Dagur - 08.12.1995, Síða 9

Dagur - 08.12.1995, Síða 9
Föstudagur 8. desember 1995 - DAGUR - 9 Skoðið betur hug ykkar sjálíra! - Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambands íslands, svarar fyrir sig IMytsamir hlutir til jólagjafa! Handklæði . . . . . . kr. 1.300,- Bindisnælur . . . . . kr. 800,- Bjórkönnur . . . . . . kr. 800,- Ermahnappar . . . . kr. 800,- Kveikjarar . . . . . . kr. 120,- Pennasett . . . . . . kr. 2.800,- Skeiðar . . . kr. 400,- Pennar . . kr. 200,- Fingurbjargir . . . . kr. 400,- Pennar . . kr. 500,- flllir þessi hlutir eru með Þórsmerkinu og eru til sýnis ug sölu í Hamri, fálagsheimili Þórs, afgreiðslunni. d$c$)d$d$d!Dd$d!D^^d!Dd$d$díD#d$d$d$d$d$d$E$c$d$d$d$^díD ® Afgreiðslutími matvöruverslana KEA, Akureyri ® í desember utan hefðbundins afgreiðslutíma tgugard. 9. des. Sunnudagur 10. des. i$) Sunnud. 17. des. Mónud. 18. des. Hrísalundur 10.00.-18.00. Lokað 10.00.-22.00. 13.00.-17.00. 10.00.-19.30. Byggðavegur 10.00.-22.00. 10.00,22.00. 10.00,22.00. 10.00,22.00. 09.00,22.00. Sunnuhlíð 10.00,22.00. Lokað 10.00,22.00. 13.00,17.00. 09.00,22.00. Nettó 10.00,18.00. 12.00,17.00. 10.00,22.00. 12.00,17.00. 12.00,22.00. d$d$ 0$ díD cjn dfn dín c$ d5) d$ & 3$ dti Þriðjud. 19. des. Miðvikud. 20. des. Fimmtud. 21. des. Föstud. 22. des. laugard. 23. des. Aðfangadagur Mónud. 25. des. Þriðjud. 26. des. Miðvikud. 27. des. c$ dín Lnugard. 30. des. Gamlórsdagur 10.00,19.30. 10.00,19.30. 10.00,22.00. 10.00,22.00. 10.00,23.00. 09.00,12.00. Lokað Lokað Lokað 10.00,18.00. m 09.00,12.00. djid^d^ 09.00,22.00. 09.00,22.00. 09.00,22.00. 09.00,22.00. 09.00,23.00. 09.00,12.00. Lokað Lokað 10.00,22.00. 10.00,22.00. 09.00,12.00. #d!Di 09.00,22.00. 09.00,22.00. 09.00,22.00. 09.00,22.00. 09.00,23.00. 09.00,12.00. Lokað Lokoð Lokoð 10.00,22.00. 09.00,12.00. 12.00,22.00. 12.00,22.00. 12.00,22.00. 10.00,22.00. 10.00,23.00. 09.00, 12.00. Lokað Lokað Lokað 10.00,18.00. 09.00, 12.00. c® djj) dfD d$ d!D # ■S1 'tÐ ekki dýrmætum tíma og kröftum í innbyrðis deilur. Benedikt Davíðsson. Jólasveinarnir eru komnir til byggða Eftir mikinn barning tókst jólasveinum Vöruhúss KEA að komast til byggða. Þeir lögðu mikið á sig til að geta hitt ykkur og munu koma fram á svölum Vöruhúss KEA laugardaginn 9. desember kl. 14.00. Mœtum öll og tökum lagið saman. Sú gagnrýni sem einstakir forystu- menn í Alþýðusambandinu hafa beint að miðstjóm ASI vegna nið- urstöðu launanefndar er ómakleg og fullyrðingar um að launanefnd hafí með einhverjum hætti'komið aftan að einstökum félögum eru ekki á rökum reist- ar. Launanefndin var skipuð af þeim hópi formanna lands- og svæða- sambanda sem gerði kjarasamn- ingana í febrúar sl. og starfaði í nánu samráði við þann hóp og í hans um- boði. I kjarasamn- ingunum sem fé- lögin samþykktu er kveðið á um að það sé hlutverk launanefndarinnar að meta hvort segja skuli samn- ingunum upp og þá á grundvelli ákveðinna inn- skrifaðra for- sendna. Við vinnu sína fékk launanefndin ítrekað þær leið- beiningar, frá hópi formanna lands- og svæðasam- banda, sambands- stjómarfundi ASÍ og fjölda aðilarfé- laga í formi álykt- ana, að verkefni hennar væri tví- þætt: Annars vegar að fá fram skýr svör frá stjóm- völdum við því með hverjum hætti þau hygðust standa við yfirlýsingu sína sem gefin var í febrúar sl. í tengslum við kjarasamningana. Hins vegar að athuga hvort atvinnurekendur væru tilbúnir að spila einhverju inn í þennan samning til að leið- rétta þann áhalla sem orðið hafði frá því í febrúar, jafnvel þótt ekki væru forsendur til að losa samn- inginn. Til dæmis má benda á samþykkt frá Verkamannafélag- inu Hlíf, þar sem segir m.a.: „Fundur í Vmf. Hlíf haldinn fimmudaginn 16. nóvember 1995 beinir þeim tilmælum til stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins að segja samningunum upp ef ekki fæst viðunanleg niðurstaða í viðræðum samningsaðila í launa- nefnd ASÍ og VSI, og fundurinn telur eðlilegt að launanefndinni verði gefin tækifæri til að ná sam- komulagi um eðlilega hækkun launa.