Dagur - 16.07.1996, Page 3
Þriðjudagur 16. júlí 1996 - DAGUR - 3
FRETTIR
Sameiningarmál rædd í Vestur-Húnavatnssýslu:
„Tel kosti sameiningar ótvíræða"
- segir Þorvaldur Böðvarsson á Hvammstanga
„Ég tel að kostir sameiningar
sveitarfélaga hér um slóðir séu
fjölmargir. Til að mynda gæti
stjórnsýslan orðið mun virkari
og eitt sameinað sveitarfélag hef-
ur meiri burði til að takast á við
ijölþætt verkefni, en mörg fá-
menn,“ sagði Þorvaldur Böðv-
arsson, sveitarstjórnarmaður á
Hvammstanga, í samtali við
blaðið.
en þar ætla menn að standa utan
viðræðnanna að svo komnu máli.
Nú er komin á laggimar sameigin-
leg viðræðunefnd um sameiningar-
mál sem í eiga sæti fulltrúar
Hvammstanga-, Staðar-, Fremri-
Torfustaða, Kirkjuhvamms, Þver-
ár- og Þorkelshólshreppa. Nefnd-
armenn héldu sameiginlegan fund
í vor, en Þorvaldur Böðvarsson
býst við að málið liggi í láginni
fram á haust, en þá verði þráðurinn
tekinn upp á nýjan leik. - Ibúar í
V-Hún. em alls um 1.400, þar af
tæpur helntingur á Hvammstanga.
Þorvaldur Böðvarsson segir að
engar formlegar viðræður séu
haínar um sameiningu sveitarfé-
laga í V-Hún., heldur séu menn
fyrst og fremst að athuga hvort
einhver ávinningur séu af slíku.
Sjálfur telur hann ávinninginn
ótvíræðan því einsog málum er
háttað í dag hafi sveitarfélögin
ekki nægilega burði, stjómunar-
og peningalega, til að takast á við
krefjandi viðfangsefni á ýmsum
sviðum. Segir Þorvaldur að til að
ntynda liggi fyrir að framlög Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga til V- Hún.
væru 18,5 millj. hærri væri þar eitt
sveitarfélag - en ekki sjö, einsog
nú er. -sbs.
Hafnar eru óformlega viðræður
meðal manna í Vestur-Húnavatns-
sýslu um sameiningu sveitarfélaga
sýslunnar. Aðdragandi málsins er
sá að Þorvaldur Böðvarsson og
Guðmundur H. Sigurðsson, sem
báðir eiga sæti í sveitarstjóm
Hvammstangahrepps, kölluðu
saman óformlegan hóp manna síð-
astliðinn vetur til að skoða mál
þessi og var ennfremur aflað ým-
issa tölulegra gagna í þessu sam-
bandi.
í framhaldi af því var óskað eft-
ir að öll sveitarfélög í sýslunni lil-
nefndu fulltrúa í viðræðunefnd um
sameiningarmál og það hafa öll
gert, utan Ytri-Torfustaðahreppur -
Fiskiðjan Skagfirðingur:
80 starfsmönn-
um sagt upp
Fiskiðjan Skagfirðingur hefur
sagt upp um 80 starfsmönnum í
vinnsluhúsum fyrirtækisins á
Sauðárkróki og Hofsósi. Upp-
sagnir þessar voru tilkynntar sl.
fóstudag og koma til fram-
kvæmda í kringum 10. ágúst
næstkomandi. Ástæða þeirra er
meðal annars hráefnisskortur.
Atli Viðar Jónsson, starfandi
framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar,
sagði í samtali við Dag að upp-
sagnir þessar næðu til um 80
starfsmanna fyrirtæksins; tæplega
60 á Sauðárkróki og rösklega 20 á
Hofsósi. Starfsmenn þessir eru þó
ekki allir í heilsdagsstörfum,
þannig að stöðugildin eru því eitt-
hvað færri en 80. Atli kvaðst
vænta að tryggja mætti nægilegt
hráefni til vinnslu þar til uppsagn-
imar tækju gildi, en það myndi þó
standa tæpt. Reiknað er með að
starfsemi hefjist að nýju í byrjun
september, eða þegar nýtt fisk-
véiðitímabil tekur gildi. - Upp-
sagnir þessar ná ekki til vinnslu-
húsa Fiskiðjunnar í Ólafsvík og á
Grundarfirði, en þar er einvörð-
ungu unninn hörpudiskur og
rækja.
