Dagur - 16.07.1996, Page 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 16. júlí 1996
MINNINO
^ Einar Kristjánsson
frá Hermundarfelli
Fæddur 26. október 1911 - Dáinn 6. júlí 1996
Einar Kristjánsson var fæddur
á Hermundarfelli í Þistilfirði
þann 26. október 1911. Hann
lést 6. júlí síðastliðinn á Hjúkr-
unarheimilinu Seli á Akureyri.
Foreldrar hans voru hjónin
Guðrún Pálsdóttir frá Her-
mundarfelli, f. 1. september
1880, d. 13. maí 1923, og Krist-
ján Einarsson frá Garði, f. 6.
febrúar 1875, d. 10. febrúar
1969. Systkini Einars sam-
mæðra eru Þórdís, f. 23. febrúar
1901, d. 14. desember 1986, Ein-
ar f. 1906, d. 1910 og Páll, f. 17.
apríl 1909. Hálfsystkin Einars,
börn Kristjáns og Sveinbjargar
Pétursdóttur, eru Lilja, f. 12.
febrúar 1929, Fjóla, f. 28. nóv-
ember 1931, d. 23. ágúst 1975,
og Pálmi, f. 20. júní 1933. Þann
11. september 1937 kvæntist
Einar Guðrúnu Kristjánsdóttur
frá Holti í Þistilfirði, f. 16. ágúst
1917, dóttur hjónanna Ingiríðar
Árnadóttur og Kristjáns Þórar-
inssonar í Holti í Þistilfirði.
Börn þeirra eru:
Angantýr, f. 28. apríl 1938,
skólastjóri Litlulaugaskóla í
Reykjadal, kona hans er Auður
Ásgríinsdóttir, f. 15. janúar
1946. Börn: Halla, f. 8. nóvem-
ber 1964, Hlynur, f. 7. júní 1967,
Ásgrímur, f. 3. ágúst 1972, Ein-
ar, f. 21. september 1974, d. 29.
maí 1979.
Óttar, f. 3. október 1940, skóla-
stjóri Svalbarðsskóla í Þistil-
firði. Kona hans er Jóhanna Þ.
Þorsteinsdóttir, f. 13. maí 1945.
Börn: Steinunn Inga, f. 7. októ-
ber 1963, Guðrún Arnbjörg, f.
21. september 1964, Þuríður, f.
22. ágúst 1968.
Bergþóra, f. 21. mars 1944, rit-
ari hjá Marel, búsett á Seltjarn-
arnesi. Maður hennar er Eyjólf-
ur Friðgeirsson, f. 19. nóvember
1944. Börn: Páll, f. 5. október
1967, Friðgeir, f. 3. október
1969, Ragnheiður, f. 24. maí
1973, Bergþóra, f. 19. ágúst
1976.
Hildigunnur,J. 17. júní 1947, d.
27. maí 1987. Maður hennar
Steinar Þorsteinsson, f. 9. janú-
ar 1943. Börn: Þór, f. 27. janúar
1974, Guðrún Silja, f. 1. október
1977, Þórdís, f. 13. ágúst 1980.
Einar Kristján, f. 12. nóvember
1956, tónlistarmaður, Reykja-
vík. Sambýliskona: Jóhanna
Þórhallsdóttir, f. 18. apríl 1957,
skildu. Barn: Hildigunnur, f. 26.
janúar 1983.
Einar var bóndi á Hermundar-
felli og nýbýlinu Hagalandi í
Þistilfirði frá 1937-1946. Árið
1946 fluttist fjölskyldan til Ak-
ureyrar þar sem Einar var hús-
vörður við Barnaskóla Akureyr-
ar til ársins 1982.
Einar var landsþekktur rithöf-
undur og eftir hann liggur fjöldi
bóka, m.a. æviminningar í fjór-
um bindum. Hann var kunnur
útvarpsmaður og urðu þættir
hans „Mér eru fornu minnin
kær“ einkar vinsælt útvarps-
efni. Einar var um árabil eftir-
sóttur upplesari á skemmtunum
og mannamótum. Hann hlaut
margháttaða viðurkenningu
fyrir ritstörf sín, m.a. frá Menn-
ingarsjóði Akureyrarbæjar árið
1992 og verðlaun úr Rithöf-
undasjóði ríkisútvarpsins árið
1972.
Utför Einars Kristjánssonar fór
fram frá Akureyrarkirkju í
gær, mánudaginn 15. júlí.
