Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Síða 19
18
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
31
Iþróttir
ÓvístmeðDahlin
Óvísl er hvort Svíar geta teflt
fram Martin Dahlin í leik sínum
gegn Brasilíu í kvöld. Dahlin fékk
krampa í kálfa í viöureigninni
gegn Rúmenum á sunnudaginn
og hefur ekki jafnað sig. Það skýr
ist síöar í dag hvort hann verður
meö.
Schwars í leikbanni
Svíar leika án Stefans Schwarz,
sem er i leikbanni, en vonast til
aö geta teflt fram Jonasi Thern
sem var meiddur i leiknum gegn
Rumenum.
Óttastvítakeppni
Brasilíumenn eru smeykir ef
grípa þarf til vítaspymukeppni í
leik þeirra gegn Svíum því í þau
tvö skipti sem þeir hafa lent í
vítaspymukeppni á HM hafa þeir
beðið lægri hlut.
Eru óundirbúnir
Brasihumenn hafa ekki verið
iönir við að æfa sig i vítum og
hafa aðeins eytt síðustu mínútum
á æfmgunum í að taka vítaspyrn-
ur. „Ég ætla ekki að búa mína
menn undir vitakeppni því hvaö
sem gerist í vítaspyrnukeppni er
það slys,“ segir Carlos Alberto
Pareirra, þjálfari Brassanna.
Óttastþáekki
Svíinn Thomas Brolin, eimt af
bestu leikmönnum á HM, segist
ekki óttast Brasilíumenn. „Bras-
ihumenn em kannski með besta
liðið í þessari keppni en við vitum
að knattspyma er knattspyrna.
Allt getur gerst og allir geta unn-
ið alla,“ segir Brolin.
Byrjunarlið ítala
ítalir tilkynntu í gær byrjunar-
lið sitt sem mætir Búlgörum í
kvöld. Liðið er þannig skipað;
Paghuca, Mussi, Costacurta,
Maldini, Benarrivo, Berti, Al-
bertini, D. Baggio, Donadoni,
Casiraghi, R. Baggio. Breytingin
frá leiknum gegn Spánverjum er
sú að Mussi tekur stöðu Tassotti,
Berti kemur inn fyrir Conte og
Casiraghi leikur í stað Massaro.
ítalimiráfrýja
Forráðamenn ítaiska landsliðs-
ins hafa áfrýjað dómi FIFA yflr
Tassotti sem dæmdur var í 8
leikja bann í gær fyrir að nef-
bijóta andstæðing sinn í leik ítal-
íu og Spánar. FIFA dæmdi í mál-
inu eftir að hafa skoðað umrætt
atvik á myndbandi.
ÓsamræmihjáFIFA
Margir muna eftir þvi er ítalinn
Zola var rekinn út af í leik ítala
viö Nígeríumenn og var það væg-
ast sagt vafasamur dómur og
reyndar kolrangur. ítahrnir fóru
þá fram á aö FIFA tæki málið upp
og skoðaði atvikið á myndbandi
en því neituðu hinir háu herrar
hjá FIFA.
Innköstinhverfa
Þeir hjá FIFA eru iðnir við að
breyta leikreglum í knattspyrn-
unni og einn af forráðamönnum
sambandsins lýsti þvi yfir í gær
að brátt heyrðu innköst sögunni
til. Innspörk kæmu í staöinn og
veröur þetta reynt í þremur Evr-
ópudeildum á vetri komanda.
BáðiríbeinniáRÚV
Báðir leikirnir í undanúrsUtum
heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu verða aö sjálfsögöu
sýndir í beinni útsendingu i
kvöld.
Leikur Búlgaríu og Ítalíu hefst
kl, 20.00 og leikur Svíþjóðar og
Brasilíu kl. 23.30.
Iþróttir
Skora þeir í kvöld og koma Svíum í úrslit?
Martin Dahlin, framar á myndinni, og Kennet Andersson verða í fremstu
víglínu Svía í kvöld er þeir leika gegn Brasilíumönnum í undanúrslitum
heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Báðir hafa þeir reynst andstæðing-
um sínum erfiðir í keppninni fram að þessu. Ef Svíar sigra komast þeir í
úrslitaleik á HM í fyrsta skipti í 36 ár. Hinn leikurinn í undanúrsUtunum
er viðureign Búlgara og ítala. Símamynd Reuter
Körfuknattleikur:
Bow til Vals
Jonathan Bow skrifaði í gær-
kvöldi undir samning við úrvals-
deildarlið Vals í körfuknattleik.
Bow er íslenskum körfubolta-
mönnum að góðu kunnur en hann
hefur undanfarin ár leikið hér á
landi, nú síðast með Keflvíkingum.
