Dagur - 08.12.1995, Blaðsíða 17

Dagur - 08.12.1995, Blaðsíða 17
Föstudagur 8. desember 1995 - DAGUR - 17 Hríseyjarprestakall. Aðventukvöld verður haldið í Hrís- eyjarkirkju 2. sunnudag í aðventu, 10. desember nk. og hefst kl. 20. Kór kirkjunnar syngur aðventu- og jólalög og leiðir almennan söng. Böm í sókninni syngja nokkur lög undir stjóm Pálfnu Skúladóttur organista. Fermingarböm flytja leikrit tengt að- ventunni og lesin verður jólasaga. Ræðumaður verður Sigurður Þor- steinsson skólastjóri. Sóknarprestur. Náttúrugripasafnið á Akureyri verður lokað í desember. Verður opið næst þann 7. janúar 1996. Samkomur KFUM & KFUK, Sunnuhlíð. Föstud. 8. des. kl. 20.30. Unglingasamkoma. Mikill og fjölbreyttur söngur. Allt ungt fólk er hvatt til að mæta. Sunnud. 10. des. kl. 17.30. Aðventu- samkoma. Komum og eigum góða stund saman fyrir jólin. Athugið breyttan samkomutíma! Hjálpræðisherinn. Föstud. 8. des. kl. 10-17. Flóamarkaður. ’ Kl. 18. 11+ Fundur fyrir börn 11 ára og eldri. Kl. 20. Unglingaklúbbur. Sunnud. 10. des. kl. 13.30. Sunnu- dagaskóli. Kl. 20. Almenn samkoma. Allir velkomnir. Föstud. 8. des. Unglingafundur kl. 20.30. í kvöld á Sjónarhæð, Hafnar- stræti 63. Allir unglingar velkomnir. Laugard. 9. des. Sameiginlegur jóla- fundur kl. 13.30 með bömum úr sunnu- dagaskólanum í Lundarskóla og þeim sem hafa mætt á bamafundina á mánu- dagskvöldum. „Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn...“ Sunnud. 10. des. Samkoma á Sjónar- hæðkl. 17. Allir velkomnir! HVÍTASUmUKIfíKJAH ^mhðshlId Föstud. 8. des. kl. 17. Krakkaklúbbur, öll böm velkomin og takið vini ykkar með. Kl. 20.30. Bænasamkoma. Laugard. 9. des. kl. 20.30. Samkoma í umsjá unga fólksins. Sunnud. 10. des. kl. 15.30. Vakninga- samkoma. Samskot verða tekin til starfsins. Mikill og fjölbreyttur söngur. Ailir eru hjartanlega velkomnir. Vonarlínan, sími 462 1210. Opið hús í Hafnarstræti 90, laugardaginn 9. des. kl. 10-12 f.h. Komið og ræðið fjárhags- áætlun bæjarins. Fyrir árið 1996. Heitt á könnunni. Framsóknarfélag Akureyrar. Frá Sálarrannsóknafé- laginu á Akureyri. Stórkostlegt matarbingó -'x verður haldið laugardag- “ *- inn 9. des. í húsi aldraðra, Lundargötu 7, kl. 17. Stórkostlegir vinningar. Stórkostlegur kökubasar á sunnu- dag, 10. des. kl. 15 í húsi félagsins, Strandgötu 37b. Stjórnin. Minningarspjöld Zontaklúbbs Ak- ureyrar fást í Bókabúð Jónasar, Hafn- arstræti og Blómabúðinni Akri, Kaup- angi.______________________________ Hornbrekka Ólafsfirði. Minningarkort Minningarsjóðs til styrktar elliheimilinu að Hombrekku fæst í Bókvali og Valbergi, Ólafsfirði. Minningarspjöld Sambands ís- lenskra kristniboðsfélaga fást hjá Hönnu Stefánsdóttur Víðilundi 24, Guðrúnu Hörgdal, Skarðshlíð 17 og Pedromyndum Skipagötu 16.__________ Minningarspjöld Hríseyjarkirkju fást í Bókabúð Jónasar. Vaka-Helgafell: Vetrareldur - eftir Friðrik Erlingsson Vaka-Helgafell hefur gefið út skáldsöguna Vetrareldur eftir Friðrik Erlingsson. Þetta er fyrsta skáldsaga Frið- riks ætluð fullorðnum en kunnast- ur er hann fyrir söguna um Benja- mín dúfu. Hann hefur á liðnum árum hlotið verðlaun og viður- kenningar fyrir ritstörf sín heima og erlendis. I kynningu frá útgefanda segir: „í skáldsögu sinni, Vetrareldur, skrifar Friðrik Erlingsson um mannlega reynslu af miklu list- fengi og er langt síðan íslenskur skáldsagnahöfundur hefur fjallað um tilfinningar fólks af slíku inn- sæi. Persónur bókarinnar, ekki síst aðalpersónurnar tvær, Lilja og Hákon, standa ljóslifandi fyrir hugskotssjónum lesandans. Við kynnumst vonum þeirra og von- brigðum, hamingju og nístandi sársauka. Höfundur fléttar örlög þeirra saman af einstöku næmi í margslungna sögu. Hér er á ferð áhrifamikil skáldsaga sem lætur engan ósnortinn, eftir höfund sem fylgst verður með í framtíðinni.