Dagur - 25.07.1996, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 25. júlí 1996
MINNINC
^ Þorsteinn Bjöm Jónsson
Fæddur 2. júní - Dáinn 13. júlí 1996
77/ moldar oss vígði hið mikla vald,
hvert mannslíf sem jörðin elur.
Sam hafsjór, er rís með fald við fald
þaufalla, en Guð þau telur,
því heiðloftið sjálft er huliðstjald,
sem hœðanna dýrð oss felur.
(Einar Benediktsson)
Erfitt reyndist að trúa þeirri frétt,
að hið mikla vald hafi dæmt Þor-
stein frænda minn til moldar 18.
þ.m. Daginn áður talaði ég við
hann, er hann var við vinnu á
verkstæðinu og þá taldi hann
heilsu sína fara batnandi, enda var
honum óljúft að kvarta. En nú er
lífsklukkan útgengin og huliðs-
tjaldi lyft frá hæðanna dýrð.
Þorsteinn Bjöm fæddist í Lang-
húsum í Viðvíkursveit 2. júní
1925. Hann var elstur fjögurra
bama hjónanna Jóns Sigfússonar
og Jónínu Sigríðar Magnúsdóttur.
Vorið 1927 flutti þessi fjölskylda
að Ytri-Hofdölum, og þar var Þor-
steinn í foreldrahúsum til hausts-
ins 1944, en þá hóf hann nám á
bifreiðaverkstæðinu Mjölni á Ak-
ureyri. Fljótt var lagni hans við
bíla og allt, sem að því fagi laut,
viðbrugðið. Hann varð verkstjóri á
bifreiðaverkstæðinu Þórshamri, og
síðar einn af stofnendum verk-
stæðisins Baugs. Á Akureyri
starfaði hann við þessa iðngrein
allt til hinstu stundar.
í janúar 1950 kvæntist Þor-
steinn Valdínu K. Stefánsdóttur.
Þau eignuðust fjögur böm: Stefán
Karl, Sigríði, Jón Grétar og Sigur-
laugu. Sambúð þessarar fjölskyldu
var með ágætum. Síðar bar þann
skugga á, að Valdína missti heils-
una. í von um bata fór Þorsteinn
með hana til Danmerkur, en lækn-
ing fékkst ekki og sigð dauðans
laust hana. Örlögin bundu þungan
bagga á herðar Þorsteins, en hann
hafði náð miklum þroska, bæði
líkamlega og andlega. Nú varð
hann að vera bömum sínum bæði
sem faðir og móðir.
Nokkrum ámm seinna kvong-
aðist Þorsteinn Elínu Halldórs-
dóttur. Hún er mesta prýðis kona
og hefur reynst stjúpbömum sín-
um mjög vel. Þau eiga eina dóttur:
Hólmfríði Berglind, sem stundar
nám í Háskóla Islands.
Þorsteinn átti bamaláni að
fagna og þegar á allt er litið var
hann lánsmaður.
Frændi minn, ég sendi þér
kveðju yfir djúp dauðans.
„Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og
allt.“
Marteinn Steinsson.
i I Á; ^s-ílílUI
^juu|d
Sfir
■JIW''
' „ r
tiútr
m£m
miíik ð
i/iimíh'lli,
Pi
I í /'
Neytendapakkningar fyrir Evrópumarkað, sex, átta eða tíu þurrkaðar
loðnur á plastbökkum.
Stöplafiskur í Reykjahverfi:
Annar vart
eftirspurn
Við Smiðjuteig í Reykjahverfi er
framleiðslufyrirtæki í fiskiðnaði
með tólf inanns í vinnu og pant-
anir svo miklar að vart verður
annað eftirspum. Dagur hitli
Erlu Alfreðsdóttur, frantleiðslu-
stjóra í fyrirtækinu, á dögunum.
