Dagur - 21.12.1995, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 21. desember 1995 - DAGUR - 19
MÁNUDAGUR 25. DESEMBER
JÓLADAGUR
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER
17.00 Fréttir.
17.05 Leiðarljós. (Guiding LightJ.Banda-
rískur myndaflokkur. Þýðandi: Ásthildur
Sveinsdóttir.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Jóladagatal Sjónvarpsins: Á bað-
kari til Betlehem. 22. þáttur: Alein i eyði-
mörkinni. Hverjar eru tölfræðilegar líkur á
því að lofthræddur tölvufræðingur komist
hjálparlaust til jarðar?
18.05 Hundurinn Fannar og flekkótta
kisa. (We All Have Tales: The Gingham
Dog and the Calico Catj.Bandarísk teikni-
mynd. Þýðandi: Óskar Ingimarsson. Sögu-
maður: Aldís Baldvinsdóttir.
18.30 Fjör á fjölbraut. (Heartbreak
Highj.Ástralskur myndaflokkur sem gerist
meðal unghnga í framhaldsskóla. Þýðandi:
Kristmann Eiðsson.
19.20 Jóladagatal Sjónvarpsins - endur-
sýning.
19.30 Dagsljós.
20.00 Fréttir og veður.
20.45 Dagsljós. Framhald.
21.15 Happ í hendi. Spurninga- og skaf-
miðaleikur með þátttöku gesta í sjónvarps-
sal. Þrir keppendur eigast við í spuminga-
leik í hverjum þættí og geta unn-
ið til glæsUegra verðlauna. Þætt-
irnir eru gerðir í samvinnu við
Happaþrennu Háskóla ís-
lands. Umsjónarmaður er
Hemmi Gunn og honum til
aðstoðar Unnur Steinsson. Stjórn
upptöku: EgiU Eðvarðsson.
21.55 Gunga Din. (Gunga
Dinj.Bandarísk ævintýramynd
frá 1939 um þrjá hermenn á Ind-
landi á 19. öld og baráttu
þeirra við innfædd ill-
menni. Leikstjóri: George
Stevens. Aðalhlutverk: Cary
Grant, Victor McLaglen,
Douglas Fairbanks, Jr. og Jo-
an Fontaine. Þýðandi: Óskar
Ingimarsson.
23.50 Flugumaðurinn. (The Man
Insidej.Frönsk/bandarísk bíó-
mynd frá 1990 byggð á sannri sögu
þýska rannsóknarblaðamannsins Gunt-
hers Wallraffs sem laumaði sér inn á rit-
stjórn slúðurblaðs í þeim tilgangi að gera
lýðum ljós hin óheiðarlegu vinnubrögð sem
þar tíðkuðust. Leikstjóri: Bobby Roth. Aðal-
hlutverk: Jurgen Prochnow, Peter Coyote
og Nathalie Baye. Þýðandi: Gunnar Þor-
steinsson.
01.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER
09.00 Morgunsjónvarp bamanna.
11.00 Hlé.
14.25 Syrpan. Endursýndur frá fimmtudegi.
14.50 Enska knattspyman. Bein útsend-
ing frá leik Newcastle og Nottingham For-
est. Lýsing: Arnar Björnsson.
16.50 HM i frjálsum íþróttum 1995. í þætt-
inum fjallar Samúel Örn Erlingsson um
helstu viðburði á heimsmeistaramótinu sem
fram fór í Gautaborg í ágúst.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Jóladagatal Sjónvarpsins:
Á baðkari til Betlehem. 23. þáttur: Svarta
skýið Kortið af leiðinni til Betlehem fauk út í
veður og vind. Það er ekki auðvelt að stýra
eftir jólastjörnunni þegar himininn er þung-
búinn.
18.05 Ævintýri Tinna. Flugrás 714 til Sydn-
ey - Seinni hluti. (Les aventures de
TintinJ.Franskur teiknimyndaflokkur um
blaðamanninn knáa, Tinna, og hundinn
hans, Tobba, sem rata í æsispennandi ævin-
týri um víða veröld. Þýðandi: Ólöf Péturs-
dóttir. Leikraddir: Felix Bergsson og Þor-
steinn Bachmann. Áður á dagskrá 1993.
