Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1994 Vinningshafl í áskriftargetraun DV: Neytendur Ekki allir á eitt sáttir um að dagsgömul brauð séu seld á hálfvirði: Fólk á að hafa frelsi til að velja - segir Haukur Hauksson, eigandi Borgarbakarís og Ódýra brauða- og kökumarkaðarins „Ég skil það vel að sumir bakarar skuli vera ósáttir við það sem við erum aö gera sem seljum dagsgamalt brauð á hálfvirði. Þeir vilja frekar moka því í poka sem afgangs er og selja bændum á 6 krónur kílóið en að leyfa neytandanum að njóta þess. Mér finnst full ástæða til þess að fólk hafl frelsi til þess að velja. Ef þú vilt frekar gamalt brauð, eöa vilt a.m.k. frekar gamalt brauð á hálfvirði en nýtt á fullu verði, þá finnst mér þú eigir að hafa rétt á þeim möguleika. Ég passa mig á því aö haka það mik- ið aö ég eigi afgang til morguns," sagði Haukur Hauksson, eigandi Borgarhakarís og Ódýra brauða- og kökumarkaðarins, aðspurður um ósætti manna um að verið sé að selja dagsgömul brauð og kökur á hálf- virði. Haukur segist vera að selja brauð í Ódýra brauða- og kökumark- aðnum á heildsöluverði og fullyrðir að hvergi finnist ódýrari vara. Ný- bakað heilhveitibrauð kostar 85 krónur hjá honum og 53 dagsgamalt. Skurðurinn er ókeypis. Of mikill þvælingur Stefán Sandholt er formaður Landssambands bakarameistara. Hann segir Landssambandiö ekki hafa skoðun á máhnu en að honum sjálfum finnist ekki rétt aö selja brauð og kökur á hálfvirði daginn eftir að hakað er. „Annaðhvort ertu með ferska og fína vöru eða ekki. Þannig vöru vil ég að mínir kúnnar fái. Þetta var í tísku hér áður en ég held að þetta hafi minnkað mikið. Menn voru með nokkur verð: Nýtt brauö kostaði eitt, dagsgamalt brauð annað og síðan var til eitthvað sem hét kistubrauö, þ.e. brauð sem búið var að frysta. Mér lýst ekki á svona vinnubrögð og finnst þetta of mikill þvælingur fyrir ekki neitt. Miklu nær væri að menn reyndu aö stýra framleiöslunni þannig að hún passaði við sölu dags- ins. Mér finnst eitthvað bogið við það þegar kúnninn er að koma í bakarí klukkan sex og vih þá fá brauð sem hvort eð er ætti að selja á hálfvirði Bakarar deila um réttmæti þess að selja brauð og kökur á hálfvirði daginn kunna örugglega að meta kökur þessa bakara hvað svo sem hann gerir. daginn eftir,“ sagði Stefán Sandholt, eigandi G. Ólafsson og Sandholt bak- arís. Fólk feimið í fyrstu Smári Stefánsson, eigandi Smára- bakarís, hefur selt dagsgamalt brauð og kökur á hálfvirði nánast allt frá því að hann hóf sinn rekstur fyrir níu árum. Hann segir fólk hafa í fyrstu verið feimið við að biðja um gamalt brauð, þvi hafi fundist það vera að leggjast of lágt. í dag þyki þetta hins vegar sjálfsagt. „Hvað gerir fólk við brauð sem ekki klárast sama dag og það er bak- að og keypt. Ekki er því hent. Ég fuhyrði að í sumum tilvikum er fólk hvort eð er að kaupa dagsgamalt eftir að bakað er en bragðlaukarnir brauð í stórmörkuðum, á fuhu verði. Hér vita menn að hverju þeir ganga. Menn hafa margir hverjir verið ósáttir við það sem ég er að gera en mér finnst ég vera að þjóna hags- munum neytenda," sagði Smári og bætti við að hann teldi þetta ekki hafa neikvæð áhrif á það sem hann seldi af nýjum brauðum og kökum, fólk vhji aíltaf hafa það með. Eins og himnasending Þetta er alveg ótrúlegt. Maður hef- um og ergir sig yfir að vera aldrei ur séð þessa vinningshafa í blöðun- svona heppin. Síðan gerist þetta bara Hér er Guðbjörg ásamt dætrum sínum, þeim Ingibjörgu Jóhönnu og Berg- lindi Ósk Vilhjálmsdætrum. Berglind