Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1994
13
Unnið er að þvi að merkja og skrá bækur úr Lands- og Háskólabókasafni
í kjallara Þjóðarbókhlöðunnar. Hér má sjá Laufeyju Einarsdóttur leggja sitf
af mörkum svo takist að taka húsið i notkun 1. desember eins og allt bendir
til að verði raunin. DV-mynd JAK
Áskrifendur DV fá
10% aukaafslátt af
smáauglýsingum
wwwv
Þverholti 11 -105 Reykjavík
Sími 632700 - Bréfasími 632727
Græni síminn: 99-6272
(fyrir landsbyggðina)
OPIÐ:
Virka daga kl. 9-22
Laugardaga kl. 9-16
Sunnudaga kl. 18-22
Athugið!
Smáauglýsingar í helgarblað
DV verða að berast fyrir
kl. 17 á föstudögum.
AUGLYSINGAR
Þjóðarbókhlaðan við Suðurgötu:
Fréttir
Skemmdarverk
ásundlaug
Skemmdarverk voru unnin á
sundlauginni á Þórshöfn í fyrri-
nótt. Svokallað felliefni, sem þarf
að liggja yfir nótt í lauginni, hafði
verið sett í hana í fyrrakvöld til
að hreinsa hana. Einhverjir
óprúttnir náungar rifu hins vegar
gat á plastyfirbreiðsiu í fyrrinótt
og köstuðu stiga í laugina þannig
að hún var lokuð í gær.
SVARJISVANURINN
Laugavegi 118
Nætursala um helgar
Ágústtilboð
Pylsa
+
Vz I kókdós
kr. 150
Unnið af kappi við f lutninga
- allt útiit fyrir að flutt verði inn 1. desember
„Málin standa svo núna að það er
vel á veg komið að flytja bækur í
kjallara hússins. Mest eru þetta rit
úr geymslum Háskólabókasafnsins
og Landsbókasafnsins sem verið
hafa til húsa víðs vegar,“ segir Þórir
Ragnarsson, starfandi háskólabóka-
vörður, um flutning nefndra bóka-
safna í húsnæði Þjóðarbókhlöðunnar
sem stendur við Suðurgötu.
Áætlun gerir ráð fyrir að húsið
verði tekið í .notkun í desemeber.
Segir Þórir að í kjallaranum sé gert
ráð fyrir að 575 þúsund bindi af bók-
um komist fyrir og er áætiað að lok-
ið verði við að koma bókum fyrir þar
og skrá þær á næstu vikum.
„Samkvæmt þeim áætlunum, sem
unnið er eftir, er stefnt að því að
opna safnið 1. desember, ennþá
stendur sú áætlun," segir Þórir.
Útboð á innréttingum og bókahill-
um hafa farið fram en enn á eftir að
koma fyrir öllum búnaði, tölvukerfi
og fleiru.
Framtíð Safnahússins
Samkvæmt upplýsingum DV hefur
engin ákvörðun verið tekin um fram-
tíð Safnahússins við Hverfisgötu en
Landsbókasafnið hefur haft 60% þess
húsnæðis til umráða og Þjóðskjala-
safnið 40%. Þó hefur verið rætt um
að Árnastofnun fái húsnæðið undir
sína starfsemi.
Finnbogi Á. Guðmundsson lands-
bókavörður sagði þó í samtali við
DV að þar á bæ sæktust menn eftir
að hafa áframhaldandi aðstöðu í hús-
inu, að minnsta kosti þar til því yrði
ráðstafað. Hefðu menn þá í huga að
hafa þar varaeintök bóka og skjala
og fleira.
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörð-
ur sagði ljóst að á meðan ekki væri
enn búið að ljúka framkvæmdum við
framtíðarhúsnæði safnsins við
Laugaveg væri ljóst að Þjóðskjala-
safnið færi ekki úr þeim hluta húss-
ins sem það hefði yfir að ráða. Árið
1971 hefði safninu verið lofað húsinu
að öUu leyti en ekki hefði verið rætt
um aö fá stjómvöld til aö standa við
það.
Engin ákvörðun hefur heldur verið
tekin um það húsnæði sem Háskóla-
bókasafn er í í aðalbyggingu Háskól-
ans. Málið er í höndum arkitekts
Háskólans og er mál manna að
stjórnsýslusvið skólans renni hýru
auga til þeirra fermetra sem losna
við flutning Háskólabókasafns í
Þjóðarbókhlöðu.
/ Allar nánari upplýsingar færðu hjá skrif
stofu Ferðaþjónustu bænda.
44
Ferðaþjónusta bænda
Sími 91-62 36 40, 91-62 36 43. Fax 91-623644
)> Ferðaþjónusta bænda býður góða sumar-
bústaði um allt land. Eigum lausa bústaði
í ágúst.
Skýrsla menntastefnunefhdar:
Raða þarf málum
í f organgsröð
- segir Elna Katrín Jónsdóttir, formaöur HÍK
„Fyrir það fyrsta þá fagna ég því
að skólamál fái mikla og ítarlega
umfjöllun. Að ööru leytí. eru viðbrögð
mín við þessari skýrslu þau að mér
finnst að það hefði mátt raða málum
enn frekar eftir forgangsröð og mér
finnst hún vera seint á ferðinni. Hún
er búin að vera lengi í smíðum og
mörg þeirra atriða sem íjallað er um
eru í raun sjálfsögð stefnumál sem
hafa verið tii umræðu svo árum
skiptir og ættu fyrir löngu að vera
komin til framkvæmda," sagði Elna
Katrín Jónsdóttir, formaður Hins ís-
lenska kennarfélgs, aðspurð um við-
brög hennar viö skýrslu mennta-
stefnunefndar sem sagt var frá í DV
í gær.
Elna segir sjálfsagt að taka undir
mál á borð við endurskoðaða nám-
skrá og endurskoðað námsefni, ein-
setinn skóla og eflingu kennara-
menntunar sem hún segir vera stór
forgangsmál.
„Hins vegar get ég nefnt mál sem
mér finnst ekki vera forgangsmál,
mál eins og lengingu skólans í einu.
stökki upp í tíu mánuði eða það að
fækka námsárum í framhaldsskól-
anum úr fjórum árum í þrjú. Síöast
en ekki síst get ég nefnt hina miklu
íjölgun samræmdra prófa sem fyrir-
huguð er. Með því er ég ekki að segja
að ég sé tilbúin að taka afstöðu með
eða á móti slíkum prófum, heldur
vegna þess að þau eru kostnaðarsöm
og umdeild og meðan menn hafa ekki
komið 'sér saman um hvernig
markmið og starf í skólum á að líta
út þá finnst mér ekki liggja svo mik-
ið á aö bæta við þessum fjölda sam-
ræmdra prófa," sagöi Elna Katrín og
bætti við að mikið vanti upp á að þau
lög sem í gildi eru um grunn- og
framhaldsskóla séu framkvæmd.
Elna segir að margt af því sem ver-
ið sé að brydda upp á í skýrslu
menntastefnunefndar séu atriði sem
fyrir löngu hefðu átt að vera komin
til framkvæmda samkvæmt gildandi
lögum.