Okkur langar til að kveðja afa
okkar með örfáum orðum.
Fyrstu minningamar tengjast
Bamaskólanum þar sem hann var
húsvörður. Inni á skrifstofunni
hans þar, voru allir veggir þaktir
bókum og ritvélin stóð tilbúin á
skrifborðinu. Bókaryk og pípulykt
sat lengi í nösunum þegar maður
kom út úr þessum helgidómi. Oft-
ast lét hann okkur krakkana í friði,
nema ef við ýttum bókunum innar
í hillunum. Þá seig á honum brún-
in en hann skammaði okkur ekki.
í Þingvallastræti 26 og Víði-
lundi 6 áttu afi og amma fallegt
heimili og var þar jafnan margt
um manninn. Þangað komum við
öll saman á jólunt og gengum í
kringum jólatréð og spilaði afi
undir á pfanóið eða harmóníkuna.
Afi hafði alltaf sögur af ein-
kennilegum mönnum á takteinum
og hann var hafsjór af þjóðlegum
fróðleik. Hann var orðlagður hag-
yrðingur og húmoristi. Afi var í
rauninni sjálfur búinn að semja sín
eftirmæli í ljóðinu Dagar mínir:
/ dapurlegum skugga verða dagar mínir
taldir,
það dregur senn að skapadœgri því, sem
koma skal,
og ég mun liggja fúnandi um nœstu ár og
aldir
og engan varðar framar um daga minna
tal.
Eg átti hér í veröldinni aðeins fáa daga
við örðugleiká, hamingju, söng og gleði og
vín,
sem allt í hljóðum hvetfleik verður aðeins
liorfin saga,
hið eina varanlega, er kannski beinin mín.
(Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli,
Góðra vina fundur 1985).
Við viljum biðja góðan Guð að
veita ömmu styrk í sorg sinni.
Kveðja frá barnabörnum,
Steinunn, Guðrún og Þuríður.
Haustljóð
Nú haustblœrinn nœðir uml
húmdökknuð fjöll
og hlynur og björkfella laufin sín öll,
og víðir og lyngið og blágresið bliknar,
svo bleik verður grundin,
og brimar við fjörðinn og sundin.
Og haustskýjadansinn í dimmunni hefst
og drunginn og treginn að hjartanu vefst.
Og vœri ekki sœlast, er sumarið kveður,
með söngfuglaróminn,
að sofna eins og trén og blómin.
Þó enn verði lífið að greiða sitt gjald
og geigvœnt og dapurt sél
liaustMðans vald,
í hjartanu leyna sér vonir sem vakna,
með vermandi hlýju -
- það vorar og sumrar að nýju.
(Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli)
Tryggvi Þorsteinsson, skóla-
stjóri Bamaskóla Akureyrar,
kynnti mig fyrir Einari Kristjáns-
syni frá Hermundarfelli og sagði:
„Einar er skáldið við skólann okk-
ar.“ Einar var þar húsvörður og ég
var nýráðin ritari við Barnaskóla
íslands svo sem sá skóli hefur oft
verið nefndur af þeim sem þar
hafa átt góðar stundir. Það var
haustið 1973.
Guðrún kona hans vann einnig
í Bamaskóla Akureyrar og ég
gleymi aldrei fyrstu kynnum mín-
um af þeim hjónum. í herbergi
Einars í skólanum voru þau góð
heim að sækja, innan um þétt-
hlaðnar bókahillur og dreyminn
ilm af lífsgleði. Heim til Einars og
Guðrúnar var einnig gott að koma.
Þar lék hann jöfnum höndum á
píanóið, nikkuna og hörpu lífsins.
Fljótlega eftir að ég kynntist
Einari bað hann mig um að lesa
upp smásögu eftir sig í Ríkisút-
varpinu. Ég var að vonum spennt,
þar sem ég hafði áður lesið upp
eftir Einar á samkomu en þekkti
hann þá ekki persónulega. Upp-
takan fór fram í Borgarbíói og
tæknimaður var Björgvin heitinn
Júníusson. Þetta varð upphaf að
áralangri og yndislegri samvinnu
okkar þriggja. Fjölmargar næstu
upptökur fóru fram í „Reykhús-
inu“, gamla útvarpshúsinu við
Norðurgötu og seinna í nýja út-
varpshúsinu við Fjölnisgötu, þó
svo þar nyti Björgvins ekki lengur
við. Einar var með fasta þætti í
Rrkisútvarpinu og um árabil sá
hann um þátt sem hann kallaði
„Mér eru fomu minnin kær“. Ég
las með honunt í þessunt þáttum
ásamt Óttari syni hans í mörg ár.
