Dagur - 19.01.1996, Blaðsíða 7
HVAÐ ER A£> C, E RAST?
Föstudagur 19. janúar 1996 - DAGUR - 7
LH sýnir Gauragang
Leikfélag Húsavíkur sýnir hið
vinsæla leikrit Ólafs Hauks Sím-
onarsonar í kvöld kl. 20.30 og á
morgun, 20. janúar, kl. 16.
Miðasalan er opin í Samkomu-
húsinu milli kl. 17 og 19 virka
daga og tvo tíma fyrir sýningu.
Símsvari er allan sólarhringinn og
er athygli vakin á því að fjöldi
sýninga nú eftir áramótin er tak-
markaður.
Fimmtán mínútna mót hjá
Skákfélaginu
Skákfélag Akureyrar stendur fyrir
fímmtán mínútna móti nk. sunnu-
dag kl. 14 í skákheimilinu við Þing-
vallastræti. Mótið er öllum opið.
Flóamarkaður
Hjálpræðishersins
Hjálpræðisherinn á Akureyri
stendur fyrir flóamarkaði í dag kl.
KVAK sýnir
kínverska
kvikmynd
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
(KVAK) mun næstkomandi
sunnudag og mánudag sýna
kínversku kvikmyndina „Að
lifa“ í Borgarbíói. Sýningarnar
vérða kl. 17 á sunnudag, 21.
janúar, og kl. 18.30 á mánudag.
Myndin „Að lifa“ hlaut að-
alverðlaun dómnefndarinnar á
kvikmyndahátíðinni í Cannes
1994. Hún rekur sögu hjóna í
gegnum umbrotatíma í Kína á
þessari öld. Ung kona yfirgefur
eiginmann sinn vegna veð-
málafíknar hans en tekur sam-
an við hann aftur. Þau dragast
inn í borgarastyrjöld ntilli
þjóðernissinna Sjang Kaj Sjeks
og kommúnista Maó Tse
Tungs og verður hryllingur
stríðsins til að sýna unga
manninum mikilvægi lífsins og
þess að sinna fjölskyldu sinni.
Fólkinu verður fylgt eftir í
gegnum uppbygginguna í Kína
eftir byltinguna og fram yfir
menningarbyltinguna sem
hafði í för með sér ógurlegar
hörmungar fyrir kínversku
þjóðina.
Allir eru velkomnir á sýn-
ingarnar á „Að lifa“.
„Ég ætla út
í kvöld“ á
Dalvík
Leikfélag Dalvíkur stendur
fyrir tveggja tíma söngvasýn-
ingu sem ber nafnið „Eg ætla
út í kvöld“ í Ungó á Dalvík í
kvöld og annað kvöld kl. 21
bæði kvöldin. Ágóði af sýn-
ingunni í kvöld rennur til
kaupa á nýjum sætum í Ungó
en ágóðinn af sýningunni ann-
að kvöld rennur til kaupa á
flygli í Tónlistarskólann á Dal-
vík.
Fjölmörg tónlistaratriði eru
í sýningunni og koma við sögu
þekkt lög af ýmsum toga sem
fólk ætti að þekkja.
Tíu flytjendur koma fram í
sýningunni. Aðgangseyrir er
kr. 800.
10-17 á Hjálpræðishemum
Hvannavöllum 10. Mikið úrval
vara er í boði og gott verð. Hjálp-
ræðishersfólk tekur á móti fatnaði
alla daga á sama stað.
Borðtennismaraþon á morgun
Akur, íþróttafélag fatlaðra á Akur-
eyri, efnir til fjáröflunar á morgun,
laugardag, með maraþon borðt-
ennis. Söfnunarféð verður lagt í
ferðasjóð félagsins svo hann geti
styrkt félagsmenn til keppni er-
lendis.
Borðtennismaraþonið verður
haldið í íþróttahúsinu á Bjargi á
Akureyri á morgun kl. 08-24. Fé-
lagar úr íþróttafélaginu Akri skip-
ast á að spila allan tímann.
Fólk er velkomið að líta við og
fylgjast með.
Karlakórsmenn með bingó
Karlakór Akureyrar-Geysir heldur
bingó í Lóni við Hrísalund sunnu-
daginn 21. janúar kl. 15. Spilaðar
verða auk þess tvær umferðir í
bamabingói. Vandað er til vinn-
inga, sem m.a. eru flugfar til
Reykjavíkur og matarvinningar. I
hléi syngur karlakórinn nokkur
létt lög.