Bow hætti að leika meö Uðinu áöur
en keppnistímabilinu lauk.
„Við höfum á síðustu vikum átt
í viðræðum við Bow og niðurstaða
þeirra er sú að hann leikur með
okkur á næsta tímabiU. Við teljum
þaö gífurlegan styrk fyrir Uðið að
fá leikmann á borð við Bow. Hann
hefur margoft sýnt að þar er á ferð
snjall körfuboltamaður sem styrk-
ir hvaöa lið sem er. Við Valsmenn
eru bjartsýnir fyrir komandi tíma-
bil en Uðið var að gera góða hluti
undir lok síðasta tímabils," sagði
Rögnvaldur Hreiðarsson, nýkjör-
inn formaður körfuknattleiks-
deildar Vals, í samtali við DV í gær.
Auk Bow hefur Bárður Eyþórs-
son ákveðið að leika með Vals-
mönnum en áður lék hann við góð-
an orðstír með SnæfelU frá Stykk-
ishólmi. Hinn kunni körfuknatt-
leiksþjálfari Ingvar Jónsson, sem
gerðinn garðinn frægan með Hauk-
aliðið, stýrir Valsmönnum eins og
kunnugt er á næsta vetri.
Ólaf ur var dæmdur í
tveggja leikja bann
Aganefnd KSÍ dæmdi í gærkvöldi Ólaf Pétursson, markvörð 1. deildar
Uðs Þórs á Akureyri, í tveggja leikja bann vegna brottvísunar í leik Þórs
og ÍBK í fyrradag.
Tveir félagar Ólafs í Þór fengu eins leiks bann, þeir Lárus Orri Sigurðs-
son og Dragan Vitotovic. Keflvíkingurinn Jóhann B. Magnússon fékk
eins leiks bann vegna brottvísunar í leik ÍBK og Þórs. Nökkvi Sveinsson,
ÍBV, Goran Micic, Stjömunni, og Davíð Garðarsson, Val, fengu eins leiks
bann vegna fjögurra gulra spjalda.
Sláðu inn efnisflokk 1212
VERÐ KR. 39,90 MÍNÚTAN
Kostaboð um byggingu fótboltahallar sem nýttist fyrir HM í handknattleik:
100 milljónir og búið fyrir jól
- segir Jens Ingólfsson hjá Amarhúsum hf., umboðsaðila Electrolux á íslandi
„Umræðan um yfirbyggt gervigras
í Laugardalnum og um leið byggingu
sem myndi hýsa leiki á heimsmeist-
arakeppninni er fyrst og fremst til-
komin vegna tilboðs frá Electrolux
á sínum tíma. Tilboðið sjálft hljóðar
upp á höU sem er 80 x 112,5 metrar
og uppfyUir alla alþjóðlega staðla
um stærð og hæð fótboltahallar.
Sjálf skelin, það er að segja húsið
sjálft, buröarvirki og klæðning, svo
að við séum að bera saman hluti
eins og aðrir eru að gera. Þetta er
boðið með flutningskostnaði, loftræ-
stíkerfi og uppsetningu á Reykjavík-
ursvæðinu fyrir tíu miUjónir dansk-
ar krónur eða um 100 miUjónir ís-
lenskar krónur," sagði Jens Ingólfs-
son hjá Amarhúsum h/f, sem er
umboðsaðUi fyrir Electrolux á ís-
landi, í samtaU viö DV í gær.
„Um er að ræða kaup á húsinu en
þar fyrir utan gerði Electrolux borg-
inni tUboð um að fjármagna heildar-
dæmið, sökkla, ljós, rafmagn, lýs-
ingu, klukkuna og að leigja borginni
í tíu ár sem gerði um tvær milljónir
á mánuði. Umræðan sem nú er í
gangi um að ekki sé hægt að byggja
hús í tíma fyrir HM er alls ekki rétt.
Það var verkfræðistofa sem gerði
þessa útekt fyrir ÍTR sem hún hefur
í höndunum. Þar staðfestir Electro-
lux að húsið geti verið komið upp
fyrir jól. Að vera að tala um að
tæknUæga séð sé óframkvæmanlegt
að koma upp húsi á innan við tíu
mánuðum á ekki við rök að styðj-
ast,“ sagði Jens Ingólfsson.
Jens sagði í samtalinu við DV að
Electrolux hefði reist yfir 2000 hús
að þessu tagi víðs vegar um Evrópu.
Húsið hefur fengið viðurkenningu
Rannsóknastofnunar byggingar-
iðnaðarins og uppfylUr alla íslenska
staðla.
