Dagur - 17.07.1996, Qupperneq 3
FRETTIR
Miðvikudagur 17. júlí 1996 - DAGUR - 3
Sauðkrækingar taka við sorpi frá Siglfirðingum:
„Greiði við nágrannana"
Bæjarráð Sauðárkróks hefur
samþykkt að taka við sorpi frá
Siglufírði til urðunar. Siglfirð-
ingar hafa verið í vandræðum
með sorp sitt að undanförnu,
eftir að ákveðið var að hætta að
brenna það í sorpbrennslunni
skammt utan bæjarins. Hafa
þeir m.a. leitað fyrir sér á Akur-
eyri og á Blönduósi en fengið
neitun á báðum stöðum.
„Við erum að gera nágrönnum
okkar greiða,“ sagði Bjöm Sigur-
bjömsson, formaður bæjarráðs
Sauðárkróks, aðspurður um þessa
greiðvikni Sauðkrækinga. Sorp
Siglfirðinga verður urðað með
sorpi heimamanna á svokallaðri
Reykjaströnd, rétt fyrir utan bæ-
inn. Björn segir þennan stað þó
ekki bjóða upp á urðun til langs
tíma. „Við verðum komnir í vand-
ræði eftir nokkur ár og menn hafa
verið velta fyrir sér að hefja leit að
nýjum urðunarstað," sagði Björn.
HA
Strandgata 7
og 9 til sölu
- til niðurrifs eða viðgerðar
Kaupfélag Eyfirðinga og Verka-
lýðsfélagið Eining hafa auglýst
húseignirnar á Strandgötu 7 og
9 og eignarlóðina Strandgötu 9
til sölu. Byggingarnar hýstu áð-
ur Kaupfélag verkamanna, en
frá 1969 hefur húsgagnaverslun-
in Augsýn verið þar til húsa.
Akureyrarbær hefur þegar
key.pt lóðina Strandgötu 7 í
tengslum við framkvæmdir í
miðbænum, þar sem hluti henn-
ar fór undir malbik.
Að sögn Sigurðar Jóhannes-
sonar, aðalfulltrúa hjá KEA, er
ætlunin að selja eignimar í einu
lagi, og er afhending eignanna
bundin uppsagnarfresti Augsýnar,
sem er u.þ.b. eitt ár. Aðspurður
um hvort hægt væri að kaupa hús-
in til niðurrifs, sagði Sigurður að
eigendur settu engin skilyrði
vegna eignanna, utan uppsagnar-
frests Augsýnar, en auðvitað
þyrfti kaupandi að hlíta bæjar-
skipulagi.
Strandgata 7 er um 480 fer-
metrar og er brunabótamat á eign-
inni 8,5 milljónir, en Strandgata 9
er 600 fenrietrar og metin á 20
milljónir. í tillögu um deiliskipu-
lag fyrir norðurhluta miðbæjar,
sem lögð var fram í vor, er gert
ráð fyrir að húsin megi hvort held-
Ólafsfjörður:
Foreldrafélagið
gróðursetur
Foreldrafélag skólanna í ÓI-
afsfirði sendi bæjarráði er-
indi á dögunum þar sem far-
ið var fram á að skólunum
yrði úthlutað landsvæði aust-
an Óiafsfjarðarvatns í landi
Burstabrekku. f forsvari fyrir
hópnum er mikill áhugamað-
ur um skógrækt, Þorvaldur
Jónsson, best þekktur sem
markvörður 1. deildar liðs
Leifturs í knattspyrnu.
Bæjarráð afgreiddi erindið
þannig að samþykkt var að
verða við því, rneð fyrirvara
urn að ekki korni fram aðilar
sem geri kröfu um afnotarétt á
svæðinu. Strax daginn eftir var
síðan drlflð í að gróðursetja
plönturnar. Kaup á plöntum í
þetta verkefni voru annars
vegar fjámtögnuð með fram-
lagi úr svokölluðum Yrkju-
sjóði, sem stofnaður var fyrir
tilstuðlan frú Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta. Hins vegar
var foreldrafélagið með fram-
lög á móti frá fyrirtækjuin í
bænum. Þarna er verið að
leggja grunn að trjálundi, sem
tengjast myndi jgöngustíga-
svæði meðfram Olafsfjarðar-
vatni, að sögn Hálfdáns Krist-
jánssonar, bæjarstjóra. HA
ur er standa eða víkja, en ef þau
verða rifin þarf að byggja hús í
þeirra stað, sem taka mið af gömlu
byggingununt, þ.e. verði stakstæð,
tveggja eða þriggja hæða og lengd
húsalínunnar um tuttugu metrar. í
tillögunni segir einnig að ef húsin
eigi að fá að standa sé ljóst að þau
þarfnist viðgerðar, en þau eru
hluti af húsalínu Strandgötu, frá
Oddeyrartanga og mikilvæg fyrir
útlit bæjarins.
