Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1994 Stuttar fréttir Jórdanir, : PLO og israelar und- irrituöu samkomulag í Ósló í gœr um frekari viðræður um skipt- ingu vatnsforöa svæðisins. Togarasleppt Prakkar hafa sleppt spænskum togara sem braut fiskveiðireglur ESB. Alain Juppó, utanríkisráð- herra Frakk- lands, sagöi að nýja stjórnin í Rúanda viidi draga allt aö 40 þúsund manns fyrir rótt vegna fjöldamorða af hálfu hútúmanna. Ofmörgtehús í ensku þorpi deila menn um nýtt tehús og segja sumir að nóg sé af þeim nú þegar. Ekkertsvindl Kjörstjórn í Mósambík segir að ekkert svindl hafi verið við skráningu kjósenda. Niðurskurður Fjármálaráðherra Hollands hefur iagt til víðtækan niður- skurð á ríkisútgjöidum. Ferðamenn rændir Sextán ferðamenn voru rændir í Gvatemala og einni konu úr hópnum var nauðgað. Ofsækir Madonnu Poppsöng- konan Ma- donrm hefur fengið úrskurð dómara um að maöur nokkur sem stöðugt er að ónáða hana og segist vera eiginmaður hennar haldi sig frá henni. Stuðningsbeiðni Bandaríkiamenn hafa beðið Sameinuðu þjóðimar um sam- þykki fyrir 6.000 manna innrás- arliði í Haíti. FteiriHk Björgunarmenn haldaáfram að tína hkin úr rústum húss gyðinga í Buenos Aires og tala látinna er komin upp í 96. Lýðræði Nýr leiðtogi í Gambíu, herfor- inginn Yayeh Jameh lofar því að binda enda á spillingu í landinu. Samvinna Flugfélögin Lufthansa í Þýska- landi og United Airhnes í Banda- ríkjunum hafa tekið upp sam- starf á flugieiöum sinum. Skaðabótakrafa Eigendur norska hvalveiðibáts- ins Senet hafa farið í skaðabóta- mál við Greenpeace vegna skemmda á veiöarfærum. Yfirheyrslur BiXI Clinton Bandarikjafor- séti lýsti yfir stuðningi sín- um víð Roger Altinan aðstoð- arfjármálaráð- herra í yfir- heyrslum vegna Whitewater-málsins. Gögnbirt Segulbönd sem innilialda sam- ræöur Kennedys forseta og ráð- gjafa hans i Kúbudeiiunni verða opinberuð á morgun. Samstarf Rafsanjani íranforseti og Dem- irel Tyrkjaiörseti ræða nánara samstarfþjóðanna. Reuter Útlönd Undirritun samkomulags ísraelsmanna og Jórdana: Endanlegir friðar- samningar í augsýn „Á þessum degi hefur okkur tekist að taka sögulegt skref í átt til friðar og okkur hefur tekist að koma á frið- samlegum samskiptum milli Jórdan- íu og Israel eftir 46 ára stríðsástand milli landanna," sagði Hussein Jórd- aníukóngur við undirritun samnings þjóðanna um friðsamleg samskipti í Washington í gær. Yitchak Rabin var aðeins varkárari í yfirlýsingu sinni. „Annarri martröð stríðsátaka gæti verið aflýst með þessu samkomulagi þjóðanna," sagði Rabin. Arafat, sem staddur er á heimastjómarsvæöi Palestínu- manna á Gaza fagnaði samkomulagi landanna. „Þetta samkomulag er áframhald á friðarþróun í málefnum Mið-Austurlanda og við vonumst eft- ir því aö samkomulagið hafi jákvæð áhrif á friðarviðræður ísraelsmanna Hussein Jórdaníukóngur og Yitchak Rabin, forsætisráðherra Israels, takast í hendur við góðar undirtektir Bills Clintons Bandaríkjaforseta í Washington í gær. Símamynd Reuter við Sýrlendinga og Líbani. Ekki virðist ríkja fullkomin eining meðal Palestínumanna um sam- komulag Jórdana og ísraelsmanna. Háttsettur Palestinumaður lét hafa eftir sér að hegðun ísraela í þessum samningaviðræðum væri ógnun við samkomulag ísraela og Palestínu- manna. „í samkomulagi okkar var ákvæði um framtíðarskipulag í Jerú- salemborg. Þar var talað um að Pal- estínumenn yrðu hafðir með í ráðum varðandi framtíð borgarinnar. En í samkomulagi ísraela og Jórdana er verið að semja um framtíð Jerúsalem og um hlutverk Jórdana við gæslu íslamskra helgidóma í borginni án okkar þátttöku og það er skýlaust brot á nýundirrituðum samningi okkar viðísraela." Reuter Á norðurhluta Haití láta menn alþjóðadeilur um ráðamenn landsins ekki aftra sér frá því að efna til vúdúhátíðar. Hér er verið að undirbúa fórnarathöfn þar sem kú verður slátrað. Símamynd Reuter Ástandið skelíílegt í Rúanda: Birgðastöðvar gætu bjarg- að tugþúsundum manna Warren Christopher, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, varðist allri gagnrýni varðandi hjálparstarf í Rú- anda, en Bandaríkjamenn höfðu ver- ið harðlega gagnrýndir fyrir ómark- visst og tilgangslaust hjálparstarf. „Við erum búnir að leggja miklu meira af mörkum til hjálparstarfs en nokkur önnur þjóð, sennilega meira en Evrópa og Japan til samans. Hvemig er þá hægt að gagnrýna okk- ur. Við þurfum ekkert að afsaka okk- ur fyrir öðram þjóðum," sagði Chri- stopher. Hann mótmælti því að matvæla- sendingar hefðu lent á röngum stöð- um og taldi þær hafa skilað miklum árangri. Hann sagði jafnframt aö Bandarikjamenn hefðu mikla reynslu af þvi að henda matvæla- sendingum niður úr flugvélum frá stríðshrjáðum héruöum í Bosníu og taldi að þær aðferðir hefðu marg- sannað gUdi sitt. Franska ríkisstjómin hefrn- bent á að hjálparstarf myndi gera mest gagn ef þjóðir heims einbeittu sér að Ungur piltur frá Rúanda grettir sig vegna óbærilegrar lyktar sem berst frá stórum haugum af líkum flóttamanna. Símamynd Reuter því að koma upp birgðastöðvum á og hungri í Goma við landamæri leið flóttafólks til síns heima. Þær Rúanda í Zaire. Hjálparstarfsmenn gætu bjargað tugþúsundum manns- hafa ekki undan aö grafa líkin, enda lífa. Ástandið hjá flóttamönnum er ernánastenginnhentugurjarðvegur skelfilegt. Áætlað er að 14.000 hafi til greftrunar. Reuter látið lífið nú þegar úr sjúkdómum O.J. Simpson. Simamynd Reuter Hæsti maður Perú gengur aðeigasmá- vaxna konu Eiginkona hávaxnasta manns- ins í Perú nær honum ekki nema upp í mitti. Hann er 223 sentí- metrar á hæð en hún aðeins 144 sentímetrar. Þau gengu í það heil- aga um helgina. Skötuhjúin heita Margarito Machacuay og Marlene Ramos. „Ég er komin tvo mánuði á leið og læknamir segja að bamið sé vel skapað," sagði Ramos geisl- andi af hamingju við fréttamenn sem komu til að fylgjast með at- höfninni í frumskógarbænum TÍngoMaria. Reuter Saksóknari í máli Simp- sons má gera DNA-próf Dómari í Los Angeles úrskurð- aði í gær að saksóknari í máh ruðningskappans O.J. Simpsons gæti hafið DNA-prófanir á blóð- sýnum og sagði að tveir sérfræð- ingar verjandans mættu fylgjast með. Áður en til úrskurðar dómar- ans kom höfðu saksóknari og verjandi átt í orðaskaki og slegið um sig með vísindaheitum sem dórnari sagðist ekki skilja. Höfðu sumir á orði að háskólapróf í líf- fræði hefði verið nauðsynlegt til að ná því sem fram fór. Simpson lýsti sig hundrað pró- sent saklausan þegar mál hans var dómtekið á fóstudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.