Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 Viðskipti Ýsa á fiskm. kr/kg ■ I 1 E 1 t-3 \*f ' || 1 % m ? Þr Ml Fl F6 Má Þingvísit. hlutabr. 874 Þr Ml F! FÖ Má Hráolía Kauph. í London 2990 2980 2970 2960 2950 2940 2930 ftsl'' 100 ------ Olían hækkar Ýsa á fiskmörkuðum hefur sveiflast nokkuð til í verði að undanfomu, eða frá 73 til 100 krónum kílóið að meðaltali. Framboð á mörkuðum er lítið. Þingvísitala hlutabréfa hefur lítið breyst enda viðskipti með hlutabréf afar dræm. Eftir mánu- daginn var talan 873,9 stig. Vegna verkfalls verkamanna í Nígeríu hefur hráolíuverð hækk- að verulega frá síðustu helgi. í gærmorgun var tunnan komin vel yfir 18 dollara sem er hæsta verð í rúmt ár. Á einni viku hefur sölugengi dollars lækkaö um 2,7%, var skráð 67,25 krónur í gærmorgun. FT-SE 100 hlutabréfavísitalan í kauphöllinni í London lækkaði í gærmorgun í 2960 stig vegna frétta um fall dollars gagnvart marki og jeni. Indverski auöj öfurinn Ravi Tikkoo í samtali við D V: Útilokar ekki fleiri fyrirtæki Indverski auðjöfurinn Ravi Tikkoo fer brátt að teljast til svokallaðra ís- landsvina vegna samstarfs stórfyrir- tækis hans við Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, SH, og Flugleiðir. SH á helming i fyrirtæki í Indlandi sem undirbýr vinnslu og veiðar á túnfiski úr Indlandshafi og nýlega gerðu Flugleiðir samstarfssamning við Ravi um stofnun tlugfélags í Ind- landi. DV hafði samband við Ravi þar sem hann var staddur í sumarfríi í Ind- landi. Annars er hann búsettur í London. Ravi hefur verið talinn auð- ugasti Indverjinn, búsettur í Bret- landi. Hann var fyrst inntur eftir áhuga hans á viöskiptum við íslensk fyrirtæki. „ísland er aö mínu mati þróaðasta ríki Evrópu á sviði djúpsjávarveiða og með mikla reynslu. Það er meg- inástæðan fyrir því að við höföum samband við Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna. Verkefnið er aö koma upp aðstöðu til fiskvinnslu og veiða í djúpum Indlandshafs, sérstaklega vegna veiða á túnfiski. Við stefnum að því að hefja veiðarnar innan þriggja mánaða. Án íslenskrar þekk- ingar gæti það ekki orðið að veru- leika,“ sagði Ravi. Ravi hefur uppi stór áform um fjár- festingar í Indlandi, m.a. í flug- rekstri. Af þeim sökum bentu SH- menn Ravi á Flugleiðir. „Einn af kostunum við ísland er að flugmennirnir ykkar eru þaulvan- ir að fljúga við erfiðar aðstæður en veður geta líka gerst válynd í Ind- landi og ekki má gleyma Himalaja- Hér sést „Islandsvinurinn" Ravi Tikkoo undirrita samning við Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fyrr á þessu ári en núna hafa Flugleiðir einnig komið til samstarfs við hann. Fyrir aftan Ravi og Jón Ingvarsson, stjórnarformann SH, standa Friðrik Pálsson forstjóri og Ólafur B. Ólafsson, varaformaður stjórnar SH. fjöllunum. Við bindum miklar vonir við samstarfið viö Flugleiðir og hefj- um rekstur um leið og leyfi kemur frá stjórnvöldum í Indlandi." 350 milljónir í flugfélagið Að sögn Ravis er það verkefni Flug- leiðamanna að finna vélakost til áætlunarflugsins og í því skyni verð- ur leitað eftir þremur Boeing-þotum. Stofnfé flugfélagsins er um 350 millj- ónir króna að sögn Ravis. Fram hef- ur komið að Flugleiðum stendur til boða að kaupa 25% hlut. Auk sjávarútvegs og flugrekstrar hyggur Ravi á fjárfestingar í ferða- þjónustu og bjórframleiðslu. Að- spurður um hvort hann ætlaði að . hafa samband viö fleiri íslensk fyrir- tæki vildi Ravi ekki útiloka neitt. „Við myndum hafa mestu ánægju af því að eiga viðskipti við íslensk fyrirtæki en þau veröa að standast fyllilega samanburð við sambærleg fyrirtæki í þeim löndum þar sem við- skiptin eiga sér stað. Við höfum mjög góða reynslu af viðskiptum við Flug- leiðir og Sölumiðstöðina, þar er fag- mennskan höfð í fyrirrúmi." Ravi er sem fyrr segir mjög auðug- ur maður. Hann byrjaði með tvær hendur tómar en varð ríkur á olíu- skipaútgerð, átti um tíma tvö stærstu olíuskip í heiminum og þau stærstu sem nokkurn tíma hafa siglt undir bresku flaggi. Hann hyggst minnka við sig í skipaútgerðinni og einbeita sér að fjárfestingum í heimalandinu. Enn lækkar dollarinn Gengi dollars gagnvart íslensku krónunni heldur áfram að lækka. Sölugengið hefur lækkað um tæp 3% á einni viku og frá því í byrjun apríl sl. hefur dollarinn lækkað í