I fréttum Sjónvarpsins um
helgina sagði Friðrik Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Tanga hf.
á Vopnafirði, að staða bolfisk-
vinnslunnar væri þvílík að ráðast
yrði hvort starfsemi fyrirtækja í
þeim geira færi af stað á nýjan
leik í ágúst, eftir vinnslustopp.
Um þessi ummæli Friðriks sagði
Atli Viðar Jónsson að hjá Fiskiðj-
unni Skagfirðingi yrði tíminn í
stoppinu nýttur vel til að skoða
málin og meta stöðuna, en bol-
fiskvinnsla fyrirtækisins hefur
verið rekin með halla að undan-
fömu. -sbs.
Guðrún ekki af baki dottin!
Þótt nieira en hálfur mánuður sé liðinn frá forsetakosn-
ingum og úrslit ráðin virðist Guðrún Agnarsdóttir ekki
vera af baki dottin. Á flettiskilti við KA-heimilið á Ak-
ureyri er auglýsing með mynd af Guðrúnu þar sem seg-
ir að hún vinni með þér! Vel iná það vera, en það er þá
væntanlega á einhverjum öðrum vettvangi en í kosning-
um til embættis forseta Islands, sem Olafur Ragnar
Grímsson hefur veriö réttkjörinn til. Mynd: -sbs
Kvóti norðlenskra skipa
- þegar líður að lokum fiskveiðiársins
Nú þegar einn og hálfur mánuð-
ur er eftir af fiskveiðiárinu er
orðið lítið eftir af kvóta sumra
fisktegunda. Ef skoðaðar eru
aflaheimildir norðlenskra tog-
araflotans kemur í Ijós að af
rúmlega 17 þúsund tonna var-
anlegum aflaheimildum í þorski
eru óveidd tæplega 2 þúsund
tonn, skv. upplýsingum frá
Fiskistofu. Þess ber að geta að
mikið er um að kvóti hafi verið
færður milli skipa, sem flækir
málið talsvert.
Af einstökum togurum áttu tvö
af skipum Samherja áberandi mest
eftir af þorski, Akureyrin EA með
493,4 tonn og Hjalteyrin EA með
627.7 tonn, en síðamefnda skipið
hefur engan þorsk veitt á fisk-
veiðiárinu. Mánaberg ÓF á óveidd
192.7 tonn, Margrét EA 153,2 og
Skafti SK 107,6. Hjá öðrum er
magnið óverulegt.
Af rækju eiga norðlensk skip
ríflega 2.600 tonn óveidd, þar af
er Sunna frá Siglufirði með rúm-
lega 1.000. Lítið hefur verið veitt
af skarkola og ufsa og þannig eru
7.600 tonn óveidd af 8.000 tonna
kvóta í ufsa. Karfinn er hins vegar
búinn. Varanlegar aflaheimildir í
ýsu voru 6.300 tonn hjá norð-
lenskum útgerðum í upphafi fisk-
veiðiárs og óveidd eru 2.930 tonn.
Rétt er að ítreka að taka þessar
tölur ekki of bókstaflega þar sem
þær taka daglegum breytingum,
bæði vegna veiða og þegar kvóti
er færður milli skipa. HA
Frystihúsinu á Grenivík:
Lokað tímabundið
vegna endurbóta
Frystihúsinu á Grenivík hefur
nú verið lokað tímabundið
vegna endurbóta og mun það
verða lokað fram yfir verslunar-
mannahelgi.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
rekur sem kunnugt er frystihúsið
og starfsfólki var boðin vinna hjá
frystihúsi félagsins á Akureyri.
