Dagur - 08.12.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 08.12.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR Föstudagur 8. desember 1995 - DAGUR - 3 Akureyri: Punktar úr bæjarráði Tilnefning í starfshóp Á bæjarráðsfundi í gær var lagt fram bréf frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneylinu þar scm greint er frá þvf að iðnaðarráð- berra hafi ákveðið að hefja heildarendurskoðun á löggjöf um vinnslu, flutning og dreif- ingu orku og hafí hug á því að skipa ráðgjafarnefnd til að vera iðnaðarráðuneytinu til ráðuneytis við endurskoðun laganna. Óskað er eftir að Ak- ureyrarbær tilnefni eirtn mann í nefndina. Bæjarráð frestaði tilnefningu. Eggert fagnar Lagt var fram bréf frá Eggerti Magnússyni, formanni Knatt- spyrnusambands íslands, þar sem hann fagnar tillögu íþrótta- og tómstundaráðs Ak- ureyrar um stofnun hlutafélags til þess að reisa knattspyrnu- hús til æfinga og keppni yfir vetrartímann. Jafnframt heitir Eggert í bréfinu aðstoð sinni og annarra hjá KSÍ ef til þeirra verði leitað. Bréf frá Laxá hf. uin ióðarmál Á bæjarráðsfundinum í gær var lagt fram bréf dags. 4. des- etnber þar sem Fóðurvöruverk- smiðjan Laxá hf'. fer þess á leit að fyrirtækinu verði úthlutað lóð á athafnasvæði sínu í Krossanesi, en núverandi lóð- arréttindi ná aðeins til grunn- flatar sumra af húsum fyrir- tækisins þar. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarverkfræðings og fól honum að leggja fram tillögu að lóðasamningum fyrir þau fyrirtæki, sem hafa lóðir á Krossanessvæðinu. Bæjarráðs- maður Guðmundur Stefánsson vék af fundi meðan um málið var tjallað. Franskar vörur sniðgengnar? Lagt var fram bréf frá bæjar- stjórninni í Áiasundi, vinabæ Akureyrar í Noregi, þar sem kynnt er samþykkt hennar um að beina því lil allra stofnana bæjarfélagsins, íbúa og fyrir- tækja í Álasundi að sniðganga franskar vörur og þjónustu þar til Frakkar láti af tilraunum sínum með kjamorkusprengj- ur. Bæjarstjórnin hvetur vina- bæi sína erlendis til þess að gera slíkt hið sama. Bréf frá héraðsnefnd Með bréfi dags. 2. nóvmber sl. frá héraðsnefnd Eyjafjarðar er óskað eftir afstöðu Akureyrar- bæjar til þeirrar skoðunar nefndarinnar að greiðslur og reikningshald fyrir nýbygging- ar framhaldsskólanna í bænum verði fært frá bæjarskrifstof- unni til skrifstofu héraðsnefnd- ar. Bæjarráð lét bóka í gær að það sæi ekki ástæðu til um- ræddarar breytingar og fól bæjarritara að skýra afstöðu bæjarráðs fyrir bréfritara. Nýtt deiliskipulag miðbæjar Akureyrar kynnt í dag: Markmiðið a6 auka íbúðarbyggð í miðbænum - stefnt að því að hefja framkvæmdir sem fyrst Skipulagsnefnd Akureyrar held- deiliskipulagi norðurHluta mið- ur kynningarfund um tillögu að bæjar Akureyrar í Húsi aldraðra Þriðju önninni í Menntasmiðjunni er að Ijúka. Þessi mynd var tekin í Menntasmiðjunni í gær. Mynd: BG Menntasmiðjan a Akureyri: Þriðju önninni að Ijúka í gær var opið hús í Mennta- . að þær þurfi að vera menntaðar til smiðjunni á Akureyri þar sem verk nemenda á haustönn voru kynnt. Næsta önn byrjar 15. janúar og taka Menntasmiðjan og Vinnumiðlunin á móti umsókn- um um þessar mundir alla virka morgna milli níu og tólf. Um- sóknarfrestur er til 20. desember. Námið í Menntasmiðjunni er fyrir konur án launaðar atvinnu og er byggt upp á svipaðan hátt og nám í lýðháskólum. „Markmiðið er að auka lífshæfni,“ segir Björn Bjamadóttir, verkefnisfreyja, og leggur áherslu á að konur geti sótt um hvort sem þær eru faglærðar eða ófaglærðar. „Oft halda konur að komast að en í þessu tilfelli er það ekki menntunin heldur fjöl- þætt lífs- og starfsreynsla sem skiptir mestur máli.“ Björg segir að svo virðist sem þeim konum sem lokið hafi námi við Menntasmiðjuna vegni flest- um vel. „Við höfum verið að gera könnun á högum kvennanna sem voru hér í fyrra og margar þeirra eru komnar með atvinnu eða komnar í annað nám. Þær virðast hafa byggt upp nægjanlegt sjálfs- traust til að koma sér áfram og eins hefur glæðst yfir vinnumark- aðinum á Akureyri sem hefur sitt að segja.