Dagur - 16.07.1996, Qupperneq 9
Þriðjudagur 16. júlí 1996 - DAGUR - 9
ÍÞRÓTTIR
FROSTI EIÐSSON
EM drengja í golfi:
Birgir spilaði feiknarvel i Austurriki
íslenska unglingalandsliðð í golfí
hafnaði í 14. sæti á Evrópumeist-
aramótinu í Austurríki, sem
fram fór dagana 10.-14. júlí. fs-
lensku strákarnir voru að spila
ágætis golf og sérstaklega var
Birgir Haraldsson frá Akureyri
sterkur á þessu móti. Hann byrj-
aði ekki vel fyrsta daginn en náði
sér síðan á strik og spilaði meist-
aralega eftir það og vann sína
andstæðinga í holukeppninni
gegn Portúgölum og Belgum.
' Fyrst var spilað í 36 holu und-
ankeppni þar sem íslendingar
höfnuðu í 12. sæti og voru þar með
í B-flokki í úrslitakeppninni, sem
fram fór um helgina. íslensku
strákamir voru á frábæru skori
fyrsta daginn. Friðbjöm Oddsson,
GK var á 69 höggum, Öm Ævar
Hjartarson, GS, á 72, Ómar Hall-
dórsson, GA, og Þorkell Snorri
Sigurðsson, GR, á 73 og Birgir
Haraldsson á 75. Ottó Sigurðsson,
GKG, var á 77 en það gilda aðeins
fimm bestu skorin og ísland var
því samtals á 362 höggum. Þrátt
fyrir þennan góða árangur var spil-
ið almennt það gott að árangur ís-
lensku strákanna nægði aðeins í
13. sæti. Þeir léku á sama
höggafjölda seinni daginn í undan-
keppninni en það dugði þeim ekki
til að klífa upp í A-flokk. Birgir
bætti sig og lék á 69 eins og Öm.
Ómar var á 74 en Friðbjöm og
Ottó á 75 og Þorkell Snorri á 77.
ísland mætti Portúgal í holu-
keppni á föstudag og það leit út
fyrir íslenskan sigur lengst af en í
lokin gáfu Ómar og Friðbjöm eftir
og viðureignin tapaðist 2:3. Ottó
og Þorkell Snorri sigruðu 5:4 í
fjórmenningi gegn portúgölskum
andstæðingum sínum og Birgir
lagði sinn andstæðing 2:1 en Frið-
björn, Ómar og Öm töpuðu sínum
viðureignum. Portúgalinn sem
vamn Omar bjargaði sér glæsilega
úr gryfju á síðustu brautinni.
Island spilaði síðan við Belga á
sunnudag um 13. sætið en tapaði
þeirri viðureign 2:3. Ómar og Frið-
bjöm töpuðu í fjórmenningnum
0:1 en Birgir og Þorkell sigmðu
sína andstæðinga. Birgir 3:1 og
Þorkell Snorri 1:0. Öm ,og Ottó
töpuðu og 14. sætið því staðreynd.
SH
Birgir Haraldsson lék frábært golf í EM drengja í Austurríki. Hann byrjaði ekki vel fyrsta daginn en spilaði meist
aralega eftir það. Mynd: BC
Tröllaskagatvíþraut:
Daníel setti nýtt met
Tröllaskagatvíþrautin 1996 í
umsjón Skíðadeildar Leifturs
var haldin í Ólafsfirði og Dalvík
sl. laugardag en þetta er í þriðja
sinn sem þrautin er haldin.
Skíðagöngukappinn Daníel Jak-
obsson frá Ólafsfirði sigraði í
keppnisflokki karla og setti nýtt
tímamet en það eru allt
skíðagöngumenn sem eru í fímm
efstu sætum í karlaflokki. í
kvennaflokki var það Hólmfríð-
ur Vala Svavarsdóttir sem sigr-
að líkt og undanfarin ár.
Þrautin fólst í því að hlaupa frá
ráðhúsinu á Dalvík, inn Böggvis-
staðadalinn, yfir Reykjaheiði og
niður að Reykjum, sem er sumar-
bústaðahverfi innst í Ólafsfirði við
rætur Lágheiðar. Þessa þraut fóru
20 manns í keppnisflokkum karla
og kvenna og trimmarar án tíma-
töku. Hlaupnir voru 13 km og
hjólað 15 km. Auk þess var hópur
göngufólks sem gekk frá mynni
Böggvisstaðadalsins og að Reykj-
um. Slegið var nýtt met í
karlaflokki en það gerði Daníel
Jakobsson frá Ólafsfirði og var
hann 1.47 klst., en besta tíma áður
átti Ólafsfirðingurinn Kristján
Hauksson, 2.03 klst. Ámi Gunnar
Gunnarsson, Ólafsfirði, varð ann-
Vala Svavarsdóttir, frá Ólafsfirði
sigraði í kvennaflokki á tímanum
2.29,47. Myndir: Múli
ar og náði þriðja besta tíma í
þrautinni frá upphafi en hann er
einungis 16 ára gamall. í
kvennaflokki sigraði Hólmfríður
Vala Svavarsdóttir frá Ólafsfirði
en hún hefur sigrað í öllum þraut-
unum.