Bláskógaskokk
Hið árlega Bláskógaskokk verð-
ur haldið á sunnudaginn kemur,
17. júlí. Hlaupið hefst \nð Gjá-
bakka austan Þingvallavatns og
lýkm* á Laugarvatni. Vegalengdir
verða 16,1 km og 3 km skemmti-
skokk. Skráningar þurfa aö be-
rast til skrifstofu HSK, Engjavegi
44, Selfossi, fyrir 22 á fimmtu-
dagskvöld, 14. júlí, Skráningar-
gjald er 600 kr.
Þórunit tii Víkings
Þorsteirm Gunnarssan, DV, Eyjum;
Þórunn Jörgensdóttir, mark-
vörður ÍBV í handboltanum, hef-
ur gengið til Uðs við íslands- og
hikarmeistara Víkings. Þórunn,
sem er 29 ára og hefur leikið með
ÍBV allan sinn feril, sagði að hún
vildí einfaldlega breyta til. Það
væru tveir rnjög efnilegir mark-
verðir hjá ÍBV þannig að brott-
hvarf sitt ætti ekki að koma að
sök.
Stjömustúikur í Fylki
Þá hafa tvær Stjörnustúlkur
ákveðið að leika með Fylki í 1.
deild kveima í handboltanum
næsta vetur. Það eru þær Þuriður
Hjartardóttir og Sólveig Guð-
mundsdóttir. Fylkir ætlar sér
stóra hluti á næsta keppnistíma-
biU og hefur ráðið Hauk Ottesen
sem þjálfara félagsins.
GytfiístaðJóns
Ákveðið var i gær að Gylfi
Orrason yröi dómari á bikarleik
Skagamanna og KR-inga á fóstu-
dagskvöldið í stað Jóns Sigur-
jónssonar.
Greint var frá þessu í ellefu
fréttum Sjónvarps í gærkvöldi.
Þar sagði einnig að skiptingin
hefði farið fram að ósk Eggerts
Magnússonar, formanns KSj
Staðan er nú þannig í 1. deild eft-
ir leik FH og Fram í gærkvöldi:
FH - Fram...................1-2
Akranes.....
FH..........
Keflavík....
KR................
Fram........
Þór.........
Valur.......
ÍBV.........
Stjarnan....
UBK.........
9 6 2 1 16-4 20
9 5 2 2 8-5 17
9 3 5 1 14-8 14
9333 13-7 12
9 2 5 2 15-15 11
9243 15-12 10
9 2 3 4 8-16 9
9 1 5 3 6-10 8
9 1 5 3 8-13 8
9 2 2 5 9-22 8
Markahæstir:
Bjami Sveinbjömsson, Þór..7
RJkharðurDaðason.Fram6
ÓUÞórMagnússon, ÍBK.......6
Miliajlo Bibercic, ÍA.....6
Helgi Sigurðsson.Fram.....5
Tómas Ingi Tómasson, KR...4
Leifur G. Hafsteinsson, Stjörn.... 4
Helgi Sigurðsson gerði oft usla i FH vörninni í fyrri háifleik og hér á hann í höggi við hina sterku varnarmenn í FH þá Petr Mrazek og Ólaf Kristjánsson.
Kærkominn sigur
- sagði Rikharður Daðason sem skoraði bæði mörk Fram 1 sigrinum á FH
u
Guðmundur Hilmarsson skrfer:
„Þetta var virkilega kærkominn sigur
enda búið að bíða lengi efir honum. Við
urðum að sigra til að koma okkur upp
úr botnbaráttunni og náðum með sigr-
inum að rífa okkur upp í 5. sætið. Þó
svo að við höfum ekki verið að spila
okkar besta leik í sumar urðu úrsUtin
loks okkur í vil. Við vomm sterkari
aðiUnn í fyrri hálfleik en í þeim síðari
fengum við á okkur óþarflega mikla
pressu," sagði Ríkharður Daðason, leik-
maöur Fram, við DV eftir að Framarar
höfðu unnið 1-2 sigur á FH í Kaplakrika
í íjörugum leik.
Þetta var annar ósigur FH-inga í sum-
ar og þegar fyrri umferð íslandsmótsins
er lokið er liðiö þremur stigum á eftir
Skagamönnum í öðm sæti. Framarar
eru einnig með tvö töp á bakinu eftir
fyrri umferðina en þetta var þó aðeins
annar sigur Uðsins í mótinu.
