Dagur - 19.01.1996, Blaðsíða 16
LeikhússmatseðiU Smiðjunnar
Rjómalöguð skelfisksúpa eða villibráðarpaté með týttuberjasultu
Lambapiparsteik með Hassel kartöflu og mildri piparsósu
eða Camenbertfylltar grísalundir með gratineruðum kartöflum
og madeirasósu. Kaffi og konfekt
Kr. 1990,-
Trausti prófar
troðarann
í gær var á Dalvík unnið við að setja saman snjótroðara, sem Trausti
Sveinsson, bóndi á Bjarnargili í Fljótum, hefur fest kaup á. Troðarann
hyggst Trausti nota vegna skíðamannvirkja sinna og einnig sem farar-
tæki yfir vetrartímann í hinni snjóþungu sveit sem Fljótin eru. Snjótroð-
arinn er af gerðinni LH 500 og er kraftmikið tæki. Þessi mynd var tekin
af Trausta í gær þegar hann prófaði sæti ökumanns í þessu magnaða
tæki. -sbs/Mynd: BG.
Bílaleiga Hassos hefur starfsemi:
Erum alveg
rólegir
- segir Vilhelm Ágústsson
hjá Bílaleigu Akureyrar
Bílaleigan Hasso-fsland ehf,
hóf starfsemi í gær. Eins og
fram hefur komið er leigan í
eigu Hasso Schiitzendorfers,
auðkýfings á Mallorca, og er
yfirlýst markmið hans að bjóða
alltaf lægsta verðið á íslenska
markaðnum.
í byrjun vera 10 bílar í útleigu
og kostar ódýrari gerðin, Fiat
Punto, 2.500 kr. á sólarhring með
inniföldum ótakmörkuðum akstri.
Voru allir 10 bílar leigunnar í út-
leigu í gær, að sögn Sigurðar
Bjamasonar í Hafnarfirði, sem
rekur leiguna hér á landi. Að sögn
hans er í bígerð að fjölga bílum og
opna útibú á fleiri stöðum á land-
inu og sagðist hann stefna á að
vera kominn til Akureyrar fyrir
vorið.
Bílaleiga Akureyrar er ein
stærsta bílaleiga landsins og sagði
einn eigenda hennar, Vilhelm
Agústsson, að þar á bæ væru
ntenn alveg rólegir yfir þessum
nýja samkeppnisaðila. Þar kostar
ódýrasta gerð af bíl 3.100 kr. á
sólarhring með inniföldum 100
km akstri. „Verðið segir heldur
ekki alveg allt, þetta er líka spurn-
ing um þá þjónustu sem fólk fær.
En reynslan verður bara að skera
úr um hvemig þetta þróast," sagði
Vilhelm. HA
Raufarhöfn:
Sléttunúpur ÞH
seldur til írlands
Sléttunúpur ÞH-272, bátur í
eigu Jökuls hf. á Raufarhöfn,
hefur veríð seldur til írlands til
útgerðar, sem mun gera hann út
á trollveiðar á írlandshafí og
Hatton- Rockallsvæðinu. írska
útgerðin átti fyrir bát sem eyði-
lagðist í eldi. Fiskveiðiheimildir
bátsins, 446 þorskígildistonn,
verða eftir á Raufarhöfn.
Skrifað verður undir sölusamn-
ing eftir helgi og fæst söluverð
ekki gefið upp fyrr en eftir það.
Ureldingarstyrkur að upphæð 43
milljónir króna fæst úr Þróunar-
sjóði sjávarútvegsins. GG
Einarsbakarí á Akureyri:
Greiðslustöðvun framlengd
Asgeir Pétur Ásgeirsson, hér-
aðsdómari við Héraðsdóm
Norðurlands eystra, hefur með
VEÐRIÐ
í dag mun blása hressilega
um landsmenn því spáð er
suðaustan hvassviðri eða
stormi. Sunnan- og vestan-
lands verður rigning en norð-
austanlands verður þurrt og
eitthvað hægari vindur. Hlýrra
verður en í gær. Um helgina
er í boði hæg breytileg eða
austlæg átt, gætu orðið ein-
hver él við ströndina norðan-
lands og hiti -3 til 3 stig.
úrskurði dags. 10. janúar sl.,
framlengt greiðslustöðvun Ein-
arsbakarís hf. á Akureyri til 9.
maí nk. Einarsbakaríi var áður
veitt greiðslustöðvun með úr-
skurði Héraðsdóms 19. desem-
ber sl.
í úrskurði Héraðsdóms Norður-
lands eystra kemur fram að frá 19.
desember hafi Einar Viðarsson,
einn af hluthöfum félagsins, rætt
við nokkra aðila um aðild þeirra
að fyrirtækinu með framlagningu
hlutafjár og telji hann góðar líkur
á árangri af þeim viðræðum. Þá
kemur fram í úrskurðinum að Ein-
ar og Kristján Ólafsson hrl. hafi
átt viðræður við fjársterka aðila í
atvinnulífinu á Akureyri um ný
viðskipti við bakaríið. óþh