Dagur - 17.07.1996, Page 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 17. júlí 1996
Hinum góðu gestum var boðið að Kieifum við utanverðan Ólafsfjörð. Hér sést Hálfdán Krist-
jánsson, bæjarstjóri, bjóða mönnum íslenskan hákarl og brennivín. Mynd: Óskar Gísiason.
Kirkjukór Ólafsfjarðar söng við setningu vinabæjamótsins. Kynnir við setningarathöfnina var
Óskar Þór Sigurbjörnsson, skólastjóri og formaður undirbúningsnefndar mótsins.
Ljósm: Múli - fréttablað.
Lillas og Nordskogen Skolekorps og Fagerheim Skolekorps, 70 manna sameinuð skólalúðrasveit
frá Horten/Borre í Noregi, Iék á vinabæjamótinu í Ólafsllrði, en þar í bæ er mikil og sterk hefð
fyrir starfi lúðrasveita og leika þær ævinlega við upphaf sameiginlegra vinabæjamóta Ólafs-
fjarðar, Horten/Borre, Kalskrona í Svíþjóð, Hilleröd í Danmörku og Lovisa í Finnlandi. Þessi
mynd var tekin af lúðrablásurunum knáu í félagsheimilinu Tjarnarborg. Mynd: -sbs.
Fjölsótt vinabæjamót var í Ólafsfírði
um síðustu helgi:
Gestafjöldinn
þrefaidaðist
frá síðasta móti
- rætt við Óskar Þór Sigurbjörnsson,
formann undirbúningsnefndar
Um 260 gestir frá vinabæjum
Ólafsfjarðar á Norðurlöndunum
sóttu norrænt vinabæjamót, sem
þar var haldið um síðustu helgi.
Vinabæirnir eru Hilleröd í Dan-
mörku, Horten/Böre í Noregi,
Kalskrona í Svíþjóð og Lovisa í
Finnlandi og skiptast þessir bæir
á um að haldin mót á tveggja
ára fresti. Síðast var vinabæja-
mót haldið í Ólafsfirði árið 1986
og sóttu það þá rösklega 100
gestir. Nú, þegar röðin kemur að
Ölafsfirðingum aftur, hefur
Qöldi gesta nær þrefaldast.
Óskar Þór Sigurbjömsson, for-
maður undirbúningsnefndar móts-
ins, kveðst ánægður með fram-
kvæmd þess og ekki síður hve
virkan þátt bæjarbúar tóku í hátíð-
arhöldum. Dagskrá vinabæjamóts-
ins var þéttskipuð frá upphafi til
enda, en það hófst á föstudags-
morgun með skrúðgöngu og
lúðrablæstri um götur bæjarins.
Síðan tók við formleg setningarat-
höfn við félagsheimilið Tjamar-
borg. Eftir hádegi var farið í
kynnisferðir um bæinn og ná-
grenni með gesti, svo sem í sigl-
ingu með togaranum Múlabergi
að Bergrisunum í Ólafsfjarðar-
múla og að Hvanndalabjargi.
Sögusýningin Horfðu glaður um
öxl var í Tjarnarborg - auk þess
sem tónleikar voru haldnir, ung-
lingar skemmtu sér í sundlaugar-
partýi og gestir skiptust á gjöfum
og góðum óskum.
Tröllaskagatvíþraut
A laugardagsmorgun var efnt til
Tröllaskagatvíþrautar, fulltrúar
vinabæjanna fimm héldu sameig-
inlegan fund, grillhátíð var við
Tjamarborg og þar lék Lillas og
Nordskogen Skolekorps og Fager-
heim Skolekorps, sem er 70
manna sameinuð skólalúðrasveit
frá Horten/Borre og nágrenni við
Frá setningu vinabæjamótsins á
föstudagsmorgun. Lúðrasveit í fylk-
ingarbrjósti. Ljósm: Múli - fréttablað.
frábærar undirtektir. Þá var mark-
aður við og í Tjamarborg, ýmsar
skemmtiferðir vom farnar um
fjörðinn og nágrenni hans - og um
kvöldið var lokahóf mótsins hald-
ið, svo fáein dagskráratriði laugar-
dagsins séu nefnd. Á sunnudag
var samnorræn guðsþjónusta í Ól-
afsfjarðarkirkju og laust eftir há-
degi þann dag yfirgáfu hinir góðu
gestir staðinn og em nú væntan-
lega flestir komnir til síns heima.
Hinir norrænu gestir gistu jafnt
á Hótel Ólafsfirði, í skólunum eða
á heimilum bæjarins - og fléstir
reyndar á síðastnefndu stöðunum.
Óskar Þór Sigurbjörnsson segir að
margir Ólafsfirðingar hafi kostað
kapps að fá gesti inná heimili sitt
til að geta þannig kynnst þeim og
viðhorfum þeirra. Óft hafi tekist
góð og langvarandi kynni meðal
fólks með þessu upphafi. Einnig
segir Óskar að með þessu náist
fram almenn virkni bæjarbúa í
samstarfinu; vinabæjastarf sé ekki
einvörðungu á meðal bæjarfulltrúa
og embættismanna, heldur sé
kappkostað að virkja krafta sem
flestra.
Vaxandi áhugi
„Hinir erlendu gestir undra sig á
ýmsu hér í bæ, svo sem uppbygg-
ingunni hér og ýmiskonar aðstöðu
sem hér er að hafa. Það er mitt álit
að hér sé vaxandi áhugi^ á vina-
bæjasamskiptum. Við Ólafsfirð-
ingar fórum inn í þessa vinabæja-
keðju með Hilleröd í Danmörku,
Horten í Noregi, Kalskrona í Sví-
þjóð og Lovisa í Finnlandi árið
1977 og höfum reynt að standa
okkur í stykkinu. Samskiptin hafa
verið með ýmsu móti og að þeim
hafa komið bæði fyrirtæki, fólk,
félög þess og stofnanir og menn
sýnt þessum málum áhuga. Nor-
ræna félagið í Ólafsfirði er þunga-
miðjan utan um þetta norræna
starf. Það er að vísu ekki fjöl-
mennt félag, en sá hópur sem
stendur að því er afskaplega sam-
hentur og sterkur," segir Óskar
Þór Sigurbjömsson.