„Upphaflega vomrn við með
harðfiskvinnslu eingöngu, bæði
bitafisk og flök og það gekk
rnjög vel í sjálfu sér. Það var svo
fyrir rúmu ári síðan að byrjað
var að þurrka og frysta loðnu
fyrir Japansmarkað. Mikill og
stöðugur markaður er fyrir loðn-
una í Japan og gætum við selt
alla okkar framleiðslu þangað,
en við höfðum líka hug á að
koma okkar vöm á Evrópumark-
að og þá í neytendaumbúðum,
því það gefur að sjálfsögðu enn
betra verð, og þetta emm við að
gera í dag, flytja út m.a. til Hol-
lands í pakkningum tilbúnum til
neytenda. Til Japans er
eingöngu um að ræða sextán
kílóa pakkningar. Loðnan er
fyrst pækluð og þá þrædd upp á
teina, í gegnum tálknin, og
þurrkuð á vögnum. Þurrkunin
tekur sjö til átta klukkustundir
og að henni lokinni er hún
stærðarflokkuð áður en hún er
pökkuð og síðast fryst. Sölumið-
stöð Hraðfrystihúsanna hefur
séð um markaðsmálin fyrir
Stöplafisk og enn em að opnast
nýir markaðir, meðal annars í
Bandaríkjunum. Við höfum
hingað til keypt okkar loðnu í
gegnum Sölumiðstöðina en við
gerum ráð fyrir að sjá meira um
þau mál sjáíf í framtíðinni. Svo
höfum við að sjálfsögðu áhuga á
að íslendingar komi til með að
meta framleiðslu okkar, við
bjóðuni t.d. uppá grillaða loðnu
fyrir hópa sem heimsækja fyrir-
tækið í sumar ef pantað er fyrir-
fram og loðnan er mjög góður
matur,“ segir Erla Alfreðsdóttir.
Og undir það getur blaðantaður
Dags tekið, sem fékk að bragða
á grillaðri loðnu í heimsókn
sinni í Stöplafisk í Reykjahverfi
nýverið. ' GKJ
í vinnslusal Stöplafisks vinna 12 manns við þurrkun og frystingu á
loðnu fyrir Japansmarkað. Myndir: GKJ
Sundlaug Akureyrar:
Góðar gjafir
Flutningafyrirtækin Dreki og
FMN á Akureyri hafa nýlega
slegið saman í púkk til handa
Sundlaug Akureyrar og gefið
henni tvo stóra leikfangaflutn-
ingabíla, sem æskufólkið getur
leikið sér á í skemmtigarðinum
við laugina. Bflarnir tveir eru
með merkjum fyrirtækjanna. Á
meðfylgjandi mynd sjást þau
Eva Dís Ottesen og Helgi Már
Hafþórsson leika sér á bflunum
og í baksýn er sundlaugin.
Þá færðu forráðamenn Heklu
hf. sundlauginni nýlega að gjöf
nákvæma eftirlíkingu af Caterpill-
ar 325 beltagröfu, en hugmyndina
að gjöfinni átti Guðmundur
Hjálmarsson verktaki, sem meðal
annarra hefur annast framkvæmdir
á sundlaugarsvæðinu. Það var Jón
Ellert Jónsson hagleikssmiður í
Hafnarfirði sem smíðaði leik-
fangagröfuna góðu, og var hún af-
hent sundlauginni í síðustu viku.
Á myndinni sem hér fylgir eru, frá
vinstri talið, Gísli Vagn Guð-
mundsson, sölustjóri hjá Heklu
hf„ Sigurður Guðmundsson, for-
stöðumaður Sundlaugarinnar, og
Guðmundur Hjálmarsson, verk-
taki. Gröfustjórinn ungi heitir
Guðmundur Snorri Guðmundsson.
- sbs. Myndir:- sbs.
Vegafram-
kvæmdir
í Svarfaðardal
Nú er unnið af kappi við breyt-
ingu á veglínu sunnan Brautar-
hóls að Hofsbrú í Svarfaðar-
dal, í austanverðum dalnum,
en ætlunin er að flytja veginn
niður fyrir Hof, en um áratuga-
skeið hefur vegurinn legið um
hlaðið á Hofí. Stórvirk tæki
eru að störfum í dalnum og var
þessi mynd tekin þar sl.
þriðjudag. Óþh/Mynd: BG