Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1994 Fréttir Erlend flárfesting 1 sjávarútvegi: Hlýtur hljómgrunn meðal hagsmunaaðila - þó aðallega í fiskvinnslimm Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra lýsti því yfir í síðustu viku aö rétt væri aö leyfa útlendingum að fjárfesta í grundvallaratvinnugrein- um okkar, þar á meðal sjávarútvegi. Það vantaði áhættufé í sjávarútveg- inn. Ýmsir hafa tekið undir þetta, meðal annarra Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum. í samtölum DV við aðila í sjávarút- veginum kemur fram að menn eru ekki fráhverfir því að rýmka mögu- leika á útlendri fjárfestingu. Áhug- inn virðist þó meiri hvað varðar fjár- festingu í fiskvinnslunni en hún stendur sem kunnugt er mjög illa. Þeir aðilar sem DV talaði við voru margir á því að rýmka þyrfti reglur um erlenda íjárfestingu. Það væri mikil þörf á áhættufé inn í sjávarút- veginn almennt. Aðrir telja þó að með því að opna fyrir erlenda fjár- festingu sé opnaö á aö útlendingar nái yflrhöndinni yfir auðlindinni. „Ég óttast það ekki. Útlendingar bíða ekki í röðum eftir að geta fjár- fest hérna. Mér sýnist arðsemin í sjávarútveginum ekki vera slík að það sé mjög eftirsóknarvert. Viö skulum átta okkur á því að 90% af fjármagninu í sjávarútveginum síð- astliðin hundrað ár eða svo er erlent fjármagn, bæði fjárfestingar- og rekstrarfé. Við höfum borgað vexti af því. Útlendingar hafa haft arð af íslenskum sjávarútvegi með vöxtun- um og stundum hafa þeir verið mjög háir. Erlent fjármagn í sjávarútveg- inum er ekkert nýtt. Þaö hefur bara verið í formi lánsfjár. Spurningin er þá bara hvort eitthvað sé við það að athuga að þetta fjármagn sé í formi áhættufjár," segir Gunnar Ragnars, forstjóri Útgerðarfélags Akur- eyringa. „Mér finnst rétt að slaka á hömlum varðandi fjárfestingu útlendinga í sjávarútvegi. Það þarf að vísu að vera hrein íslensk eignaraðild hvað snertir veiðarnar vegna þess að það getur verið varasamt að hleypa út- lendingum inn í auðlindastofninn. Ég sé hins vegar ekkert því til fyrir- stöðu að útlendingar megi vinna flsk og reka verksmiðjur og annað þess háttar. Reglurnar eru þannig í dag að útlendingar mega kaupa frystan fisk hér og endurvinna hann hvar sem er. Hvers vegna mega þeir þá ekki kaupa ferskan fisk og vinna hann í neytendapakkningar í stað þess að taka millitilbúna vöru. Okk- ur vantar áhættufjármagn og það virðist enginn geta lagt peninga í nýja hluti í sjávarútvegi í dag. Út- lendingar hafa ekki fjárfest hérna svo nokkru nemi. Ég veit að ef ein- hver áhugi er úti í heimi til að fjár- festa á íslandi þá er það í sjávarút- veginum. Við þurfum að lokka íjár- festa til okkar með því að opna regl- urnar,“ segir Benedikt Valsson, framkvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasambands íslands. Skiptar skoðanir eru í stjórnmála- flokkunum um fjárfestingu útlend- inga í sjávarútveginum. í samtali við DV í gær sagði Kristín Ástgeirsdótt- ir, þingkona Kvennalistans, að nokk- ur hljómgrunnur væri innan Kvennalistans fyrir að opna fyrir einhverja fjárfestingu í sjávarútveg- inum. Hún sagði að þaö þyrfti sterk rök fyrir því að loka eingöngu á er- lenda fjárfestingu í sjávarútvegi en ekki öðru. ísland kynnt sem fýsilegur kostur fyrir erlenda gárfesta: Verðum að fara að svara bréf um - segir Sighvatur Björgvinsson og er ómyrkur í máli Sighvatur Björgvinsson