnplata. 5. Aldarminning Davíðs Stefánssonar • ýmsir flytjendur. 6. Cronpe d’oú lá • Emelíana Torrini. 7. í skugga Morthens ■ Bubbi Morthens. 8. Tekið stórt upp í sig - Sverrir Stormsker. 9. Jólagestir 3 - Björgvin Halldórsson o.fl. 10. Heyr mitt Ijúfasta lag - safnplata með lögum Ragga Bjarna. Dómsátt fyrir Hæstarétti - í máli Eiríks Sigfússonar gegn Sveini Sigurbjörnssyni, Tryggva Stefánssyni, Jóhanni Benediktssyni og Sigurði Stefánssyni Náðst hefur fyrir Hæstarétti dómsátt í málarekstri Eiríks Sigfússonar annars vegar og Sveins Sigurbjörnssonar, Tryggva Stefánssonar, Jóhanns Benediktssonar og Sigurðar Stefánssonar hins vegar. Málið var endanlega útkljáð í gær með dómi Hæstaréttar. Þetta mál hefur margítrekað verið í umræðunni, ekki síst í tengslum við fyrirtöku þess fyrir Héraðs- dómi Norðurlands eystra. Mál þetta á í raun rætur í Kaupfélagi Svalbarðseyrar, sem eins og kunnugt er var á sínum tíma lýst gjaldþrota. Eiríkur Sigfússon skaut málinu til Hæstaréttar 13. janúar 1994. Krafa hans fólst í því að dómi Héraðs- dóms yrði breytt á þann veg að allar kröfur hans yrðu teknar til greina, auk þess sem honum yrði dæmdur málskostnaður í héraði og fyrir Hæstarétti. Sveinn, Tryggvi, Jóhann og Sigurður skutu málinu til Hæstaréttar með stefnu 11. febrúar 1994. Þeir kröfðust sýknu en til vara að dómur Héraðsdóms yrði staðfestur. Þá kröfðust þeir málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Við munnlegan málflutning fyrir Hæstarétti lagði Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður Eiríks, fram breytta kröfugerð sem kveður á unt að Sveinn, Tryggvi, Jóhann og Sigurður greiði Eiríki kr. 5,4 milljónir ásamt dráttarvöxtum og vaxtavöxtum frá 1. febrúar 1996 til greiðsludags, allt að frádregnum kr. 3 milljónum, sem þegar hafa verið greiddar Eiríki. Lögmaður fjómienninganna, Jón Oddsson, lýsti því yfir við munnlegan málflutning, að hann sam- þykkti þessar breyttu kröfur. Voru kröfur um máls- kostnað í héraði og fyrir Hæstarétti látnar niður falla af beggja hálfu. Niðurstaða Hæstaréttar í gær var því í samræmi við þetta samkomulag lögmanna málsaðila, að Sveinn Sigurbjörnsson,' Tryggvi Stefánsson, Jóhann Benediktsson og Sigurður Stefánsson greiði Eiríki Sigfússyni 5,4 milljónir króna ásamt dráttarvöxtum frá 1. febrúar 1996 til greiðsludags allt að frádregnum 3 milljónum króna, sem þegar hafa verið greiddar Ei- ríki. óþh í gærmorgun var veriö að skipa upp jóiatrénu frá Randers, en Einxskip flutti tréð án endurgjalds til Akureyrar. Pað er Karl Viðar, starfsmaður Eimskips, sem heldur á merkimiðanum sem skýrir sig sjálfur. Mynd: BG Ljósin kveikt á morgun á jólatrénu frá Randers - jólasveinarnir mæta á svalir Vöruhúss KEA s Amorgun verður mikið um að vera í miðbænum á Akur- eyri. Um er að ræða tvo fasta punkta í jólaundirbúningi bæj- arbúa, jólaveinana á svölum Vöruhúss KEA og síðan verða ljósin kveikt á jólatrénu frá Ran- ders. Kl. 14.00 á laugardaginn mæta jólasveinamir á svalir Vöruhúss KEA, eins og þeir hafa gert mörg undanfarin ár. Munu þeir segja frá því sem á daga þeirra hefur drifið síðasta árið og hinni erfiðu ferð jólasveinanna á leið til byggða. Ekki er alveg vitað hvaða jóla- sveinar mæta þarna, en það verða greinilegar einhverjir sem eru létt- ir á fæti og hafa náð góðu forskoti á félaga sína, þar sem fyrsti jóla- sveinninn á ekki að koma til byggða fyrr en að morgni 12. des- ember, „lögum samkvæmt.“ Hvað sem því líður er um að gera að mæta á staðinn og taka lagið með þessum heiðursmönnum. Kl. 15.45 hefst síðan athöfn á Ráðhústorgi með leik Lúðrasveit- ar Akureyrar. Þá flytja ávörp þeir Jakob Björnsson, bæjarstjóri, ásamt góðum gestum sem eru bæjarverkfræðingurinn í Randers og sendiherra Dana á íslandi. Kl. 16.15 rennur síðan upp sú stund að ljósin verða tendruð á hinu myndarlega jólatré sem íbúar Randers, vinabæjar Akureyrar í Danmörku, færa Akureyringum að gjöf á hverju ári. Að því loknu syngur Kór Akureyrarkirkju jóla- lög og loks koma jólasveinamir í heimsókn. HA Akureyri og Grímsey: Sóknarnefndir mæla með Svavari Sóknarnefnd Akureyrar- kirkju og sókn- arnefnd Mið- garðarkirkju í Grímsey kusu séra Svavar Al- freð Jónsson síð- degis í gær í embætti aðstoðarprests í sókn- unum tveimur. Svavar var sókn- arprestur í Ólafsfirði en frá því í sumar hefur hann gegnt stöðu héraðsprests með aðsetur á Ak- ureyri. Alls voru 24 sem greiddu at- kvæði á kjörfundi í gær, aðalmenn og varamenn í sóknamefndunum tveimur. Að sögn séra Birgis Snæ- björnssonar, prófasts, hafa sóknar- böm lögum samkvæmt rétt til að óska eftir aimennri kosningu en þá þarf fjórðungur sóknarbama að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis innan viku. Ef engar athugasemdir koma fram ræður biskup í stöðuna að þeim tíma liðnum. AI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.