Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
Spumingin
Ertu tíður gestur á kaffi
húsum?
Ingibjörg Þórmundsdóttir: Nei.
Inga Dögg Ólafsdóttir: Já, svona
frekar.
Sigríður Magnúsdóttir: Já, svona yfir
sumartímann.
Eva Tómasdóttir: Já, svona frekar
og þá á Hvíta kofanum og Kaffi París.
Ragnar Sævarsson: Nei, hef farið
einu sinni eða tvisvar.
Arnór Ingi Harðarson: Nei, ég get
ekki sagt það.
Lesendur
Haustkosningar enn á döfinni:
Líkurnar auk-
ast verulega
Davíð Oddsson forsætisráðherra. - Hann fer einn með þingrofsvaldið.
Jón Ólafsson skrifar:
Margir héldu að stjórnmálaílokk-
arnir væru dauðir úr öllum æðum
eftir borgar- og sveitarstjórnarkosn-
ingarnar. Aðrir flokkar en Sjálfstæð-
isflokkurinn myndu bara bræða sig
saman og bjóða fram á landsvísu líkt
og gerðist í Reykjavík. Það mun hins
vegar ekki ganga eftir. Og nú eru
haustkosningar ræddar í fjölmiðlun-
um. í DV las ég a.m.k. fjórar greinar
eftir þingmenn í jafnmörgum flokk-
um. Enginn þeirra þvertekur fyrir
haustkosningar.
Björn Bjarnason, alþm. og formað-
ur utanríkismálanefndar Alþingis,
reið á vaðið og sagðist telja vaxandi
þunga í umræðunni um haustkosn-
ingar byggjast á sterkri stöðu ríkis-
stjórnarinnar og þá ekki síst forsæt-
isráðherra. Því væri hins vegar
ósvarað hvort sú sterka staða myndi
styrkjast enn frekar við úrlausn
verkefna fram á næsta ár. Sagði
hann þingrofsvald óskorað í höndum
forsætisráðherra, samkvæmt samn-
ingi sem gerður var við myndun
núverandi ríkisstjómar.
Þingmenn Framsóknarflokksins,
Kvennalistans og Alþýðubandalags-
ins tjáðu sig einnig um haustkosn-
ingar. - Páll Pétursson taldi vafasamt
að forsætisráðherra legði í að rjúfa
þing og taka þá áhættu sem fylgir
því að tefla flokki sínum út úr Stjórn-
arráðinu. Greinileg þreyta væri hins
vegar farin að gera vart við sig í
stjórnarsamstarfinu.
Kristín Ástgeirsdóttir, sem skrifaði
af hálfu Kvennalistans um haust-
kosningar, sagði ýmislegt benda til
aö þær væru komnar á dagskrá. Erf-
ið fjárlög eða kjarasamningar væru
þó ekki sannfærandi rök til stjórnar-
slita. Að öllu samanlögðu taldi hún
þó þjóðinni fyrir bestu að boða til
kosninga strax í haust og ekki stæði
á Kvennalistanum.
í máli Svavars Gestssonar kom
fram greinilegur áhugi á að láta kjósa
í haust, það væri það eina sem væri
rökrétt. Auk erfíðrar fjárlagagerðar,
stórfellds vanda í ríkisfjármálum og
komandi kjarasamninga yrði næsta
þing næsta verksmátt því þar yrði
vart annað rætt til áramóta en fjár-
lögin og svo komandi kosningabar-
átta eftir áramótin.
Auðvitað ræddu þingmennimir
margt annaö, svo sem hugsanlegt
sameiginlegt framboð, en ekki fannst
mér þeir ýkja hrifnir af því að flokk-
ar þeirra hlypu til og settu upp sama
hattinn í landsmálunum. Grundvall-
aratriði flokkanna eru ofarlega í
huga margra og óttinn við að missa
frumkvæði að sköpun þjóðfélagsað-
stæðna á eigin vegum er mikill.
