Dagur - 08.12.1995, Síða 18
18 - DAGUR - Föstudagur 8. desember 1995
ÍÞRÓTTIR
UMStÓN: FROSTI EIÐSSON
Handbolti -1. deild karla:
Haukar
uppí
2. sætið
Haukar skutust upp í annað
sæti 1. deildarinnar í handkatt-
leik með sigri á ÍR í íþrótthúsi
Seljaskólans í fyrrakvöld. KA
lék ekki vegna þess að ÍBV-Iiðið
komst ekki frá Eyjum og á
Akureyrarliðið nú tvo leiki til
góða á efstu lið deildarinnar.
Úrslit urðu þessi í 1. deild
karla í handknattleik í fyrra-
kvöld:
FH-Stjarnan 26:26
ÍR-Haukar 20:24
KR-Grótta 20:22
Selfoss-UMFA 21:19
Valur-Víkingur 24:18
Staöan er nú þessi:
Valur 108 1 1 248:219 17
Haukar 10 7 1 2 259:232 15
KA 8 70 1 233:205 14
Stjaman 9 6 1 2 237:215 13
FH 104 2 4 261:246 10
UMFA 94 1 4 223:221 9
Grótta 104 15 239:242 9
Selfoss 10 4 0 6 248:260 8
ÍR 103 16216:236 7
Víkingur 10 3 07 224:233 6
ÍBV 8 2 15 185:200 5
' KR 100 1 9 223:287 I
Næsta umferð fer fram á
sunnudagskvöldið en þá á KA leik
gegn Víking og er leikur liðanna í
Víkinni. Síðasti leikur liðsins fyrir
jólafrí verður síðan gegn Stjöm-
unni, n.k. miðvikudag.
Tindastóll
sleginn út
Tindastóll mátti þola tap á heima-
velli sínum í bikarkeppni kvenna í
körfuknattleik í fyrrakvöld. Tinda-
stólsstúlkur fengu Stúdínur í
heimsókn og lyktaði leiknum með
sigri ÍS 48:59.
Patrekur ekki
til Grænlands
Patrekur Jóhannesson fer ekki
með landsliðinu í æfinga- og
keppnisferð íslenska landsliðsins
til Grænlands í næstu viku eins
og til stóð.
Landsliðsþjálfarinn, Þorbjörn
Jensson, gaf honum frí, vegna
leiks Evrópuúrvalsins gegn Frökk-
um, sem fram fer nokkrum dögum
síðar í Luxemborg, en eins og
kunnugt er var Patrekur valinn í
úrvalsliðið.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080
Vígsluleikur á Sauðárkróki
Þórsarar vígðu flóðlýsinguna á malarvcllinum á Sauðárkróki með sex mörkum í leik gegn Tindastóli í fyrra-
kvöld. Það var Sveinn Sverrisson sem kom heimamönnum á bragðið með marki úr vítaspyrnu en Arnar B.
Gunnarsson og Hrcinn Hringsson svöruðu með mörkum fyrir Þór fyrir leikhlé. Halldór Áskelsson og Árni Þór
Árnason voru á skotskónum fyrir Þór í síðari háltlciknum, skoruðu báðir tvívegis og lokatölur urðu því 1:6.
Það voru átta staurar með sextán kösturum sem lýstu upp völlinn fyrir leikmennina og lét þjálfari Þórs, Nói
Björnsson, vel af öllum aðstæðum. Mynd: Lýður
Handbolti:
ÍH leikur
gegn bæði
Þór og KA
íþróttafélag Hafnarfjarðar, eða
ÍH eins og félagið er gjarnan
nefnt, leikur gegn bæði KA og
Þór um helgina. Liðið mætir KA
í 16-liða úrslitum bikarkeppn-
innar klukkan 20 í kvöld í KA-
heimilinu og á morgun kl. 13:30
leikur liðið gegn Þór í 2. deild ís-
landsmótsins í íþróttahöllinni.
Það var Hafnarfjarðarliðið sem
fékk heimaleik gegn KA þegar
dregið var í bikamum en það varð
síðan að samkomulagi milli lið-
anna, að leikið skyldi á heimavelli
KA-liðsins. Ef KA sigrar í leikn-
um verður það annað liðið af
Norðurlandi til að tryggja sér sæti
í átta liða úrslitum. Völsungar eru
þegar komnir áfram, en Þórsarar
leika bikarkleik sinn í næstu viku
gegn Breiðabliki og fer leikurinn
fram í Kópavogi.
ÍBA-KR
IBA-stúlkumar sem leika í 1.
deild kvenna í handknattleik leika
sinn síðasta heimaleik fyrir jólafrí
á laugardaginn. Þær mæta þá KR í
KA-heimilinu og hefst leikur lið-
anna klukkan 15:30.
Karfa - Úrvalsdeild:
Þórsarar mæta
Valsmönnum
Badminton - U18:
Ólöf Guðrún í
landsliðið?
Ólöf Guðrún Ólafsdóttir, 18 ára
gömul badmintonstúlka úr
TBA, verður líklega valin í
landsliðið skipað spilurum 18
ára og yngri, sem æfír fyrir Evr-
ópukeppnina í vor.