“ Vetrareldur er 327 blaðsíður að lengd. Bókin var brotin um hjá Vöku-Helgafelli en filmuvinna fór fram hjá Prentmyndastofunni. Kápa bókarinnar var hönnuð hjá Vöku- Helgafelli af Valgerði G. Halldórsdóttur. Bókin er prentuð og bundin í Prentsmiðjunni Odda hf. Vetrareldur kostar 3.290 krónur. Leiðrétting Séra Björn Hannes Ragnar Odds- son Bjömsson fæddist 21. janúar 1895 en ekki 1. janúar 1895 eins og misritaðist í blaðinu sl. mið- vikudag. Beðist er velvirðingar á þessari misritun. Akureyrarbær hefur undanfarin ár veitt styrki til fé- laga sem starfa á sviöi lista- og menningarmála. Þau félög sem starfa á þessum sviðum geta sótt um styrkveitingar fyrir árið 1996. Umsóknir þurfa að berast skriflega til Skrifstofu menningarmála, Strandgötu 19B, 600 Akureyri, fyr- ir 15. janúar nk. Nánari upplýsingar í síma 462 7245. ^^Menningarfulltrú^kureyrarljæjai^^^^^^^^^^^ ------------^ ORÐ DAGSINS 462 1840 ^____________r AKUREYRARBÆR Styrkir til félaga Hjartans þakkir til allra sem sýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs sambýlismanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNESARJÓHANNESSONAR, Hólabraut 17, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks handlæknisdeildar fyrir góða umönnun. Þórhildur Bergþórsdóttir, Guðrún B. Jóhannesdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Jón B. Jóhannsson, Vilborg Elfsdóttir, Sigurvin Jóhannesson, Margrét Björgvinsdóttir, barnabörn og langafabörn. DAGSKRÁ FJÖLMIÐLA SJÓNVARPIÐ 17.00 Fréttir. 17.05 Leiðarljós. (Guiding Light) 17.50 Táknmálsfréttir. 18.00 Jóladagatal Sjónvarpsins: Á baðkari til Betlehem. 8. þáttur: Hættur í háloftunum Það er oft erfitt að standast freistingar, einkum ef í boði er bragðgott og unaðslega seðj- andi sælgæti. 18.05 Köngulóarkarlinn Anansi. (We AU Have Tales: Anansi) Banda- rísk teiknimynd. 18.30 Fjör á fjölbraut. 19.20 Jóladagatal Sjónvarpsins - endursýning. 19.30 Dagsljós. 20.00 Fréttir og veður. 20.45 Dagsljós. Framhald. 21.15 Happ i hendi. Spurninga- og skafmiðaleikur með þátttöku gesta í sjónvarpssal. Þrír keppendur eigast við í spurningaleik í hverjum þætti og geta unnið til glæsilegra verðlauna. Þættirnir eru gerðir í samvinnu við Happaþrennu Háskóla íslands. Um- sjónarmaður er Hemmi Gunn og hon- um til aðstoðar Unnur Steinsson. 21.55 Bróðir Cadfael. Morð á mark- aði. (Cadfael: St. Peter's Fair) Bresk sakamálamynd byggð á sögu eftir EU- is Peters um miðaldamunkinn slynga, Cadfael. Aðalhlutverk: Derek Jacobi. 23.20 Makt myrkranna. (Horror of Dracula) Bresk hryllingsmynd frá 1958. Maður nokkur, sem er að rann- saka dularfullt andlát vinar síns, kemst yfir dagbók með upplýsingum sem benda til þess að Drakúla greifi sé viðriðinn málið. Leikstjóri: Terence Fisher. Aðalhlutverk: Peter Cushing, Michael Gough, Christopher Lee og Melissa Stribling. Þýðandi: Þrándur Thoroddsen. 00.