Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
7
Sandkom
Fréttir
Jæja.þáeru
bara íjórir leik-
ireftiráHMí
Bandarlkjun-
um. íþrótta-
fréttamenn
Sjónvarpsins
hafaveríöofar-
legaíhuga
margrabnha-
unnenda að
undanförnu,
enda ieikimir margir og lýsingamar
eftirþví. Sittsýnlst hveijum um þá
kappa.BjamaFel, Samúel, Arnarog
Adolf inga. Sandkorn.sritari hefur
svolítiö fylgst með Adolf, ekki síst tii
aö heyra öll hlátraköllin og upphróp-
in eins og „vuff ‘ og „úffSiðan er
minnissstætt frá því i ieik Bóliviu og
S-Kóreu, sem endaöi 0-0, aö Adolf
sagði að Bóli vía væri „aö vinna sinn
fyrstaleík". Skömmusíðarsagöi
Adolf: „Bólivía situr á botninum rneö
ekkertstig." Erekki bara betraað
halda sig við Júrósport?
Arabía í Afríku?
Áframmeð
lýsingamaraf
HM.BjarniFel
klikkarsjaldan
cneitthvaöhef-
urskoiasttilí
landafræðinni.
Eitt sinn var
honum tíðrætt
umframnú-
stööu Sádi-
Arabíu i keppn-
inni og sagði m.a.: „Afríkuþjóðir hafa
staðiösig vel.“ Samkvæmtþessu
heldurBjarni að Arabíasé í Afríku,
það er næsta víst! Síðan er hérlend-
um boltabullum minnisstætt þ«gat
Bjarni minntist á hollensku tvíbur-
ana Frank og Ronald de Boer og sagði
aðþeirvæm „báðir28ára“!Loksvar
þaö í leik Argentínu og Grikklands
þegar einn leikmaöur lá í valnum og
virtist meiddur. Þá sagði Bjarni:, ,Það
er bannað að vera með blæðtogu inni
ávellinum."
Skotog skalli
Þáeraðeins
eftiraðbaunaá
AmarBjörns
ogSamúelÖrn.
AömatiSand-
kornsritara
hefurArnar,
ásamtGuðjóni
Þórðar, staðið
sigbestenhon-
umfataðist
flugiö íleik
Rúmena og Svía þegar hann sagði um
rúmensku hetjuna Hagi: „Það hefur
verið sagt um Hagi aö hann eigi góða
og slæma leikí." Þetta verður að telj-
ast mjög ígrunduð niðurstaða hjá
Amari! Þáerþað SamúelÖm. „Hann
fuðraóíboltanumútíloftið," sagði
Samúel íleik Kamcnin ogSviþjóðar
og einnig í þeim leik um góöa staö-
setningu varnarmanns: „Hann kom
á réttasta bliki." Þegar Dino Baggio
skallaöi að marki Nígeríumanna
sagðiSammi: „Skotaömarki.ý Þegar
venjulegum leiktíma lauk hjá líalíu
og Nígeríu komst hann svo vel aö
orði: .í’lautað til leiksloka en ekki til
iokaleiks."
Spark í bossann
FráHMí
Bandaríkjun-
umyfiríannað
hem mal, þ.r. ;
þriMfingar.Jti-
hönnuSigurð*
ardótturákröt-
umogöðmm
stuðnings-
mönnum. Rætt
erumaðJó-
hannaætlií
sérframboð og hy ggur á liðskönnun
um landið í því skyni. Á dögunum
birti Sigmund góða skopmynd í
Mogganum af Jóni Baldvin að sparka
Jóhönnu út úr húsi og úti fyrir voru
kjósendur. Magnús Hagalinsson
sendi Sandkomi tvær vísur af því til-
efni í orðastað Jóns og Jóhönnu:
I fvrsta lagi færðu spark .
á Fóngulegan bossa.
í öðru lagi yfir mark
atkvæðtoþérhossa.
Nú er flogiö i flest mín skjól
og friðurinn er rofinn.
Ekkifæégforingjastól
svo flokkurinn er klofmn.
Bæjarstjóm Bolungarvikur:
Boðar til fundar um
breytta f iskveiðistef nu
- verðum að rísa upp, segir Ólafur Kristjánsson
„Það var samþykkt á bæjarstjóm-
arfundi tillaga um að boða sveitar-
stjómarmenn frá öllum stöðum á
Vestfjörðum til fundar. Það er ætlan
okkar að Vestflrðingar komi sér sam-
an um kröfu að breyttri fiskveiði-
stefnu,“ segir Ólafur Kristjánsson,
bæjarstjóri í Bolungarvík.
