Dagur - 17.07.1996, Side 5
Miðvikudagur 17. júlí 1996 - DAGUR - 5
Könnun á verðlagi
efinalauga á Norðurlandi
Neytendasamtökin könnuðu fyrir
skömmu verðlagningu nokkurra
efnalauga á Norðurlandi. Sam-
kvæmt upplýsingum samtakanna
hafa á stöku stað verið litlar verð-
breytingar í ein fjögur ár og hafi
mátt heyra að sumir rekstraraðilar
hugsuðu sér til hreyfings með
hækkanir innan tíðar.
„Jakkaföt og dragtir eru að
mestu staðlaður fatnaður og auð-
velt um samanburð á hreinsunar-
kostnaði á þeim flíkum frá stað til
staðar. En aftur á móti er erfitt að
bera saman hreinsunarkostnað á
öðrum fatnaði, því verðlagningin
fer eftir persónulegu mati starfs-
fólks á hverjum stað og miðast
ekki eingöngu við hvort flíkin er
stór eða lítil, þykk eða þunn, held-
ur líka hvort hún sé óvenjulega
skítug eða þurfi flóknari hreinsun-
ar- eða eftirmeðferð en gengur og
gerist,“ segir í tilkynningu Neyt-
endasamtakanna.
Sem dæmi er nefnt að verð-
munur vegna hreinsunar á slopp,
kápu eða rykfrakka geti auðveld-
lega numið mörgum tugum
prósenta, allt eftir því hvar og
hver tekur á móti flíkinni.
JÓH
Nevtendasamtökin
Könnun á vei rðlagningu efnalauga
Júlí 1996 Nýmann Ólafsfirði tn W) 3 ‘8 CS ö <S »2 a s t/D Þernan Dalvík Fatahreinsun Húsavíkur Slétt og fellt Akureyri Hofsbót Akureyri Lindin Siglufírði Lægst verð X 1« C« ð Ox Mismunur
Buxur 500 505 500 520 540 550 610 500 610 22%
Jakki 500 505 500 520 560 550 610 500 610 22%
Alföt 1,000 1,010 1,000 1,040 1,100 1,100 1,220 1,000 1,220 22%
Kjólföt 1,185 1,190 1,000 1,210 1,240 1,280 1,220 1,000 1,280 28%
Smoking 1,000 1,010 1,000 1,040 1,100 1,100 1,220 1,000 1,220 22%
Rykfrakki 500 895 895 920 920 960 990 500 990 98%
Skyrta (einföld ) 310 310 400 320 370 300 350 300 400 33%
Skyrta 310 310 400 320 370 400 350 310 400 29%
Bindi 240 240 240 250 270 200 240 200 270 35%
Vesti 240 240 300 250 270 320 295 240 320 33%
Stakkur (þunnur) 500 535 500 550 570 630 645 500 645 29%
Stakkur (þykkur) 500 635 500 655 650 700 695 500 700 40%
Drengjaföt ( lítil - 6 ára ) 500 505 500 520 540 500 610 500 610 22%
Drengjaföt ( stór 7-13 ára) 750 758 750 780 845 600 915 600 915 53%
Kjóll ( stuttur ) 600 615 615 635 650 800 670 600 800 33%
Kjóll (miðlungs) 840 845 845 780 860 900 700 700 900 29%
Kjóll (síður) 900 1,310 900 950 1,330 1,000 955 900 1,330 48%
Kápa (stutt) 810 810 500 835 840 800 935 500 935 87%
Kápa (síð) 810 810 810 835 840 960 935 810 960 19%
Dragt 1,000 1,010 1,000 1,040 1,100 1,100 1,220 1,000 1,220 22%
Blússa 610 610 590 630 450 590 400 400 630 58%
Pils 500 505 500 520 540 550 610 500 610 22%
Peysa 310 310 400 320 375 400 375 310 400 29%
Sloppur 615 615 615 635 650 800 400 400 800 100%
Telpukjóll 400 425 400 390 350 400 400 350 425 21%
Úlpa (Iítil - 6 ára) 425 320 300 330 350 400 440 300 440 47%
Úlpa ( meðal 7-13 ára) 640 475 635 490 650 710 660 475 710 49%
Úlpa ( stór 14 - ) 855 635 855 655 870 750 850 635 870 37%
Klukkustrengur 240 240 240 300 310 300 275 240 310 29%
Púði 240 240 240 300 270 300 275 240 300 25%
Svefnpoki 1,030 1,030 1,030 1,060 1,030 1,050 1,030 1,030 1,060 3%
Svefnpoki (dúnpoki) 1,470 1,470 1,470 1,515 1,470 1,050 1,050 1,515 44%
Kerrupoki 610 610 610 630 630 600 610 600 630 5%
Sæng ( 100x200) 1,030 880 1,030 900 700 800 710 700 1,030 47%
Leður / Skinn
Jakki (lítill) 2,500 2,000 2,000 2,500 25%
Jakki ( stór) 2,700 3,000 2,700 3,000 11%
Kápa 3,500 3,500 3,500 3,500 0%
Buxur 2,500 2,000 2,000 2,500 25%
Pils ( stutt) 1,700 1,500 1,500 1,700 13%
Pils ( sítt) 2,500 1,500 1,500 2,500 67%
Vesti (lítið) 700 700 700 700 0%
Vesti (stórt) 1,200 900 900 1,200 33%
Ríkisstjórnin:
Markaðsstyrkir til fyrirtækja
Ríkisstjómin úthlutaði fyrir
skömmu 25 milljónum króna í
markaðsstyrki til íslenskra fyrir-
tækja. Styrkimir eru veittir til að
efla þekkingu og hæfni lítilla og
meðalstórra fyrirtækja við mark-
aðssetningu erlendis, til þess að
auka markaðsstarfsemi fyrirtækja á
erlendum mörkuðum og stuðla að
aukinni atvinnu.
