Dagur - 08.12.1995, Síða 7
Föstudagur 8. desember 1995 - DAGUR - 7
Hagar hendur
með sölusýningu
Samstarfshópurinn Hagar hendur
verður með sölusýningu í vinnu-
húsnæði hópsins í gamla Hús-
mæðraskólahúsinu á Laugalandi
nk. sunnudag kl. 13-18. A boð-
stólum verður úrval af gjafavöru
fyrir öll tækifæri, t.d. prjóna- og
saumavörur og ýmsir munir.
Opið hús
hjá Stubbi
Gullasmiðjan Stubbur, sem Georg
Hollanders rekur í gamla kvenna-
skólahúsinu á Laugalandi í Eyja-
fjarðarsveit, verður með opið hús
á morgun, laugardag, og sunnudag
kl. 13-18 báða dagana. Fólki gefst
kostur á að kynna sér tréleikföng í
úrvali sem búin eru til á vinnu-
stofunni.
Brúðuleikhús
í Deiglunni
Brúðuleikhús Hallveigar Thorlaci-
us sýnir í Deiglunni á Akureyri á
morgun, laugardag, kl. 11 og 13
„Þrettánda jólasveininn", sem
fjallar um ævintýri Stúfs, yngsta
sonar Grýlu. Jólakötturinn kemur
við sögu og að sjálfsögðu einnig
Grýla. Sýningin er ætluð bömum
á aldrinum 2-10 ára. Hún er stund-
arlöng og byggir að nokkru á þátt-
töku barnanna. Aðgangseyrir er
kr. 500 og ókeypis fyrir foreldra.
Aðventusamkoma
eldri borgara
í Glerárkirkju
Aðventusamkoma eldri borgara
verður í Glerárkirkju nk. mánudag
11. desember kl. 15.30. Söngur,
upplestur og helgistund. Boðið
verður upp á léttar veitingar. Eldri
borgarar eru hvattir til að koma til
kirkjunnar og eiga þar saman
vinafund á aðventunni og undir-
búa með því andann undir kom-
andi hátíð.
Félagarnir
á Odd-vitanum
Hljómsveitin Félagamir skemmta
gestum Odd-vitans á Akureyri í
kvöld og annað kvöld. Aldurstak-
mark er 20 ár og er snyrtilegur
klæðnaður áskilinn.
Aðventuhátíð í
Akureyrarkirkju
N.k. sunnudagskvöld kl. 20.30
verður hátíðarsamkoma í Akur-
eyrarkirkju. Bjöm Bjamason,
menntamálaráðherra, verður
ræðumaður kvöldsins. Hann er
mikill kirkjuvinur og tíður
kirkjugestur. Barnakór Akureyr-
arkirkju mun flytja helgileik
undir stjórn Hólmfríðar Bene-
diktsdóttur og hefur mikil vinna
verið lögð í það verk.
Einsöngvari kvöldsins verður
Björg Þórhallsdóttir. Félagar úr
Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju
annast í lokin ljósahátíð. Kirkju-
gestir munu syngja jólasöngva
og endað verður á sálminum al-
kunna „Heims um ból“. A að-
ventukvöldinu verður vígt ljósa-
altari, sem margir hafa lagt fé í,
til minningar um séra Þórhall
Höskuldsson.
I framtíðinni geta menn kom-
ið, fengið kerti og tendrað ljós
og sett á altarið, sem staðsett
verður l'raman við predikunar-
Björn Bjarnason.
stól. Aðventukvöldin í Akureyr-
arkirkju hafa ætíð verið fjölsótt
og verið góður undirbúningur
undir komu jólanna.
jólatónleíkar hljóm-
sveita Tónlistar-
skólans á Akureyri
Næstkomandi sunnudag, 10.
desember, verða jólatónleikar
hljómsveita Tónlistarskólans á
Akureyri haldnir í Glerárkirkju
og hefjast þeir kl. 14. Á tónleik-
unum koma fram um 120 nem-
endur í 7 hljómsveitum og hóp-
um. Að tónleikum loknum verða
kaffiveitingar í safnaðarsal
kirkjunnar í boði foreldrafélaga.
