Dagur - 16.07.1996, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 16. júlí 1996 - DAGUR - 7
Knattspyrna - 2. deild karla:
Nágrannajafntefli í miklum
baráttuleik á Húsavík
Völsungur og Þór skildu jöfn 1:1
í miklum baráttuleik á Húsavík
í gærkvöldi. Þórsarar voru
sterkari aðilinn lengst af og voru
nær sigrinum en heimamenn.
Völsungar vörðust vel og stóðust
mikla pressu gestanna.
Leikurinn byrjaði rólega og lið-
in þreifuðu fyrir sér fyrstu tfu
mínúturnar. Völsungar fengu
fyrsta umtalsverða færið en Arn-
grímur Arnarson skaut naumlega
framhjá eftir fallega stungusend-
ingu Hallgríms Guðmundssonar.
Eftir það tóku Þórsarar völdin og
tveimur mínútum síðar fékk Dav-
íð Garðarsson sannkallað drauma-
færi en Björgvin Björgvinsson
varði meistaralega. Davíð var aft-
ur á ferðinni í næstu sókn en þá
Körfuknattleikur:
Þríeykið úr Þór
til Keflavíkur
Nú er frágengið að körfuknatt-
leiksmennirnir Birgir Örn Birg-
isson, Kristinn Friðriksson og
Kristján Guðlaugsson, sem leik-
ið hafa með Þórsurum í úrvals-
deildinni, munu allir leika með
Keflvíkingum næsta vetur.
Birgir Örn hefur verið lykil-
maður í Þórsliðinu undanfarin ár
og kom sterkur inn í landsliðið í
leikjum liðsins í vor. Kristinn er
margreyndur landsliðsmaður sem
lék stórt hlutverk í Þórsliðinu þar
til hann var látinn fara frá félaginu
í vetur. SH
fór skot hans rétt framhjá mark-
inu. Þórsarar hertu enn tökin á
leiknum og höfðu undirtökin.
Spilið gekk vel og sóknarleikurinn
var markvissari en hjá heima-
mönnum. Völsungar bökkuðu og
treystu á skyndisóknir. Hjörtur
Hjartarson strýddi Þórsurum og
var nálægt því að skora um miðj-
an fyrri hálfleik þegar hann átti
skot úr aukaspyrnu af 25 metra
færi, sem small í þverslánni. Hann
kom síðan Völsungum yfir gegn
gangi leiksins á 30. mínútu. Guðni
Rúnar Helgason átti þá sendingu
inn í vítateiginn sem Þórsarar
náðu ekki að hreinsa frá og Hjört-
ur var fljótastur að átta sig og pot-
aði í markið úr þröngu færi.
Þórsarar klúðruðu mörgum
færum til að jafna leikinn en þeim
tókst loks að finna réttu leiðina í
netið alveg undir lok fyrri hálf-
leiks. Hreinn Hringsson nýtti sér
þá sofandahátt í vörn heirna-
manna, snéri sig í gegn og skaut
óverjandi skoti fyrir Björgvin í
markinu, sem annars varði eins og
berserkur í leiknum. A síðustu
sekúndum fyrri hálfleiks björguðu
Völsungar síðan á marklínu eftir
að Þorsteinn Sveinsson hafði
brugðið sér í sóknina hjá Þór og
ógnað markinu.
Þórsarar byrjuðu seinni hálfei-
kinn eins og þeir luku þeim fyrri
og sóttu af krafti en síðan leystist
leikurinn upp í hnoð og harka
færðist í leikinn. Dómarinn hafði í
nógu að snúast og sýndi Þórsurum
sjö sinnum gula spjaldið og Völ-
sungum tvisvar.
Seinni hálfleikur varð fyrir vik-
ið miklu lakari en sá fyrri og
minna um færi. Síðustu tíu mínút-
umar var rosaleg spenna á vellin-
um. Þórsarar sóttu af ákafa og
voru nálægt því að tryggja sér öll
stigin þegar Ami Þór Arnason átti
skot í þverslá á síðustu mínútunni.
Völsungar nteiga því vel við una
að hafa sloppið með eitt stig frá
leiknum.
Davíð Garðarsson var besti
maður Þórs í leiknunt og Árni Þór
Árnason var mjög sprækur eftir að
hann kom inná. Þá átti Páll Gísla-
son góðan leik. Hjá Völsungum
var Ásmundur Arnarsson bestur
en þeir Hallgrímur Guðmundsson
og Björgvin Björgvinsson áttu
einnig skínandi leik. HJ/SH
Hjörtur Hjartarson kom Völsungum yfir gcgn Þórsurum á Húsavík í gær-
kvöldi og kom markið nokkuð gegn gangi leiksins en gestirnir náðu að jafna
og voru nálægt sigri. Völsungar vörðust vcl og héldu eftir einu stigi á Húsa-
VÍk. Mynd: BG
Lið Völsungs: Björgvin Björgvins-
son - Ásgeir Baldurs, Kristján Siguðrs-
son, Amar Bragason - Hallgrímur Guð-
mundsson, Jónas Grani Garðarsson, Ró-
bert Skarphéðinsson, Amgrímur Arnar-
son, Ásmundur Amarsson - Guðni Rúnar
Helgason, Hjörtur Hjartarson.