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. STÖÐ2 15.50 Popp og kók (e). 16.45 Nágrannar. 17.10 Glæstar vonir. 17.30 Köngulóarmaðurinn. 17.50 Eruð þið myrkfælin? 18.15 NBA tilþrif. 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn. 19.1919:19. 20.25 Hallgrimur Helga. Rithöfund- urinn og grínistinn Hallgrímur Helga- son lætur hér ljós sitt skína í fyrri þætti af tveimur. 21.05 Sonur Bleika pardusins. (Son of the Pink Panther) Allir þekkja lög- regluforingjanna klaufalega, Clous- eau, sem Peter Sellers lék svo eftir- minnilega í hverri myndinni af annarri á sjöunda áratugnum. Nú hefur kom- ið í ljós að Clouseau eignaðist son sem er jafnvel meiri klaufi en hann sjálfur var. Það er Roberto Bengnini, vinsælasti gamanleikari ítala sem er í aðalhlutverki en leikstjórinn er sá sami og í gömlu Bleika Pardusar myndunum, Blake Edwards. Þetta er hressileg gamanmynd frá árinu 1993. 22.50 Hinir ástlausu. (The Loveless) Athyglisverð mynd um mótorhjóla- gengi sem dvelst um stuttan tíma í smábæ í Suðurríkjunum áður en hald- ið er í kappakstur í Daytona. Athygl- isverðar persónur koma við sögu en myndmálið sjálft leikur stærsta hlut- verkið og eru sumar senurnr mjög ljóðrænar og eftirminnilegar. Maltin gefur tvær og hálfa stjörnu. Aðalhlut- verk: Don Ferguson, Willem Dafoe, Marin Kanter og Robert Gordon. 1983. 00.25 f blindni. (Blindsided) Spennu- mynd um Frank McKenna, fyrrver- andi lögreglumann sem hefur söðlað um og stundar nú ýmsa smáglæpi. Aðalhlutverk: Jeff Fahey, Mia Sara, Ben Gazzara og Rudy Ramos. 1993. 02.00 Villtar ástriður H. (Wild Orc- hid II) Önnur þemamynd mánaðarins er frá leikstjóranum Zalman King sem gerði meðal annars myndirnar 9 1/2 Weeks og Two-Moon Junction, auk myndaflokksins Red Shoe Diaries sem Stöð 2 sýndi á síðasta ári. Þessi mynd gerist á sjötta áratugnum og fjallar um hina ungu og fögru Blue sem er seld í vændishús eftir að faðir hennar deyr. Aðalhlutverk: Nina Siemaszko, Wendy Hughes, Tom Skerritt, Rebert Davi og Brent Fraser. 1991. 03.45 Dagtdtráriok. RÁS1 6.45 Veðurfregnir. 6.50 Bæn: Sr. Svav- ar A. Jónsson flytur. 7.00 Fréttir. Morgunþáttur Rásar 1. - Edward Fre- deriksen. 7.30 Fréttayfirlit. 8.00 Frétt- ir. „Á níunda tímanum", Rás 1, Rás 2 og Fréttastofa Útvarps. 8.10 Hér og nú. 8.30 Fréttayfirlit. 8.31 Pistill. 8.35 Morgunþáttur Rásar 1 heldur áfram. 9.00 Fréttir. 9.03 „Ég man þá tíð“. 9.50 Morgunleikfimi. 10.00 Fréttir. 10.03 Veðurfregnir. 10.15 Sagnaslóð. Frásagnir af atburðum, smáum sem stórum. (Frá Akureyri). 11.00 Fréttir. 11.03 Samfélagið í nærmynd. 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.01 Að utan. (Endurflutt úr Hér og nú frá morgni). 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veður- fregnir. 12.50 Auðlindin. 12.57 Dánar- fregnir og auglýsingar. 13.05 Hádeg- isleikrit Útvarpsleikhússins. Kattavin- urinn eftir Thor Rummelhoff. Fimmti þáttur af tíu. Leikendur: Sigurður Skúlason, Helga E. Jónsdóttir, Vigdis Gunnarsdóttir, Róbert Arnfinns- son.Hinrik Ólafsson og Dofri Her- mannsson. 13.20 Spurt og spjallað. Keppnislið frá Félagsmiðstöð aldraðra Furugerði 1 og Félagsmiðstöð aldr- aðra Gerðubergi keppa. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan, ævisága Árna prófasts Þórarinssonar,. „Hjá vondu fólki". Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les 9. lestur. 