Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Síða 4
■I
KÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1994
Fréttir
Fjármálaráðherra boðar breytingar hjá ATVR:
Vörugjöld á áfengi
í stað álagningar
- einkaréttur ÁTVR til innflutnings og dreiíingar verður afnuminn
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra hefur fengið ríkisstjórnina til
að samþykkja afnánt einkaréttar
ÁTVR á innflutningi áfengis. Þess
í stað verður framleiðendunt heint-
ilaö að dreifa vöru sinni til verslana
ÁTVR og veitingastaða.
Breytingarnar fela enn fremur i
sér að vörugjöld verði lögö á áfengi
í staö þess að ríkiö fái tekjur af
álagningu ÁTVR. Samkvæmt til-
lögu fjármálaráðherra verðu vöru-
gjaldið innheimt í tolli af innflutn-
ingi og við framleiöslu innanlands.
Frumvörp þessa efnis verða lögð
frant á Alþingi í vetur. Friðrik seg-
ir koma til álita að gera frekari
breytingar á fyrirkomulagi áfeng-
isverslunar hér á landi en fara
þurft hægt í sakirnar. Þá segir
hann einkarétt ÁTVR til smásölu
standast EES-samninginn og bend-
ir á að Eftirlitsstofnun EFTA haft
ekki gert athugasemdir við núver-
andi fyrirkomulag.
Áðumefndar breytingar voru
gerðar í kjölfar ábendinga Eftirlits-
stofnunarinnar. Tilefnið var kæra
frá Verslunarráði íslands frá því í
lok síðasta árs.
Akraborgin
vélvana
Akraborgin varð vélvana ó
venjubundinni leið sinni á milli
Akraness og Reykjavíkur rétt
fyrir hádegi í gær. Aö sögn Júl-
íusar Guðnasonar kom upp bilun
i oliukerfi en talið er aö loft hafi
komist að gasoliu. Július sagði
Akraborgina hafa verið vélvana
í um klukkustund milli Engeyjar
og Akureyjar.
11 milljónir á
gangstígagerð
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
Miklar framkvæmdir em hafn-
ar við gangstíga í Grindavíkurbæ
þar sem ráðgert er að leggja var-
anlegt slitlag og lýsa þá upp. Að
sögn Jóns Gunnars Stefánssonar
bæjarstjóra er ráðgert að verkinu
Ijúki í haust og kostnaðurinn
verði nálægt 11 milljónum.
Úttekt á tekjum lögfræðinga:
Svimandi munur
á tekjum manna
- Baldur Guölaugsson á toppnum en Gunnlaugur Þórðarson á botninum
Svimandi munur er á tekjum ís-
lenskra lögfræðinga. Að meðaltali
eru tekjur þeirra um 484 þúsund
krónur á mánuði. Samkvæmt úttekt
DV á tekjum 25 lögfræðinga í fyrra
reyndist Baldur Guðlaugsson tekju-
hæstur með 1.362 þúsund krónur á
mánuði. Á hæla hans kemur Guðjón
Ármann Jónsson með 1.227 þúsund
krónur á mánuði.
Tekjulægsti lögfræðingurinn í út-
tekt DV reyndist Gunnlaugur Þórð-
arson með 1C4 þúsund krónur á mán-
uði. Það eru ívið lægri tekjur en land-
verkamenn fá að jafnaði. Örlítið
tekjuhærri eru þeir Jón Magnússon
og Sveinn Snorrason sem hafa tekjur
á við verkamenn.
í sambærilegri úttekt, sem DV
gerði í fyrra vegna tekna 22 lögfræð-
inga áriö 1992, reyndust meðaltekj-
urnar 515 þúsund krónur á mánuði.
Miðað við úttektina núna hafa tekjur
lögfræðinga því lækkað að meðaltali
um 31 þúsund krónur á mánuði. Þá
reyndist Guðjón Ármann hafa hæstu
tekjurnar, eða 1.778 þúsund krónur
á mánuði, og Gunnlaugur Þórðarson
lægstu tekjumar, eða 114 þúsund
krónur.
Samkvæmt úttektinni virðast lög-
fræðingar í þjónustu ríkisins halda
vel í laun þeirra lögfræðinga sem
starfa sjálfstætt. Á það meðal annars
viö Hrafn Bragason, forseta Hæsta-
réttar, Gunnlaug Claessen ríkislög-
mann og Friðgeir Björnsson, dóm-
stjóra í Reykjavík. Miðað við að sjálf-
stætt starfandi lögmenn bera ýmsan
kostnað af rekstri lögmannsstofa
sinna virðast ríkisstarfsmennirnir
síst hafa lakari kjör en kollegar en ekki launa. um er aö ræða skatt- ar og útsvar reiknast af. Til saman-
þeirra á almenna markaðinum. skyldar tekjur í fyrra eins og þær burðar er stuðst við sambærilega
Úttekt þessi nær einungis til tekna voru gefnar upp til skatts eða áætlað- könnun í fyrra.