Benjamín Jósefsson, eigandi
Augsýnar, sagðist í gær ekki geta
sagt til unt hvað tæki við hjá sér
og versluninni, þar sem hann
hefði ekki vitað af söluáformun-
um. shv
Verði húsin rifin er skilyrði að byggja ný í staðinn og þarf útlit þeirra að taka mið af þeim gömlu.
Mynd: BG
Kaldur sjór og ördeyða í Smugunni í Barentshafi:
Útgerðir halda að sér höndum
- slæmar afleiðingar fyrir þjóðarbúið ef Smuguveiðar bregðast
Enn er alger ördeyða í Smug-
unni í Barentshafi og þau skip
sem þar eru láta reka. Sjór er
enn mjög kaldur og ekki er búist
við að veiðin glæðist fyrr en
tunga með hlýrri sjó nær þang-
að. Nokkuð er um að útgerðir
séu farnar að halda að sér hönd-
unum með að senda skip sín í
Smuguna og vilja menn bíða eft-
ir að eitthvað gerist, að sögn
Péturs Arnars Sverrissonar hjá
LÍU. Þannig átti t.d. Sléttbakur
EA, skip Utgerðarfélags Akur-
eyringa, að halda í Smuguna í
gærmorgun, en frá því var horf-
ið og fór skipið þess á stað á
veiðar í gærkvöld, innan land-
helgi. Margrét EA, skip Sam-
herja, fór frá Akureyri á laugar-
dagskvöld, áleiðis í Smuguna.
Tveir togarar Fiskiðjunnar
Skagfirðings er komnir í Smuguna
og eru menn að brýna hnífana,
eins og Gísli Svan Einarsson, út-
gerðastjóri fyrirtækisins orðaði
það. Hann segir fráleitt að
örvænta enn þó fiskurinn láti á sér
standa. „Þetta byrjaði 11. júlí
1994, 15. júlí 1995 og samkvæmt
því ætti þetta að byrja 20. júlí
núna,“ sagði hann í léttum tón.
„Við vitum auðvitað ekkert
hvenær þessi heiti sjór kemur
þama en við erum tiltölulega ró-
legir enn þá. Það sem hefur gerst í
Smugunni um miðjan júlí til
fjölda ára er að tunga með hlýrri
sjó kemur sunnan að og í henni er
fiskurinn í óhemju magni. Auðvit-
að er ekkert hægt að fullyrða
hvort fiskurinn kemur en þetta er
eini valmöguleikinn sem við höf-
um þegar kvótinn er búinn. Þetta
er ekkert öðru vísi en önnur út-
gerð. Þú veist ekki þegar þú legg-
ur upp í veiðiferð hvort þú hittir í
afla eða ekki,“ sagði Gísli. Fjórir
af fimm togurum fyrirtækisins
verða í Smugunni við veiðar.
Tveir eru þegar komnir sem fyrr
segir, Málmey SK leggur af stað í
kvöld og Skagfirðingur SK um
helgina.
Fari svo að Smuguveiðar
bregðist hefði það slæmar afleið-
ingar í för með sér fyrir þjóðarbú-
ið. Að sögn Ásgeirs Daníelssonar,
hagfræðings hjá Þjóðhagsstofnun,
hafa íslensku skipin verið að veiða
35-36 þúsund tonn á ári sl. tvö ár.
Brúttó útflutningsverðmæti þess
afla nemur um 4-4,5 milljörðum
króna. „Gróflega reiknað höfum
við talið að um 60% af brúttó and-
virðinu sé innlend verðmætasköp-
un. Það er þá á bilinu 2-2,5 rnillj-
arðar og það er sú upphæð sem
þjóðarbúið yrði af ef veiðar
myndu bregðast, að viðbættum
þeim kostnaði sem útgerðir verða
fyrir við að fara þama norðureftir
og fá ekki bein úr sjó,“ sagði Ás-
geir. Þessi upphæð svarar til um
0,5% af landsframleiðslu og
myndi því segja til sín í minni
hagvexti. En sem fyrr segir er allt
of snemmt að gera ráð fyrir að
veiðar bregðist. HA
Útgerðarfélag Akureyringa frestaði för Sléttbaks í Smuguna í gær og sama
hafa fleiri útgerðir verið að gera. Enn er þó engin ástæða til að afskrifa
Smuguveiðar. Mynd: BG