Undirbúningsvinna var mikil,
heimildasöfnun og handritsgerð,
og skilaði líka tilskildum árangri.
Ég man til dæmis þó nokkur skipti
þar sem við lásum heilann þátt í
gegn án þess að þyrfti að stoppa
upptöku.
Einar sagði það jafnasl á við
háskólapróf að lesa Laxness og las
upp úr bókum hans fyrir mig.
Hann kveikti þannig hjá mér
áhuga uns hann var farinn að lána
mér eina og eina bók eftir nóbels-
skáldið, og ég varð hrifnari og
hugfangnari eftir því sem ég las
áfrarn.
Núna í sumarblíðunni fer
haustilmur dauðans um bjarkir og
birki og enn einn traustur stofn
virðist fallinn, virðist hafa sofnað
„...eins og trén og blómin“. Hvort
sem hann dreymir „lyngið og blá-
gresið" eða „söngfuglaróminn“,
hefur hann skilið eftir sig „verm-
andi hlýju“. Fyrir mér er Einar vor
og morgunn og hvað sem haustinu
líður og hvort sem „blágresið
bliknar" þá er endalaust vor í
minningunni unt hann.
Þú vaknar um vorljósa morgna
er vindblœrinn andar hlýtt.
Og enn skeður undrið forna,
sem alltafverður nýtt.
Og söngfuglinn seiðinn magnar
og svipt er afbrumi hlífi
og vordagsins frelsi fagnar
hiðfrjóa, unga líf.
Nú vekur hinn vermandi kraftur
þœr vonir, sem féllu ídá.
- Þú finnur hið innra aftur
œskunnar týndu þrá.
(Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli)
Við Ingólfur og börnin okkar,
vottum Guðrúnu og fjölskyldu
hennar innilega samúð.
Steinunn S. Sigurðardóttir.
Fáeinum orðum vil ég minnast
látins félaga og sveitunga. Einar
frá Hermundarfelli er allur.
Einar Kristjánsson varð lands-
þekktur fyrir ritstörf sín er verk
hans fóru að koma fyrir almenn-
ingssjónir. Ríkuleg frásagnargáfa
og hnitmiðaður og hnyttinn texti
gæddu sögur hans lífi. Ekki síst
urðu smásögumar, mismunandi
stef úr mannlífinu, honum yrkis-
efni og íþrótt. íslenskt mál lék í
höndum hans, óbundið sem bund-
ið, enda var Einar hluti af hinu
merkilega samfélagi Akureyrar-
skáldanna um langt árabil. Nöfn
Kristjáns frá Djúpalæk og Rós-
bergs G. Snædal koma upp í hug-
ann til að nefna aðeins tvo af
mörgum sem voru skáldagyðjunni
handgengnir og auðguðu mannlíf
Akureyrar eftir miðbik aldarinnar.
Einar var fróður vel og fróð-
leiksfús og án efa hefði legið vel
við fyrir hann að gera fræðistörf
að lífsstarfi ef aðstæður og örlög
hefðu hagað því svo.
Þessir eiginleikar hans nýttust
vel þegar hann tók að veita þjóð-
inni af þekkingu sinni og frásagn-
arhæfileikum í útvarpsþáttum þar
sem fyrst og fremst var miðlað
þjóðlegum fróðleik ýmiskonar.
Þættir hans, „Mér eru fomu minn-
in kær“, náðu geysilegum vin-
sældum og hélst svo þau ár sem
þeir voru við lýði, eins og best
kom í ljós í háværum mótmælum
þegar þeir hurfu af dagskránni.
Einar var afar ræktarsamur við
sína heimasveit og kenndi sig
jafnan við Hermundarfell, fjall og
fornt höfuðból þar sem æskuheim-
ili hans í Þistilfirði stóð. Hann var
af þeirri kynslóð sem full af eld-
móði og bjartsýni hóf andlegt og
verklegt uppbyggingarstarf
snemma á öldinni. f landi Her-
mundarfells hófu þau Einar og
SKILAFRESTUR
AUGLÝSINGA
Auglýsendur!