Lið Þórs: Atli Rúnarsson, Páll Páls-
son, Zoran Zicic, Þorsteinn Sveinsson,
Þórir Áskelsson (Ámi Þór Ámason),
Birgir Þór Karlsson, Sveinn Pálsson,
Davíð Garðarsson, Páll Gt'slason, Hreinn
Hringsson, Bjami Sveinbjömsson (Sig-
urður Hjartarsson).
Úrslit í 2. deild karla
KA-Skallagrímur 1:0
Völsungur-Þór 1:1
Leiknir R.-Fram 0:4
FH-Víkingur 1:1
Þróttur R.-ÍR 4:3
Staðan
Fram 8 5 3 0 25:7 18
Skallagr. 8 4 3 1 14:4 15
Þróttur R. 8 3 4 1 20:15 13
KA 8 3 3 2 16:14 12
Þór 8 3 3 2 9:16 12
Víkingur R. 8 2 3 3 12:10 9
FH 8 2 3 3 9:10 9
Völsungur 8 2 2 4 10:14 8
ÍR 8 2 0 6 8:22 6
Leiknir R. 8 1 2 5 8:19 5
Úrslit í 1. deild kvenna
ÍBA-KR 0:7
Valur-ÍBV 3:0
Stjarnan-Breiðablik 0:4
Afturelding-ÍA 1:5
Staðan
Breiðablik 7 7 0 0 35:3 21
KR 7 4 2 1 23:8 14
ÍA 7 4 2 1 19:8 14
Valur 7 4 2 1 17:9 14
ÍBA 7 2 14 9:20 7
Stjarnan 7 2 0 5 9:19 6
ÍBV 7 115 6:22 4
Afturelding 7 0 0 7 5:34 0
Knattspyrna -1. deild kvenna:
IBA tapaði stórt fyrir KR
ÍBA lenti í miklum hremming
um gegn KR í 1. deild kvenna á
Akureyrarvelli í gærkvöldi. KR
var komið í 2:0 eftir sjö mínútur
og sigur gestanna var því ávallt
öruggur. Eftir það dreifðust
mörkin nokkuð jafnt á leiktím-
ann og það sjöunda og síðasta
kom á síðustu mínútunni, 7:0
fyrir KR.
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir
skoraði fyrsta markið beint úr
aukaspyrnu á 7. mínútu og strax
mínútu síðar bætti Olga Færseth
öðm marki við. ÍBA varðist nær
allan fyrri hálfleik enda léku þær á
móti vindi gegn liði sem greini-
lega er með sterkari mannskap.
Minnstu munaði þó að heimaliðið
næði að minnka muninn á 24.
mínútu en þá átti Sara Haralds-
dóttir fallega sendingu inn á
teignn þar sem Kolbrún Sveins-
dóttir skaut yfír úr opnu færi.
Þriðja ntark KR kom á 33. mínútu
og það gerði Olga Færseth og
Ólöf Helga Helgadóttir skallaði
inn það fjórða á 37. mínútu.
í síðari hálfleik var ÍBA mun
meira inni í leiknum og fór hann
að mestu fram á miðsvæðinu. En
ÍBA vörnin sofnaði á verðinum á
55. mínútu og Sara Smart bætti
fimmta markinu við. Sjötta mark-
ið gerði síðan varamaðurinn Olga
Stefánsdóttir með sinni fyrstu
snertingu á 61. mínútu en eftir það
fengu IBA-stúlkur tvö góð færi
sem ekki nýttust. í bæði skiptin
slapp Katrín Hjartardóttir í gegn
en markvörður KR sá við henni.
Karen Birgisdóttir var einnig ná-
lægt því að skora en KR-stúlkur
björguðu á síðustu stundu og síð-
ustu mínútumar var allur kraftur
úr heimaliðinu. KR nýtti það og
Guðrún Jóna innsiglaði sigurinn
með glæsilegu marki á sfðustu
mínútunni, 7:0.
IBA liðið var ekki eins slakt og
lokatölumar gefa til kynna. Liðið
skapaði sér ágætis færi sem ekki
nýttust og reynslu- og lánleysi
voru einkenni vamarleiksins. SH
Sara Haraldsdóttir og stöllur hennar í ÍBA fengu stóran skell gegn KR á Akureyrarvelli í gærkvöldi. Gestirnir héldu
hcim nieð öll stigin eftir 7:0 sigur. Mynd: BG
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080