Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1994 9 Útlönd Reiknameðháii verðifyrirupp- töku Lennons John heitinn Lennon söng Elvis Presley lag inn á segul- band áriö 1957, sama dag og hann hitti Paul McCartncy í fyrsta sinn, og búist er við að upptakan seljist fyrir háar upphæðir þegar hún verður boðin upp í september. Á þessum tíma söng Lennon og spilaöi með fyrstu hljómsveitinni sinni, the Quarrymen. Spólan og tækið sem notað var við upptökuna verða helsta að- dráttaraflið á uppboði Sothebys á rokkmunum. Gert er ráð fyrir að nýr eigandi þuríi að punga út allt að fimmtán milljónum króna. UppsagnirðSví- þjóðvegnafárra flðttamanna Flóttamannaskrifstofa sænska innflytjendacftirlitsins í Malmö mun segja upp 27 starfsmönnum í ágúst, eða þriðjungi þeirra sem þar vinna. Ástæðan er sú að þeim hefur fækkað sem leita hælis í Sviþjóö. „Það er alitaf sársaukafulit að þurfa aö segja upp fólki en allir sem vinna við innflytjendaskrif- stofuna vita að hún er ekki til fyrir starfsfólkiö. Þegar verkefn- in minnka verður að fækka starfsmönnum," segir Anders Westerberg hjá innflytjendaeftir- litinu. Undaníarið árhafa uraátj- án þúsund mamis sótt um hæli í Sviþjóð en árið þar á undan voru þeir 95 þúsund. Svínin eru við- kvæmogyfirsig stressuð Svín eru viðkvæmar skepnur og stressaðar úr hófi fram vegna iilrar meðferðar og ætti að, auð- sýna þeim meiri blíðu og skiln- ing. Þetta er skoðun ástralska sál- fræðingsins Grahamcs Colcmans við La Trobe háskóla. Hann segir að sá plagsiður svínabænda að sparka í afturenda skepnanna til að fá þær til að hreyfa sig úr stað orsaki steitu ekki ósvipaða þeirri sem hrjáir fyrirtælúaforstjóra meðal okkar mannanna. „Þótt þetta atferli sé ekki skað- legt eykur það ótta dýranna," seg- ir Coleman. „Aftur á móti hafa strokur og önnur blíðulæti í fór með sér aukinn grísafjölda og minni streitu." Nýrleiðtogi Norður-Kóreuá háumhælum Kim Jong-iJ, nýskipaður leiðtogi Norð- ur-Koreu, er Ijfp^ - svo viðkvæm- « ur fyrir því að vera ekki hár i loftinu að hann gengur um á háhæluðum skóm, að sögn japanska tímaritsins Shukan Bunshun. Tímaritið sagði á mánudag að Kim hefði um árabil sent aðstoð- annenn sina í leit að góðum skó- smiðum sem gætu iátið lita svo út sem hann væri hávaxnarí. Máli sínu til sönnunar birti þaö tvær myndir af leíðtoganum sem sýna greinilega að hann er á pailaskóra. Nýi leiðtoginn mun vera 160 sentímetrar á hæð og hannvegur85kíló. Reuter.TT Norskir útgerðarmenn eggja stjómvöld: Meiri hörku í Smugunni Samtök norskra útgerðarmanna vilja að stjórnvöld sýni meiri hörku til að stöðva veiðar íslenskra togara í Smugunni í Barentshafi. Stjórn samtakanna hefur lagt til að svæðið verði opnað til veiða fyrir bæði norska og rússneska báta til þess að það svari ekki lengur kostnaði fyrir aðra að veiða þar. „Norsk sjávarútvegsyfirvöld verða hins vegar að viðurkenna slíkar að- gerðir áður en þær geta orðið að veruleika," segir Paul-Gustav Remöy hjá samtökum útgerðarmanna. Remöy segir að samtökin óski eftir því til að byrja með að hitta ráða- menn í sjávarútvegsráðuneytinu til að ræða hvemig fara eigi að því að stöðva veiðar íslensku skipanna. „Ég er viss um að Jan Henry T. Olsen sjávarútvegsráðherra verður í fyrstu ekki mjög hrifmn af þeim að- SÞkunnaaðkalla friðargæsluliða heimfráfyrrum Júgóslavíu Boutros Boutros-Ghali, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lét að því liggja í gær að SÞ kynnu að kalla friðargæsluliða sína heim frá fyrrum lýðveldum Júgóslavíu ef friðarsamningar næðust þar sem aðeins stórveldi á borð við Bandarík- in gæti framfylgt þeim. SÞ hafa 35 þúsund menn á Balkan- skaganum og sagði Boutros-Ghali að það væri of fámennt lið til að sjá til þess að friðarsamningur yrði hald- inn. Framkvæmdastjórinn útilokaði hernaðarlega samvinnu milli SÞ og NATO þar sem Rússar væru andvíg- ir hernaðaríhlutun. Serbar hafa hafnað friðaráætlun sem fulltrúar