Athugið að skilafrestur
í helgarblaðið okkar
ertil kl. 14.00
á fimmtudögum
-já 14.00 áfimmtudögum
DAGUR
auglýsingadeild,
sími 462 4222, fax 462 2087
Opið frá kl. 08.00-17.00
Guðrún, lífsgæfa hans og föru-
nautur, sinn búskap og reistu ný-
býlið Hagaland. Þó leið þeirra
lægi síðar til Akureyrar og þar
stæði heimili þeirra eftir það
breytti það engu um ræktarsemi
við heimaslóðimar.
Áratugum síðar gaf Einar sveit
sinni endurminningar sínar þar
sem af næmni og hlýju er brugðið
upp mannlífsmyndum frá upp-
vaxtarárum höfundar.
Umfram allt annað er þó tilefni
þessara skrifa það, að þakka Ein-
ari liðveisluna sem félaga í Al-
þýðubandalaginu og liðsmanni
hugsjóna frelsis, jafnréttis og
bræðralags um áratuga skeið. Ein-
ar brást jafnan vel við hvenær sem
eftir var leitað að leggja til efni
eða stinga niður penna í þágu þess
málstaðar sem hann trúði á.
Sjálfstæði þjóðarinnar og
menningarleg og andleg reisn
gagnvart erlendu valdi, ekki síst
hervaldi, var honum ofarlega í
huga. Réttast veit ég hann vera
höfund að orðinu „hnjáliðamýkt",
sem enn er víst þrálátur sjúkdóm-
ur!
Fyrir hönd okkar Alþýðu-
bandalagsmanna á Norðurlandi
eystra og um allt land vil ég þakka
Einari samfylgdina. Mér og fleir-
um er hugleikin myndin af Einari
og Guðrúnu að tjalda gamla tjald-
inu sínu á sumarhátíðum okkar
Alþýðubandalagsmanna á Norður-
landi eystra.
Kæra frænka Guðrún, ég og
fjölskylda mín sendum þér, böm-
unt, tengdabörnum og allri fjöl-
skyldu samúðarkveðjur, og hugs-
um til ykkar af fjarlægri strönd.
Gautaborg, 9. júlí 1996.
Steingrímur J. Sigfússon.
Tvennt kemur mér fyrst í hug þeg-
ar kvaddur er Einar Kristjánsson
frá Hermundarfelli, glaðværðin og
gestrisnin sem ég naut í ranni hans
og Guðrúnar á Akureyri á ung-
lingsárunum og spruttu af skap-
lyndi og lífsviðhorfi húsráðenda.
Þangað norður flýgur um þessar
mundir þakklátur hugur þeirra
sem rifja nú að gefnu tilefni upp
margar glaðar stundir sem þeir
áttu með þeim hjónum og heimil-
isfólki þeirra meðan ævisól hús-
bóndans skein hvað skærast.
Skin hennar var mjög tekið að
daprast síðustu misserin og hefur
honum því eflaust verið hvfldin
góð, enda hafði hann lifað langa
ævi, margt reynt og margs notið,
en þess þó sennilega mest að eiga
góða að og vera þannig gerður að
vilja fremur lifa sér og öðrum til
skemmtunar en leiðinda ef þess
var nokkur kostur að létta sér með
því lífsbaráttuna. Hæfileikum Ein-
ars til að gleðja samferðafólk sitt
með eðlislægum og skapandi gáf-
um sem mögnuðu hver aðra í
ákjósanlegum hlutföllum kynntust
þeir auðvitað best sem höfðu per-
sónuleg kynni af honum. En það
gerðu líka með öðrum hætti les-
endur hans og útvarpshlustendur,
því að eftir að einyrkinn úr Þistil-
firði fluttist á mölina og fór að
dunda við smásagnagerð út úr at-
vinnuleysi varð hann þjóðkunnur
maður fyrir ritverk sín og síðar út-
varpsþætti. Bæði í verkum og við-
kynningu sannaðist þó á Einari
eins og fleirum sem léð er náðar-
gáfa kímninnar að hún er einungis
hin hliðin á alvörunni og stutt í
kvikuna undir niðri.
Þótt sumir leikþættir hans og
önnur skemmtiskrif séu of stað-
og tímabundin til langlífis gegnir
öðru máli uin sitthvað sem úr
penna hans flaut og dýpra ristir.
Til eru eftir hann kvæði og söng-
textar með ljóðrænum tregablæ
sem áreiðanlega eiga vinsældir
sínar ekki síst því að þakka hve
tilfinningin í þeim er ekta og hve
Einari var létt um að yrkja án þess