er sú yngri. einn daginn. Þetta er eins og himna- sending," sagði Guðbjörg J. Jóhanns- dóttir, vinningshafi í áskriftarget- raun DV. Hún fær 30 þúsund króna vöruúttekt hjá 10-11. Guðbjörg segir þau vera sex í fjölskyldunni og því komi vinningurinn sér ákaflega vel. „Fjölskyldan hefur alltaf keypt DV. Strákarnir mínir eru mikhr íþróttaá- hugamenn og bítast um íþróttasíð- umar í hvert skipti sem blaðið kem- ur,“ segir Guðbjörg. Erflðleikar í flöskumóttöku: Tappalausar flösk- ur ekki teknar? Nokkur brögö hafa verið að því imdanfarið að fólk hafi lent í því að vélarnar sem taka á móti tómum flöskum í endurvinnslu skrái ekki tappalausar pepsíflöskur. Pepsí mun hafa verið með leik þar sem fólki er gert að safna töppum og þar með getur það lent í erfiðleik- um vhji það fá skilagjaldið af flösk- unni greitt í verslunum. „Við könnumst við þetta og ástæðan hggur í því að vélarnar eru stilltar mjög nákvæmlega eftir lögun þeirra flaskna sem við tökum á móti. Það aö taka tappa af flösku, sem skha á inn, getur orðið th þess að vélamar lesi þær ekki. Ef svona lagað kemur upp biðjum við fólk endilega að snúa sér til okkar eða viðkomandi verslunar og við greið- um úr málunum,“ sagði Gunnar hjá Endurvinnslunni hf. Margrét Jóhannsdóttir og Þor- geir Ástvatdsson sátu í dóm- nefndinni. Grillrétta- samkeppni: í framhaldi af nýafstaðinni grihuppskriftasamkeppni Nýrra eftirlætisrétta, DV, Bylgjunnar, Shell, Bhaleigu Akureyrar, Ferðaþjónustu bænda og SS, verða hér birtar þær uppskriftir sem lentu í öðru og þriðja sæti, tveir mjög góöir réttir sem vel eru þess virði að skellt sé á grhhð. Uppskriftin af vinningsréttinum birtist í DV sl. laugardag. Lax í beik- oni Birna Sigurðardóttir á Fá- skrúðsfirði átti uppskriftina að „Grilluöum iaxi með beikoni" sem ienti í öðru sæti. Hráefni: 14 punda lax (dómnefndin fékk hann flakaðan, skorinn í bíta, rúhaðan upp og beikoni vafið ut- an um, grhlaðan í þar til gerðri klemmu. Þetta er mun auðveldari aðferð en að heilgriha fiskinn). 2 sítrónur salt hvíturpipar steinselja dih estragon 8-12 beikonsneíðar Aðferð: Afhreistriö fiskinn, skol- ið og þerrið. Skerið síðan gmnnar raufir í fiskinn, þrjár, fiórar hvor- um megin. Núið svo fiskinn að utan og innan með saltí og pipar. Kreistið safann úr sítrónunum inn í fiskinn og utan á. Ef notaðar eru ferskar kryddjurtir eru lagö- ar nokkrai- greinar af hverju inn í fiskinn + tvær, þrjár lengjur af beikoni (annars ein tsk. af þurrkryddi). Vefiið síöan fiskinn inn í afganginn af beikoninu og gætið þess að það komi vel yfir skurðina, festið með tannstöngli. Penslið aöeins með ohu og grillið fiskinn á velsmurðri rist í u.þ.b. 30 mínútur (2x8 mín. á hvorri hlið). Hafið fiskinn nokkuö langt frá kolunum svo að hann steikist jafnt í gegn en brenni ekki. Þetta er auðveld uppskrift og hentar vel á shung, lax og ýsu. Með þessu er gott að hafa bakaðar kartöflur, ferskt gróft salat og hrísgrjón með soyasósu. Gómsætt kjúklinga- læri í þriðja sæti var „kjúklingalæri á útigrilliö", réttur frá Hhmari Ævari Hilmarssyni úr Kópavogi. Hráefni: 8 stk. kjúklingalæri 2 msk. malað engifer 3" hunang 3" sesamolia 3 " soyasósa 3" chilisósa Blandið saman engiferi, hunangi, ohu og soya. Látið kjúklingalærin liggja í þessum kryddlegi yfir nótt á köldum stað. Takið síðan kjúklingalærin úr leginum og bætið chilísósu út í hann. Hrærið vel. Grhlið kj úklingalærin i u.þ.b. 30 minútur á útigrilhnu. Penslið þau annað slagið með kryddleg- inum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.