18.30 Flauel. í þættinum eru sýnd tónlistar-
myndbönd úr ýmsum áttum. Umsjón og
dagskrárgerð: Arnar Jónasson og Reynir
Lyngdal.
18.55 Strandverðlr. (Baywatch Vj.Banda-
rískur myndaflokkur um ævintýri strand-
varða í Kalifomíu. Aðalhlutverk: David
Hasselhof, Pamela Anderson, Alexandra
Paul, David Charvet, Jeremy Jackson,
Yasmine Bleeth og Jaason Simmons. Þýð-
andi: Ólafur B. Guðnason.
19.50 Jóladagatal Sjónvarpsins - endur-
sýning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Radíus. Davið Þór Jónsson og Steinn
Ármann Magnússon bregða sér í ýmissa
kvikinda líki í stuttum grínatriðum byggð-
um á daglega lífinu og því sem efst er á
baugi hverju sinni. Stjórn upptöku: Sigurður
Snæberg Jónsson.
21.05 Hasar á heimavelli. (Grace under
Fire fl).Ný syrpa í bandaríska gamanmynda-
flokknum um Grace Kelly og hamaganginn
á heimili hennar. Aðalhlutverk: Brett Butler.
Þýðandi: Þorsteinn Þórhallsson.
21.35 Jakob rabbíni fer til Parísar. (The
Adventures of Rabbi Jacob).Frönsk gaman-
mynd frá 1988 um mann sem er haldinn
kynþáttafordómum, en lendir í ótrúlegum
ævintýrum á leið í brúðkaup dóttur sinnar
og læknast af heimskunni. Leikstjóri: Gér-
ard Oury. Aðalhlutverk: Louis de Funés,
Suzy Delair, Marcel Dalio og Claude Giraud.
Þýðandi: Veturliði Guðnason.
23.15 Lögregluskólinn VI. (Police Aca-
demy VIJ.Bandarísk gamanmynd frá 1989.
Stórhættulegur bófaflokkur gerir usla í Los
Angeles, lífi borgarbúa er ógnað og það
sem verra er: fasteignaverð hriðlækkar.
Grunur leikur á að illmennin hafi njósnara í
herbúðum lögreglunnar og því verða hinar
hugprúðu hetjur úr lögregluskólanum að
grípa til sinna ráða. Leikstjóri er Peter Bon-
erz og aðalhlutverk leika Bubba Smith, Dav-
id Graf og Michael Winslow. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson. Áður á dagskrá 11. september
1993.
00.35 Útvarpsfréttlr í dagskrárlok.
SUNNUDAGUR 24. DESEMBER
AÐFANGADAGURJÓLA
09.00 Morgunsjónvarp bamanna.
10.35 Morgunbíó. Öskubuska. (Cinder-
ella).Teiknimynd byggð á hinu þekkta ævin-
týri. Þýðandi: Kristrún Þórðardóttir.
12.00 Jóladagatal Sjónvarpsins: Á bað-
kari til Betlehem. 24. þáttur: Baðkar í
Betlehem. Hafliði og Stína eiga langa leið að
baki. Hætturnar hafa verið margar en alltaf
hafa þau bjargast að
lokum. Skyldu þau
komast til Betlehem?
12.15 Hlé.
12.50 Táknmáls-
fréttir.
13.00 Fréttir og veður.
13.25 Bamadagskrá.
Kynnar: Felix Bergsson
og Gunnar Helgason.
Pappirs-Pési: Kassabíla-
rallið Hópur hrekkju-
svína hefur með
brögðum sigrað vini
Pappírs-Pésa í
kassabílaralli en
hann kemur félögum
sínum til hjálpar á
óvæntan hátt. Leikstjóri: Ari
Kristinsson. Áður sýnt 31. mars
1991. Þrjú ess Finnsk teiknimynd um slynga
spæjara. Þýðandi: Kristín Mántylá. Sögu-
maður: Sigrún Waage. Enginn venjulegur
drengur Leikin íslensk bamamynd eftir
handriti Iðunnar Steinsdóttur. Leikstjóri: Ari
Kristinsson. Áður sýnt 26. desember 1989.