Ölafur segir að sveitarstjórnar-
menn hafi þegar komið saman og
ákveðið hafi verið að skipa fimm
manna starfshóp, skipaðan einstakl-
ingum frá öllum svæðum á Vestfjörð-
um. Starfshópurinn á að móta tíllög-
ur til Fjórðungsþings Vestfirðinga
sem haldið verður á ísafirði 19. til
20. ágúst nk.
Ólafur sagði ljóst að fiskveiði-
stjórnunin heíði áhrif á stöðu fyrir-
tækja á Vestfjöröum og þess vegna
væri áríðandi að fara ofan í þau mál.
„Við verðum að rísa upp gegn
þessu ástandi. Úttekt DV um helgina,
sem fjallar um ástand vestfirskra
sjávarútvegsfyrirtækja, er ekki orð-
um aukin.
Við verðum að fara ofan í þá stöðu
sem er hér á þessu svæði og við verð-
um að gera þaö af hreinskilni," sagði
Ólafur Kristjánsson.
Vestfirðir:
Nýja sameiningarnef ndin f undar
- Bolvíkingar ekki boðaðir
„Það var gott hljóð í mönnum.
Þetta var fyrsti fundur nýrrar nefnd-
ar. Það var skipað í vinnuhópa sem
eiga að fara í undirbúnings-
vinnuna,“ sagði Þorsteinn Jóhannes-
son, forseti bæjarstjórnar á ísafirði
og formaður samstarfsnefndar um
sameiningu sveitarfélaga á Vest-
íjörðum.
Fundur nefndarinnar var haldinn
að Núpi í Dýrafirði þar sem mættu
fulltrúar frá sveitarfélögum á norð-
anverðum Vestfjörðum. Bæjar-
stjórnin í Bolungarvík sendi þó ekki
fulltrúa til fundarins. Næsti fundur
nefndarinnar verður haldinn í sept-
ember.
Þær sameiningar sem eru helst á
döfinni eru samruni Þingeyrar-
hrepps, Mýrahrepps, Mosvalla-
hrepps, Flateyrarhrepps, Suður-
eyrarhrepps og ísafjarðarkaupstað-
ar.
Að sögn Ólafs Kristjánssonar, bæj-
arstjóra í Bolungarvík, voru Bolvík-
ingar ekki boðaðir til þessa fundar.
„Þess hefur ekki verið farið á leit
við okkur að við tökum þátt í þessum
Mezzoforte í tónleikaferð:
Leikur
í Evrópu
og Asíu
„Mezzoforte hefur aldrei hætt al-
veg og viö gáfum út plötu á síðasta
ári og förum í langt tónleikaferðalag
í haust. Við erum á samningi hjá
Spori sem sér um að semja við erlend
plötufyrirtæki um útgáfu á plötunni
okkar,“ segir Eyþór Gunnarsson,
hljómlistarmaður og meðlimur
hljómsveitarinnar Mezzoforte.
Hljómsveitin leggur land undir fót
í haust og fer í tónleikaferð sem
stendur nokkra mánuði. Fyrst liggur
leiðin til Ungverjalands í september
og þaðan verður farið til Evrópu. í
nóvember og desember ætla strák-
arnir að leika fyrir Asíubúa en til
stendur að leika í Indónesíu, Filipps-
eyjum, Malasíu og fleiri stöðum.
„Við vorum í Indónesíu í fyrra, það
var mjög gaman að spila þar. Það
verður bara að ráöast hvort við gef-
um út plötu í haust. Við ætlum ekki
að sprengja okkur. Það er líklegt að
platan veröi ekki gefin út fyrr en í
byrjun næsta árs,“ segir Eyþór.
„ Jólaplatan er að koma út í Evrópu
og það stendur til að gefa hana út í
sex eða sjö Asíulöndum líka. Amer-
íkumarkaður er ekkert á dagskrá
ennþá því það hefur gengið erfiðlega
að finna útgáfufyrirtæki sem henta
þessari tónlist," segir Eiríkur Ing-
ólfsson, umboðsmaður Mezzoforte.
viðræðum. Sjálfur hef ég persónu- við eigum ekki að sækja um aðild að sameiningarsinni," sagði Ólafur
lega verið að velta fyrir mér hvort þessum viðræðum. Ég er eitilharður Kristjánsson.
Af hverju að kaupa
notaðan bíl þegar þú
getur fengið nýjan
Fiat Uno Arctic
á lægra verði en marga
2-3 ára gamla bíla
af svipaðri stærð?
Fiat Uno Avctic
Bestu bílakaupin!
Verðkr. 779.000
UNO 45 3D
A götuna - ryðvarinn og skráður.
Það borgar sig að gera verðsamanburð
við aðra bíla. Við tökum gamla bílinn
upp í og lánnm allt að 75% kaupverðs
til 36 mánaða.
LTALSKIR BÍLAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • sími (91)887620