Framarar voru sterkari aðiUnn í fyrri
hálfleik, sem fór rólega af stað, en þrátt
fyrir það voru Hafnfirðingar fyrri til
að skora og var markaskorarinn mikU
Hörður Magnússon þar að verki eftir
laglega sókn en þetta var um leið hans
fyrsta mark í Trópí-deildinni. Eftir
markið hertu Framarar tökin og tókst
að jafna metin og voru klaufar að vera
ekki yfir þegar flautað var til leikhlés
en þeir misnotuöu nokkur góð færi.
Þorsteinn Jónsson gat þó hæglega kom-
ið FH yfir rétt fyrir hlé en hann brenndi
tvívegis af úr góðum færum.
Framarar fengu fyrsta færið í upp-
hafi síðari hálfleiks en eftir það tóku
FH-ingar völdin. Hörður Magnússon
var mjög ógnandi í sóknarleik FH og
hann var nálægt því að koma FH í for-
ystu en Birkir gerði vel að verja frá
honum í tvígang. Sigurmark Fram kom
því þvert gegn gangi leiksins.
Eftir markið bökkuðu Framarar aftar
á völlinn og síðasta stundarijórðunginn
sóttu FH-ingar fast að Fram markinu
og oft skall hurð nærri hælum en hin-
um megin bjargaði Stefán vel eftir að
Helgi slapp inn fyrir. Þegar tvær mínút-
ur voru til leiksloka jafnaði varamaður-
inn Atii Einarsson metin fyrir FH en
Sæmundur Víglundsson lyfti flaggi
sínu til merkis um rangstöðu. FH-ingar
voru ósáttir við þann dóm en honum
var ekki breytt og skömmu síðar var
flautað til leiksloka.
„Það virðist vera núna að við þurfum
að fá á okkur mark eða vera undir til
að liðið fari að spila. Framarar fengu
eitt til tvö færi í síðari hálfleik en við
sex til sjö góð færi og við áttiun að gera
út um leikinn. Framarar voru okkur
erfiðir í þessum leik og mér finnst Fram
vera besta Uðið sem ég hef leikið á móti
í sumar," sagði Hörður Magnússon,
markaskorari FH, við DV eftir leikinn.
Auðvitað var gott að skora og það má
segja að þungu fargi sé af mér létt. En
ég er óhress með að hafa ekki gert fleiri
sagði Hörður ennfremur.
FH-ingar voru daufir í fyrri hálfleik
en í þeim síðari var allt annað að sjá
til liðsins. Hörður Magnússon og Jón
Erling voru sprækir og sérstaklega var
gaman að sjá til Harðar sem virðist nú
vera að nálgast sitt gamla form. Pod-
unavac og Olafur fyrirliði stóðu fyrir
sínu en aðrir voru minna áberandi.
Framarar léku fyrri hálfleikinn mjög
vel en í þeim síðari misstu þeir taktinn
og voru heppnir að fá ekki á sig mark.
Helgi og Ríkharður voru skæðir frammi
og vel mataðir af Hólmsteini og Kristni.
Pétur stjómaði vöminni af festu og
þeir Helgi og Ágúst voru sterkir.
Björgvin í Selfoss
Sveinn Helgason, DV, Selfossi:
Björgvin Rúnarsson úr IBV leikur samkvæmt áreiöanlegum heimildum DV með
liði Selfyssinga í 1. defldinni í handknattieik á næsta leiktímabili.
Félagaskipti hans munu vera svo til frágengin. Björgvin er fjölhæfur leikmaður
sem mun styrkja hð Selfyssinga mikið. Hann ætiaði um tíma aö leika með liði Aftur-
eldingar næsta vetur en hætti við þau áform.
m r
Sigurður Emarsson varð í 8. sæti í spjétkasti á Grand Prix móti í ftjáls-
um íþróttum í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sigurður kastaði 76,18 metra en
Jan Zelezny frá Tékklandi sigraði og kastaði 83,10 metra.
Dennis Mitchell, Bandaríkjunum, hljóp 100 m hiaup á 9,97 sek. Sergei
Bubka reyndi við heimsmet í stangarstökki, 6,15 m, en tOraun hans rais-
tókst. Irina Privalova setti vallarmet er hún sigraði í 100 m lOaupi kvenna
og í 200 m hlaupinu sígraði hún einnig á 20,02 sek.
Hákon Gunnarsson, formaöur HM ’95:
„Ábyrgðinni velt
ámilliþartil
ekkert geríst"
„Ég vissi ekki betur og stóð í þeirri
meiningu að bæði framboöin fyrir
borgarstjórnarkonsingarnar hefðu
sett byggingu húss fyrir heimsmeist-
arakeppnina á loforðahstann. í dag
telja menn hins vegar þessa bygg-
ingu tæknilega óframkvæmaiega
fyrir tOsettan tíma. Mér sýnist menn
vera að velta ábyrgðinni hvor yfir
annan þangað til ekkert gerist," sagði
Hákon Gunnarsson, formaður fram-
kvæmdanefndar HM ’95 á íslandi, í
samtah við DV í gær.