viðskipta- ráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi fyrir helgi tillögur nefndar um hvernig auka megi fjárfestingar er- lendra aðila á íslandi. Tillögurnar miða að því aö samræma aðgerðir um hvernig kynna megi ísland sem fýsilegan kost fyrir erlenda fjárfesta og sjá til þess að fyrirspurnum sé svarað. Nefndin var skipuð í vor til að kanna hvaða aðferðir ætti aö nota. Tillögurnar fela í sér tvö meginat- riði. Annars vegar er lagt tíl að verk- takasamningur verði gerður við út- flutningsráð um að ráðið taki að sér að veita svör og upplýsingar um ís- land fyrir erlenda fjárfesta. Hins veg- ar er lagt til að iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytið taki að sér samræmingu þessa kynningarstarfs. í því skyni verði ráðinn sérstakur starfsmaður sem fái svonefnda markaðsnefnd sér tU ráðgjafar með fulltrúum nokkurra hagsmunaaðila. Verkefni markaðs-. nefndarinnar verður að taka við öll- um fyrirspurnum og bera ábyrgð á því að þeim verði svarað. „MáUð er að mikill misbrestur hef- ur verið á því að fyrirspurnum sé svarað. íslendingar svara yfirleitt ekki bréfum og ef þeir svara þeim þá svara þeir með hundshaus. Mark- aðsnefndin þarf að leita samstarfs viö stjórnvöld og sveitarfélög um að bjóða erlendum fjárfestum upp á ein- hveria kosti sem liggja alveg ljósir fyrir,“ sagði Sighvatur. Afskaplega skrítin þjóð Sighvatur sagði að þegar íslending- ar töluðu um erlendar fjárfestingar kæmi í ljós að þjóðin væri „afskap- lega skrítin." „Hún hefur staðið í þeirri trú að fyrir utan þessa rammgerðu múra, sem við höfum byggt í kringum okk- ar Utla eyriki, séu þúsundir auð- manna sem eigi engan draum heitari en að koma hingaö inn með pening- ana sína og kaupa upp allt íslenskt atvinnulíf. Þjóðin hefur sömuleiðis staðið í þeirri trú að fyrir utan múr- inn standi hundruð þúsunda ítalskra og spænskra verkamanna sem eigi enga ósk heitari en að koma hingað og komast á „sósíaUnn". Síðan þegar þessi múr er rofmn og hræddir ís- lendingar líta út um gættimar kem- ur í ljós að fyrir utan eru bara engir útlendingar." Sighvatur sagði áð engar fyrir- spurnir hefðu borist frá útlönduni um fjárfestingar og aöeins fimm út- lendingar af EES-svæðinu heföu komið og beðiö um vinnu hér á landi. Gamalt timburhús við Hverfisgötuna var i gær flutt i Grjótaþorpið þar sem það var talið þrengja um of að svokölluðum Lýðveldisgarði sem útbúinn hefur verið austan við Þjóðleikhúsið. Húsið var upphaflega byggt um alda- mótin og var eitt af elstu húsunum við Hverfisgötu. Fyrir skömmu kom upp eldur í húsinu en það skemmdist ekki meira en svo að ákveðið var að lagfæra það og flytja. Um ókomna tíð mun það standa á nýjum grunni bak við Hlaðvarpann í þyrpingu annarra gamalla timburhúsa. Það má þvi segja að húsinu hafi verið sýndur fullur sómi með flutningnum. DV-mynd Sveinn Stuttar fréttir Heiiursumarfundur Þingflokkur Sjálfstæðisflokks kemur saman annað kvöld til að ræða Evrópumálin og stjórn- málaástandið. Reikna má með deilum í þíngflokknum um ESB- aðild og haustkosningar. Vélar seljast iila Sala á dráttarvélum dróst sam- an um rúmlega þriðjung fyrstu sex mánuði ársins. Alls voru 73 dráttavélar nýskráðar á timabil- inu. Skv. RÚV hefur sala á öðrum landbúnaðartækjum einnig minnkað. Námskeið fyrir nýbúa Fjögurra vikna námskeið fyrir nýbúa hófst í Reykjavík í gær. Um 140 manns taka þátt í því, börn og fullorðnir. Af