verði um tæp 8%. Fyrir fyrirtæki eins og Flug- leiðir geta þetta ekki talist góð tíðindi en öðru gildir kannski um þau fyrir- tæki sem flytja inn vörur frá Banda- ríkjunum. Pund og jen hafa sömu- leiðis lækkað í verði undanfama viku, pundið um 0,8% og jenið um 1,3%. Álverð virðist vera á hraðri upp- leið. Þegar viðskipti hófust í London í gærmorgun var tonnið selt stað- greitt á 1540 dollara og hefur hærra verð ekki sést undanfarin þrjú ár. Þriggja mánaða verö nálgast 1600 dollara en þess má geta að 1700 doll- arar á tonnið voru þau mörk sem Atlantshafshópurinn svokallaði setti fyrir því að nýtt álver yrði reist á Keilisnesi. Bíða menn spenntir eftir gangi mála næstu vikur. Meiri eftirspurn eftir áli Samkvæmt svokallaðri Spector- skýrslu var eftirspurnin eftir áli á heimsmarkaði 13% meiri í aprílmán- uöi sl. en í sama mánuði í fyrra. Auk minnkandi birgða gefur þetta vis- bendingu um enn hækkandi álverð á næstunni. Verð í skipasölu í Þýskalandi lækk- aði nokkuð þegar Skagfirðingur SK seldi í Bremerhaven á dögunum 158 tonn fyrir 13 milljónir. Þetta gaf að- eins um 83 króna meðalverð fyrir kílóið. Þetta lagaðist í sfðustu viku þegar Skafti SK náði 102 króna kíló- veröi aö meðaltali. Fiskverð erlendis er almennt lágt um þessar mundir sökum lítillar eftirspumar í sumar- hitanum. Útflutningsafurðir, gjaldmiðlar og verðbréf Styrkir til fyrir- tækjafráESB Iðntæknistofnun er um þessar mundir aö ganga frá samningum um styrki úr tækniáætlunum Evrópusambandsins, ESB. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskum fyrírtækjum gefst kostur á bein- um styrkjum úr rannsókna- og tæknisjóöum ESB. Styrkirnar sem Iðntæknistofn- un hefur milligöngu um eru vegna þriggja verkefha og nema samtals um 19,3 milijónum króna. Eitt þeirra er samstarfs- verkefhi til 3-4 ára um þróun á varmahlífum á slitfleti i vélum og túrbínum. Hin verkefnin eru vegna ráðgjafar og tækniyfir- færslu. Aðgangur að þessum sjóöum ESB er til kominn vegna EES-samningsins. Skilyrði er að íslendingar greiði fasta upphæð árlega til tækniáætlana ESB sem er reiknað hlutfall af þjóðarfram- leiðslu. Á þessu ári greiða íslend- ingar rúmar 90 milljónir. Engin takmörk eru hins vegar á því hversu núkla styrki íslendingar geta fengiö úr sjóðunum. Hluthafafundirá Stöð 2 og Sýn Hluthafafundur fer fram í dag hjá íslenska útvarpsfélaginu. Meðal umræðuefna verður kæra núverandi meirihluta stjórnar félagsins á hendur fráfarandi meiríhluta. Um er að ræða saka- og skaðabótamál á hendur Ingi- mundi Sigfússyni, Ásgeiri Bolla Kristinssyni, Jóhanni Óla Guð- mundssyni og Stefáni Gunnars- syni. Tilefnið er salan á hlut fé- lagsins í Sýn og starfslokasamn- ingur Páls Magnússonar, fyrrum sjónvarpssfjóra. Á morgun er síðan fyrirhugað- ur hluthafafundur hjá Sýn. Þar verður m.a. rætt um frekari að- skilnað milli reksturs Stöövar 2 og Sýnar. Reiknaö er með heitum átakafundum bæði í dag og á morgun ef marka má umræðu- efnin. Hálfurmilljarður afátaki Iðn- tæknistofnunar Samanlagt söluverðmæti vara sem þróaöar voru undir merki vöruþróunarátaks Iðntækni- stofhunar árin 1988 til 1990 er um 500 til 600 milljónir króna á árs- grundvelli. Þetta kemur fram í fréttabréfi Iðntæknistofnunar. Flestar framleiðsluvörurnar eru seldar enn í dag með góðum árangri samkvæmt sérstakri at- hugun sem gerö var nýlega. Alls tóku 24 fyrirtæki þátt í vöruþró- unarátakinu og þar af tókst 22 fyrirtækjum aö skapa markaðs- hæfa vöru. Að mati Iðntækni- stofhunar varð árangur átaksins mjög góður enda er eitt átaks- verkefni í gangi méð þátttöku 16 fyrirtækja. Skeljungur framleiðirbón SkeJjungur hefur hafið fram- leiðslu og markaðssetningu á nýju íslensku bóni sem nefhist Bónax. Bónið er selt í hálfs lítra og 5 lítra umbúðum á sölustöðum Skeljungs og hjá öðrum söluaðil- um víös vegar um landiö. Hráefnið í bónið er fiutt inn frá Þýskalandi og síðan blandað og átappaö á lager SkeJjungs í Skeijafiröi. Meö þessu fyrir- komulagí hafa skapast fiögur ný störf hjá fyrirtækinu. Aö auki hefur þetta aukið framleiðslu ís- lenskra iðnfyrirtækja því Sigur- plast framleiðir urabúðirnar og Vörumerking límmiöana. I fréttatilkynningu frá Skeljungi segir að síðustu þrjá mánuði hafi selst 10 þúsund lítrar af Bónaxi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.