Dagur - 17.07.1996, Page 16
Garðyrkjustoðin
Grísará, Eyjafjarðarsveit fj§E!
Sími 463 1129- Fax 463 1322
Mánud.>föstud. kl. 9*18 • Laugard. og sunnud. kl. 13-17
Þrjú skemmtiferdaskip samtímis á Akureyri
s
Igær voru á Akureyri þrjú skenuntiferðaskip samtímis og er þetta í annað skipti í skemmtiferðaskip er væntanlegt til Akureyrar á morgun og á fostudaginn er von á
sumar sem slíkt gerist. Skipin voru Funchal, sem lá við Oddeyrarbryggju, Explorer, tveimur skipum. Alls verða 38 komur skemmtiferðaskipa til Akureyrar í sumar, sú síð-
sem lá við Torfunefsbryggju og út á Pollinum var hið fræga skip Maxim Gorky. Næsta asta 15. september. Mynd: bg
Samskipti Húsavíkur við Maine-
fylki í Bandaríkjunum
- myndaður vinnuhópur til að kanna möguleikana
Með tilkomu nýju timbur-
verksmiðjunnar Aldins hf.
á Húsavík, sem fær trjáboli sjó-
leiðis frá Mainefylki í Banda-
ríkjunum, opnast nýir möguleik-
ar á samskiptum þessara tveggja
staða. Vinnuhópur hefur verið
myndaður á Húsavík til að
skoða þetta nánar.
Aldin hf. er nýtt fyrirtæki á
Húsavík sem flytur inn trjáboli,
sagar þá og þurrkar og selur síðan
bæði á innanlandsmarkað og til
Evrópu. Trjábolirnir koma til fyr-
irtækisins sjóleiðina frá Maine
fylki í Bandaríkjunum, og þarlent
skipafélag mun sjá um flutning-
ana. Nýlega voru staddir fulltrúar
frá því skipafélagi á Húsavík til að
kanna möguleikana á einhverjum
flutningi hina leiðina, það er
Húsavík - Maine.
@ VEÐRIÐ
Norðlendingar og Austfirðingar
eru augljóslega í náðinni hjá
veðurguðunum þessa dagana.
í dag verður sama góða veðrið
og í gær, suðvestan eða suð-
austan átt, nokkur vindur en
mjög hlýtt, hiti upp undir 20
stig.
Veðurstofan spáir svipuðu
veðri út vikuna, hlýjast norðan-
og austanlands, en fremur kalt
fyrir sunnan og vestan.
Þar sem um alveg nýja mögu-
leika í samskiptum þjóða er að
ræða hefur vinnuhópur verið sett-
ur á laggimar og hann komið sam-
an til síns fyrsta fundar. I honum
eiga sæti Stefán Jónsson frá At-
vinnuþróunarfélagi Þingeyinga,
Einar Njálsson bæjarstjóri, Þor-
geir Hlöðversson kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Þingeyinga, Tryggvi
Finnsson framkvæmdastjóri Fisk-
iðjusamlags Húsavíkur og Ingi
Ingason frá Fjárfestingastofu ís-
lands. Verkefni nefndarinnar er að
kanna möguleikana á að laða
hingað erlenda fjárfesta og koma á
samskiptum milli fyrirtækja á
Húsavík og Maine. Stefán Jónsson
hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingey-
inga upplýsti að verksvið hópsins
væri í rauninni þríþætt, „að búa til
kynningarefni um Húsavík og
setja það upp á aðgengilegan hátt,
nýta tilkomu Aldins hf. til að opna
ákveðin tengsl við Bandaríkin og
skoða markaðs- og sölumál með
því að fara í athugun á ákveðnu
vinnsluferli, tökum sem dæmi
harðvið, hvað er gert við harðvið,
hvert er hann seldur og svo fram-
vegis. Við slíka skoðun kemur í
ljós hvemig tollamálum er háttað í
Evrópu þangað sem harðviður er
aðallega seldur og fleira tengt
söluumhverfinu. Athuganimar eru
á algjöru byrjunarstigi og nefndin
hefur ekki sett sér nein tímamörk
varðandi niðurstöður ennþá.“ GKJ
Rimlagardínur
(plast-ál-tré)
(Sólarfilma-myrkva-venjulegar)
Strimlagardínur
Komdu og líttu ó úrvolið
:KAUPLANd|
Kaupangi ■ Sími 462 3565
Skagafjörður:
Bruni í Vallhólma
Um klukkan hálftólf í gær
varð bruni í grasköggla-
verksmiðjunni Vallhólma við
Varmahlíð. Eldurinn kom upp
í heysalla sem lá ofan á tækja-
búnaði, en hann er glóandi
heitur, þar sem mikinn hita
þarf til að framleiða kögglana.
Starfsmönnum verksmiðjunn-
ar lókst að halda eldinum í
skefjum þangað til slökkvilið
Vamiahlíðar og slökkviðlið
Sauðárkróks kornu á vettvang,
og réðu þau niðurlögum eldsins
áður en teljandi skeinmdir urðu.
Starfsemi verksmiðjunnar
stöðvast a.m.k. eitthvað fram
eftir degi í dag, þar sem tölu-
verður reykur gaus upp, og ekki
verður unnt að hefja framleiðslu
á ný fyrr en byggingin hefur
verið reykræst og hreinsuð.
shv
Risaloðnuskip á Siglufirði
Igær kom til Siglufjarðar
stærsta loðnuskip sem
þangað hefur komið, skipið
Gardar frá Noregi, en það get-
ur lestað 2500-3000 tonn af
loðnu og er um 75 metra langt.
Til samanburðar má geta þess
að stærsti frystitogari okkar fs-
- með rifna nót
lendinga er Siglir, 80 metra
langur.
Gardar kemur til hafnar með
rifna nót sem óskað var eftir að
fá lagfærða á Siglufirði. Skipið
getur lestað um 1000 tonnum
meira en stærstu íslensku loðnu-
skipin, og höfðu menn á Siglu-
firði áhyggjur af því að það
kæmist ekki inn í höfnina, en
hún er einungis átta metra djúp.
Til allrar lukku var skipið ekki
með neinn afla um borð, en það
ristir sjö metra tómt, og rétt
slapp upp að bryggjunni. shv