Sagan frá haustinu 1970, í tíð Við-
reisnarstjórnarinnar, skyldi þó ekki
endurtaka sig? Þá átti að vera sam-
ráð um þingrofsvaldið. Sjálfstæðis-
menn vildu þá rjúfa þingið en al-
þýðuflokksmenn komu í veg fyrir
það. Nú eru þessir sömu flokkar við
völd. En nú fer forsætisráðherra einn
með þingrofsvaldiö. - Langt er til
næsta vors og óráðinn stjórnmála-
vetur framundan. Líklega er nú lag
til kosninga - til hagsbóta fyrir alla.
Hér er of hár ef tirlaunaaldur
Kristinn skrifar:
Ég hef lesið talsvert og kynnt mér
stöðu mála í velferðarríkjum Evr-
ópu, og ekki síst á Norðurlöndunum.
Ég er furðu lostinn yfir þeirri út-
komu að í velferðarríkinu íslandi
skuli eftirlaunaaldur vera með því
hæsta sem gerist í Evrópu. Það er í
raun afar niðurlægjandi fyrir okkar
annars ágæta velferðarríki.
Víða komast menn á full eftirlaun
60 ára og svo við 65 ára aldursmark-
ið. En ísland sker sig úr. - 70 ára!
Ég held að verkalýðsforustan ætti að
setja það á oddinn að ísland væri
samstiga öðrum þjóðum í þessum
efnum. Mér finnst að 65 ára aldurs-
markið væri réttlætanlegt og sann-
gjamt fyrir þjóðfélagið. Ég mæli þó
ekki með því að menn væru neyddir
til að hætta vinnu 65 ára, heldur
ættu þeir kost á því ef þeir vildu.
. Ástæða er til að ASÍ og BSRB kanni
þessi mál eins og þau hafa þróast,
t.d. hjá ísal. Líka má benda á að það
ná ekki allir 67 ára aldri og fá því
ekki að njóta lífeyris sem þeir eiga
rétt á. Með breyttu fyrirkomulagi
myndi atvinnutækifærum einnig
fjölga mikið. Þetta hlýtur að vera
stórmál fyrir alla launþega landsins
og flokkast undir kjaramál.
Handknattleikshöll - hvilík sóun:
240 milljónir króna, plús...!
Bjarni Sigurðsson skrifar:
Ég er alveg handviss um eitt, og
það er að þegar lýkur sýningum og
fréttum af heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu, sem er búið að tröllríða
íslenska skylduáskriftarsjónvarp-
inu, þá kemur önnur bylgja, og hún
ekki betri. Nefnilega sífelldar fréttir
og endurteknar um heimsmeistara-
mótið í handbolta sem halda á hér á
landi. - Ég er líka viss um að þær
fréttir endast allt til næsta árs. Það
verða miklar hörmungar fyrir mig
og aöra sem greiðum skylduáskrift
Hringiðísíma
63 27 00
millikl. 14 og 16
-eða skrifið
Nafn og slmanr. verður aó fylgja bréfum
Handboltahöll fyrir 245 milljónir -
bara byggingin, ekki innvolsið, segir
bréfritari m.a.
af sjónvarpi; en ekki til að láta valta
yfir sig sjónvarpsefni þrýstihópa.
Og hvaö sagði ég ekki! í gærkvöldi
var byijað að tala um handboltann
aftur, með því að opna fréttir um
hina fyrirhuguðu handboltahöll. Þar
var rætt við mann sem upplýsti að
„höllin“ myndi kosta um 245 milljón-
ir króna. Og er þá bara verið að tala
um bygginguna sjálfa, ekki innvols-
ið. Það er svo annar handleggur. Og
allt verður þetta rifið af manni með
skörpum klóm hins opinbera, ef þaö
asnast til að játa jarminu um hallar-
bygginguna.
Eg segi fyrir mig og marga aðra
sem eru orðnir næsta orðlausir yfir
þrælsóttanum sem einkennir ríkis-
valdið gagnvart íþróttahreyfmgunni:
Handknattleikshöll - hvílik sóun á
almannafé. Eru ríkisvaldið og þeir
sem þar stjórna orðnir elliærir eða
eru menn þar á bæ einfaldlega svona
vitlausir? Eru engir aðrir í þjóðfélag-
inu sem geta tekið í taumana? Eigum
við alltaf að samþykkja hvað sem
þrýstihópunum dettur í hug - sama
hvort það eru Vestfirðingar með sinn
tilbúna „Vestfjarðavanda" eða hsta-
og íþróttahóparnir?