Frekar fáir munu hins vegar hafa
þegið það boð, mest sumarafleys-
ingafólk, en aðrir munu ætla að
taka sín sumarfrí.
Þær úrbætur sem á að gera
voru orðnar aðkallandi og eru
gerðar að kröfu Fiskistofu og
Brunamaálstofnunar. Lagfærðar
verða skemmdir á gólfum, bún-
ingsaðstaða starfsfólks verður
endurbætt, auk endurbóta á bruna-
vömum og verður húsinu skipt í
brunahólf. Verkinu á að ljúka í
þessum mánuði, að sögn Gunnars
Larsen hjá ÚA. HA
Áfram mok
á loðnunni
Loðnuveiði er áfram góð og í
gær hafði samtals verið
tilkynnt um tæplega 143 þús-
und tonna afla til Samtaka
fiskvinnslustöðva, þar af hefur
tæplega 4 þúsund tonnum ver-
ið landað úr erlendum skipum.
Skipin hafa síðustu daga verið
að veiða við landhelgismörkin,
svo að segja beint í norður frá
Hraunhafnartanga.
Nú eru tæp 600 þúsund tonn
eftir af upphafskvóta vertíðar-
innar. Mestri loðnu hefur verið
landað hjá SR-mjöli á Siglufirði,
rúmlega 18 þúsund tonnum. SR-
Mjöl á Seyðisfirði hefur tekið á
móti 14.330. Hraðfrystihús
Eskifjarðar 14.039, Vinnslustöð-
in í Vestmannaeyjum 12.016,
SR-Mjöl á Raufarhöfn 10.828
og Krossanes 10.454 tonnum.
_____________________HA
Skagaströnd:
Byrjað á
íþróttahúsi í
haust
Unnið er þessa dagana að
hönnun íþróttahúss á Skaga-
strönd, en væntanlega verður
hafist handa um framkvæmdir
á haustmánuðum. Húsið verð-
ur alls um 1.214 fermetrar að
flatarmáli og á þremur hæð-
um.
Að sögn Magnúsar B. Jóns-
sonar, sveitarstjóra á Skaga-
strönd, verður fþróttahúsið mjög
svipað að lögum og stærð og
íþróttahúsið á Þelamörk,
skammt frá Akureyri, og annað
svipað hús er í Vogum á Vatns-
leysuströnd. Áætlaður kostnaður
við framkvæmdir er um 90
millj. kr og þar af eru áætlaðar
til framkvæmda um 50 millj. kr.
í ár. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
greiðir 40% kostnaðar við frani-
kvæmdir - sem er í samræmi við
tjölda skólabama á staðnum, en
íþróttahúsið verður byggt
skammt frá grunnskóla staðar-
ins.
Sem áður segir verður
væntanlegt iþróttahús 1.214
metrar að flatarmáli og er fyrsta
hæð þess 869 nr að stærð og þar
er íþróttaleikvangur og búnings-
aðstaða. Önnur hæð er 260 m:
og sú þriða er 85 m:, en í upp-
hæðum íþróttahússins verða
kennslustofur og ýmiskonar að-
staða, s.s. til félagsiðkunar. -sbs.
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1,5 af 5 1 6.428.450
2.4pSÍ < 167.940
3. 88 9.870
4. 3af 5 2.944 680
Samtals: 9.802.750
Upplýsingar um vinningstölur fást einnig i símsvara
568-1511 eöa Grœnu númeri 800-6511 og í textavarpi
á siðu 451.
/ sumar verða í boði fjölbreytt og skemmtileg námskeið í Myndlistaskólanum á Akureyri.
myndsmiðja fyrir börn
t
umhverfi - vatnslitamálun
skrift og leturgerð
módelteiknun
andlitsteiknun
internet - heimasíður fýrir listamenn
graflk - einþrykk
hlutateiknun
tölvugrafik (illustrator)
http://akureyri.ismennLis/~hvh
M
'
Upplýsingar og innritun t síma: