Dagur - 28.12.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 28. desember 1995
FRÉTTIR
Fimm íslenskir togarar á veiðum um jólin:
Toguðum lengur á aðfangadagskvöld
- sagði Einar Gíslason, skipstjóri á Hegranesi SK
Fjórir íslenskir togarar voru á
veiðum um jólin, þar af þrír frá
Fiskiðjunni- Skagfirðingi hf. á
Sauðárkróki; Hegranes SK-2,
Skafti Sk-3 og Skagfirðingur
SK-4. Hinir togararnir eru Breki
VE-61 frá Vestmannaeyjum og
Eyvindur Vopni NS-70 frá
Vopnafirði. Auk íslendinganna
eru þýsku togararnir Cuxhaven
og Europa á veiðum á Reykja-
neshrygg í landhelginni sam-
kvæmt samningi íslendinga við
Evrópusambandið. Cuxhaven er
eign þýska útgerðarfyrirtækisins
DFFU, sem Samherji hf. festi
nýlega kaup á meirihluta í.
Á fundi bæjarráðs Akureyrar á
dögunum var fjallað um bréf frá
Fóðurverksmiðjunni Laxá hf.
þar sem lýst er óánægju með
framgang mála við sölu á hluta-
bréfum bæjarins í Krossanesi hf.
Laxá var einn þeirra aðila sem
bauð í þau bréf og vildi jafn-
framt kaupa hlut Akureyrarbæj-
ar í Laxá, en bærinn á þar um
þriðjungs hiut.
Sem kunnugt er var tilboði
Laxár í Krossanes ekki tekið en
eftir sem áður hafa forsvarsmenn
Laxár áhuga á að kaupa bréf bæj-
arins í fyrirtækinu, þ.e. í Laxá, að
sögn Áma V. Friðrikssonar,
stjórnarformanns. Hefur þetta ver-
ið áréttað í fyrrgreindu bréfi til
bæjarins. Ámi segir því ekki að
neita að menn sé farið að lengja
eftir svörum frá bænum vegna
þessa máls, en tilboði í hlutinn í
Laxá var sem fyrr segir skilað inn
Einarsbakarí
fær greiðslu-
stöðvun
Einarsbakarí á Akureyri hefur
fengið greiðslustöðvun. Verður
málið næst tekið fyrir þann 9.
janúar nk.
Einarsbakarí hefur í nokkur ár
rekið bakarí og brauðbúð við
Tryggvabraut á Akureyri. Þá var
um tíma rekin brauðbúð í Skipa-
götu á Akureyri. HA
Þýsku togararnir komu þangað í
byrjun desembermánaðar en þá
höfðu þeir ekki sést lengi á þeim
slóðum samkvæmt upplýsingum
stjórnstöðvar Landhelgisgæsl-
unnar.
Tveir togaranna voru á miðun-
um suðvestur af landinu, þ.e. Ey-
vindur Vopni NS og Skafti SK, en
hinir þrír voru á Reykjanes-
hryggnum. Einar Gíslason, skip-
stjóri á Hegranesi SK, segir að
veiðin hafi verið fremur róleg
jóladagana en verið er að fiska í
sölutúr erlendis og á togarinn
sölulag í Bremerhaven 10. janúar
um leið og tilboðinu í Krossanes.
Segir Ámi þetta í raun tvö aðskil-
in mál þó menn hafi kosið að
bjóða í bæði fyrirtækin þegar til-
boðinu var skilað inn.
Á sama bæjarráðsfundi og
gengið var frá sölu Krossanesbréf-
anna var bæjarstjóra falið að selja
bréf bæjarins í Laxá. Raunar
munu hafa borist önnur kauptil-
boð í hlut bæjarins í Laxá og
einnig í hluti fleiri aðila í fyrirtæk-
inu. HA
Húsavík:
Góð jóla-
stemmning
„Það hefur verið mjög róleg og
góð jólastemmning yfír öllum,“
sagði Húsavíkurlögreglan í gær-
dag, en fátt hefur út af borið um
jólahátíðina.
Tveir ökumenn voru teknir
vegna gruns um ölvun við akstur á
þriðjudagskvöld. Um nóttina var
brotin rúða í Keldunni og einnig
var brotin rúða rétt fyrir jól í
kaupfélagshúsinu. Lögreglu grun-
ar hverjir hafi verið þama á ferð-
inni. Á aðfangadag var talsvert
um að fólk leitaði aðstoðar vegna
þess að bílar fæm ekki í gang í
kuldanum, og frést hefur að færri
en vildu hafi komist til kirkju í
sveitum þar sem frosthörkur hafa
verið miklar og bílar ekki viljað í
gang af þeim sökum. IM
nk. Skafti SK er aðallega á ýsu-
veiðum og selur í Hull 2. janúar
og Skagfirðingur SK selur karfa í
Bremerhaven 8. janúar.