Tónlistarskólinn á Akureyri
hefur um langt skeið haft forystu
meðal íslenskra tónlistarskóla á
sviði hljómsveitarstarfsemi.
Nemendur deildanna sem tengj-
ast þeirri hljómsveitastarfsemi er
hér um ræðir, blásaradeild og
strengjadeild, byrja að leika í
hljómsveitum fljótlega eftir að
nám þeirra hefst. Heldur þjálfun
nemenda í hljómsveitarleik
át'ram meðan á námi þeirra
stendur og flytjast þeir úr einni
sveit í aðra með aukinni fæmi. í
hljómsveitunum þjálfast nent-
endur í samstillingu og ögun í
hópi. Hljómsveitastarfinu fylgir
einnig nokkurt félagslíf, einkum
þegar hljómsveitirnar l'ara í æf-
ingabúðir, tónleikaferðir og á
hljómsveitamót.
í skólanum eru nú starfandi 3
blásarasveitir undir stjóm Sveins
Sigurbjömssonar og Jóns Hall-
dórs Finnssonar. Auk þeirra
kemur á sunnudaginn fram blás-
arasveit Oddeyrarskóla sem er
santvinnuverkefni Tónlistarskól-
ans og Oddeyrarskóla sem hófst
nú í haust undir stjóm Jóns Hall-
dórs Finnssonar. Þá koma frant
tvær strengjasveitir undir stjórn
Guðmundar Óla Gunnarssonar
og hópur Suzuki-fiðlunemenda.
Auk þessara sveita eru starfandi
við Tónlistarskólann kammer-
hljómsveit, blokktlautusveit,
málmblásarakvintett, jasshljóm-
sveitir og rokkliljómsveitir.
Allir em velkomnir á tónleik-
ana og aðgangur er ókeypis.
íslandsfrumsýn-
ing á Assassins
í Borgarbíói
Þessa dagana sýnir Borgarbíó
á Akureyri stónnyndina Ass-
assins með Sylvester Stallone
og Antonio Banderas í aðal-
hlutverkum. Leikstjóri er
Richard Donner, sent gerði Le-
athal Weaopn myndirnar.
Þessi stórmynd er frumsýnd á
íslandi á sama tíma í Borgar-
bíói og Sambíóunum. Hún
verður sýnd unt helgina í
Borgarbíói kl. 21 og 23.15
Um helgina verður einnig
sýnd kl. 21 spennumyndin The
Net með Söndru Bullock í að-
alhiutverki, en hún sló eftir-
minnilega í gegn í myndunum
Speed og While You Were
Sleeping. Þá verður kl. 23
sýnd hin vinsæla mynd The
Bridges of Madison County
með Clint Eastwood og Meryl
Streep í aðalhlutverkum.
Á sunnudag kl. 15 verða
sýndar í Borgarbíói myndimar
Hundalíf og Leynivopnið.
Geirmundur
í Sjallanum
í kvöld verður diskótek og tísku-
sýning í Sjallanum og verður hús-
ið opnað kl. 23. Sýnd verður jóla-
tískan frá eftirtöldum verslunum á
Akureyri: Amaro, Centro, Sport-
veri, Ynju, Perfect og Vöruhúsi
KEA. Aðgangur verður ókeypis.
Annað kvöld verður sjálfur
sveiflumeistarinn Geirmundur í
syngjandi sveiflu í Sjallanum.
Verð á dansleik til kl. 00.30 kr.
700 og 1000 kr. eftir kl. 00.30.
Verð á jólahlaðborð og dansleik
ki. 2.400.
KÆRKOMIN NYJUNC A DISKINN ÞIN
MEIRA FRI
MINNA PUf>
FLOKKS
HORPLENSK
NATTURUAFUkÐ
FAGMENNSKA í FYRIRRÚMI