Bandaríkjanna, Rúss- lands, Frakklands, Bretlands og Þýskalands hafa lagt fram um skipt- ingu Bosníu milli þjóðarbrotanna. Sambandsríki múslíma og Króata hefur aftur á móti fallist á áætlunina. Reuter Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs- ráðherra Noregs. Símamynd Reuter ferðum sem við leggjum til. En þá hlýtur hann líka að hafa tröllatrú á að eigin aðferð sé sú besta. Við teljum aftur á móti að nú sé kominn tími til að bregðast við,“ segir Remöy. Hann heldur því fram að ef stjóm- völdum takist ekki að stöðva þessar veiðar geti þær smitaö út frá sér og togarar annarra þjóða fari að koma á miðin í Smugunni. Fáir norskir togaraskipstjórar telja sér hag í að veiða í Smugunni þar sem þeir veiða upp í þorskkvóta sinn annars staðar meðfram Noregs- ströndum. Remöy samsinnir því og segir að þess vegna eigi að úthluta htlum aukakvóta í Smugunni fyrir norska og rússneska togara. „Reynslan sýnir að með því að auka sóknina á ákveðnu svæði dreif- ir flskurinn úr sér yfir stærra svæði og veiðin minnkar. Slíkt mundi veikja grundvöll veiðanna fyrir út- lenda togara og þær yrðu ekki jafn eftirsóknarverðar,“ segir Remöy. NTB Svona litur sjöþrautarkonan Jane Flemming út á forsíðu dagatalsins. Simamynd Reuter Hálf naktar á dagatali Boutros Boutros-Ghali, fram- kvæmdastjóri SÞ. Simamynd Reuter Allnokkrar deilur hafa spunnist um dagatal sem sýnir margar af fremstu íþróttakonum Ástralíu í pínulitlum sundfótum eða einhverju ennþá minna. Dagatalið er geflð út í fjáröflunarskyni. Meðal íþrótta- kvennanna sem sátu fyrir var sjö- þrautarkonan Jane Flemming og prýðir mynd af henni nakinni og gylltriforsíðudagatalsins. Reuter LokðtilranntiS hermennina Borís Jeltsín | Rússlandsfor- seti hittir eist- neskan starfs- bróður siun, Lennart Meri, í | dagtilaðrcyna til þrautar aö ná samkomu- lagi um brottflutning rússneskra hermanna frá Eistlandi fyrir ág- ústlok. Rússar eru búnir að kalla heim hermenn sína frá Litháen og hafa fallist á aö kalla dáta sína frá Lettlandi fyrir ágústlok. Brott- flutningurinn frá Eistlandi strandar hins vegar á deOu land- anna um stöðu rússneska minni- hlutans í Eystrasaltsríkinu. Steinkastáít- ölskum þjóðveg- um refsivert ítalska lögreglan ætlar að taka hart á unglingum sem gera sér þaö að leik að henda grjóthnull- ungum ofan af brúm yfir þjóövegi á bíla á götunni fyrir neöan. Maurizio Gasparri, aðstoöar- innanríkisráðherra ítaliu, sagði í viðtali við ítalska ríkisútvarpið aö þeir sem köstuðu gijóti yrðu ákærðir fyrir tilraun tíl flölda- morðs og ættu yfir höíði sér 12 ára fangelsisdóm, eða fyrir morð og ættu þeir þá 21 árs fangelsis- vist i vændum. Ellefu hlutu meiðsl og tuttugu bílar skemmdust í svona grjót- kasti á þjóðvegi nærri Pisa um helgina. Frá 1986 hafa sex manns látið lífiö og hundruð hafa slasast í grjótkasti. Þungrarrefsing- arkrafistyfir BettinoCraxi Saksóknari á Ítalíu krafðist þess að Bettino Craxi, fyrrum forsætisráð- herra, yrði dæmdur í ell efu ára fangelsi fyrir fjársvik í tengslum við gjaidþrot ítalsks banka. Ekki nóg með það heldur skip- aði dómari í Róm svo fyrir að réttað yröi yfir Craxi fyrir mútu- þægni vegna byggingar neðan- jarðarlestakerfisins í höfuðborg- inni. Bettino Craxi hcfur búið í Tún- is undanfarna mánuði og segist vera of illa haldinn af afleiöing- um sykursýki til að treysta sér til að ferðast heim til ítalíu. Dóm- arar í Róm munu ákveða í dag hvort gefm verður út alþjóðleg handtökuskipun á ráðherrann fyrrverandi. Silvio Berlusconi, forsætisráð- herra Ítalíu, er líka í vandræðum vegna spiUingarmála þar sem yf- irmaður í fýrirtæki hans, Finin- vest, viðurkenndi í gær að hafa greitt tjármálalögreglu landsins té til að raimsóknarmenn færu um hann mjúkum höndum. Rcu ter Verður þú sá heppni? Combi Camp tjaldvagn að verðmæti kr. 380.000 dreginn út fyrir verslunarmannahelgina! Áskriftarsíminn er 63*27»00 lsland Sækjum þaö heim!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.