Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1994
5
Fréttir
Sjgurjón J. Sigurössan, DV, feafiröi:
I vikublaðinu BB 20. júlí er
kaupfélagshúsið aö Austurvegi 2
á ísafirði og 1. hœð Hafnarstrætis
6 auglýst til sölu. Báðar íasteign-
imar eru í eigu Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga. Þær eru
1.800 m" og seljast sem ein heild
eða í smærri einingum.
Guðríður Matthíasdóttir, kaup-
félagsstjóri Kaupfélags ísfirð-
inga, sagði í samtali við DV að
kaupfélagið kæmi ekki nálægt
þessari sölu en hún gerði ráð fyr-
ir að eigendurnir væru að kanna
verðgildi þess með birtingu aug-
lýsingarinnar.
„Kaupfélag ísfiröinga lét fyrir
nokkrum árum allar sínar eignir
upp í skuldir til SÍS. Það var gert
tíl að eigendur kaupfélagsins töp-
uðu ekki og því er þessi sala ekki
á okkar vegum. Við höfum leigt
húsnæðli undanfarin ár og ég
veit því lítið um þetta mál. Það
er allt í lagi með kaupfélagið sem
slíkt, það er ekkert að hætta
rekstri," sagði Guöríður.
Guöríður staðfesti viö blaðið að
viðræður hefðu átt sér stað um
hugsanleg kaup kaupfélagsins á
húsnæðinu en menn hefðu ekki
veríð á eitt sáttir um verö fast-
eignarinnar. „Viö kaupum ekki
hvað sem er á hvaða verði sem
er,“ sagði Guðriður.
Norrænt dýralæknaþing:
Gottfyrir
endurmenntun
íslenskra
dýralækna
„Þetta er mikil upplyfting fyrir
faglega endurmenntun dýra-
lækna á íslandi. Við erum háðir
þvi að sækja okkar menntun er-
lendis því dýraiækningar eru
ekki kenndar hér. Því skiptir
miklu máli að fa svona mikið efni
í einu til okkar á heimaslóðir,"
segir Hafidór Runólfsson, for-
maður undirbúningsnefndar
norræns dýralæknaþings sem
haldið verður i Háskólabíói dag-
ana 26.-29. júlí.
Dýralæknafélag íslands mun
sjá um framkvæmd þingsins og
jafnframt halda upp á 60 ára af-
mæli sitt. Hátt á sjötta hundrað
manns hafa þegar skráö sig á
þingið sem virkir þátttakendur
og um 300 þeirra munu taka með
sér maka og börn. Alls munu því
um 900 manns koma til landsins
vegna þingsins.
„Aöalumræðuefni þingsins
verður umfjöllun ura sjúkdóma
íslenska hestsins. Við fáum
marga góða fyrirlesara á alþjóð-
legan mælikvarða. Þing sem
þetta er einn af homsteinum í
samvinnu norrænu dýralækna-
félaganna “ segir Hafidór.
Vöruskiptajöfnuður eftir markaðssvæðum:
ESB-löndin eru
íslandi mikilvægust
Þegar tölur yfir vöruskiptajöfnuð
íslendinga við útlönd eru skoðaðar
eftir markaðssvæðum kemur í ljós
að Evrópusambandslöndin eru lang-
mikilvægust. Vöruskiptajöfnuður-
inn við þessi lönd var hagstæður um
12 milljarða á síðasta ári og 13 millj-
arða árið 1992. Hins vegar er lang-
mest flutt inn frá EFTA-ríkjunum og
því er vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæðastur þar eða um 13 milljarða á
síðasta ári.
Eins og sjá má á meðfylgjandi grafi
koma Bandaríkin og Japan næst á
eftír ESB-löndunum sem mikilvæg-
ustu markaðssvæði íslendinga und-
anfarin tvö ár.
EFTA-ríkin hafa verið Austurríki,
Finnland, Noregur, Sviss og Svíþjóð.