“ AI Húsavík: Jólasveinaskrúðganga Ljós á jólatré Húsvíkinga verða tendruð kl. 16 laugardaginn 9. des. Jólasveinaáhugafólk safnast saman við Borgarhólsskóla kl. 15.30 og tekur á móti jólasvein- um sem koma af ijöllum með hrópum og köllum, kyndla og bjöllur. Jólasveinamir verða í farar- broddi skrúðgöngu að jólatrénu. Þar syngja böm af Bestabæ, nem- endur Tónlistarskóla og barnakór leika og syngja. Sr. Sighvatur Karlsson og Einar Njálsson, bæj- arstjóri, flytja ávörp. Konur í Slysavamadeild kvenna á Húsavík hafa ákveðið að þakka fyrir stuðning við deildina á árinu og bjóða upp á ókeypis bamapössun í slysavamahúsinu kl. 13-16 laugardaginn 9. desem- ber. IM Laufey sýnir á Café Karólínu Nk. laugardag klukkan 14.00 opnar Akureyringurinn Laufey Margrét Pálsdóttir málverkasýningu á Café Karólínu á Akureyri. Að þessu sinni sýnir Laufey Margrét litlar myndir málaðar á bólstraðan striga. Um sölusýningu er að ræða og stendur sýningin fram yfir áramót. GG ..... # Nýtt greiðslu- kortatímabil! A Leikfangamarkaðurinn LM Sími 462 7744. fyrir hádegi í dag og verið er að undirbúa annan fund innan tíð- ar sem haldinn yrði að kvöldagi. Skipulagssvæðið nær frá Hofs- bót í suðri að íþróttavelli í norðri og er teiknað af Svani Eiríks- syni, arkitekt. Núverandi skipu- lag er frá árinu 1981. Fundurinn er öllum opinn og þar verður tekið við athugasemd- um ef fram koma. Hér er ekki um samþykkt miðbæjarskipulag að ræða, og eftir fundinn í dag tekur skipulagsnefnd málið fyrir aftur og gengur frá endanlegri tillögu til afgreiðslu hjá bæjarstjóm Akur- eyrar. Það skipulag verður svo auglýst fljótlega á næsta ári. Að- keyrsla að miðbænum verður úr þremur áttum; einstefna til norð- urs úr Skipagötu um Ráðhústorg, frá Strandgötu og frá Smáragötu við íþróttavöllinn, sem verður færður lítið eitt, en aðkeyrslu úr Glerárgötu inn í Gránufélagsgötu við verslunina Radíónaust hf. verður lokað. Svæðið þar sem BSO er, verður með svipuðu sniði og þangað flyst m.a. miðbæjar- starfsemi Strætisvagna Akureyrar. Lítið hringtorg verður í Strand- götu, milli Nætursölunnar og Augsýnar hf., og engin umferð leyfð þar fyrir vestan, en hins veg- ar um götu um bílastæðið milli Landsbankans og Augsýnar að Gránufélagsgötu. Gatan vestan Borgarbíós breikkar auk þess sem hún færist nær kvikmyndahúsinu og þar vestan við verða bflastæði. Á svæði þar sem núverandi ráðhús stendur verða stofnanir en þar vestan við miðbæjarstarfsemi og fbúðir, þ.e. á neðstu hæð eru fyrir- hugaðar verslanir, þjónusta ýmiss konar og bflageymslur en á næstu hæðum íbúðir og garðar. Á svæði sem afmarkast milli húsgagna- verslunarinnar Augsýnar og Sjall- ans að Glerárgötu verður sams konar starfsemi. Á svæði þar sem nú er m.a. Búnaðarbankinn, Hótel Norðurland og herrafataverslunin JMJ verður eingöngu miðbæjar- starfsemi og sama er að segja um svæði austan Ráðhústorgs. Gísli Bragi Hjartarson, bæjar- fulltrúi og formaður skipulags- nefndar, segir að með þessu deili- skipulagi sé verið að ganga frá hlutum sem hafi of lengi verið í lausu lofti. Verið sé að fastákveða umferðarleiðir og byggingarreiti og með breyttu deiliskipulagi sé markvisst hægt að fara að vinna að nauðsyniegum frainkvæmdum. Deiliskipulagið hefur tekið all- nokkum tíma en Gísli Bragi segir að verkefni sem sé mótandi fyrir næstu áratugi taki óneitanlega all- langan tíma og oft sé það með vilja gert, gott sé að hverfa frá því um tíma, hvfla sig á því en koma síðan að því aftur. „Eitt af markmiðum þessa deiliskipulags miðbæjarins er að auka íbúðabyggð í miðbænum, það er skilyrði þess að eitthvert líf sé þar, að blandað sé saman íbúðabyggð og þjónustu. Mark- miðið er að hefja framkvæmdir strax og taka Túngötu í notkun næsta sumar, en Túngata liggur frá Strandgötu vestan Augsýnar. Síðan verður þeim byggingarreit sem er nær torginu ráðstafað til bráðabirgða sem bflastæði, hann girtur af og þar settur niður ein- hver gróður,“ sagði Gísli Bragi Hjartarson. GG X Jólatré og greinar Útsölustaðir: Kjarni: Opið alla daga. Göngugata: Opið frá kL 13. Mikið ISJST Stafafura -i6 Normansþinur Jólatré frá okkur og við plöntum þrjátíu trjáplöntum í þínu nafni næsta sumar. Sendum út á land. Pantanir í síma 462 4599 og 462 4047. Skógræktarfélag V Eyfirðinga /

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.