Pappírs-Pési: Rútan Pappírs-Pési og krakk-
arnir eru í feluleik og Pési felur sig inni í
rútu. Fyrr en varir er rútan orðin full af
ferðamönnum og lögð af stað út úr bænum.
Leikstjóri: Ari Kristinsson. Áður sýnt 26.
desember 1990. Jól hjá ömmu Sigríði og
Kormáki Leikinn þáttur sem fluttur var í
jólastundinni okkar 1990. Skreytum hús
(Sunbow Special: Deck the HallsJ.Þýðandi:
Edda Kristjánsdóttir. Refurinn og kalkúninn
(Fox Tails: A Winter Story).Velsk teikni-
mynd um yrðling og kalkúna sem gera
gömlum bónda lífið leitt með uppátækjum
sínum. Þýðandi: Jóhanna Jóhannsdóttir.
Frelsari er fæddur (We All Have Tales: The .
Saviour is Bornj.Þýðandi er Óskar Ingimars-
son og Hallmar Sigurðsson les.
15.35 Jóladagatai Sjónvarpsins - endur-
sýning.
15.50 Hlé.
22.00 Aftansöngur jóla i Háteigskirkju.
Herra Ólafur Skúlason biskup predikar, séra
Tómas Sveinsson þjónar fyrir altari og Hale-
lújakór Háteigskirkju syngur undir stjóm
Pavels Manáseks organista. Textað fyrir
heyrnarskerta á síðu 888 í Textavarpi.
23.00 Jólahátíð í Vínarborg. Placido Dom-
ingo, Jose Carreras og Natalie Cole flytja
jólasöngva á stórtónleikum í Vínarborg 23.
desember 1995. Sinfóníuhljómsveitin í Vin
leikur og kórar syngja. Tónlistarútsetningar:
Lalo Schifrin. Hljómsveitarstjóri: Vjekoslav
Sutej. Textun: Hinrik Bjamason.
00.15 Dagskrárlok.
09.00 Morgunsjónvarp bamanna. Kynnir
er Hannveig Jóhannsdóttir. Þá nýfæddur
Jesús.. Séra Pálmi Matthíasson flytur hug-
vekju og böm úr leikskólanum Kópasteini í
Kópvogi syngja. (Frá 1991). Gleðileg jól!
Getur hjálmur dugað skjaldböku sem hefur
enga skel? Þýðandi: Nanna Gunnarsdóttir.
Leikraddir: Björk Jakobsdóttir og Þórhallur
Gunnarsson. Gamli, góði jólasveinn. Klóra
og SkoUi komast að þvi að sælla er að gefa
en að þiggja. Þýðandi: Nanna Gunnarsdótt-
ir. Leikraddir: Felix Bergsson og Þórdís Arn-
ljótsdóttir. Jólin hans Depils Depill og vinir
hans leita að sleða jólasveinsins. Þýðandi:
Anna Hinriksdóttir. Leikraddir: Edda Heið-
rún Backman og Jóhann Sigurðarson. Snæ-
drottningin. Hið sígilda ævintýri H.C. And-
ersens. Þýðandi: Nanna Gunnarsdóttir.
Sögumaður: Aldís Baldvinsdóttir. Jólatréð
okkar. Teiknimynd eftir Sigurð Örn Brynj-
ólfsson. Sögumaður: Helga Sigurðardóttir.
Tónlist: Sigurður Rúnar Jónsson. (Síðast
sýnt 1992).
