Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1994
íþróttir
Settitvöheimsmet
Rússinn Syrtsov setti tvö
heimsmet í Iyftingakeppni Friö-
arleikanna í Pétursborg, lyfti
227,5 kg í 99 kg þyngdarflokkí og
annað met í samanlögðu, 417,5 kg.
Chemerkin sterkur
Andrei Chemerkin frá Rúss-
landi bætti síðan við þriðja
heimsmetinu í Pétursborg. Che-
merkin snaraði 201 kg í 108 kg
þyndarflokki. Hann átti einnig
fyrra raetið sem var 200,5 kg.
Chemerkin hefur oft verið nefnd-
ur sterkasti maður heims.
DumastilAþenu?
Grísk félög sýna bandarískum
körfuboltamönnum enn roeiri
áhuga enda virðast peningar nóg-
ir i þessum bransa þama suður
frá. Nú hefur Olympiakos lýst
yfir áhuga á að fá Richard Dumas
frá Phoenix Suns fyrir tímabiliö
í vetur. Dumas er í sumarfríi á
Grikklandi en segist skoða það
með opnum huga hvað gríska lið-
ið hefur upp á bjóða.
EdbergogGrafunnu
Svíinn, Stefan Edberg, sigraði á
tennismóti sem lauk í Washing-
ton í fyrrinótt. Edberg sigraði
Jason Stoltenberg frá Astralíu í
úrslitum, 6-J, 6-2. Á sama tíma
sigraði þýska stúlkan Steffl Graf
á móti í New Jersey, sigraði þar
Iisu Raymond irá Bandaríkjun-
um í úrslitum, 4-6, 6-4, 6-1.
RússarlögðuKana
Rússar lögðu Bandaríkin, 77-75,
í körfuknattleikskeppni friöar-
leikanna. Rússar áttu í hinu
mesta basli meö bandarísku
unglingana. Úrslit í öðrum leikj-
um, Ítalía - Króatía, 79-77, Puerto
Rieo-Brasilía, 109-98, Argent-
ína-Kína, 74-49, ítalía - Puerto
Rico, 83-69, Brasilía-Króatia,
98-94, Bandaríkin - Kína 89-80 og
Rússland-Argentína 89-80. í
undanúrslitum leikur Ítalía viö
Bandaríkin og Rússland við Pu-
erto Rico.
Bonnerþjálfari
Pat Bonner, markvörður írska
landsliðsins á heimsmeistara-
keppninni í Bandaríkjunum,
mun gerast einn af þjálfurum hjá
Glasgow Celtic en þar hefur liann
veriö markvörður um alllangt
skeiö. Um tíma var taliö að hann
yrði markvörður hjá Kilmarnock
en hætt var við þau áform.
Bayemtapaði
Bayern Miinchen, sem flestir
spá að vinni þýsku deildina í ár,
tapaði i úrshtum fyrir Flamengo
frá Rio de Janeiro, 3-1, á alþjóða-
móti sem lauk í Malasíu um helg-
ina. Þýsku félögin æfa af kappi
þessa dagana en deildin hefst 19.
ágúst.
Amuniketýndiir
Þýska knattspymufélagiö Duis-
burg hefur keypt Nígeríumann-
inn snjalla, Emmanuel Amunike,
frá Zamalek í Egyptalandi. Þjóð-
verjarnir vita hins vegar ekkert
hvar Araunike er niðurkominn,
hann er ekki mættur til Duisburg
og helst er talið að hann sé enn
heima í Nígeríu.
Daoudi til Frakklands
Rachid Daoudi, einn besti leik-
maður Marokkó í HM, er kominn
á samning þjá St. Etienne i
Frakklandi en hann lék meö
Wydad Casablanca í heimalandi
sínu.
Battylengifrá?
Útht er fyrir að enski landshðs-
maðurinn David Batty, sem leik-
urmeðBlackburn, missiaffyrstu
þremur mánuðum komandi
timabils í ensku knattspymunni.
Batty þarf aö gangast undir að-
gerð vegna þess að beinbrot greri
ekki sem skyldi.
Landsmótið í golfi á Akureyri:
Æsispennandi
í 1. f lokknum
- meistaraflokkar hefja leik 1 dag
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Sigurður H. Ringsted, GA, hefur
nauma forystu í 1. flokki karla en
keppni í flokknum hófst í gær á
landsmótinu á Akureyri.
Sigurður lék fyrstu 18 holurnar á
73 höggum en Einar B. Jónsson,
GKj, kemur fast á hæla honum á 74
höggum. Þrír kylfingar léku á 75
höggum, Ómar Halldórsson, GA,
Skúli Ágústsson, GA og Fylkir Þór
Guðmundsson, GÓ.
