Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
Fréttir
Stuttarfréttir
Miklar deilur um byggingu torfbæjar í gamalli tóft á Hrafnseyri:
Þettaerekkií
samræmi við lög
- segir fráfarandi formaður fomleifanefndar. - Höfum öll leyfi, segir formaður Hrafnseyramefndar
„Viö erum búnir að fá leyfi allra
aöila sem viö teljum okkur þurfa aö
fá leyfi frá. Viö höfum borið þetta
undir skipulagsráö og fengiö sam-
þykki og undir yiökomandi aðila í
Stjórnarráöinu. Ég veit hins vegar
að fornleifanefnd hefur verið að
malda í móinn. Viö buðum þeim að
koma og rannsaka jaröveginn og
ætluðum aö bíða með framkvæmdir
á meðan en þeir svöruðu því til að
þeir hefðu engin áform uppi um
það,“ sagði Þórhallur Ásgeirsson,
formaður Hrafnseyrarnefndar, að-
spurður um hvort réttlætanlegt væri
að hefja framkvæmdir við endur-
byggingu torfbæjarins á Hrafnseyri
við Arnarfjörð þar sem Jón Sigurðs-
son fæddist árið 1811 en þessar fram-
kvæmdir eru gegn vilja fomleifa-
nefndar. Nefndin lagðist eindregið
w ísafjöröur
• 'í
Þingeyri
i .
Hrafnseyrl
«■
gegn framkvæmdunum í bréfi sem
hún sendi Hrafnseyrarnefnd 1 vor.
Frá þessu var skýrt í DV í gær.
Ástæðan fyrir andstöðu nefndar-
innar við framkvæmdirnar er sú að
hún telur þær spilla fornminjunum
á staðnum en endurbyggja á torfbæ-
inn í tóftum gamla bæjarins. Ráð-
lagði fornleifanefnd að bærinn yrði
endurbyggður á svæði í nágrenninu
þar sem ekki eru fornleifar. Bæjar-
stæðið er talið vera frá Sturlungaöld
en þá bjó Hrafn Sveinbjarnarson
læknir á staðnum og er eyrin kennd
við hann.
Bæjarstæöið nýtur friðunar aldurs
síns vegna en samkvæmt lögum má
ekki raska fomleifum sem em 100
ára og eldri nema leyfi fornleifa-
nefndar komi til.
„Nefndin hefur ekki leyft þessa
byggingu. í lögunum er það alveg
skýrt að ekki má raska eða hylja
fomleifar nema með leyfi fomleifa-
nefndar," segir Sveinbjörn Rafnsson
prófessor, fyrrverandi formaður
fomleifanefndar, en nefndin lét af
störfum 1. júlí sl. og hefur mennta-
málaráðherra ekki enn skipað nýja
nefnd.
Sveinbjörn segir að ósk hafi borist
frá Hrafnseyrarnefnd um að reisa
torfbæ í gömlu tóftunum. Þetta hafi
fomleifanefnd ekki talið rétt og bent
á að reisa mætti torfbæinn annars
staðar. Þá myndi hann ekki hylja
fomleifar.
ÞórhaUur Ásgeirsson segir að bær-
inn verði reistur þannig að hægt
verði að stunda rannsóknir eftir að
hann er tilbúinn, ekkert muni verða
grafið í jarðveginn og því veröi hægt
að stunda rannsóknir síðar verði
áhugi fyrir hendi.
Eyrarbakki:
Fjárlög undirbúSn
Ríkisstjómin stefnir að því að
hallinn á fjárlögum næsta árs
verði innan við 10 milljarðar
króna. Þetta var ákveðið á ríkis-
stjómarfundi í gærmorgun.
JóntilBrusseS
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra heldur í dag til
Brussel til viðræðna við forvstu-
menn Evrópusambandsins.
Debetkort i ÁTVR
í dag verður gengið frá samn-
ingí ATVR og VISA-Island um
notkun debetkorta í áfengisversl-
unum landsins. Mbl. greinir frá.
Bankagjöldum mötmælt
Neytendasamtökin hafa mót-
raælt nýTri gjaldskrá banka og
sparisjóða vegna notkunar ávís-
ana og debetkorta.
Leigandugarekki
Húsaleigutekjur af leiguíbúð-
um Reykjavíkurborgar duga ekki
einu sinni fyrír viðhaldi ibúð-
anna. Tíminn skýrir frá þessu.
Minniþorskveiði
Tæplega 103 þúsund tonnum af
þorski var landað úr íslenskum
skipum fyrstu 6 mánuði ársins.
Þaö er um 10 þúsund tonnum
minna en á sama tíma í fyrra.
Tíminn greindi frá.
Hundur beit blað
bera til blóðs
- hundinum fargað að ósk lögreglu
„Hundurinn kom hlaupandi fyrir
hornið og stökk umsvifalaust á mig.
Ég stóð kyrr og gerði ekkert þegar
hann beit mig í mjöðmina í gegnum
úlpuna og blússuna," segir Helga
Sörensen, blaðberi á Eyrarbakka,
sem varð fyrir því að hundur réðst
að henni og beit hana til blóðs þar
sem hún var að bera út DV um sl.
helgi.