“ Eftir að fyrir lá að ríkisstjómin hugðist fullnusta yfirlýsingu sína, og þar með orðið ljóst að launa- nefndin hefði ekki samningslegar forsendur til uppsagnar kjara- samninga, var nefndin enn send af formannafundi lands- og svæða- sambanda með það verkefni að fá einhverja uppstokkun á því útspili sem atvinnurekendur voru tilbúnir til að koma með. Ég finn því engin rök fyrir því að launanefndin hafi ekki haft heimild fyrir því sem hún var að gera. Þvert á móti var hún einmitt að gera það sem henni var falið. Það er enginn vafi á því að launa- nefndin svipti ekkert félag samn- ingsrétti því að þessi málsmeðferð var ákveðin þegar félögin afgreiddu samningana í febrúar. Ég held að niðurstaða launanefnd- ar hafi verið rétt því ef nefndin hefði sagt upp samningum, þrátt fyrir að ekki væru samningslegar forsendur til þess, hefði slíkt verið dæmt ólöglegt. I kjölfar þess hefði hreyfingin getað sundrast mikið og þar með hefðu allir möguleikar til að ná einhverju fram farið fyrir bí. Ég hygg að við getum öll verið sammála um að or- sök ólgunnar á vinnumarkaði var eðlileg, en hún er sú kjaraþróun sem varð frá því al- mennu verkalýðs- félögin sömdu í febrúar og til dags- ins í dag. Þar ber kannski hæst útspil kjaradóms og kjaranefndar og sjálftöku þing- manna. Ríkið brást því siðferðilega markmiði samn- inganna og sjálfur sagði ég orðrétt á þingi Verkamanna- sambandsins: „Við þessar aðstæður, hvort sem samn- ingsuppsagnir telj- ast lögmætar eða ólögmætar fyrir fé- lagsdómi, þá er augljóst að búið er að rifta öllum trún- aði milli aðila og skapa það and- rúmsloft á vinnumarkaði hér að stjómvöld og samtök atvinnurek- enda komast ekki hjá því að taka nú þegar upp viðræður við verka- lýðshreyfinguna um leiðréttingu á kjörum þeirra sem sömdu í febrú- ar sl. til samræmis við það sem að síðan hefur gerst.“ Ég reyni að meta forsendumar fyrir þeim ákvörðunum sem ég þarf að taka eins og ég tel réttast og ber á þeim ábyrgð. Ég er því tilbúinn til að taka á mig málefna- lega gagnrýni fyrir mín störf í launanefndinni. Það er auðvitað alltaf hægt að deila efnislega um krónur og aura varðandi niður- stöðuna, en að halda því fram að ekki hafi verið rétt að málum stað- ið er út í hött. Við þá forystumenn í Alþýðusambandinu sem segja að sambandið megi skammast sín og að niðurlæging þess sé mikil, vil ég einungis segja: Skoðið betur hug ykkar sjálfra um hvemig þið viljið bera ábyrgð á störfum hreyf- ingarinnar og hvað þið teljið að sé líklegast til þess að skila ykkar fé- lagsmönnum bestum kjömm inn- an þess ramma sem þið hafið sjálfir samið um. Næst kemur að töku stórra ákvarðana þegar núgildandi kjara- samningur losnar formlega. Öll stóryrði um svik eru ábyrgðarlaust tal. Nú þurfum við fyrst og fremst að ná saman um að efla hreyfing- una til átaka fyrir næstu samnings- gerð sem hefst strax í haust. Þetta er ótvírætt forgangsverkefni okk- ar. Launafólk á hins vegar heimt- ingu á því að forystumennimir sói Benedikt Davíðsson. Það er auðvitað alltaf hægt að deila efnislega um krónur og aura varðandi niðurstöðuna, en að halda því fram að ekki hafi verið rétt að málum staðið er út í hött.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.