Dagur - 17.07.1996, Síða 7
Miðvikudagur 17. júlí 1996 - DAGUR - 7
Danshópurinn Sporið frá Dalvík vakti mikla athygli fyrir söng sinn og dans.
Myndir: Halldór.
Starfsdagur í Laufási
Það var svo sannarlega líf og fjör á þriðja
starfsdeginum í Gamla bænum í Laufási
sl. laugardag. Ungir sem aldnir létu norð-
angarrann ekki á sig fá og fjölmenntu til
að fylgjast með fólki sýna hin gömlu
vinnubrögð sem tíðkuðust í gamla sveita-
samfélaginu og eru órjúfanlegur þáttur af
menningararfleifð íslendinga. Alls sóttu
650 manns Laufás heim af þessu tilefni.
Þetta framtak hefur nú unnið sér fastan
sess og þeir sem að því standa eiga heiður
skilinn. HA
Angantýr Hjörvar Hjálmarsson, fyrrverandi kennari í Eyjafjarðarsveit,
slær með orfi og Ijá.
Úti var sýndur heyskapur með gamla laginu og þessi ungi gestur vildi taka
þátt í fjörinu.
Það var ekki síst yngsta kynslóðin sem hafði ánægju af því að fylgjast með
starfsdegi í Laufási.
í eldhúsi var kveikt upp í hlóðum og lummur bakaðar við miklar vinsældir. Hér er það Þórarinn E. Sveinsson.
mjólkursamlagsstjóri KEA og forseti bæjarstjórnar Akureyrar, sem fær sér að bragða á kræsingunum.
Matast sunnan undir vegg. Lengst til vinstri er Ingibjörg Siglaugsdóttir, húsfreyja í Laufási, sem á heiður skilinn
fyrir það framtak sem starfsdagurinn er.