Dagur - 16.07.1996, Blaðsíða 5

Dagur - 16.07.1996, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 16. júlí 1996 - DAGUR - 5 Sauðárkrókur: Upphafshátíð afmælisárs um næstu helgi Mikil hátíðarhöld verða á Sauðár- króki um næstu helgi þegar form- lega hefst afmælisár í bænum. Næsta árið verður því fagnað með margvíslegum hætti að 125 ár eru frá því að byggð reis á Króknum og á næsta ári eru liðin 140 ár frá því að Sauðárkrókur varð verslun- arstaður, 90 ár eru frá því að Sauðárkrókur varð sérstakt sveit- arfélag og 50 ár frá því Sauðár- krókur varð kaupstaður. Af þessu Sauðkrækingar halda upp á 125 ára afmæli byggðar um helgina. tilefni samþykkti bæjarstjóm að tímabilið 20. júlí 1996 til 20. júlí 1997 verði afmælisár staðarins. Formlegur upphafsdagur verð- ur á laugardaginn og hefur afmæl- isnefnd Sauðárkróks í samvinnu við ýmsa aðila í bænum sett sam- an afmælisdagskrá um helgina. Dagskráin er fjölbreytt eins og sjá má en til að undirstrika að þetta er fyrsti hlutinn af löngu afmælisári kallar afmælisnefndin þessa dag- skrá Upphafshelgi afmælisárs Sauðárkróks. Laugardagur 20. júlí. Kl. 8.00 Fánar dregnir að húni um allan bæ. Frítt verður í Sundlaug Sauðárkróks. KI. 14.00 Blásarakvartett leikur á Faxatorgi. Héraðsmót í frjálsum íþróttum. Golfmót. Kl. 15.00 Afmælisfáni dreginn að húni við Kirkjutorg. KI. 15.15 Karlakórinn Heimir syngur á Kirkjutorgi. Kl. 16.00 Opnuð myndlistarsýn- ing í Safnahúsinu. Essódagur við Ábæ. Útimarkaður, leiktæki fyrir yngri kynslóðina, bátar á Áshild- arvatni, gönguferðir um Krókinn með leiðsögn. Kl. 20.00 Utiskemmtun við Faxa- torg. Hljómleikar, skemmtikraftar og söngur. Kl. 22.00 Opið hús í Bifröst í um- sjá Leikfélags Sauðárkróks. Úti- dansleikur við höfnina, hljóm- sveitin Herramenn. Dansleikir á skemmtistöðum bæjarins. Sunnudagur 21. júlí. KI. 8.00 Fánar dregnir að húni. Frítt í Sundlaug Sauðárkróks. Kl. 10.00 Gönguferð á Tindastól. Lagt upp frá heilsuræktinni Hreyf- ingu. Kl. 11.00 Hátíðarmessa. Kl. 12.30 Hópreið hestamanna um bæinn. Áð á Flæðunum og gestum gefst tækifæri til að fara á hestbak. Kl. 14.00 Kameval á Aðalgöt- unni. Músík um alla götuna, leik- tæki fyrir yngstu kynslóðina, hér- aðsmót í frjálsum íþróttum. Kl. 15.30 Leikir á Flæðunum. Kl. 16.30 Risa afmælisterta á Faxatorgi. Kl. 20.30 Fundur í Ræðuklúbbi Sauðárkróks á Kaffi Krók. Þórshöfn á Langanesi: Fjölbreytt dagskrá á verslunarafmælinu Þann 19.-21. júlí halda Langnes- ingar mikla hátíð í tilefni 150 ára verslunarafmælis á Þórshöfn á Langanesi. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, opnar há- tíðina formlega kl. 13.00 laugar- daginn 20. júlí, á útisviði við höfnina. Útidagskráin sem fer fram við höfnina og hefst kl. 13.00 með því að forseti Islands opnar hátíðina formlega er fjölbreytt, m.a. spilar jasssveitin Blúsbræður, kór heimamanna syngur, Súrheyssyst- ur taka lagið og gamlar stökur tengdar Langanesi verða rifjaðar upp auk þess sem flutt verða ávörp í tilefni dagsins. Að útidag- skránni lokinni munu hin ýmsu fyrirtæki bjóða gestum í herlega matarveislu við höfnina, þar sem gestum gefst tækifæri á að bragða á nýjungum í matvælaframleiðslu. Hin eiginlega hátíðardagskrá verður haldin í Félagsheimilinu Þórsveri kl. 18.00. Þar koma fram m.a. leikaramir Amar Jónsson og Helga Jónsdóttir, tónlistarmenn- imir Áskell Másson sem leikur á handtrommur, Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanóleikari, Einar Kristján Einarsson gítarleikari, Sigurður Ingvi Snorrason klarin- ettuleikari og Þuríður Vilhjálms- dóttir söngkona, en allt á þetta fólk ættir að rekja til Þórshafnar og þá mun Samkór Þórshafnar syngja við hátíðina. Leikfélag Þórshafnar flytur leikritið Ambrið eftir Aðalbjörn Amgrímsson, en hann var afkasta- mikið leikskáld á Þórshöfn fyrr á öldinni. Þetta leikrit hefur þó aldrei verið leikið fyrr svo vitað sé. Stjórnandi hátíðardagskrár er Þórunn Sigurðardóttir leikstjóri. Þá verður dansleikur um kvöld- ið við höfnina þar sem stórsveitin Tinna leikur fyrir dansi. Hátíðinni lýkur með flautublæstri báta og skipa á sunnudag. I tengslum við hátíðina verða opnar myndlistarsýningar á verk- um brottfluttra Langnesinga, lista- mannanna Sveins Björnssonar, Rutar Rebekku Sigurjónsdóttur og Arnar Karlssonar auk Freyju Ön- undardóttur. Sýndar verða gamlar Ijósmyndir, gamalt og riýtt hand- verk og minjasýning verður opnuð í samvinnu við Byggðasafnið á Kópaskeri, þar sem gamlir versl- unarhættir verða kynntir. Boðið verður í tívolí, bryggjuveiði, sjó- ferðir, skoðunarferðir og l'arin verður kamivalganga með eld- gleypum og trúðum og trússlest kemur úr sveitinni. Gamla prestssetrið á Sauðanesi verður opið á sunnudaginn 21. júlí. Aðalsteinn Maríusson hefur að undanfömu unnið að endur- byggingu hússins, sem er í umsjá Þjóðminjasafnsins, og mun hann sýna það gestum. Allar sýningam- ar verða opnar á sunnudaginn og hátíðardagskráin endurtekin. Gerðir hafa verið minjagripir í tilefni afmælisins og verða þeir seldir við höfnina. Þá er verið að skrifa sögu Þórshafnar og annast Friðrik Ólgeirsson, sagnfræðing- ur, það verk. Tjaldsvæði verða opnuð á Þórshöfn en aðrir gistimöguleikar eru á Hótel Jórvík og bændagist- ing í nágrenni Þórshafnar. Framkvæmdastjóri afmælishá- tíðarinnar er Már Guðlaugsson, auglýsingateiknari, en formaður afmælisnefndar er Freyja Önund- ardóttir, myndlistarmaður. GKJ Það verður margt um að vera á Þórshöfn um næstu helgi í tilefni 150 ára verslunarafmælisins. Verð miðað við staðgreiðslu 59»« <«inn m mx V er 1300* krónur fyrsta birting °g hver endurtekning 400 krónur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.