Fyrsta ferð Ferðafélagsins
á árinu
Á morgun, laugardaginn 20. janú-
ar, kl. 10 er fyrsta ferð Ferðafé-
lags Akureyrar á þessu ári. Áætlað
er að ganga á skíðum frá Krist-
nesi, yfir Súlumýrar og koma nið-
ur hjá Heimari Hlífá. Skrifstofa
félagsins er opin í kvöld kl. 17.30-
19. Síminn er462 2720.
„Murder in the First“
í Borgarbíói
Borgarbfó sýnir annað kvöld og
á sunnudagskvöldið kl. 23
spennumyndina „Murder in the
First“ með Christian Slater, Ke-
vin Bacon og Gary Oldman í
aðalhlutverkum. í myndinni er
fjallað um endalok „Alcatraz
fangelsisins".
Borgarbíó forsýnir áfram
spennumyndina Seven með
Brad Pitt og Morgan Freeman í
aðalhlutverkum kl. 23 í kvöld
og annað kvöld og á sama tíma
á sunnudagskvöld verður sýnd
myndin Jade.
Klukkan 21 verður annars
vegar sýnd myndin Dangerous
Minds og hins vegar Ace Vent-
ura II. Þá verður á sunnudag kl.
15 sýnd teiknimyndin Poca-
hontas.
Geirmundur
á Hótel KEA
Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar sér um að skemmta gestum
Hótels KEA á Akureyri annað
kvöld, laugardagskvöld. Verð á
dansleik er kr. 500 en ef matur er
einnig keyptur kostar miðinn kr.
2500.
Dúettará
Odd-vitanum
I kvöld skemmta Gunnar
Tryggvason og Skúli Gautason
gestum Odd-vitans og annað
kvöld, laugardagskvöld, verður
Gunnar Tryggvason þar einnig
ásamt Júlíusi Guðmundssyni. Ald-
urstakmark er 20 ár og er snyrti-
legur klæðnaður áskilinn. Húsið
verður opnað kl. 22.
Gleðigjafarnir í Sjallanum
Sjallinn verður með diskótek í
kvöld og verður frítt inn. DJ. Elli-
ott sér um að snúa diskunum.
Annað kvöld skemmta Gleði-
gjafarnir í Sjallanum og verður þá
sömuleiðis frítt inn.
Á Góða dátanum sér hljóm-
sveitin Bylting um fjörið í kvöld
og annað kvöld og í Kjallaranum
verður lifandi tónlist alla helgina.
Hestamenn
athugið!
Hestamannafélagið Léttir hefur ákveðið að bjóða
upp á morgungjafir eins og undanfarin ár.
Ódýr og góð þjónusta!
Allar nánari upplýsingar gefur Sigfús Helgason í síma 462
6163 á daginn og 462 3713 á kvöldin.
Opnunartími í Skeifunni verður sem hér segir, fyrst um
sinn: Virka daga frá kl. 9.30-11 og frá kl. 15-16.30.
Kaffi og léttar veitingar.
Helgaropnun auglýst síðar.
Hestamannafélagið Léttir.
LAsýnir
Sporvagninn
Gimd
Leikfélag Akureyrar sýnir Spor-
vagninn Gimd eftir Tennessee
Williams í kvöld og annað kvöld
kl. 20.30. Miðasalan er opin dag-
lega kl. 14-18 og sýningardagana
fram að sýningu. Símsvari tekur
við miðapöntunum allan sólar-
hringinn. Síminn er 4621400.
- fyrir þig!
Ódýrara en þig grunar
Fonskot á
þorrann
fill«r
frá Kjötiðnaðarstöð KEA
Klementínun kn. 99,- kg
Unghænur kn. 199,- kg
2 stk. hambongarar+bnauð kn. 139,- pk.
Nemli Ultra Colon 1 kg kn. 199,- pk.
Nemli Ultna 1 kg kn. 199,- pk.
Nemli Ultna Reng. 250 ml kn. 98,-
Nemli Ultna Citnon 500 ml kr. S9,-
*
Sprengidagar í kjallara
Aðeins 5 verð