þessum hóp eru 20 böm nýkomin til landsins. RÚV greindi frá þessu. Mikil hlutabréfaviðskipti Mikil viöskipti vom með hluta- bréf á Viðskiptaþingi í gær. Skv. RÚV hefur ekki veriö jafnmikil gróska í viðskiptunum undan- farna tvo mánuði. Kynrsetning í athugun Útgerð Fishermans áætlar að senda togarann til veiða í kvöld þrátt fyrir að ekki sé búið að gera upp viö fyrri áhaihir. Sjómanna- félag Reykjavikur hefur undan- farið kannað möguleikana á kyrrsetningu togarans. Óánægja meðal Grundfirðinga með löggæslu á dansleik í Ólafsvik: Blóðug hópslagsmál brutust út að loknum dansleik „ Við vorum of fámennir þama. Við fómm þrír þama upp eftir og það var strax maður handtekinn. Einn okkar þurfti að gæta hans og síöan fór slas- að fólk líka inn í bíl og einn maður sem var á staðnum sat yfir því. Þá voru bara tveir lögreglumenn eftir og þeir voru í botnlausri vinnu við aö skilja fólk að. Þeir höfðu lítinn tíma til aö taka menn úr umferð. Þá voru tveir aörir á vakt og vom þeir fastir við yflrsetu niðri á stöð,“ sagði Gísli H. Wiium, lögregluþjónn í 01- afsvík, í samtali við DV. Síðastliöið laugardagskvöld og að- faranótt sunnudags var haldinn dansleikur í félagsheimilinu í Ólafs- vík þar sem SSSól spilaði. Mikill mannfjöldi sótti dansleikinn og að honum loknum kom fjöldi fólks sam- an fyrir utan félagsheimilið og brut- ust þar út blóðug slagsmál. Að sögn sjónarvotta var um hópslagsmál að ræða þar sem Ólafsvíkingar réðust gegn Grundfírðingum. Sömu heim- ildir herma að hnefum hafi óspart verið beitt og sparkað I fólk þar sem það lá óvígt í götunni eftir átökin. Voru þess dæmi aö ungar stúlkur hafl beitt sér af hörku í átökunum. Flytja þurfti 5 manns, sem höfðu fengið skurði, glóðaraugu og aðra áverka, á heilsugæslustöðina í Ólafs- vík. Samkvæmt upplýsingum lögreglu í Grundarfirði hafa 3 kærur borist til hennar vegna átakanna og eru kærendur á aldrinum frá tvítugu og upp í fertugt. Þá gistu 3 til 4 fanga- geymslur lögreglunnar í Ólafsvík vegna átakanna. Málið er á frumstigi rannsóknar. Sjónarvottar að átökunum og for- eldrar í Grundarfirði eru mjög ó- ánægð með framgöngu lögreglu og telja hana á engan hátt hafa ráðið viö átökin. Ólafur K. Ólafsson sýslumaður sagðist í samtali við DV einungis geta fjáö sig um umrætt atvik al- mennt þar sem hann væri aö koma úr sumarfríi. „Við þurfum að fara ákaflega spar- lega með fjármuni embættisins og þurfum að spara mjög aukamenn hveiju sinni. Almennt talað getum við aldrei séð fyrirfram hvemig dansleikur þróast. Það getur verið fjölmenni og allt fer fram með ró og spekt. Það getur líka verið sami fjöldi og allt fer úr böndunum. Þetta eru hlutir sem við getum ekki séð fyrir. Við reynum að áætla hvaða fjölda lögreglumanna þarf hverju sinni en hvernig hlutir fara getum við aldrei séð fyrir,“ sagði Ólafur. Eðvarð Árnason, yfirlögregluþjónn á Snæfellsnesi, segir að ekki hafi verið búist við látum sem þessum eftir dansleikinn. í sama streng tók reyndar Gísli og sagði ólagtin hafa komið sér mjög á óvart. Sagði Eövarð að ef haft væri í huga að sumar hljómsveitir lykju dansleikjum sín- um með hröðustu lögunum kæmi ekki á óvart að menn væru æstir þegar þeim lyki skyndilega. Hljóm- sveitarmeðlimir þyrftu að hafa í huga að oft væri betra að hætta með rólegri lögum til að róa gesti niður og þá væri síður von á svona uppá- komum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.