Ólöf tók þátt í sérstökum úr-
tökuleikjum gegn efnilegustu
badmintonspilumm landsins og
vann sigur í fjórum þeirra. Fjórar
stúlkur eru í landsliðshópnum og
hafa þær allar verið úr TBR til
þessa. Liðið verður að öllum lík-
indum valið um næstu helgi en þá
fer fram mót í Reykjavík.
Hafsteinn Lúðvíksson úr Þór verð-
ur í eldlínunni á sunnudagskvöldið.
Þórsarar leika gegn Valsmönn-
um í íþróttahöllinni á sunnu-
dagskvöldið og hefst leikur lið-
anna klukkan 20. Gífurlegar
sveiflur hafa verið í leikjum lið-
anna í vetur. Þór sigraði í fyrri
viðureign Hðanna á Akureyri
með 50 stiga mun, en varð fyrsta
lið deildarinnar til að tapa fyrir
Val í síðari leik liðanna að Hlíð-
arenda.
Það má því búast við spennandi
leik á milli liðanna. Valsmenn
fengu til sín Bandaríkjamanninn
Ronald Bayless, sem gert hefur
góða hluti með liðinu.
Tindastóll leikur gegn Njarð-
víkingum í „ljónagryfjunni" í
Njarðvík og má búast við því að
heimamenn taki vel á móti Sauð-
árkróksliðinu, sem vann óvæntan
sigur á þeim í gryfjunni fyrr í vet-
ur.
Knattspyrna:
Hefur gengið framar
mínum björtustu vonum
- segir Lárus Orri Sigurðsson, sem leikur sinn
50. ieik með Stoke á morgun
„Þegar ég skrifaði undir samn-
inginn við Stoke vonaðist ég eft-
ir að geta klárað samninginn
með liðinu og kannski fá
áframhaldandi samning. Nú er
ég á þriggja ára samningi og
verð hjá liðinu fram til 1998,
þannig að þetta hefur gengið
framar mínum björtustu von-
um,“ segir Lárus Orri Sigurðs-
son, varnarleikmaður, sem hélt
upp á ársafmæli hjá enska félag-
inu fyrir ijórum dögum og leik-
ur sinn 50. leik með liðinu á
laugardaginn, gegn WBA.
Stoke hefur skotið upp töfluna
í síðustu leikjum og er nú aðeins
fjórum stigum frá toppliðinu.
„Við erum bara búnir að tapa ein-
um leik af síðustu fjórtán og í síð-
ustu umferðum erum við búnir að
vinna Sunderland, Millwall og
Norwich, þrjú efstu liðin. Það hef-
ur því allt gengið okkur í haginn
að undanförnu. Við erum með
nokkuð traustan hóp, en við vor-
um seinir í gang og svo virtist sem
við þyrftum nokkra leiki til að fá
sjálfstraustið,“ sagði Lárus Orri,
þegar Dagur sló á þráðinn til hans
í gær.
Það er mikið álag á leikmönn-
um og samkeppni um stöður. Lár-
us Orri var út í kuldanum fyrstu
mánuðina hjá nýju félagi en fékk
síðan að spreyta sig með aðallið-
inu. „Ég fékk mitt tækifæri þegar
annar leikmaður fór í leikbann og
mér hefur tekist að hanga í liðinu
frá því í febrúar og næsti leikur
minn verður minn fimmtugasti
með liðinu. Ég er því búinn að
leika á einu ári með Stoke eins
marga leiki og fimm síðustu ár
með Þór. Því er hins vegar ekki að.
neita að álagið er mikið og það er
lítill tími til að slaka á. Leikirnir
eru margir og þjálfarinn er þekkt-
ur fyrir hörku. Við æfum á
hverjum degi, nema hvað það er
oft frí hjá okkur daginn eftir leik.
Fyrir fjórum vikum gaf hann okk-
ur þriggja daga frí og þá vissu
menn ekki hvernig á þá stóð veðr-
ið,“ sagði Lárus Orri.
- En hvernig hefur þcr gengið
sjálfum í síðustu leikjum?
„Mér hefur gengið þokkalega
og náð að skila mínu. Ég hef verið
að spila sem miðvörður að undan-
skildum tveimur eða þremur leikj-
um þar sem ég lék sem hægri bak-
vörður. Við höfum heldur ekki
fengið á okkur mörk í síðustu
leikjum og þegar það tekst að
halda hreinu er maður ánægður."
- Heldur þú að margjr íslenskir
knattspyrnumenn geti átt framtíð
fyrir sér í ensku knattspyrnunni?
„Það er mjög erfitt að svara
því. Það er mjög misjafnt hvers
konar knattspyma hentar hverjum
og einum. Ég held að enski bolt-
inn henti mínum leikstíl vel, en
það er svo margt annað sem skipt-
ir máli. Síðasta árið sem ég var
hjá Þór var undirbúningstímabilið
gífurlega strangt og ég var því í
mjög góðu úthaldi þegar ég kom
út. Ég held að þær æfingar hafi
hjálpað mér mikið og séu meira
en nokkuð annað ástæðan fyrir því
að ég er hér enn í dag,“ sagði
Lárus.
Lárus Orri Sigurösson hefur verið
fastur maður í Stoke-liöinu síðustu
mánuði.