ESB-löndin eru Belgía, Bretland,
Danmörk, Frakkland, Grikkland,
Holland, írland, Ítalía, Lúxemborg,
Portúgal, Spánn og Þýskaland. Önn-
ur Evrópulönd, sem íslendingar eiga
viðskipti við, eru Búlgaría, Færeyjar,
lýðveldi fyrrum Júgóslavíu, Pólland,
Vöruskiptajöfnuður eftir
markaðssvæðum
1992 og 1993 T milljónum króna —
□ ±992
Önnur Önnur EFTA-
Evrópul lönd rikln
-5000
-10000
-15000
-20000
Heimiíd: Hogstofa islands
Rúmenía, Rússland, Tékkland, Tyrk- Sighvatur Björgvinsson, viðskipta-
land og Ungverjaland. og iðnaðarráðherra, sagði í samtali
við DV að mikilvægi Evrópu sem
markaðar fyrir ísland hefði stöðugt
verið að vaxa, á móti hefði dregiö úr
mikilvægi Ameríkumarkaðar.
„Það eru allar horfur á aö markað-
ur fyrir dýrasta fiskinn verði áfram
á Evrópu. Auðvitað getum við síðan
fundið markaði í fjarlægum löndum
eins og Kína og Japan. En Evrópu-
markaður mun fara vaxandi á næstu
árum.“
Aðspurður hvort mikilvægi ESB-
landa sem markaðssvæðis fyrir ís-
lendinga ýtti undir aðild okkar aö
ESB sagði Sighvatur:
. „Við erum Evrópuþjóð og það er
enginn annar heimshluti sem getur
komið í staðinn fyrir Evrópu. Við
færum okkur ekki til á hnettinum.
Enginn markaður verður okkur
mikilvægari. Ef hin EFTA-ríkin fara
öll inn í Evrópusambandiö þá erum
við búnir að missa fríverslunar-
samninga við þau. Þar missum við
talsverðan spón úr okkar aski miðað
við það sem er í dag.“
TILBOÐ - MITSUBISHI - TILBOÐ - MITSUBISHI -TILBOÐ - MITSUBISHI - TILBOÐ - MITSUBISH
Q
O
DQ
X
C/ð
DQ
Z>
C/ð
Q
O
DQ
X
co
DQ
Z)
co
Q
O
DQ
MITSUBISHI21" NICAM STEREO SJONVARP
Inniheldur:
★ Bæði Nicam og Hi-Fi stereo
★ Textavarp með íslenskum stöfum
og hraðleitun
★ Flatan og mattan skjá
★ Fjóra mjög öfluga hátalara
★ Aðgerðir mjög einfaldar og allar
skipanir á skjá
Verð áður kr. 88.832
Tilboðsverð kr. 67.950
★ Ath. aðeins takmarkað
magn á þessu verði.
Afborgunarskilmálar
Vönduð verslun
e ® HIJOMCO
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
Cö
O
o
—I
co
c
ro
co
x
ro
O
O
cn
c
ro
co
x
ro
O
Q
TILBOÐ - MITSUBISHI -TILBOÐ - MITSUBISHI -TILBOÐ - MITSUBISHI - TILBOÐ - MITSUBISHI
®em
SUMARAUKI 6. okt. - 3 vikur
Gististaðir: Les Dunes Suits, Apartments Torpa og
Gemelos II. - Allir á besta stað á Benidorm.
Verð Srá
46,510
51*770
4 í íbúð á Gemelos II stgr.
2 í íbúð á Gemelos U stgr.
10RIDA - TtLBOÐ
Frá 9. september tíl 15. nóvember
XOO% afsláttur fyrír börn 15 ára og
yngri ef staðfest er fyrír 31. júlí.
Innifalið: Flug, gistíng, flutningur til og
frá flugvelli erlendis - íslensk fararstjórn
Pantaðu í síma
62-14-90 <i
FERÐASKRIFSTOFA
Aðalstræti 16 - simi 62-14-90