Keppni er hálfnuð í 3. og 2. flokki
karla og er staða efstu manna þannig
eftir 36 holur:
3. flokkur karla
1. Tómas Karlsson, GA............164
2. Sigurður Kristinsson, GÓ......170
3. Bjami K. Guðlaugsson, GJÓ..174
4. Axel Þ. Rudolfsson, GR......176
2. flokkur karla
1. Hinrik Hilmarsson, GR.......158
2. Ingvar Ingvarsson, GS......161
3. Ingvar Ágústsson, GR.......161
4. SigurðurHreinsson,GH.......162
5. Bjami G. Bjarnason, GA.....163
200golfkúlurfarnar
Kylfingar fá sem kunnugt er golf-
kúlu fyrir að leika holu á höggi
undir pari á landsmótinu. Nú þegar
hafa tæplega 200 kylfingar leikið
holur undir pari og meistaraflokk-
arnir ekki enn byrjaðir.
Keppni í meistaraflokki karla og
kvenna hefst í dag og lýkur á föstu-
dag.
Stjarnan í
fyrsta sinn í
undanúrslit
- eftir sigur á Fylki, 1-3
Bjöm Leósson skrifar:
„Þetta var mjög erfiður leikur og
baráttan var hörð. Fylkisliðið hefur
mörgum góðum einstaklingum á að
skipa og var engan veginn auðsigrað.
Þær sögur sem gengu fyrir leikinn
aö ég hafl ekki mikla trú á Fylkislið-
inu eru alrangar. Ég er mjög ánægð-
ur með sigurinn og við áttum hann
fylhlega skilinn, sagði Sigurlás Þor-
leifsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir
1-3 sigur á Fylki í Mjólkurbikarnum
í Árbænum í gærkvöld. Stjarnan er
komin í undanúrslit í keppninni í
fyrsta sinn.
„Það er dýrt að spila þessa leiki.
Dómaramir eru mjög spjaldaglaöir
þessa dagana og við eigum á hættu
að missa menn í bann í mikilvægum
leikjum í deildinni fyrir vikið. En
fyrir sigur í bikarkeppninni er ég til-
búinn að fórna hverju sem er. Óska-
mótherjamir í undanúrslitum eru
Þór eða Grindavík. Ég vil heldur fá
KR í úrshtaleiknum, sagði Sigurlás.
Leikurinn fór rólega af stað og það
var ekki fyrr en eftir tæpan hálftíma
að til tíðinda dró. Ragnar Gíslason
tók hornspyrnu og upp úr henni
skoraði Lúðvík Jónasson með skalla
af stuttu færi. Eftir markið lifnaði
yfir Fylkismönnum og fór Þórður
Gíslason einkum fyrir þeim. Stjömu-
menn voru samt áfram sterkari aöil-
inn.
Fylkismenn freistuðu þess að jafna
í síðari hálfleik, en Stjörnumenn
refsuðu þeim með marki á 64. mín.
Baldur Bjarnason gaf fyrir frá vinstri
á Ottó Karl Ottósson sem lagði bolt-
ann fyrir sig og skoraði af öryggi.
Stjörnumenn voru klaufar að bæta
ekki við þriðja markinu skömmu síð-
ar. Fyrst varði Kjartan Sturluson
markvörður skot Baldurs og síðan
varði varnarmaður á marklínu frá
Leifi Geir. Fylkismenn minnkuðu
muninn á 76. mín. Þórður átti glæsi-
sendingu á Ómar Bendtsen sem
skoraði í bláhomið hjá Sigurði. Á 84.
mín. var Baldur aftur á ferðinni á
vinstri kantinum, gaf fyrir á Bjarna
Gauk Sigurðsson sem skoraði af
stuttu færi.
Axel Ingvarsson, Fylkismaður, var
rekinn af leikvelli undir lokin með
sitt annað gula spjald.
í jöfnu liði Stjömunnar áttu þeir
Ragnar, Baldur, Lúðvík og Ottó Karl
allir góðan leik. Hjá Fylkismönnum,
sem léku án þeirra Þórhalls Dans og
Aðalsteins Víglundssonar sem báðir
voru í leikbanni, vom þeir Þórður
og Ásgeir Már Ásgeirsson bestir.
Góður dómari leiksins var Bragi
Bergmann.