10.55 Hlé.
13.20 Vmdsérkonumar kátu. (The Merry
Wives of Windsor). Uppfærsla Breska sjón-
varpsins, BBC, frá 1982 á gamanleik Willi-
ams Shakespeares. Hér segir af raunum sir
Johns Falstaffs eftir að hann sendir eigin-
konum tveggja fyrirmanna í Vindsor ástar-
bréf. Leikstjóri: David Jones. Aðalhlutverk:
Richard Griffiths, Simon Chandler, Alan
Bennett, Ben Kingsley, Judy David, Prunella
Scales og Miranda Foster. Skjátextar: Gauti
Kristmannsson.
16.10 Jólahreinninn. (Prancer). Bandarísk
jólamynd um níu ára stúlku sem býr með
föður sínum, ekkjumanni og bónda sem á
erfitt með að láta enda ná saman. Aðalhlut-
verk: Sam Elliott, Rebecca Harrell og Cloris
Leachman. Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Jólastundin okkar. Það verður mikil
hátíðarstemmning í Jólastundinni okkar.
Tveir dvergar úr ævintýraskóginum reyna
að koma vitinu fyrir Skrögg fjármálastjóra.
Sýnt verður jólaævintýri, Barnakór Biskups-
tungna syngur og forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, les nýja jólasögu eftir
Guðrúnu Helgadóttur. Umsjón
Felix Bergsson og Gunnar
Helgason. Stjórn upptöku:
Ragnheiður Thorsteinsson.
19.00 Sækjast sér um líkir -
Jólaþáttur. (Birds of a Feather).
Breskur grínþáttur með systrun-
um Sharon og Tracey og ná-
grannakonu þeirra, Dorian, sem
nú eru í sérstöku hátíðarskapi.
Þýðandi: Ólafur B. Guðnason.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi. Þáttur um þjóðskáldið
frá Fagraskógi. Handrit: GísU Jóns-
son. Dagskrárgerð: EgiU Eðvarðs-
son. Framleiðandi: Samver.
21.20 Frú Sousatzka. (Madame So-
usatzka). Bandarísk bíómynd frá
1988 sem segir á áhrifamikinn hátt frá tón-
Ustarkennara sem reyrúr að laða það besta
fram í nemendum sínum. Leikstjóri er John
Schlesinger og aðalhlutverk leika Shirley
MacLaine, Navin Cowdry, Peggy Ashcroft,
Twiggy og Leigh Lawson. Þýðandi: Þrándur
Thoroddsen.
23.25 Friður á Jörðu. Upptaka frá tónleik-
um Karlakórs Reykjavíkur í HaUgrímskirkju í
desember 1993. Stjórnandi er Friðrik S.
Kristinsson, orgeUeikari Hörður Áskelsson
og einsöngvarar þau Jóhann Ari Lárusson,
Guðlaugur Viktorsson og Signý Sæmunds-
dóttir. Björn Emilsson stjómaði upptöku.
Áður sýnt í janúar 1994.
00.15 Dagskrárlok.
ÞRIÐ JUDAGUR 26. DESEMBER
ANNARíJÓLUM
09.00 Morgunsjónvarp bamanna. Kynnir
er Rannveig Jóhannsdóttir. Laumufarþeg-
Um Jólaævintýri. Flytjendur: Kjartan Bjarg-
mundsson, Bjöm Ingi Hilmarsson, Bjami
Ingvarsson, Elín Jóna Þorsteinsdóttir og
Sverrir Örn Amarson. (Frá 1991). Jólahátíð
Steinaldarmannanna Þegar jólin ganga í
garð hjá Fred og Vilmu Flintstone kemur
óvæntur gestur. Þýðandi: Magnea J. Matthí-
asdóttir. Leikraddir: Magnús Ólafsson, Saga
Jónsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Örn Áma-
dóttir, Hjálmar Hjálmarsson og Edda Heið-
rún Backman. Sammi bmnavörður. Jól í
Pollabæ. Þýðandi: Edda Kristjánsdóttir.
Leikraddir: Elísabet Brekkan og Hallmar
Sigurðsson. Ferð Miriams á tunglsgeislan-
um. Ævintýri eftir samnefndri bók Georgs
Eichingers. Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir.