„Það er búið að vera blíðuveð-
ur allt frá því að við fórum út 20.
desember og aðeins 2 gráðu frost
nú en stundum hefur komið smáél
þannig að skipið hefur hvítnað.
Við vorum með trollið úti á að-
fangadagskvöld jóla en toguðum
lengur þannig að frí var frá því
klukkan fjögur um daginn til ell-
efu um kvöldið hjá öllum nema
skipstjóranum. Áhöfnin borðaði
því saman hamborgarhrygg og
síðan voru jólagafir opnaðar í
Kirkjusókn á Akureyri og næsta
nágrenni var góð um jólin og
þeir prestar sem Dagur hafði
samband við voru ánægðir með
hve margir komu í kirkju þessi
jól.
I Akureyrarkirkju var full
kirkja á aðfangadagskvöld, bæði
klukkan 18:00 og einnig í miðnæt-
urmessunni sem hófst 23:30. Að
sögn Séra Birgis Snæbjörnssonar,
prófasts, var heldur færra fólk á
jóladag enda var messan klukkan
11:00 en ekki klukkan 14:00 eins
og oftast er og kom þessi breyting
til vegna þess að messunni var út-
varpað. Mjög margir komu hins
vegar í fjölskyldumessu á annan í
jólum.
sameiningu en þær tóku menn
með sér að heiman. Þetta eru
fjórðu jólin sem við erum á veið-
um og hafa menn reynt að skipta
því á milli sín að vera heima á
þeim tíma og aðeins einn úr
áhöfninni sem hefur verið alla túr-
ana. Þetta er þriðji jólatúrinn sem
ég fer,“ sagði Einar Gíslason,
skipstjóri.
Hegranes SK fer ekki aftur í
sölutúr fyrr en um páskana, en
páskadag ber næst upp á 7. apríl.
Bolfiskaflanum verður landað á
Sauðárkróki til vinnslu þar en
karfa og grálúðu landað í gáma til
útflutnings. GG
í Glerárkirkju var einnig fjöl-
mennt um jólin og segir séra
Gunnlaugur Garðarson, sóknar-
prestur í Glerárprestakalli, að
kirkjusóknin hafi verið svipuð og
undanfarin ár og langmest hafi
verið á aðfangadagskvöld. Annar í
jólum er vinsæll dagur til að skíra
og ef báðar sóknir eru meðtaldar
voru á annan tug barna skírð á
Akureyri á annan í jólum.
Séra Hannes Öm Blandon,
sóknarprestur í Laugalandspresta-
kalli, lét vel af kirkjusókn í Eyja-
fjarðarsveit um jólin. Messað var í
Grundarkirkju á aðfangadags-
kvöld, og á Hólum og Kaupangs-
kirkju á jóladag og kom fjöldi
manns í kirkju. AI
Dalvik:
Bæjarmála-
punktar
Gjaldaprósentur 1996
Bæjaryfirvöld hafa samþykkt
að útsvarsprósenta 1996 verði
9,2%. Fasteignagjöld verða
0,375% á íbúðarhúsnæði og
lóðir og 1,4% á atvinnuhús-
næði og lóðir. Holræsagjald
verður 0,15% á íbúðarhúsnæði
og lóðir og 1,36% á atvinnu-
húsnæði og lóðir. Þá verður
vatnsgjald A-flokkur íbúðar-
húsnæði 0,18% og B-flokkur
atvinnuhúsnæði 0,30%. Lóða-
leiga verður 2% og ræktarlönd
4%. Sorphirðugjald verður 5
þúsund krónur á hverja íbúð.
Víkurröst verði auglýst
til leigu
Tígull ehf. hefur sent erindi til
bæjarráðs þar sem óskað er
eftir að taka Víkurröst á leigu
til þriggja ára. Bæjarráð sam-
þykkti að auglýsa Víkurröst til
leigu.
Grundargata 9 seld
Bæjarráð hefur samþykkt
kauptilboð Ásgeirs Páls Matt-
híassonar og Magnúsar Ás-
geirs Magnússonar í Grundar-
götu 9. Kaupverð er kr. 4
milljónir, útborgun 1 milljón
króna.
Rammasamningar
Bæjarráð hefur samþykkt að
gengið verði frá rammasamn-
ingum við eftirfarandi félög:
1. Skíðafélag Dalvíkur.
2. Ungmennafélag Svarfdæla.
3. Hestamannfélagið Hring.
4. Golfklúbbinn Hamar.
Skíðafélagið fái „Hreiður“
íþrótta- og æskulýðsráð gerði
tillögu til bæjarráðs um að
bæjaryfirvöld leigi/afhendi án
frekari skuldbindinga skíðafé-
laginu „Hreiðrið“ (geymsluhús
við Gilveg) til afnota fyrir
troðara. Bæjarráð samþykkti
að skíðafélagið fái vesturhluta
geymsluhúss við Gilveg án
endurgjalds og var bæjarstjóra
falið að ganga frá leigusamn-
ingi.