100 metramir á Friðarleikuninn:
Mitchell vann Burrell
Bandaríkjamaðurinn Dennis Mitchell vann sætan sigur á landa sínum,
heimsmethafanum Leroy BurreU, í 100 metra hlaupi á Friðarleikunum í
Pétursborg í gær. MitcheU, sem var aðeins boðið á leikana eftir að Lin-
ford Christie boðaði forföll vegna meiðsla, hljóp á 10,07 sekúndum í 1,9
m/sek. mótvindi. Burrell varð annar á 10,11 sekúndum, Jon Drummond
þriðji á 10,12 og Carl Lewis fjórði á 10,23, þannig að Bandaríkjamenn áttu
fjóra fyrstu menn í hlaupinu, en þetta vora fyrstu gullverðlaun þeirra á
leikunum.
la
g«
n<
hi
m
m
|I
Haukur Bragason, markvörður Grindvikinga, kom liði sínu í undanúrslit Mjólkurbik,
af félögum sínum.
- 2. deildar liðið 1 undanúrslit bikarsins
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Ég þóttist vita að hann myndi skjóta
í þetta hom. Þetta var orðið svolítið
tæpt hjá okkur. Ég sagði strákunum
bara að skora og síðan myndi ég verja
eina spyrnuna," sagði Haukur Braga-
son, hetja 2. deildar hðs Grindvíkinga,
sem kom þeim í undanúrsht Mjólkur-
bikarsins í knattspymu í gærkvöldi.
Grindavík sigraði þá Eyjamenn, 6-5,
eftir framlengda vítaspymukeppni, en
staðan eftir venjulegan leiktíma og
framlengingu var 0-0. Þetta er besti
árangur Grindvíkinga í bikarnum frá
upphafi og Lúkas Kostic er að gera
skemmtilega hluti með höið. Þeir hafa
nú lagt tvö 1. deildar hð, fyrst FH og
nú ÍBV, og bæði eftir bráðabana í víta-
spymukeppni.
Leikurinn var mjög opinn en leik-
menn áttu erfltt með sendingar þar sem
völlurinn var mjög háll. Grindvíkingar
áttu nokkur stórhættuleg marktæki-
færi en Gunnar Sigm-ðsson, markvörð-
ur ÍBV, sem verður 19 ára í ágúst og lék
sinn fyrsta meistaraflokksleik, hélt liði
sínu á floti með stórkostlegri mark-
vörslu. Eyjamenn vom aðeins of sein-
heppnir í sóknarleik sínum og fengu fá
marktækifæri og þá sá Haukur við
þeim.
f vítakeppninni varði Gunnar frá
Grétari Einarssyni en síðan skaut Frið-
Lalas í lið með Þórði?
- Hilpert undrandi á fréttum um samning Lalas við Padova
Klaus Hilpert, fyrram þjálfari
Skagamanna og núverandi fram-
kvæmdastjóri þýska úrvalsdeild-
arliðsins Bochum, sagði í gær-
kvöldi að hann skildi ekkert í frétt-
um um að þekktasti knattspyrnu-
maður Bandaríkjanna, Alexi Lalas,
væri búinn að senya við Padova á
Ítalíu.
Hilpert segir að hann hafi átt við-
ræður við Lalas á sunnudag og í
gær og hann geri sér vonir um að
fá varnarmanninn með geithafurs-
skeggið til Þýskalands.
Bochum hefur þegar fengið til sín
annan bandarískan landshðs-
mann, Eric Wynalda, sem félagið
keypti í vor frá Saarbriicken en
Þórður Guðjónsson leikur með
Bochum eins og kunnugt er.
ítalskir fjölmiðlar veltu sér hins
vegar nokkuð upp úr samningi
Lalas við Padova í gær. Sjá mátti
fyrirsagnir á bprð við: „Wild West,
velkominn til Ítalíu" og „Velkom-
inn Buffalo Lalas.“ Tahð var að
Lalas kæmi til ítahu í dag og hæfi
æfingar með Padova í vikunni en
félagið hyggst taka hann á leigu frá
bandaríska knattspymusamband-
inu.
4. deildD:
Huginn kominn
Magnús Jónasson, DV* Austurlandi
Huginn tók 1 gærkvöldi forystuna í D-ri
4. deildarinnar í knattspyrnu með því að sig
Neista ífá Djúpavogi, 3-0, á Seyðisfirði. Þ<
valdur Víöisson, Jörgen Sigurðsson og Júh
Brynjarsson skoraðu mörkin. Huginn er m
22 stig eftir 9 leiki, Sindri 19 stig eftir 8 le
og KBS 13 stig eftir 7 leiki en þessi hö bítí
um tvö sæti í úrslitunum.