Leikraddir: Halldór Bjömsson og Sigrún
Edda Björnsdóttir.
10.55 Hlé.
14.20 Þymirós. Upptaka frá
sýningu Konunglega danska
ballettsins undir stjóm Helga
Tómassonar. Uppfærslan er
byggð á dansverki eftir Mari-
us Petipa við tónlist eftir
Tsjækovskí. Aðaldansarar
em Silja Schandorff og Kenn-
eth Greve.
16.40 Hrekkjavaka á skaut-
um. (Halloween on Ice). Banda-
rískur skemmtiþáttur þar sem fram
kemur helsta skautafólk heims, m.a.
Nancy Kerrigan og þekktar persónur úr
teiknimyndum.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Litlu þorparamir. Ný stuttmynd eftir
Sigurbjörn Áðalsteinsson byggð á sögu
Bergljótar Amalds. Úlfur og Ylfa, tveir litlir
prakkarar á Suðurlandi, reyna að bjarga
ferðamanni sem kominn er í klipu. Aðalhlut-
verk leika Þröstur Leó Gunnarsson, Eyjólfur
Kári Friðþjófsson, Tinna Marína Jónsdóttir
og Guðrún Ásmundsdóttir.
18.15 Ási. Ási, niu ára borgardrengur, er
sendur í sveit en kann lítið til sveitastarfa
og á erfitt með að sætta sig við vistina.
Hann ákveður að strjúka en það er hægara
sagt en gert. Aðalhlutverk leika Magnús
Einarsson, Berghnd R. Guð-
mundsdóttir, Ari Matthías-
son og Þórey Sigþórsdóttir.
Handritið skrifaði Dísa And-
eriman og leikstjóri er Sig-
urbjöm Aðalsteinsson.
Myndin hlaut áhorfenda-
verðlaunin á alþjóðlegu
barnamyndahátíðinni í
Chicago í október sl. Áður
sýnt 1. janúar 1995.
18.30 Jólin hans Kriigers. (Mr.
Kriiger’s Christmas). Banda-
rísk jólamynd.
19.00 Mormónakórinn
syngur jólalög. (The Morm-
on Tabernacle Choir). Mor-
mónakórinn frá Utah syngur
jólalög í musterinu í Salt
Lake City, stærstu timbur-
hvelfingu í heimi. Áður
sýnt í desember 1994.
19.30 Palli flytur. (Pelle flyttar tU Konfun-
sembo). Sænsk bamamynd eftir sögu Astrid
Lindgren. Þýðandi: Jóhanna Jóhannsdóttir.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Böm náttúmnnar. Kvikmynd Frið-
riks Þórs Friðrikssonar frá 1992. Aldurhnig-
inn maður bregður búi og flyst á möUna þar
sem dóttir hans býr. Samskipti þeirra ganga
treglega og úr verður að hann fer á eUiheim-
Ui. Þar hittir hann vinkonu sína frá æsku-
stöðvunum og saman strjúka þau á vit æv-
intýranna. Myndin var tUnefnd tU óskars-
verðlauna. Aðalhlutverk leika GísU Hali-
dórsson og Sigriður HagaUn. Handritið skrif-
aði Friðrik Þór ásamt Einari Má Guðmunds-
syni, Ari Kristinsson stjómaði kvUtmynda-
töku, tónhstin er eftir HUmar Öm Hiimars-
son, Geir Óttar Geirsson gerði leikmynd og
Kjartan Kjartansson sá um hljóðvinnslu.
21.50 Mjótt á mununum. (Narrow Margin).
Bandarisk bíómynd frá 1990 um sögulega
ferð saksóknara og vitnis á leið tU rétt-
arhalda. LeUrstjóri: Peter Hyams. Aðalhlut-
verk: Gene Hackman og Anne Archer. Þýð-
andi: Gunnar Þorsteinsson.
23.30 Biur á tónleikum. Upptaka frá tón-
leUtum bresku hljómsveitarinnar Blur í Alex-
andra Palace í október í fyna þar sem þeir
fluttu m.a. lög af plötunni ParkUfe.