Helga segir að hundurinn, sem er
blendingur, hafi áður gert sig líkleg-
an til að veitast að henni með urri
og gelti en ekki fyrr gert alvöru úr
því að bíta hana. Hún segist hafa far-
ið til læknis þar sem hún fékk
sprautu við stífkrampa, auk þess að
gert var að sárinu. Hún segir þetta
ekki í fyrsta sinn sem fjölskylda
hennar verði fyrir árásum hunda.
„Sonur minn var bitinn af öðrum
hundi þegar hann var að bera út
blöðin. Hundaeigendur halda fram
þeirri firru hér að hundamir leggist
bara á póstmenn og blaðbera. Vanda-
málið er að mínu viti að hundar
ganga hér lausir í alltof miklum
mæli,“ sagði Helga.
Hjá lögreglunni á Selfossi fengust
þær upplýsingar að þeir hefðu óskað
eftir því við eigandann að hann aflíf-
aði hundinn og hann hafi orðiö við
því í gær.
Samkvæmt lögreglusamþykkt Ár-
nessýslu eru hundar sem ráðast að
fólki eða elta skepnur réttdræpir þar
sem til þeirra næst.
Helga Sörensen, blaðberi DV Eyrar-
bakka, sem varð fyrir þvi að hundur
stökk á hana og beit til blóðs. Minni
myndin er af sárinu sem hún hlaut
á vinstri mjöðm.
DV-mynd ReynirTraustason
Rauður litur á Pósthúsið?
Góð hugmynd
- segirborgarminjavörður
„Ef arkitektinn hefur í huga að
húsið verði málað í upprunalegum
lit er það bara mjög gott mál en það
þarf að vera réttur, upprunalegur ht-
ur. Þetta er friðað hús þannig aö það
þarf hvort eð er að vera í samráði
við okkur og húsafriðunamefnd.
Þessi hugmynd er í samræmi við
okkar stefnu," segir Margrét Hall-
grímsdóttir borgarminjavörður.
Sú hugmynd hefur komið fram hjá
Jóni Ólafi Ólafssyni, arkitekt hjá
Batteríinu, að mála gamla pósthúsið
í miðbæ Reykjavíkur í upprunaleg-
um rauöum eöa rauðbrúnum lit í
framhaldi af endurbótum á húsinu.
Póst og símamálastjóri hefur ekki
tekið undir hugmyndina, en forseti
borgarstjómar Reykjavíkur segir
hana frábæra.
Þess skal getið að gamla pósthúsið
var friðað árið 1991.
Jóhanna á leið 1 tveggja vikna hðskönnunarferð um landið:
Framboð ákveð-
ið eftir ferðina
- hefur rætt við Ólaf Ragnar um samstarf
„Ég ætla um landið, heyra 1 fólki
og fara inn á vinnustaði. Það er
ekki um skipulagða fundi að ræða
nema sérstaklega sé óskað eftir
því. Ég ætla fyrst og fremst að hitta
fólk á vinnustööum og alþýöu-
flokksfólk þar sem ég næ til þess.
Ég hef í hyggju að sjá hvernig land-
ið hggur í póhtíkinni og heyra hvað
fólkið vill,“ segir Jóhanna Sigurð-
ardóttir alþingismaður en hún
hyggst leggja af stað í hringferð um
landið í vikulok. Hún mun byrja á
Suðurlandi og fara austur um og
verða um tvær vikur í ferðinni.
Jóhanna segist skipuleggja ferðina
að mestu leyti ein en að nokkru
leyti í samráöi við stuðningsmenn
á landsbyggðinni.
Jóhanna segist ekki vera að fiska
sérstaklega eftir undirtektum
vegna hugsanlegs sérframboðs.
Hún ætlar hins vegar ekki að taka
ákvörðun um framboðsmál sín fyrr
en eftir ferðina. Hún segir ekkert
fastsett með framboðsmál sín eða
á hvaða vettvangi það verði. „Ég
get engu svaraö til um þau mál.“
Aðspurð um tílboð Ólafs Ragnars
Grímssonar, formanns Alþýðu-
bandalagsins, um samstarf vinstri
hluta Alþýðuflokksins og Alþýðu-
bandalagsins sagðist hún ekki vita
hvað hann væri að hugsa nákvæm-
lega en neitaði ekki að hann hefði
rætt við sig. Engar formlegar við-
ræður hefðu átt sér staö.
„Samfylkingarhugmyndir jafn-
aöarmanna eru auðvitað eittihvaö
sem er uppi á borðum en greinhegt
er þó að menn taka misjafnlega í
þær í flokkunum. Ég hef ekki lokað
á eitt né neitt í þeim efnum. Ég tel
hins vegar nauðsynlegt að heyra í
fólki fyrst, ekki síst alþýðuflokks-
fólki, th þess að átta mig á stöð-
unni. Ég ætla að skoða hvar ég get
unnið jafnaðarstefnunni mestan
framgang. Það eru ýmsir mögu-
leikar th í stöðunni," segir Jó-
hanna.