Vegleg verðlaun vom fyrir þrjú
efstu sæti í keppnisflokkunum,
m.a. vöruúttektir frá verslununum
Valbergi og KEA Ólafsfirði og
Sportvík á Dalvík. Auk þess var
ýmiss búnaður frá Sportvík og
Skátabúðinni og myndbandsspól-
ur frá IMF myndböndum í Ólafs-
firði og að sjálfsögðu hefðbundnir
bikarar. Allir þátttakendur fengu
viðurkenningu fyrir þátttökuna.
Skíðadeild Leifturs hefur ætið
notið liðsinnis björgunarsveitanna
í Ólafsfirði og á Dalvík við gæslu
á leiðinni og svo var einnig nú.
SH
Daníel Jakobsson er þekktur fyrir
afrek sín á gönguskíðuin en honum
er fleira til lista lagt og setti nýtt
met í þriðju Tröllaskagatvíþraut-
inni, sem þreytt var um helgina.
Úrslit voru eftirfarandi
Karlaflokkur:
1. Daníel Jakobsson, Ólafsfirði 1.47,41
2. Ámi Gunnar Gunnarsson, Ólafsfirði 2.09,17
3. Gísli Einar Ámason, fsafirði 2.11,03
4. Þóroddur Ingvarsson, Akureyri 2.11,49
5. Ólafur Bjömsson, Noregi 2.14,13
6. Sturla Fanndal Birkisson, Mývatnssveit 2.15,28
7. Gísli Harðarson, Akurcyri 2.15.28
8. Ingólfur Magnússon, Siglufírði 2.20,14
9. Jón Garðar Steingrímsson, Siglufirði 2.31,04
10. Baldur Ingvarsson, Akureyri 2.34,17
11. Helgi Jóhannesson, Akureyri 2.38,46
12. Karl. G. Kristinsson, Reykjavfk 2.38,54
13. Bjarni Traustason, Fljótum 2.41,11
14. Guðmundur Ólafsson, Reykjavík 2.44,42
15. Jóhannes Kárason, Akureyri 3.04,49
Kvennaflokkur
1. Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Ólafsfirði 2.29,47
2. Ágústa Gísladóttir, Grindavík 3.10,37
Trimmhópur
Ólafur Ámason, ísafirði
Steinþór Þorsteinsson, Ólafsfirði
Hafsteinn Sæmundsson, Grindavfk
Gönguflokkur
Gunnlaugur Ingi Haraldsson, Ólafsftrði
Sigurgeir Svavarsson, Ólafsfirði
Sunna Eir Haraldsdóttir, Ólafsfirði
K. Haraldur Gunnlaugsson, Ólafsfirði
Jóna Gígja Eiðsdóttir, Ólafsfirði
Jón H. Jóhannsson, Ólafsfirði
Handknattleikur:
KA byrjar gegn Haukum
Dregið hefur verið um töfluröð í 1.
deild karla og kvenna og í 2. deild
karla í handknattleik. íslandsmót-
ið hefst þann 18. september og þá
heldur KA til Hafnaríjarðar og
mætir Haukum í fyrstu umferð
Nissandeildarinnar.
Handboltatímabilið hefst fyrir al-
vöru miðvikudaginn 11. september
þegar KA og Valur mætast í Meist-
Miðvikudaginn 17. júlí verður
Heilsuhlaup Krabbameinsfélags-
ins haldið á Dalvík. Skráning
hefst klukkan 17:30 við sund-
laugina og þar verður síðan upp-
hitun klukkan 17.50. Hlaupið
hefst kl. 18:00 við sundlaugina.
Vegalengdir eru 2 og 4 kfló-
metrar og að venju er allur ferða-
máti leyfilegur, hlaup, hjól (munið
arakeppni karla en síðan tekur ís-
landsmótið við. Aðrir leikir í 1. um-
ferð eru Stjaman-ÍR, Fram-HK, Sel-
foss-UMFA, Valur-FH og ÍBV-
Grótta.
Þórsarar hefja keppni í 2. deild
karla með heimaleik gegn Herði frá
Isafirði 5. október og kvennalið ÍBA
heimsækir Fram sama dag í 1. deild
kvenna. SH
að hafa hjálm), ganga, eða það
sem ímyndumaraflið býður. Um-
sjón með hlaupinu hafa Lína
Gunnarsdóttir og Anna Hallgrims-
dóttir. Þátttökugjald er 250 krónur
og er verðlaunapeningur og
drykkur innifalinn. Fyrr í sumar
fóm fram samskonar hlaup á
Grenivík, Grímsey, Akureyri og
Ólafsfirði. SH
Valgeir þjálfar Hvöt
Valgeir Baldursson hefur tekið
við þjálfun Hvatíir í 4. deild-
inni í knattspymu. Valgeir,
sem lék áður með Stjömunni í
1. deild, ætlaði að ganga til
liðs við Þór frá norska liðinu
Raufoss í Noregi í vetur en
meiddist illa og leikur ekki
knattspymu á næstunni. Val-
geir hefur áður þjálfað Hvöt.
Sverrir í Gróttu
Sverrir Ragnarsson, sem leikið
hefur með Þór og KA, hefur
gengið til liðs við Gróttu á Sel-
tjamamesi og mun leika með
liðinu í 3. deildinni í sumar.
Leiftur fær
markmann
Guðmundur Erlingsson, fýrr-
um markvörður Þróttar
Reykjavík, hefur gengið til liðs
við Leiftur og mun verma
bekkinn á meðan Þorvaldur
Jónsson er meiddur. SH
Heilsuhlaup á Dalvík