00.25 Dagskráriok.
MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER
17.00 Fréttir.
17.05 Leiðarljós.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Myndasafnið. Endursýndar myndir
úr morgunsjónvarpi bamanna.
18.30 Sómi kafteinn. (Captain Zed and
the Z-Zone). Bandariskur teikni-
myndaflokkur. Þýðandi: Ingólfur
Kristjánsson. Leikraddir: HUmk
Snær Guðnason og Þórdís Am-
ljótsdóttir.
18.55 Úr riki náttúrunnar.
Vísindaspegillinn - 7. Bragð-
skynið. (The Science Show).
Fransk/kanadískur fræðslu-
myndaflokkur. Þýðandi: Ingi
Karl Jóhannesson. Þulur:
Ragnheiður EUn Clausen.
19.30 Dagsljós.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Dagsljós. Framhald.
20.45 Vfkingalottó.
21.00 í draumi sérhvers manns. Stutt-
mynd eftir Ingu Lísu Middleton byggð á
samnefndri smásögu eftir Þórarin Eldjám.
Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, HUmir
Snær Guðnason, Jóhann Sigurðarson, Edda
Heiðrún Backman, Eggert Þorleifsson og
María Sigurðardóttir. Tónlist er eftir Sigur-
jón Kjartansson, Rafn Rafnsson kvikmynd-
aði, Sigriður Sigurjónsdóttir gerði leikmynd
og María Ólafsdóttir sá um búninga.
21.15 Hvíta tjaldið. í þættinum verður m.a.
sýnt úr nýju bíómyndinni Agnesi eftir EgU
Eðvarðsson og Snona Þórisson, og rætt við
höfundana, leUtarana Baltasar Kormák og
Maríu EUingsen og fleiri aðstandendur
myndarinnar. Umsjón: Valgerður Matthias-
dóttú.
21.30 LanBinn. (Riget). Danskur mynda-
flokkur eftir Lars von Trier. Þetta er nútíma-
draugasaga sem gerist á Landspítala Dana.
Löngu látin lítU stúlka gengur aftur og finn-
ur ekki frið í gröf sinni fyir en gamlar sakir
hafa verið gerðar upp.
23.00 EUefufréttir.
23.15 Einn-x-tveir. í þættinum er sýnt úr
leikjum síðustu umferðar í ensku knatt-
spyrnunni, sagðar fréttn af fótboltaköppum
og einnig spá giskari vikunnar og íþrótta-
fréttamaður í leUd komandi helgar.
23.50 Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER
16.25 Einn-x-tveir. Endursýndur þáttur frá
miðvUtudagskvöldi.
17.00 Fréttir
17.05 Leiðarljós. (Guiding Light). Banda-
rískur myndaflokkur. Þýðandi: Reynir Harð-
arson.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Litill bróðir fæst gefins. Stutt barna-
mynd eftir Kristínu Pálsdóttur. Siðan UtU
bróðir fæddist bættist við fjölskylduna hefur
aUt breyst og Kristín ákveður að það sé ÖU-
um fyrir bestu að finna honum nýja fjöl-
skyldu. Höfundur handrits er Valdís Óskars-
dóttn og leikstjóri Kristín Pálsdóttir. Aðal-
hlutverk leika Þuriður Dagný Þormar og Jó-
hann Garðarsson og meðal annarra leUtara
eru Elva Ósk Ólafsdóttir og Hinrik Ólafsson.
Áður sýnt 26.des. 1994.
18.30 Ferðaleiðir. Við ystu sjónarrönd -
Suður-Indland. (On the Horizon). í þessari
þáttaröð er Utast um viða í veröldinni, aUt
frá snævi þöktum fjöUum ftaUu tU smáþorpa
í Indónesíu, og fjaUað um sögu og menn-
ingu hvers staðar. Þýðandi og þulur: Gylfi
Pálsson.
