Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 13 Hjónin Bryndís Sigurðardóttir og Ingvar Pétursson við safnkassa í garði sínum. DV-mynd Guðfinnur Fréttir Á fjórða hundrað þátttakenda á landsmóti lúðrasveita Kristján Sigurðssan, DV, Stykkishólnii: Á fjórða hundrað manns og 11 lúðrasveitir víðs vegar að af land- inu tóku þátt í landsmóti lúðra- sveita sem haldið var hér fyrir skömmu. í mótsbyijun ávarpaði Sturla Böðvarsson alþingismaður mótsgesti og sagði að tónlistarlíf hefði staðið með miklum blóma í Stykkishólmi um langt skeið. Lúðrasveitirnar spiluðu víðs veg- ar um bæinn, bæði inni og úti, en hápunkturinn var þegar þær sam- einuðust í eina sveit og léku nokk- ur lög í íþróttamiðstöðinni að við- stöddu fjölmenni. Að sögn forráð- manna gekk mótið mjög vel og gest- ir fóru ánægðir heim. Tilraun á Hólmavík: Lífrænn úrgang- urendurnýttur Guðfiimur Fúmbogason, DV, Hólmavik: í fyrrasumar var ráðist í tilrauna- verkefni á Hólmavík til að kanna kosti þess að endurnýta lífrænan úrgang frá heimilum svo og garðaúr- gang í því skyni að afla efnis til rækt- unar og uppgræðslu og minnka það sorp sem annaðhvort þarf að urða eða brenna. Styrkur, 500 þús. krón- ur, fékkst úr Pokasjóði Landverndar. Stefán Gíslason, sveitarstjóri á Hólmavík, sem er líffræðingur að mennt, hafði forgöngu í máhnu. Auglýst var eftir þátttakendum í verkefnið og gáfu sig fram 20 fjöl- skyldur og var þeim í byrjun skipt í tvo jafn stóra hópa. Útbúnar voru tvær gerðir af safnkössum og fékk annar hópurinn einangraða kassa en hinn óeinangraða. í júlí, þegar ár er liðið frá upphafi verkefnisins, verður innihaldið skoðað og notagildi metið eftir geymsluaðferðum. Kassaranir voru upphaflega keyptir frá Húsasmiðj- unni en Benedikt Grímsson húsa- smíðameistari breytti þeim til þessa sérstaka hlutverks. „í lok verkefnisins er ætlunin að gefa út endurskoðað leiðbeiningarit um meðhöndlun lífræns úrgangs," sagði Stefán sveitarstjóri. Atvinnuleysið: Rýmri reglur umstimplun Atvinnulausir geta héðan í frá stimplað sig hjá annari vinnumiðlun en þeir eru skráðir hjá, að fengnu leyfi þeirrar síðarnefndu. Sam- kvæmt nýjum reglum um stimplun atvinnulausra getur slíkt leyfi þó ein- ungis verið tímabundið. Viðkomandi verða að taka með sér sérstök eyðu- blöð frá þeirri atvinnumiðlun sem þeir eru skráðir hjá og hafa með sér til þeirra vinnumiðlana sem þeir ætla að fá stimpil frá. Ástæða þess að reglum um stimpl- un hefur verið breytt er sú aö það hefur valdið ýmsum erfiðleikum, til dæmis vegna atvinnuleitar, að menn þurfi alltaf að mæta á sama degi og á sama stað til að stimpla sig svo að atvinnuleysisbætur falli ekki niður. En þó nú sé hægt að stimpla sig hjá annarri atvinnumiðlun þá gildir áfram sú grundvallarregla að mæti menn ekki á réttum tíma til stimpl- unar falla bætur niður. Nefndrannsakar undirboðskjör Fjármálaráðherra hefur skipaö sjö manna nefnd til að rannsaka kærur um innflutning vara á undirboðs- kjörum eða með styrkjum. Hlutverk nefndarinnar er að auki að gera til- lögur til ráðherra um álagningu und- irboðs- og jöfnunartolla. Formaður nefndarinnar er Jón Guðmundsson en auk hans sitja í henni þau Sigurgeir A. Jónsson rík- istollstjóri, Arndís Steinþórsdóttir, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðu- neytinu, og Baldur Pétursson, deild- arstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytinu. Landbúnaðarráðuneytið mun tilnefna mann í nefndina síðar. Sendibílar 'Þverliolti IJ J (J!) Reykjavik Simi (ii27(jo fíiéfas.iiiii óvnyi Giajin siniioi): 9 9 0272 (lym Iandsbyggðina) EFTIR BREYTINGU (reikningursendur) BIRTINGAR VER0 RR. HVER AUGL. RR. 1 1.531,- 1.531,- 2 2.756,- 1.378,- 3 3.905,- 1.302,- VERÐ RR. 1.302,- 2.343,- 3.319,- EFTIR BREYTINGU (staSgr. eöa greitt m/greiösluk.) BIRTIHGBR VERÐ RR. HVER AUGl. RR. 1 1.302,- 1.302,- 2 2.343,- 1.172,- 3 3.319,- 1.106,- BREYTINGAR Meiri afsláttur Við komum til móts við hinn almenna auglýsanda og hækkum birtingarafsláttinn. Dæmi: Lágmarksverð (4 lína smáauglýsing með sama texta) Verð er meö virðisaukaskatti FYRIR BREYTINGU (staðgr. eöa greitt m/greiösluk.) BIRTINGAR VERÐ KR. HVER AUGL. RR. 1 1.302,- 1.302,- 2 2.473,- 1.237,- 3 3.630,- 1.210,- Nýir dálkar - Nýtt útlit Enn aukum við þjónustuna. Við fjölgum valmöguleikum í smáauglýsingunum. Dæmi: g Bílar tilsöiu (skráðir í stafrófsröð eftir tegundum) dfmati Fornbílar Hópferðabílar Jeppar Gefins Nú lítur dagsins Ijós nýr dálkur í smá- auglýsingum DV: A miðvikudögum getur þú auglýst ókeypis þá hluti sem þú-vilt gefa í allt að 4 lína smáauglýsingu. Gleymdu ekki að lesa smáauglýsingar DV á miðvikudögum. Til að létta símaálag áendum við á bréfa- DV, 63 27 27, og að sjálfsögðu getur þú sent okkur auqlvsinauna í oósti. FYRIR BREYTINGU (reikningursendurj BIRTINGAR VERÐ KR. HVER AUGL. 1 1.531,- 1.531,- 2 2.910,- 1.455,- 3 4.272,- 1.424,- I/örubílar Einnig tiendum við á að nú er auðveldara að finna það sem þú leitar að í smá- auglýsingum DV því að tengdir flokkar raðast hver á eftir öðrum. Nýir og táknrænir hausar auðvelda þér einnig leitina. ASKR/FENDUR FA AÐAUK! 10% AFSLA TTAF SMAAUGLYS/NGUM Pallbílar 0PIÐ: Virka Laugan Sunnuddla kl. Athugið! Smáauglýsingar í helgarbiað DV verða að berast fyrir klÆ.á föstudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.