DV
Máliðpósthúsið
samtílit
Jakob hringdi:
Ég er einn þeirra sem mikiö eru
á ferli í miðbæ Reykjavíkur
vegna viðskipta minna við ýmsar
stofnanir. Ég er hlynntur því að
pósthúsið verði málað. Rautt er
kannski besti liturinn, eftir þvi
sem mér sýnist með litaprufuna
á skiltinu. En hvort sem sá verð-
ur liturinn eða ekki, þá málið
pósthúsið samt í lit. Þessi
steingrái litur á flestum bygging-
um er orðinn yfirgnæfandi og er
leiðigjarn með afbrígðum, Litir
eru í tísku í dag. Það má alltaf
breyta um lit.
Spilltirkratar?
Áslaug skrifar:
Mér þykir Alþýðuflokkurinn
vera orðinn ólíkur því sem hann
var í upphafi og lengi framan af,
þegar forystan fór sér hægt í
gleöisölum og var í beinu jarð-
sambandi við flokksmennina. Nú
sýnist mér hreinlega að forystu-
menn í þessum fyrrum flokki al-
þýðunnar séu orðnir aUspilltir,
sumir hveijir. Forystan er orðin
meira í útlöndum en hér heima
og stór hluti úr frændgarði for-
mannsins er bundinn í Brussel
eða ráöuneytum sem tilheyra
flokksapparatinu. - Guð hjálpi
okkur alþýðufólkinu.
Prestsfrúiná
glerinu
Nonni hringdi:
Allir samtaka á Hornafirði.
Líka prestar og prestmaddömur.
í frétt af „karnivalstemningu" á
Höfti birtist mynd af prestsfrúnni
sem gekk á glerbrotum - og fór
létt með þaö eins og segir i frétt-
inni. Þetta þykii- mér benda til
þess að í prestastétt landsins og
nánustu fylgismönnum þeirra sé
mun meira líf en við höfum áður
reiknað með. Prestshjón hér á
landi eru með lífsglaðasta fólkinu
og sanna það dæmin i fréttum
nýverið, bæði að sunnan og aö
austan. Nú verða Vestfirðingar
og Norðlendingar að fara að
flagga sínum prestum. Hvemig
væri að prófa eldskírn í einhverju
formi, t.d. glóðagöngu eða slíku?
Meðferðiná
Maradona
Elías B. Kárason skrifar:
Margir undrast meðferðina á
Maradona. Á sama tima og O.J.
Simpson viröist ætla aö komast
upp með tvöfalt morð er besti
knattspyrnumaður heims nánast
aflífaöur fyrir að taka inn hósta-
saft! - Snilligáfa Maradona á ekk-
ert skylt við hóstasaft. Þótt hósta-
saft væri dælt i Klinsmann,
Baggio og Romario stæðust þeir
Maradona aldrei snúning. Refs-
ing Maradona hefði átt að felast
í einu gulu spjaldi fyrir gáleysi.
Þá væri skemmtilegasta lið
keppninnar á leið i úrslit. - Þess
í stað sigraði skrifíínnskan og
fótboltinn beið ósigur.
Bifreiðaskodun
íslandsþakkað
Lív Þorsteinsson hringdi:
Ég lenti í því að númer bifreiðar
minnar var fiarlægt af viðkom-
andi aöila, vegna dráttar á skoð-
un. Ég hringdi í ofboði í Bifreiöa-
skoðun fslands til aö kanna málið
og um leið að fá vitneskju um hve
skjótt ég gæti bætt úr þessu. Ekk-
ert var laust fyrir skoðun fyrr en
hinn 25. þ.m., en þó var hliðrað
til fyrír mig með velvilja af-
geiðslustúlku að nafni Vilhelm-
ína og skoöunarmanns (Hall-
dórs). Ég færi þeim bestu þakkir
fyrir afbragðs þjónustu og vel-
vilja i minn garö, þrátt fyrir mis-
tök mín sem ég læt ekki henda
framvegis.