18.55 Rikarður þriðjl. (Shakespeare - The
Animated Tales: Richard IH). Velsk/rúss-
neskur myndaflokkur byggður á verkum
WUUams Shakespeares. Þýðandi: ÁsthUdur
Sveinsdóttir. Leikraddir: Bjami Ingvarsson,
Erla Ruth Harðardóttir, Pétur Eggerz og
Stefán Sturla Sigurjónsson.
19.30 Dagsljós.
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Dagsljós. Framhald.
21.00 Mótorsport ársins 1995. Birgir Þór
Bragason rifjar upp helstu viðburði frá
landsmótum akstursíþróttamanna á árinu
sem er að Uða.
21.30 Ráðgátur. (The X-FUes). Bandariskur
myndaflokkur. Atriði í þættinum kunna að
vekja óhug bama.
22.25 Roseanne. Bandariskur gaman-
myndaflokkur með Roseanne Barr og. John
Goodman í aðalhlutverkum. Þýðandi: Þránd-
ur Thoroddsen.
23.00 Ellefufréttir.
23.15 Gerry Mulligan á Listahátið. Upp-
taka frá tónleUcum sem djassleUcarinn Gerry
MuUigan hélt á Listahátíð í fyrra. Stjórn
upptöku: Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
00.05 Dagskrárlok.
Börn náttúrunnar, jóla-
tónleikar og barnaefni
Barnaefni, tónlistarþaettir, kvikmyndir og nýir íslenskir þættir prýða dagskrá Sjónvarpsins yfir jólahátíðina. Nánari skil
verða gerð á einstökum þáttum í helgarblaði Dags en hér verður hlaupið á því helsta.
Á Þorláksmessukvöld verður sýnd sjötta myndin um Lögregluskólann og þær ótrúlegu hremmingar sem hugprúð-
ar hetjur skólans lenda í.
Aðfangadagurinn verður svo dagur bamanna, eins og svo oft áður. Þá verður barnaefni í Sjónvarpinu frá því klukk-
an níu um morguninn og til að verða fjögur síðdegis með smáhléi um hádegisbilið. Um morguninn verða gamlir og góð-
ir kunningjar úr Morgunsjónvarpi barnanna, Tuskudúkkurnar, draumálfurinn Geish, Tumi og Doddi dagbókarhöfundur
auk Sunnudagaskólans þar sem sögð verður sagan af fæðingu Jesú. Um hálfellefuleytið verður sýnd teiknimynd um
Öskubusku og þegar klukkan er tólf á hádegi er komið að lokaþætti jóladagatalsins en hann verður endursýndur síð-
degis. Eftir hádegið verða m.a. sýndar myndir um Pappírs-Pésa auk skemmtilegra erlendra teiknimynda sem stytta
bömunum biðina eftir hátíðinni.
Stórsöngvaramir Placido Domingo, Jose Carreras og Natalie Cole verða í Sjónvarpinu klukkan ellefu á aðfanga-
dagskvöld. Þá verður sýnd upptaka frá hátíðartónleikum sem haldnir vom í Vínarborg kvöldið áður, 23. desember. Þre-
menningarnir flytja jólasöngva úr ýmsum áttum.
Samver á Akureyri er framleiðandi þáttar sem sýndur verður á jóladagskvöld og fjallar um þjóðskáldið Davið Stef-
ánsson.
Að kvöldi annars jóladags verður sýnd ein víðfrægasta mynd sem íslendingar hafa gert, Böm náttúrunnar Segja
má að hún hafi fengið flest þau alþjóðlegu verðlaun sem ein mynd getur fengið eða 23 talsins. f myndinni er sögð sag-
an af aldurhnignum manni sem bregður búi og flyst á mölina þar sem dóttir hans býr. Samskipti þeirra ganga treglega
og úr verður að hann fer á elliheimili. Þar hittir hann vinkonu sína frá æskustöðvunum og saman strjúka þau á vit ævin-
týranna.
Dagskrárliður fyrir unglingana er kl. 23.30 að kvöldi annars jóladags þegar breska hjómsveitin Blur stigur á svið á
tónleikum í Alexandra Palace.