14.30 Ó, vínviður hreini: Þættir úr sögu Hjálp- ræðishersins. á Islandi. 1. þáttur. 15.00 Fréttir. 15.03 Léttskvetta. 15.53 Dagbók. 16.00 Fréttir. 16.05 Fimm fjórðu. Djassþáttur. (Einnig útvarpað að loknum fréttum á miðnætti). 17.00 Fréttir. 17.03 Bókaþel. Lesið úr nýjum og nýútkomnum bókum. 17.30 Tóna- flóð. Tónlist af nýútkomnum geislaplötum með leik íslenskra tón- listarmanna. 18.00 Fréttir. 18.03 Síð- degisþáttur Rásar 1. - Frá Alþingi. - Kviksjá. 18.48 Dánarfregnir og aug- lýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar og veðurfregnir. 19.40 Bakvið Gullfoss. Menningarþáttur barnanna. (Endurflutt kl. 8.15 í fyna- málið á Rás 2). 20.15 Hljóðritasafnið. 20.45 Blandað geði við Borgfuðinga:. Fyrsta starfið, skóladagar og skemmtilegt fóik. Minningabrot frá sendilsstarfi í Þórðarbúð, barnaskól- anum og góðu fólki í kringum hann. (Áður á dagskrá sl. miðvikudag). 21.25 Kvöldtónar. 22.00 Fréttir. 22.10 Veðurfregnir. Orð kvöldsins: Vigfús Hallgrimsson Ðytur. 22.30 Pálína með prikið. 23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jón- asar Jónassonar. 24.00 Fréttir. 00.10 Fimm fjórðu. Djassþáttur. (Endurtek- inn þáttur frá síðdegi). 01.00 Nætur- útvarp á samtengdum rásum til morguns. Veðurspá. RÁS2 6.00 Fréttir. 6.05 Morgunútvarpið. - Músik fyrir alla. 6.45 Veðurfregnir. 7.00 Fréttir. Morgunútvarpið. 7.30 Fréttayfirlit. 8.00 Fréttir. „Á níunda tímanum'' með Rás 1 og Fréttastofu Útvarps:. 8.10 Hér og nú. 8.30 Frétta- yfirlit. 8.31 Pistill. 8.35 Morgunútvarp- ið heldur áfram. 9.03 Lísuhóll. 12.00 Fréttayfirlit og veður. 12.20 Hádegis- fréttir. 12.45 Hvítir máfar. 14.03 Ókindin. 15.15 Barflugan sem var á barnum kvöldið áður mætir og segir frá. 16.00 Fréttir. 16.05 Dagskrá: Dæg- urmálaútvarp og fréttir. Starfsmenn dægurmálaútvarpsins og fréttaritarar heima og erlendis rekja. stór og smá mál dagsins. 17.00 Fréttir. - Ekki fréttir. - Ðagskrá heldur áfram. 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóðarsálin . Síminn er 568 60 90.19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Ekki fréttir endurfluttar. 19.32 Milli steins og sleggju. 20.00 Sjónvarps- fréttir. 20.30 Nýjasta nýtt. 22.00 Fréttir. 22.10 Næturvakt Rásar 2. 24.00 Fréttir. 24.10 Næturvakt Rásar 2.01.00 Næturtónar á samtengdum rásum til morguns:. Veðurspá. NÆTURÚTVARPŒ). Næturtónar á samtengdum rásum til morguns: 02.00 Fréttir. 04.30 Veðurfregnir. 05.00 Fréttir og fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 06.00 Fréttir og fréttir af veðri, færð og flugsamgöng- um. 06.05 Morgunútvarp. LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2. Útvarp Norðurlands kl. 8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Austurlands kl. 8.10-8.30 og kl. 18.35-19.00. Svæðisút- varp Vestfjarða kl. 18.35-19.00. Nágrannar Á dagskrá Stöðvar 2 í dag kl. 16.45 er þáttur í þáttaröðinni um Ná- granna. Ekki fer sögum af því númer hvað þessi þáttur er í þáttaröðinni, en víst er að þessi „sería“ hefur gengið lengi við miklar vinsæld- ir og ekkert lát virðist þar á. Drakúla greifi Sjónvarpið sýnir í kvöld kl. 23.20 bresku hryll- ingsmyndina um Dra- kúla greifa. Myndin er frá 1958 og greinir frá hinum kunna greifa sem rís úr líkkistu sinni á hverri nóttu í 600 ár og leitar að fómarlambi til að sjúga úr hið volga blóð sem hann þarf sér til viðurværis.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.