í skýrslu, sem Reykjavíkurborg lét
vinna fyrir sig, kemur fram að ekki
næðist að byggja nýtt íþróttahús fyr-
ir HM í handknattleik á næsta ári,
þá tíu mánuði sem til stefnu eru. Úr
því sem komið er mun vera rætt um
þessa stundina að reisa bráðabirgða-
hús austan við Laugardalshöllina.
Niðurstöðu úr þeirri athugun er að
vænta á allra næstu dögum.
„Ég átti satt best að segja ekki von
á þessari niðurstöðu ef hægt er að
tala um slíkt. Mér finnst að menn
verði að taka ábyrga afstöðu í þessu*
mikilvæga máli. Ef farsæl lausn fæst
ekki hefur hún í fór með sér tvíþætt-
ar afleiðingar, annars vegar verða
tekjur af keppninni langtum minni
heldur þær gætu orðið og í öðru lagi
verður umgjörð keppninnar tæpast
boðleg. Öryggi áhorfenda verður
sömuleiðis áfátt," sagði Hákon
Gunnarsson.
DV-mynd ÞÖK
meistaratitilinn í knattspyrnu og að þeir síðarnefndu verði heimsmeistar-
ar. Nýr símaleikur hefur staðið yfir i DV síðan á mánudag þar sem lesend-
um DV hefur verið gefinn kostur á aö spá fyrir um sigurvegara leikjanna
í kvöld meö því aö hringja í síma 99-1750. Af þehn 446 sem spáðu fyrir
um leik Itala og Búlgara spá 305 ítölum sigri en 138 veðja á Búlgara og af
322 þátttakendum spáðu 240 Brasihumömtum sigri á Svíum á móti 80.
475 manns hringdu og spáðu fyrir um væntanlega heimsmeistara og þar
var niðurstaðan: Brasiha 219, ítaha 117, Búlgaría 93 og Svíþjóð 45.
FH-Fram
(1-1) 1-2
1-0 Höröur Magnússon (19.) Jón Erling átti fallega sendingu inn fyrir flata
vörn Fram á Podunavac sem sendi fyrir markið á Hörð og hann skoraði
af stuttu færi.
1-1 Ríkharður Daöason (26.) Kristinn Hafliðason sendi knöttinn inn í víta-
teig á Ríkharð sem skoraði með viðstöðulausu þrumuskoti.
1-2 Ríkharður Daðason (71.) Hólmsteinn Jónasson sendi fyrir mark FH
frá hægri. Þar mistókst vamarmanni FH að hreinsa, boltinn féh fyrir fætur
Ríkharös sem þrumaði honum í Stefán markvörð og þaðan fór hann neöst
í markhomið.
Lið FH: Stefán Amarson - Petr Mrazek, Ólafur H. Kristjánsson, Auðun
Helgason - Þorsteinn Halldórsson (Atli Einarsson 78.), Drazen Podunavac,
Andri Marteinsson, Þorsteinn Jónsson, Þórhallur Víkingsson (Ólafur B.
Stephensen 78.) - Jón E. Ragnarsson, Hörður Magnússon.
Lið Fram: Birkir Kristinsson - Pétur Marteinsson, Helgi Björgvinsson,
Ágúst Ólafsson - Gauti Laxdal, Steinar Guðgeirsson, Valur F. Gíslason,
Kristinn Hafliðason (Anton B. Markússon 82.), Hólmsteinn Jónasson - Rík-
harður Daðason, Helgi Sigurðsson.
FH: 13 markskot, 10 hom. Fram: 11 markskot, 9 hom.
Gul spjöld: Anton B. Markússon (Fram).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Jón Sigurjónsson sem dæmdi í heildina nokkuð vel.
Áhorfendur: Um 1000.
Skilyrði: Hægviðri, skýjað með köflum og hlýtt. Vöhurinn háll en mjög
góður.
@0 Ríkharður (Fram).
0 Ólafur K. (FH), Podunavac (FH), Hörður (FH), Jón Erhng (FH), Birk-
ir (Fram), Helgi B. (Fram), Ágúst (Fram), Kristinn (Fram), Helgi S.
(Fram).
Maður leiksins: Rikharður Daðason (Fram). Var mjög sprækur og ógn-
andi í sóknarleik Framara, skoraði tvö falleg mörk og var BÍvinnandi.
-4~.