Hestagrafreitur
Á fundi skipulagsnefndar var
tekið fyrir erindi frá Rafni
Ambjömssyni fyrir hönd
Hestamannafélagsins Hrings,
þar sem óskað er eftir svæði
við gróðrarreitinn á Holtsmót-
um fyrir hestagrafreit. Heita
hestamenn því að ganga vel frá
svæðinu og hlíta þeim reglum
um frágang sem kunna að
verða settar af Dalvíkurbæ og
einnig að þurfi að taka svæðið
undir aðra mikilvægari starf-
semi að mati bæjaryfirvalda
verði hugsanleg minnismerki
fjarlægð. Skipulagsnefnd sam-
þykkti að Hestamannafélaginu
Hring verði úthlutað afmörk-
uðu svæði vestan gróðrarreits
fyrir dýragrafreit. Bæjaryfir-
völd áskilja sér rétt til að nýta
umrætt svæði til annarra af-
nota verði þess þörf.
Kæru Akureyringar
og nærsveitamenn
og aCfirsem fiafa veitt offur ómetanfegan
stuðning á árínu.
Quðge.fi ykfur ö(tum
gteðiteg jóí og farscett nýtt ár.
Fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar
Jóna Berta Jónsdóttir.
Kauptilboö Laxár hf. í hlut Akureyrarbæjar:
Farið að lengja
eftir svörum
- segir stjórnarformaður Laxár
Tveir árekstrar á
einbreiðum brúm
Einbreiðar brýr á fjölförnum
vegum eru hinar vestu slysa-
gildrur og það sannaðist tví-
vegis um jólin. Þá urðu
árekstrar á Kotárbrú í Norð-
urárdal í Skagafirði, alræmdri
slysagildru sem margsinnis
hefur verið reynt að laga, og
einnig rákust saman bflar á
brúnni yfir Víðidalsá í V-
Húnavatnssýslu.
Áreksturinn á brúnni yfir
Víðidalsá varð síðdegis á annan
í jólum. Þar keyrðu saman tveir
fólksbflar. Áreksturinn var
harður, báðir bflar óökufærir en
enginn meiddist. Að sögn lög-
reglu var ekki umtalsverð hálka
þegar áreksturinn átti sér stað.
Um kl. 14 í gær rákust saman
tveir fólksbílar við norðurenda
brúarinnar yfir Kotá. Sá árekst-
ur var einnig harður og var kona
sem var farþegi í öðrum bílnum
flutt á Sjúkrahúsið á Sauðár-
króki. Bjöm Mikaelsson, yfir-
lögregluþjónn á Sauðárkróki,
segir þetta sýna að betur þarf að
gera ef koma á í veg fyrir slys á
Kotárbrú. Nokkrar tilraunir hafa
verið gerðar til að laga aðkom-
una að brúnni, nú síðast í sumar
þegar vegurinn var hækkaður
og færður til sunnan megin við
brúna, en Bjöm segir að einnig
þurfi að hækka veginn við norð-
urendann. HA
Sauðárkrókur:
Anægja með jólaverslun
„Það var meiri sala hjá okkur
en í fyrra og við erum mjög
sátt við útkomuna. Góð út-
koma var hjá okkur í verð-
könnun og það er ein skýring-
in, auk þess erum við með gott
og mikið vöruúrval sem er
okkar styrkur. í kjötvörum
vorum við með gríðarlega fín
verð,“ sagði Ómar Bragi Stef-
ánsson, verslunarstjóri í Skag-
firðingabúð á Sauðárkróki,
aðspurður um jólaverslunina.
„Ég held að fólk hafi séð í
hendi sér að verðin voru lægri
en gerist í kringum okkur, og
við fengum þó nokkuð af fólki
úr nágrannabyggðarlögunum
sem verslaði síðustu vikumar.
Færð var einnig góð. Verslunin
var annars hefðbundin og byrj-
aði örlítið seinna en venjulega,
en skilaði sér síðan öll. Þorláks-
messa var öðruvísi en venjulega
af því að hana bar upp á laugar-
dag. Þetta er frídagur flestra og
fólk kom fyrr til að versla en
vanalega, þunginn dreifðist því
á daginn í stað þess að vera
meiri seinni partinn þegar fólk
er búið að vinna,“ sagði Ómar
Bragi. IM
Góð kirkjusókn
um jólin