Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1994 3 ________________________________Fréttir Ástæðan fyrir ógildingu kosninganna 1 Stykkishólmi: Veruleg mistök ráðuneytisins - segir bæjarstjórinn 1 Stykkishólmi HM-höllin: Skýrslan komin „Nú hafa þeir Electrolnx-menn fengið endanlega skýrslu borgar- yfirvalda um það hvemig þetta hús eigi að lita út og hvaða kröfur borgin gerir til þess. Út frá skýrsl- unni skoða þeir síðan hvað húsið komi til með að kosta. Um leið eru menn að kanna hvað rekstur- inn á því muni kosta, kynding, lýsing, þrif o.s.frv., og hverjir teKjumöguleikar þess séu,“ segir Hjörleifur Kvaran borgarlög- maður. í stað þess að forsvarsmenn Electrolux kæmu sjálfir til lands- ins til viðræðna við borgaryfir- völd, eins og tii stóð, hafa þeir falið Ólafi Alexanderssyni lög- fræðíngi aö fara með sin mál. Málin varðandi byggingu húss- ins eru nú farin að skýrast veru- lega. Menn hafa náð sáttum um hvernig húsiö eigi að lita út og hvaö í því eigi að vera og nú vinna arkitektar Electrolux hörðum höndum að því að fullteikna það svo allt verði klárt til þess að hefjst handa við að reisa það verði byggingin samþykkt. Hjörleifur segir að endanleg niðurstaða verði aö liggja fyrir um hélgina. Málið þurfi væntan- lega að vera frágengið f>TÍr borg- arráðsfund á þriðjudag. „Auglýsingin, sem ráðuneytið átti að birta þess efnis að nýtt sveitarfé- lag væri orðið til, var tilbúin í ráðu- neytinu þann 22. apríl en er hins vegar ekki birt í Stjórnartíðindum fyrr en 19. maí. Hvers vegna birting- in var dregin svona er alfarið mál ráðuneytisins. Ég tel ástæðuna vera þá að sameiningarkosningarnar, sem fram fóru 16. apríl í ár, voru kærðar og ráðuneytið vildi hinkra með að birta auglýsinguna þangað til niðurstaða væri komin í það mál. Þar fellur ráðuneytið á tíma varð- andi sveitarstjórnarkosningar í hinu nýja sveitarfélagi. Ég tel þetta vera veruleg mistök hjá ráðuneytinu. Ég tel hins vegar að við höfum staðið að þessu máli eins vel og hægt var,“ segir Ólafur Hilmar Sverrisson, bæj- arstjóri í Stykkishólmi. Félagsmálaráðuneytið hefur úr- skurðað sveitarstjórnarkosningarn- ar í Stykkishólmsbæ í vor ógildar og kjósa verður að nýju í bænum. Astæðan fyrir því að ráðuneytið úr- skurðar sveitarstjórnarkosningarn- ar ógildar, en aðilar í Helgafellssveit kærðu, er að framboðsfrestur hafi verið of skammur. í úrskurði ráðu- neytisins stendur að það hafi gert sér grein fyrir því að réttarstaðan var ekki að öllu leyti skýr hvað þetta atriði varðaði. Kærumál hafa verið í gangi vegna sameiningar Stykkishólms og Helga- fellssveitar frá því 16. apríl og nú hefur sameiningin verið kærð til Héraðsdóms Vesturlands. Nýjar kosningar í Stykkishólmsbæ gætu því frestast um óákveðinn tíma, sér- staklega ef málið fer einnig fyrir Hæstarétt, því menn vilja fá niður- stöðu í þaö mál áður en boðað verður til nýrra kosninga. Kosið var um sameiningu sveitar- félaganna tveggja í nóvember í fyrra en hún var þá felld í Helgafellssveit. Síðar bárust undirskriftalistar úr Helgafellssveit þar sem 80% kjör- bærra manna óskuðu eftir því að málið yrði tekið upp aftur. Að sögn Ólafs dróst það hjá hreppsnefnd Helgafellssveitar að fjalla um þessa undirskriftalista þannig að tíminn hefði verið orðinn mjög knappur þeg- ar sveitarstjórnirnar funduðu sam- an. Þar hefði verið ákveðið að fara í sameiningarvinnu í fullu samráði við ráðuneytið þrátt fyrir að menn vissu að tíminn væri mjög knappur. „Þetta er óþægileg staða sem við erum í núna og lögum samkvæmt á sitjandi sveitarstjórn eingöngu að halda í horfinu. Hún má aðeins fram- kvæma það sem búið er að ákveða. Menn byrja því ekki á hefðbundinni vinnu sem venjulega fer fram í upp- hafi kjörtímabils enda hafa menn ekki umboð til þess,“ segir Ólafur. COCA-COLA DÓSIR í KASSA SEM SMELLPASSA... í ÍSSKÁPINN.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.