Alls bámst 144 umsóknir um
samtals 173 milljónir króna til ým-
iss konar verkefna. Úthlutunar-
nefnd sem í eiga sæti fulltrúar
utanríkisráðuneytis, sjávarútvegs-
ráðuneytis, landbúnaðarráðuneytis,
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og
Útflutningsráðs fjölluðu um um-
sóknimar og gerði tillögu um 33
fyrirtæki og einstaklinga sem ríkis-
stjómin ákvað að styrkja að þessu
sinni. Útflutningsráð hefur séð um
undirbúning verkefnisins, faglegt
mat umsókna áður en úthlutunar-
nefnd fer yfir þær og hefur með
höndum greiðslu styrkjanna og eft-
irlit með hvernig þeir nýtast.
Dagskrárgerðarmenn Útvarps Umferðarráös eru: Helga Sigrún Haröar-
dóttir, Óli H. Þórðarson, Sigurður Helgason, Þorsteinn G. Gunnarsson og
Þuríður Siguröardóttir.
/
Utvarp
Umferðarráðs
Útvarp Umferðarráðs hefur nú
verið starfandi um fjögurra ára
skeið og sendir út daglega upp-
lýsingar og ábendingar til vegfar-
enda sem varðar öryggi þeirra í
umferðinni. í samvinnu við Vega-
gerðina, lögreglu og fleiri aðila
um allt land er tengjast umferð-
inni, er leitast við að gefa upplýs-
ingar um ástand vega og færð,
jafnt utan þéttbýlis sem innan og
annað það er gæti skipt máli fyrir
vegfarendur. Hér að neðan er að
finna fasta útsendingartíma á út-
varpsstöðvunum.
Taflan sýnir fasta útsendingar-
tíma virka daga. Þess utan er sent
út á laugardögum og á öðrum
tímum ef sérstök ástæða þykir til.
Útvarpsstöð Tími ______________Útvarpsstöð Ttmi
FM957 7:45 FM 95,7 Bylgjan 16:45 FM 98,9
Rás 2 7:55 FM 90,1 FM 99,9 Rás2 16:55 FM 90,1 FM 99,9
Undin 8:10 FM 102,9 FM 95.7 17:10 FM 95,7
Aðalstöðin 8:20 FM 90.9 Aöalstööin 17:20 FM90.9 FM 103,2
Sígllt FM 8:40 FM 94,3 Sígilt FM 17:35 FM 94,3
Rás 1 " 8:40 FM 92,4 FM 93,5 Rás1 •" 17:52 FM 92,4 FM 93,5
þriöjudaga
mánudaga, miðvlkudaga og föstudaga.
BÆNDASKÓLINN HÓLUM
HÓLASKÓLl HÓLUM í HJALTADAL
551 Sauðárkrókur, sími 453 6300, fax 453 6301
NÁM VIÐ HÓLASKÓLA
FISKELDI OG VATNANÝTING
Áhersluþættir:
Eldi ferskvatns- og sjávardýra.
Hönnun og staðarval eldisstöðva.
Vatnavistfræði og vatnanýting.
Áhersla á verklega þætti námsins.
Verknám í fiskeldisstöðvum.
FERÐAÞJÓNUSTA TIL SVEITA
Áhersluþættir:
Ferðamál, markaðssetning og rekstur ferðaþjónustu í dreifbýli.
Móttaka ferðamanna, gisting og íslensk matarmenning.
Hestaferðir, veiði og náttúruskoðun.
Húsdýrahald, náttúrufar, saga og minjar á heimaslóð.
Bókhald, lög og reglur um ferðaþjónustu.
Verknám hjá ferðaþjónustuaðilum.
Námstími: 1 ár;
September 1996-maí 1997 bóklegt og verklegt nám á Hólum.
Sumar 1997 verknám í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði:
A.m.k. 18 ára.
A.m.k. 65 einingar úr framhaldsskóla.
Eða a.m.k. 25 ára með mikla reynslu úr atvinnulífinu.
Námið getur verið metið sem áfangi í háskólanámi.
Möguleiki á að ljúka stúdentsprófi við skólann.
Umsóknafrestur til 31. júlí 1996.