Dagur - 21.12.1995, Page 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 21. desember 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN:
AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON,
HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285).
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
fcWARI-
Undarleg vinnubrögð
Það eru orðin árleg tíðindi síðustu vikuna fyrir jól
að störf á hinu háa Alþingi lendi í tímaklemmu.
Þetta árið er engin undantekning frá reglunni. Að
venju tekur fjárlagafrumvarpið drýgstan tíma á
lokasprettinum fyrir jól, enda verið að leggja lín-
urnar um útgjöld hins opinbera á næsta ári og pól-
itísk stefna stjórnvalda þar með mörkuð. Margoft
hefur komið fram að þetta haustþing hefur verið
fremur rólegt, lítið hefur verið um pólitísk átaka-
mál. Engu að síður lendir Alþingi í sömu hringavit-
leysunni og áður með afgreiðslu fjárlaga. Þau eru
afgreidd í tímapressu á lokasprettinum, gjarnan á
næturfundum. Nýjar tillögur koma upp á borðið
nokkrum dögum fyrir jól og þingmönnum er ætlað
að afgreiða þau á margföldum hraða.
Þessi vinnubrögð þjóðþingsins eru óásættanleg
og þau verður að endurskoða. Það virðist vera al-
veg sama hvaða ríkisstjórn er við völd, eða hverjir
hafa með stjórn þingsins að gera, alltaf lendir fjár-
lagaafgreiðslan í slíkum ógöngum.
Mikilvægur áfangi
Auglýst hefur verið arkitektasamkeppni um hönn-
un nýbygginga og aðlögun eldri húsa á Sólborg að
starfsemi Háskólans á Akureyri, ásamt framtíðar-
skipulagi Sólborgarsvæðisins.
Þessi samkeppni er mikilsverður áfangi í upp-
byggingu Háskólans á Akureyri, hér er verið að
leggja línur um framtíðarstarf skólans, miðað er við
að Sólborgarsvæðið rúmi háskóla með 1500-2000
nemendum.
Samkeppnin er til marks um þann vilja embætt-
ismanna og stjórnmálamanna að beri að standa
myndarlega að uppbyggingu háskóla á Akureyri.
Skólinn hefur ótvírætt sannað gildi sitt, byggðapól-
itískt er hann mikilvægari stofnun en margur hygg-
ur og ánægjulegt er að náðst hefur um hann þver-
pólitísk eining. Arkitektasamkeppni sú sem nú hef-
ur verið auglýst er vitaskuld ekki það sama og
byggingaframkvæmdir, en engu að síður er hér um
mikilsverðan áfanga að ræða fyrir framtíðarupp-
byggingu Háskólans á Akureyri.
FRIMERKI
SldURÐUR H. ÞORSTEINSSON
Árið 1996 þegar mótað hjá Svíum
Frímerki til
þess að minnast
póstklefanna í
járnbrautarlestun-
um verða einnig
útgefin þann 29.
mars. Um það bil
árið 1930 voru
258 póstvagnar í
notkun, en nú
verður mynd af
nútíma tækni-
væddum póst-
vagni. Það er Ulf
Walberg sem hef-
ir unnið úr mynd
Sven Tideman, en
Lars Sjöblom hef-
ur grafið frímerk-
ið, sem er prentað
í þrem litum.
Hús til nota og
Flóra villtra dýra í Svíþjóð er mun auðugri en hjá okkur eins og sjá má.
Fyrstu frímerki ársins 1996 hjá
Svíum verða með myndum kon-
ungshjónanna og verðgildunum
3,85 kr. og 7,50 kr. Það eru mynd-
ir eftir Hans Hammarskjöld og
Charles Hammarsten sem eru á
þessum frimerkjum.
Að öðru leyti má segja um út-
gáfur þeirra á árinu 1996, að kon-
ungshylling og list sé fyrirferðar-
mest.
Fyrsta útgáfan á eftir konungs-
frímerkjunum eru villt dýr. Fimm
merkja samstæða af þeim kemur
út 2. janúar. Þessar samstæður
byrjuðu að koma út 1992. Nú
verður myndefnið Broddgöltur
1,00 kr. Svo verða einnig refur,
bjór og fleiri villt dýr úr sænska
dýraríkinu. Sama daginn koma út
frímerki með myndum vetrar-
berja, allt frá einiberjum og reyni-
berjum, sem við þekkjum vel hér
heima til annarra tegunda. Bo
Lundwall og Staffan Ullström
hafa teiknað fyrirmyndirnar að
dýramerkjunum, en aftur á móti
Margareta Jackobson frímerkin
með berjamyndunum.