Tekjur lögfræðinga
mánaðartekjur í þúsundum króna á árinu 1993
200
400
600
800
1.000 1.200 1.400 kr
1.362
1.227
883
878
625
593
579
575
531
498
493
488
484
415
408
391
272
235
222
214
210
190
112
107
104
Baldur Guðlaugsson
Guðjón Armann Jónsson
s . 1 '
Ragnar Aðalsteinsson
i i
Sigurmar K. Albertsson
„ l i
Asgeir Thoroddsen
I t
Eiríkur Tómasson
Svala Thorlacius
t i
Gísli Gíslason
i . i
Vilhjálmur Arnason
i t
Hreinn Loftsson
..... i i
Helgi V. Jónsson
l í
Magnús Thoroddsen
Hrafn Bragason ^
Friðgeir Björnsson
Gunnlaugur Claessen
Örn Clausen
t
Hróbjartur Jónatansson
Atli Gíslason
Jón Oddsson
i
Haraldur Blöndal
i
Ásgeir Þór Árnason
Ástráður Haraldsson
Jón Magnússon
Sveinn $norrasor
Gunnlaugur Þórð irson
Hanna Dóra Sturludóttir heldur Ijóðatónleika í Hafnarborg á sunnudags-
kvöld. DV-mynd GVA
Ljóðatónleikar í Hafnarborg:
Fannst kominn tími á mig
- segir Hanna Dóra Sturludóttir
„Ég hef aldrei sungiö ein á tónleik-
um áður en hef tekið þátt í fjölda
óperuuppfærslna og sungið mikið
með öðrum. Fólk hefur verið að
pressa á mig og spyrja hvenær ég
komi heim og hvenær það fái aö
heyra í mér og mér fannst vera kom-
inn tími á mig,“ sagði Hanna Dóra
Sturludóttir, ung söngkona sem er í
söngnámi í Berlín í Þýskalandi.
Hanna Dóra er hér heima í fimm
vikur í sumar og ætlar að halda tón-
leika í Hafnarborg í Hafnarfirði á
sunnudagskvöld klukkan 20.30. Und-
irleikari hennar á píanó er Hólmfríð-
ur Sigurðardóttir.
Hanna Dóra Sturludóttir fór til
Berlínar eftir að hafa lokið 8. stigi frá
Söngskólanum í Reykjavík árið 1992
með hæstu einkunn og hefur nú ver-
ið þar í tvö ár. Hún segir námiö hafa
gengið framar öllum vonum, hún
hafi náð góðu sambandi við kennar-
ann og reiknar með að klára þau tvö
ár sem hún á eftir í útskrift.
„Ég hef verið heppin því mér hafa
verið boðin ýmis spennandi verkefni
þarna úti, t.d. söng ég hlutverk Pam-
inu í Töfraflautunni í sumar og í
framhaldi af því var mér boðið að
syngja óperuprógramm í Kammer-
salnum í Fílharmoníunni í Berlín.
Það verður mjög spennandi því um
er að ræða eitt glæsilegasta og besta
tónleikahús í Berlín."
Hanna Dóra segist ætla aö reyna
fyrir sér erlendis að námi loknu, hér
heima verði söngvarar að vera í öllu
til þess að geta lifaö eingöngu á
söngnum. Kennsla komi vel til
greina þegar fram liði stundir.
Á dagskrá tónleikanna á sunnu-
dagskvöldið er að finna lög eftir
Franz Schubert, Richard Strauss,
Alban Berg og íslensku höfundana
Jón Ásgeirsson og Sigvalda Kalda-
lóns.
Greinilega margt spennandi að gerast
- segir Ögmundur Jónassson, formaður BSRB, eftir fund með Jóhönnu Sigurðardóttur
„Það er rétt að Jóhanna Sigurð-
ardóttir hefur rætt viö mig, eins og
raunar fólk úr öðrum flokkum
einnig. Og umræðuefnið er hvort
flötur sé á því að fólk sem vill fylkja
sér saman um hugsjónir jafnaðar-
mennskunnar geti staöið saman að
framboði í komandi alþingiskosn-
ingum. Það er hins vegar ekki rétt
aö ég hafi verið í einhverri bak-
varðasveit Jóhönnu, eins og haldið
hefur verið fram. Bæði Jóhanna
og aðrir sem við mig hafa rætt leit-
uöu til mín en ég ekki til þeirra,"
sagði Ögmundur Jónasson, for-
maður BSRB, í samtah við DV.
Ögmundur sagði að mikil geijun
væri nú í pólitíkinni á vinstri væng
stjórnmálanna. En hvort eitthvaö
kæmi út úr vdðræöum fólks um
sameiningu jafnaðarmanna væri
annað mál.
Ögmundur sagði að vissulega
væri nauðsyn á uppstokkun í ís-
lenska flokkakerfinu. Það væri nú
greinilega margt spennandi að ger-
ast í íslensku stjórnmálalífi, m.a. í
kjölfar þeirrar ferðar sem Jóhanna
Sigurðardóttir hefur tekið sér fyrir
hendur..
„Ég tel nauðsynlegt að mynda
öfluga hreyfingu jafnaðarmanna á
íslanöi. Vonandi eigum vdð Jó-
hanna eftir að verða samheijar í
þeirri framtíðarhreyfingu ásamt
þúsundum annarra landsmanna,“
sagði Ögmundur Jónasson.