Frímerkin með dýramyndunum
eru ýmist í rúllum eða pörum, en
berjafrímerkin í 10 frímerkja heft-
um og einnig í rúllum.
Vetrarber nefna Svíar þessi fallegu ber.
ánægju er svo næsta útgáfan, sem
kemur út 19. apríl. Þar í hópi eru
Jámbrautarstöð og allt upp í Al-
þýðuhúsið hjá sænskum, en sam-
stæðan er 6 frímerki unnin af
Ingu-Karin Eriksson, Piotr Nasz-
arkowski og Martin Mörck.
Þá verður haldið upp á fimm-
tugsafmæli konungsins, með ekki
minni viðhöfn en önnur afmæli,
með fjögurra frímerkja blokk. Af-
mæli hans er þann 30. apríl, en frí-
merkin koma út þann 19. aprfl í
heftum með 5,00 króna yfirverði.
Með þessu yfirverði verður stofn-
aður sjóður fyrir æskulýð í Sví-
þjóð og einnig rennur fé til sjóðs-
ins sem kenndur er við konunginn
til styrktar vísindum, tækni og
umhverfísvernd.
A myndunum má sjá konung-
inn í ýmsum hlutverkum. I þjóð-
garðinum í Tyresta við opnun
hans. Við mynd hins franska for-
föður síns, Karls XIV Jóhanns. í
skrautvagni með Albert Belgíu-
konungi. Loks er svo stærsta frí-
merkið fjölskyldumynd.
Það er sama stærð á þessum
frímerkjum og krýningu Gústafs
III. árið 1991 og einnig á kon-
ungsfjölskyldublokkinni frá 1993.
Þama bætist því ríkulega við teg-
undasöfn þeirra er safna sænsku
konungsfjölskyldunni. Myndirnar,
sem eru fyrirmyndir frímerkjanna,
eru eftir: Bertil Ericson, Clas Gör-
an Carlson, Charles Hammersten
og Toni Sica.
Blokk þessi er eins og áður
grafin af þeim eina og sanna
Czeslaw Slania. Verðgildi minni
frímerkjanna er 10,00 kr. en stóra
frímerkisins 20,00 krónur.
Öll lönd í Posteurop, eins og
Evrópska Póstmálastofnunin heitir
í dag, minnast þekktra kvenna úr
þjóðlífi sínu á næsta ári, þar á
meðal íslandi. Svíar munu minn-
ast Astrid Lindgren, rithöfundar-
ins þekkta, og fyrstu konunnar,
sem var ráðherra meðal þeirra,
Karin Kock. Þessi útgáfa verður
þann 24. maí, sennilega eins og
hér á landi.
Myndirnar eru eftir Leif Janson
og frá Pica Pressfoto, en frímerkin
eru grafín af Piotr Naszarkowski
og Martin Mörck.
Þetta er aðeins um helmingur
þess sem Svíar gefa út á næsta ári,
en framhaldið fáið þið að sjá fljót-
lega í þáttunum.
Ekki hefir þegar þetta er skrif-
að, 27. nóvember 1995, borist
nokkur tilkynning um frímerkjaút-
gáfuna hér á landi á næsta ári.
sv
Svo er það ný blokk og þar að auki í frímerkjahefti, sem von er á á næsta
ári.
Jólin nálgast
Enn og aftur eru jólin nœr,
ég ei varð þeirra var í dag né gœr.
Með hverju ári hulu á þau slœr.
Hraðar tíðin Ijúfa framhjá fer,
að fang’ana œ erfiðara er,
ég finn ei lengur barn í sjálfum mér.
Ég ákalla og ennþá um það bið,
að alfaðir mér veiti sálarfrið,
að öllum Jesúbarnið gefi grið.
Er geislar stjörnugliti slá á hjarn
og glampa eins og ofið silfurgarn,
þá gefðu að ég aftur verði barn.
Arnar Einarsson,
skólastjóri Húnavallaskóla.